Norðurslóð - 25.01.1980, Blaðsíða 5

Norðurslóð - 25.01.1980, Blaðsíða 5
Svör við gátum Oss til mikillar ánægju reyndist mikill áhugi og þátttaka í þrautum þeim, sem lagðar voru fyrir háttvirta lesendur jólablaðsins. Skal nú gerð grein fyrir úrslitum í stuttu máli. 1. Krossgátan. Fjölmargir sendu lausnir og yfirleitt allar alveg réttar. Það telst rétt ef lausnarvísan er rétt, en hún var svona: Er fósturjörðin felur sig í hrími og frostrósirnar eini gróðurinn, mér dettur oft í hug sá dásamlegi tími er dvaldi ég í Paradís um sinn. Eftirtaldir sendu réttar lausnir: Gunnar Friðriksson Dalvík, Valgerður Pálsdóttir Reykjavík, Erna Kristjánsdóttir Hnjúki, Ásta S. Guðnadóttir Dalvík, Margrét Elfa Jónsdóttir Akureyri, Svanhildur Karlsdóttir Hóli, Steinunn Davíðsdóttir Akureyri, Guðfinna Þorláksdóttir Vogum Mývatns- sveit, Dagbjört Ásgrímsdóttir Dalvík, GuðríðurÓlafsdóttirDalvík, Elínborg og Sigurjón Syðra-Hvarfi, Anna Dóra Hermannsdóttir Klængshóli, Inga Reynisdóttir Skáiatúni Mosfellssveit, Gunnar Árnason Reykjavík, Sigrún Dagbjartsdóttir Seldal Norðfirði, Sveinn Sigurðsson Svalb. Dalvík, Gerður Jónsdóttir Miðtúni, Steinunn Daníelsdóttir Dalvík, Hallgerður Gísladóttir Reykjavík, Jóna og Stefán Snævarr Dalvík. Norðurslóð ætlar að veita tvenn bókarverðlaun fyrir réttar lausnir. Hér verður hlutkesti að ráða og upp koma nr. 3 og 7, sem eru Erna Kristjánsdóttir á Hnjúki, sem fær bókina Fjallabæjafólk eftir Einar Kristjánsson og Steinunn Davíðsdóttir Vanabyggð 13 Akureyri, sem fær senda bókina Punktar í mynd eftir Kristján frá Djúpalæk. Barnakrossgátan. Ein lausn bamakrossgátunnar var send ritstjóminni. Það gerði Anna Sólveig Sigurjónsdóttir á Syðra-Hvarfi. Þó að engum verð- iaunum væri heitið ætlar blaðið að heiðra önnu fyrir ómakið og senda henni bókina Stroku-Palli eftir Indriða Úlfsson. Frú Steinunni P. Hafstað á Laugasteini þökkum við fyrir skemmtilegar krossgátur og öllum öðmm fyrir þátttökuna. 2. Ljóðagetraun. Rétt svör við spurningunum 20 em á þessa leið (feitletrað): 1. Hjörtum mannanna svipar saman / í Súdan og Grimsnesinu. Tómas Guðmundsson. 2. Það er ei hollt að hafa ból / hefðar uppi á jökultindi. Bjarni Thorarensen. 3. Nú fellur heitur haddur þinn / á hvíta jökulkinn. Páll Ólafsson. 4. Hanna litla á alla tíð / konungsríki í hverju hjarta, hún er drottning ár og síð. Tómas Guðmundsson. 5. Þessi spurning virðist hafa verið á misskilningi byggð og er ógerlegt að svara henni rétt. Þátttakendur í getrauninni eru beðnir að gleyma því, að hún var nókkurn tímann borin fram. 6. Nú er hún Snorrabúð stekkur / og lyngið-á Lögbergi helga, Jónas Hallgrimsson. 7. Kveldúlfur er kominn í / kerlinguna mína. Sveinbjörn Egilsson. 8. Hárauð bönd um hár á sér / hreinar vefja píkur. Sigurður Breiðljörð. 9. Eg hef selt hann yngra Rauð / er því sjaldan glaður. Páll Ólafsson. 10. Er ég kom heim frá Sigöldu / meyjarnar mig völdu, til þess að stjórna sínum draumum. Þorsteinn Eggertsson (Heim í Búðardal). 11. Það voru hljóðir, hógværir menn / sem héldu til Reykjavíkur. Einar Benediktsson. 12. Teygist hinn myrki Múli fram / mynnist við boðaföllin. Jón Helgason. 13. Bókfellið velkist og stafirnir fyrnast og fúna, Fellur í gleymsku það orð, sem er lifandi núna. Jón Helgason. 14. Hrykki ei til að hýða þig / Hallormsstaðaskógur. Páll Ólafsson. 15. Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt, sem dropi breytir veig heillar skálar. Einar Benediktsson. 16. Sjá dagar koma, ár og aldir líða / og enginn stöðvar tímans þunga nið. Davíð Stefánsson. 17. Vodka - brennivín - Þetta er drykkur sem þrælum hæfir. Davíð Stefánsson. 18. Hún hefur gefið mér hörpudisk / fyrir að yrkja um sig bögu. Jónas Hallgrímsson. 19. Skeiðfráir jóar hverfa fram að fljóti / Kolskeggur starir fram á Eyjasund: Jónas Hallgrímsson. 20. Sjá, hin ungborna tíð / vekur storma og stríð. Einar Benediktsson. Eftirtaldir sendu lausnir á ljóðagetrauninni: Jóhann Daníelsson Dalvík, 19 rétt svör. Jóna og Stefán Snævarr Dalvík, 19 rétt svör. Pálmi Jóhannsson Dalvík, 19 rétt. Steinunn Daníelsdóttir Dalvík, 19 rétt. Steinunn og Árni Rögnvaldsson Akureyri, 18 rétt. Sigrún Gísladóttir Seldal Norðfirði, 17 rétt. Jónína Kristjánsdóttir Klængshóli Skíðadal, 19 rétt. Kristján Þórhallsson Dalvík, 19 rétt. Pálmi Jóhannsson svaraði fram úr skarandi skilmerkilega með tilvísunum til Ijóða og höfunda. Auk þess skrifaði hann neðanmáls: Ég lærði í æsku vísu, sem gæti átt við spurningu nr. 7, en ekki veit ég um tildrög hennar né höfund. Vísuna lærði ég þannig: Kveldúlfur er kominn í Gvönd, konurnar vöku herða. Stírur í augum, stirðnar hönd, stafirnir skakkir verða. Fyrir þetta fær Pálmi Jóhannson 1. verðlaun og verður honum send ljóðabókin Gagnvegir eftir Rósberg G. Snædal. Hinir verða að láta sér nægja heiðurinn og ánægjuna og þakkar blaðið þeim öllum mjög vel fyrir að taka þátt í leiknum. Bókaútgáfan Skjaldborg á Akureyri lagði verðlaunabækurnar fram, sem gjöf til blaðsins. Hitaveita Dalvíkur stofnkostnaður hitaveitunnar nam 26.3 millj. króna en varð að meðtöldum þeim borunum sem fram hafa farið verulega haerri. Hinn 19. júní 1969 boðaði hreppsnefnd Dalvíkurhrepps til almenns fundar um hitaveitu- mál og var hann all vel sóttur. Þar var svohljóðandi ályktun samþykkt samhljóða: „Almennur fundur haldinn á Dalvík fimmtudaginn 19. júní 1969 um hitaveitumál hvetur eindregið til að framkvæmdir við hitaveitu á Dalvík verði hafnar strax og nægilegt fjár- magn er tryggt og nauðsynlegur undirbúningur hefur farið fram.“ Síðar í sama mánuði var kos- in sérstök hitaveitunefnd og voru í hana kosnir eftirtaldir: Hilmar Daníelsson Jóhannes Haraldsson Þórir Stefánsson Síðar var fjölgað í hitaveitu- nefnd í 5 og er hún þannig skip- uð í dag: Hilmar Daníelsson, form. . Þórir Stefánsson Birnir Jónsson Kristinn Jónsson Jónas Hallgrímsson Framkvæmdir hófust um sumarið undir verkstjórn Þóris Stefánssonar og á haustdögum 1969 voru fyrstu húsin tengd veitunni. Hér að framan hefur verið stiklað á stóru í sögu þessa ágæta fyrirtækis sem Hitaveita Dalvíkur vissulega er og mörgu sleppt, sem þess virði væri að Stofnæðin lögð i Sandiqum. nefna. Um reksturinn þau 10 ár sem hún hefur starfað verður ekki farið mörgum orðum, en ýmsir erfiðleikar hafa þar orðið á vegi. Vatnsskortur hrjáði Hitaveituna um árabil og hafði í för með sér dýrar jarðboranir og mikla óvissu um möguleika á vatnssölu. Hafa nú verið borað- ar 10 holur og heildar dýpt þeirra um 3700 metrar. Tvær af þessum holum, hola 10 og 9 eru nýttar til vatnsöflunar en aðrar hafa reynst lítt eða ekki not- hæfar. Eins og ég sagði í upphafi var síðastliðið ár mikið fram- kvæmdaár hjá Hitaveitunni. Voru þá lagðir um 4900 metrar af dreifikerfi og dreifbýlið sunn- an og norðan kaupstaðarins að mestu tengt dreifikerfi hitaveit- unnar. Er nú einungis ólokið tengingu 4 húsa norðan kaup- staðarins auk Háls og Ytra- Holts. Hafa verkfræðingar nú til athugunar hvort möguleiki sé Bændur og búalið ZETOR ZETOR 4911, 47 ha. ZETOR 6911, 70 ha. ZETOR 6945, 70 ha. með framdrifi Allar gerðirnar fyrirliggjandi hjá aðalumboði. Verðið er ótrúlega Iðgt. á lagningu í þau hús. Ennfremur var settur upp annar miðlunar- tankur að Hamri og leitað verð- tilboða í nýja og stærri dælu ásamt rafmótor en það sem nú er notað er fullnýtt. Stofnkostnaður við dreifi- kerfi og miðlunartank á árinu mun vera rúml. 50 milljónir kr. í dag selur hitaveitan um 36 ltr/sek af vatni til um 360 not- enda og eru heildar tekjur um 84 millj. á núverandi verði. Við Hitaveitunni blasa næg verk- efni í náinni framtíð, þarsem nú þarf að fara að huga að endur- nýjun á þeim hluta dreifikerfis- ins sem er úr asbestpípum en gera má ráð fyrir að endingar- tími þeira sé verulega miklu styttri en stálpípa. Er þetta mjög kostnaðarsamt og verður því að hafa vakandi auga með því að tekjur Hitaveitunnar fylgi sem næst þeirri verðlagsþróun sem í landinu er. Ennfremur tel ég að í framtíðinni þurfi að huga að djúpborun að Hamri með það fyrir augum að reyna að fá heit- ara vatn og gætu þá skapast enn auknir möguleikar til stækkun- ar dreifikerfisins og notkunar vatnsins til iðnaðar og fisk- eldis, en þetta heyrir framtíð- inni til. Með núverandi að- stæðum í vatnsöflun er þó séð fyrir nægilegu vatni til notkunar við hitun í kaaipstaðnum í náinni framtíð. Frá stofnun Hitaveitunnar hefur Þórir Stefánsson gegnt starfi hita- veitustjóra og sinnt því af alúð og kostgæfni. Hilmar Daníelsson. ZETOR 6945 ZETOR 6911 önnumst sölu á öllum landbúnaðartækjum frá GLÓBUS HF. Lítið inn og fáið nánari upplýsingar. Varahluta og viðgerðaþjónusta. DRAGI SF. Fjölnisgötu 2a - Akureyri - Sími 22466 NORÐURSLÓÐ - 5

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.