Norðurslóð - 26.09.1980, Blaðsíða 3

Norðurslóð - 26.09.1980, Blaðsíða 3
Margrét Amadóttir Kveðjuorð jarðstrengnum, sem um dalinn liggur í gegnum hvers manns landareign. Það gerir auðvitað enginn viljandi, en stundum eru menn gleymnir og gálausir og þá gerast slysin. H. E. Þ. Símamenn utan við Víkuröst. SJÁLFVIRKUR SIMI Hinsta lausnin Það hefur varla farið framhjá neinum, sem um Svarfaðardal hafa farið í sumar, að unnið hefur verið að nýrri símalögn í dalnum, saman-ber einnig frá- sögn í síðasta blaði fyrir sumar- frí. Nú er verkinu lokið og vinnuflokkurinn farinn heim. Þriðjudaginn 9. sept. veitti Landsíminn þessum mönnum, sem voru frá Húsavík, kveðju- og skilnaðarmáltíð í Víkurröst á Dalvík. Gestgjafar fyrir hönd símans voru umdæmisstjórinn á Akureyri, Ársæll Magnússon, umdæmistæknifræpingur Gylfi Már Jónsson (Árnason frá Þverá) og stöðvarstjórinn á Dalvík Þorgils Sigurðsson. Enn fremur var þar boðinn oddviti Svarfaðardalshrepps svo og blaðamaður Norðurslóðar. Yfir borðum flutti umdæmis- stjóri stutta ræðu og gerði grein fyrir aðdraganda og fram- kvæmd þessa verks og er eftir- farandi hrafl úr þeim upplýsing- um, sem fram komu. Framkvæmdin. Verkið við sjálfa símalögnina hófst í júlíbyrjun. Verkstjóri var Jón Kjartansson. Að sögn um- dæmisstjóra hefur verkið unnist prýðisvel og vildi hann þakka það ágætri verkstjórn og harð- duglegum starfsmönnum. Enn- fremur reyndist dalurinn ágæt- lega fallinn til að plægja niður strenginn. Vegna alls þessa tók það skemmri tíma en áætlað var að ljúka verkinu og kostnaður- inn varð minni en búist var við. Lengd jarðstrengsins reyndist 56,5 km. auk heimtauga. Kostn- aður við þetta verk varð rétt um 90 milljónir. Samtímis var sím- stöðin á Dalvík ,,stækkuð“ og i hana bætt 100 númerum þ.e. 60 í sveitinni og 40, sem bætast við á Dalvík. Kostnaður við þetta verk varð um 30 milljónir. Það unnu menn frá Akureyri undir stjórn Sigmars Jóhannssonar. Sem sagt varð heildarkostn- aðurinn um kr. 120 milljónir og þótti engum mikið. Mikil framför. Það kom fram í máli um- dæmisstjóra, að í sveitunum i umdæminu, sem er Norðlendr ingafjórðungur, eru nú 800 númer komin í sjálfvirka kerfið af 1800 númerum alls. Á sumum svæðum utan sjálfvirka kerfis- ins hafa símnotendur þó heils- sólarhrings þjónustu í gegnum stöðvar í stóru bæjunum t.d. Akureyri. Engum blandast hugur um að hér er um mikla framför að ræða hvað hagræðið snertir. Annað mál er það, að ko'stnað- urinn kann að hækka hjá ýmsum, ef ekki er að gætt. Ástæða er til að minna menn á það, sem raunar er hægt að lesa um í símskránni, að helmingi ódýrara er að tala langlínusam- tal á kvöldin, nóttunni og um helgar heldur en á öðrum tímum. Nánar til tekið á milli 7 á kvöldin og 8 á morgnana, en frá kl. 3 á laugardag til kl. 8 á mánudagsmorgun. Eftir sem áður er hægt að hringja í 61111 og panta númer og ákveðna persónu í gegnum miðstöð. Það er tryggara, ef búast má við að langan tíma taki að ná í manninn, en það kostar aukalega þjónustu- og kvaðningargjald, einar 800 krónur. Samband við allan heim. Áfram verður unnið að út- færslu sjálfvirka símakerfisins, sagði umdæmisstjóri. Hraðinn fer eftir fjárhagsgetu Land- símans, sem ekkert fé fær úr ríkissjóði, en fjármagnar allar framkvæmdir af eigin gjaldskrá. Bráðlega kemst jarðstöðin Skyggnir við Úlfarsá í gagnið og verður þá auðvelt að tala strax beint við Evrópulönd. Ennfrem ur er á döfinni að skjóta upp stórum og fullkomnum fjar- skiptahnetti, sem eingöngu á að þjóna símsambandi um heim- inn. Hann á að vera eign alþjóðafélags, sem ísland verð- ur aðili að, og verður staðsettur í 35 km. hæð yfir miðbaug. Þegar hann er kominn í gagnið getur símnotandi í Svarfaðar- dal tekið upp símtólið óg hringt í vin sinn á Nýja Sjálandi svo dæmi sé tekið. Gott samstarf við heimamenn. Umdæmisstjóri, Ársæll Magnússon, kvað samstarf við heimamenn hér í sveit og á Dalvík hafa verið með ágætum. Sama sagði Jón verkstjóri, sem gjarnan vildi koma á framfæri sérlegu þakklæti til ráðskonu hópsins á Húsabakka, en það var Valborg Sigurjónsdóttir fyrrverandi skólastjórafrú. Að loknu máli umdæmis- stjóra töluðu Halldór Jónsson oddviti og Þorgils stöðvarstjóri á Dalvík og luku báðir lofsorði á störf símamanna hér í hérað- inu og þökkuðu öllum hlut- aðeigandi þátt þeirra í, að þessum lokaáfanga í símamál- um Svarfdælinga er nú náð. Full ástæða er til að taka undir þessi þakkarorð og koma um leið á framfæri þeim frómu tilmælum, sem einhver bar fram, að nú ættu allir sem einn að gæta sín að vinna ekki tjón á Með línum þessum vildi ég færa föðursystur minni, Margréti Árnadóttur frá Klængshóli, mínar bestu þakkir fyrir við- kynningu alla og ekki síst fyrir síðustu 12 árin sem hún dvaldi í næsta húsi við mig á Dalvík. Við erum bæði fædd á Atlastöðum í Svarfaðardal, en aldursmunur var 14 ár, því man ég ekki eftir þegar hún giftist eftirlifandi manni sínum Krist- jáni Halldórssyni. Þau settu saman þeimili í Skíðadal og var því heimili okkar sitt í hvorum sveitarhluta. Það var ekki fyrr en við vorum flutt til Dalvíkur að lokinni mestu lífsönninni, að tími og tækifæri gafst að talast við. í samtölum okkar kom oftast að þvi að ég spurði um ættmenn okkar beggja. Fékk ég við því greið svör, því hún var minnug vel á liðna tímann. Þakklátastur er ég henni fyrir greina góða lýsingu á foreldrum mínum, er þau voru á æsku- skeiði og óskemmd af þrenging- um lífsins. Fólki því sem fætt er fyrir aldamót fer nú óðum fækkandi í Svarfaðardal. Starfsferill þess var ekki neinn sælutími séð frá nútíma kröfum til lífsins. Hand- verkfæri voru þeirra einu tæki til sjávar og sveita. Verðhrun gekk yfir þjóðina upp úr fyrri heimstyrjöld með örlagaríkum afleiðingum. Síðan skall krepp- an yfir sem segja má að hafi staðið frá 1930 og fram að síðasta stríði. Hann var því ekki áfallalaus búskapur þeirra Margrétar og Kristjáns, en það er stærri saga en sögð verði í örfáum línum. Hörð var barátt- an, en aldrei var gefist upp og sigurinn var þrátt fyrir allt sjö uppkomnar dætur. Stefán Björnsson. Aðalfundur Umf. Svarfdæla Aðalfundur félagsins var hald- inn i kaffistofu K.E.A.D. þann 21. 08. ’80. Komu sautján manns á fundinn og voru allir sammála um að stórtátak þyrfti að gera, til eflingar ungmenna- félagsins. Ótal tillögur og ábend ingar komu fram til þess að starfsemin mætti ná til sem flestra og er stjórnin með þær í athugun. Félagið er frekar illa í stakk búið til nokkurra stór- átaka vegna mikilla skulda, sem safn’ast hafa saman hin síðari ár. En með hæfilegum skammti af bjartsýni og góðri hjálp frá bænum vonumst við til að geta náð endum saman íjárhagslega eftir eitt starfsár. Ungmennafélagið nýtur styrkjar frá bænum, sem óneit- anlega gerir því auðveldara að halda starfséminni gangandi. Styrkurinn sem slíkur, nægir þó engan veginn til að leysa öll fjárhagsvandræði U.M.F.S., því hefur ungmennafélagið tek- ið að sér stórt og mikið verkefni, sem er að sjá um sorphreins- un. í því sambandi viljum við færa sérstakar þakkir til allra Fiskvinnslustöðva hér á Dalvík sem hafa lánað ung- mennafélaginu vörubifreiðar sínar endurgjaldslaust. I sam- bandi við mönnunina við sorp- hreinsunina vonum við að allir sem hlynntir eru ungmenna- félaginu verði jákvæðir þegar til þeirra verður leitað um aðstoð, svo að sorpvinnan lendi ekki alltaf á sömu mönnunum. Sem lokaorð í sorpmálum biðjumst við velvirðingar á þeim smá- óhöppum, sem orðið hafa við hreinsunina. Starf stjórnar. Starf nýkjörinnar stjórnar snýst um að skipuleggja vetrar- starfið, þó hefur starfsemin byrjað nú þegar. Ungmennafélagið Austri Eskifirði, endurgalt heimsókn U.M.F.S. til Eskifjarðar í fyrra- sumar, með því að koma í heimsókn síðustu helgina í ágúst, með tvö lið í handknatt- leik. Á laugardaginn 29. ágúst var keppt í kvenna og karla- flokki, en daginn eftir í karla- flokki. í kvennaleiknum sigr- uðu Austra-stúlkur 8-7 eftir spennandi leik og komu stúlk- urnar héðan á óvart með góðri frammistöðu. Hjá körlunum sigruðu Svarfdælir örugglega 20-14 í fyrri leiknum, en sýndu óþarflega mikla kurteisi í seinni leiknum með því „að leyfa“ gestunum að vinna 14-13. Má segja að heimsókn þessi hafi heppnast nokkuð vel og von- andi verður áframhald á sam- skiptum U.M.F.S. og Austra í framtíðinni. Stjórnin lét ekki þar við sitja, heldur hélt frjálsíþróttamót fyrstu helgina í september. Þátt- takendur voru þeir krakkar, sem sóttu námskeið, sem íþrótta- og Æskulýðsráð Dal- víkur sá um. Þetta mót heppn- aðist vel, en þó hefði verið meira gaman ef fleiri foreldrar hefðu mætt og hvatt börn sín í keppninni. Á þessu móti voru veitt ein verðlaun í hverjum aldurshóp (3 aldurshópar), sem skiptist aftur i stúlkur og drengi í hverri grein, svo að mörg börn fengu verðlaunapening, og önn- ur voru ekki langt frá að krækja sér í verðlaun, en verða aðeins að bæta sig fyrir næstu keppni. Allir krakkar fengu viðurkenn- ingarspjald fyrir þátttöku sína í mótinu. Fyrirkomulag keppn- innar var þannig, að hvert barn tók þátt í fjórum greinum alls, ekki fleiri, þrír krakkar unnu allar þessar fjórar greinar í sínum aldursflokk. Þau eru: Hákon Stefánsson, Andrea Gunnlaugsdóttir og Sverrir Björgvinsson. Nánari úrslit verða birt síðar. Ú.K.E. Dalvík gaf ungmennafélaginu bikar til ráðstöfunar, sem gefinn er sem afreksbikar U.M.F.S. Þótti stjórninni tilhlýðilegt að af- henda stigahæsta einstaklingi mótsins bikarinn, um var að velja þau þrjú sem unnu allar sínar keppnir. Þá varð að velja besta afrekið og var niðurstað- an sú að Sverrir Björgvinsson skyídi hafa bikarinn í sinni vörslu i eitt ár fyrir afrek sitt í 60 m. hlaupi. Tíminn var 9,6 sek. Þakkar stjórnin öllum þeim sem aðstoðuðu á einn eða annan hátt, við framkvæmd mótsins. Vetrarstarf. Eins og áður sagði, er stjórnin að skipuleggja vetrarstarfið, en það mun varla ligja ljóst fyrir fyrr en skólarnir byrja af krafti og íþróttahúsið opnar. Verður allt starf U.M.F.S. auglýst síðar og er fólk hvatt til að gefa sér tíma til að stunda einhverja heilsubót, því vissu- lega er það markmið stjórnar- innar að ná til sem flestra með starfi sínu. Má þar nefna t.d. frúarleikfimi og badminton- tíma. Árgjald. Árgjald U.M.F.S. er aðeins 5000 kr. fyrir meðlim eldri en 16 ára, en kr. 3000 fyrir þá sem eru undir 16 ára aldri. Með kveðju, stjórn U.M.F.S. Ungmennafélagar salta síld. Eflið héraðsblaðið Auglýsið l Norðurslóð NORÐURSLÓÐ - 3

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.