Norðurslóð - 26.09.1980, Page 5

Norðurslóð - 26.09.1980, Page 5
Skólastarfið á Dalvík Framhald af forsíðu. ara við Dalvíkurbæ. Móðir hennar er Þórunn Franz, lands- þekktur hannyrðakerinari. En gefum nú Trausta aftur orðið: - Eins og kunnugt er hurfu 3 kennarar á braut í lok síðasta skólaárs, þeir Jónfinn Jóensen, Óttarr Proppé og Björgvin Björgvinsson. Sæmundur Andersen fer á þessu hausti í árs- leyfi og auk þess má nefna að Guðbjörg Antonsdóttir, Guð- jón Brjánsson og fleiri stunda- kennarar frá í fyrra hafa látið af störfum. - Sú nýbreytni verður í vetur að ritari verður í hálfu starfi á skrifstofu skólans og hefur Rósa Þorgilsdóttir verið ráðin til þess. Aldrei fyrr hafa svo margir' kennarar verið settir í stöður við skólann, má segja að fullráðið sé í „kvótann“. Ástæðan er auðvitað fjölgun nemenda á síðustu árum. Hvað er frétta af „nýja skól- anum“ sem svo margir hafa rennt hýru auga til undanfarið? - Því miður fengu áform okkar um að taka nýja skóla- húsnæðið í notkun á þessu hausti ekki staðist, en okkur er nú mjög þröngur stakkur snið- inn í húsnæðismálum. Því var brugðið á það ráð að leita út fyrir bæjarmörkin eftir kennslu- húsnæði. Ákveðið hefur verið að aka tveimur bekkjadeildum fram í Húsabakkaskóla, en þar er húsnæði aflögu. Að hluta til verður mögulegt að samræma akstur nemenda héðan og þeirra sem við fáum frá Húsa- bakka og áður er getið. Auk þessarar nýbreytni verð- ur kennt í Skátahúsinu og í lítilli stofu í Víkurröst, en setustofa heimavistar verður ekki nýtt til kennslu í vetur. Er það í fyrsta sinn sem íbúar heimavistarinnar fá afnot af setustofunni sem slíkri. Hve margir nemendur verða nú í heimavistinni? - Þar verða samtals 125 nemendur í dag- og heimavist- un. Með dagvistun er átt við athvarf á daginn fyrir nemendur frá hinum skólUnum í þeim til- fellum sem um skólaakstur verður-að ræða. N ú hefur um skeið verið rekin framhaldsdeild við Dalvíkur- skóla. Verður svo í vetur? - Já, það verður gert. Hún mun hefja göngu sína 29. sept. og eru þar innritaðir 13 nem- endur. Gaman væri að geta þess að tekið hefur verið upp náið samstarf milli allra skóla á Norðurlandi sem starfrækja framhaldsdeildir. í því tilefni hefur menntamálaráðherra skipað samstarfshóp og eru í honum skólastjórar allra við- komandi skóla. Hefur. hópur þessi sent frá sér samræmda námsskrá um framhaldsnám á Norðurlandi. Með þessu móti á nemendum í frh. deildum smærri skólanna eins og á Dal- vík að vera tryggð áframhald- andi skólaganga, þar eð nám í slíkri deild á að geta gilt sem 1. bekkur í hvaða framhaldsskóla sem er og við tekur af grunn- skóla. Hefur verið miðað við að, fyrsta árið í frh. deild verði eins konar grunnám og er námið sett upp í einingakerfi og skólaárinu skipt í tvær annir á svipaðan hátt og gert er í fjölbrautarskól- um. Dalvíkurskóli var með fyrstu skólum á landinu til að gera til- raun með svokallaða sam- kennslu, eða opinn skóla. Hvers vegna var því hætt á sl. vetri? - Það má segja að húsnæðis- málin hafi hamlað okkur í að halda því áfram í bili. Við teljum Trausti Þorsteinsson okkur ekki fært að halda uppi slíkri kennslu við núverandi aðstæður, en með tilkomu nýja skólahússins gerum við okkur vonir um að geta jafnvel tekið þráðinn upp að nýju í þeim efnum. Ég hygg að hugmyndir ílestra kennara séu þær að slíkar kennsluaðferðir séu aðgengi- legri á margan hátt en hið hefðbundna, lokaða bekkjar- kerfi, - bæði fyrir nemendur og kennara. Nýja skólahúsið verð- ur sérlega vel sniðið til sam- kennslu, enda sniðið með það fyrir augum. Þar verður hægt að bjóða upp á mun meiri sveigjan- leika í kennsluháttum en í núverandi skólahúsi. Hversu stórt verður hið nýja skólahús og hvenær er áætlað að það verði tekið í notkun? - Ég vonast til að unnt verði að taka hluta þess í notkun síðar á þessu skólaári. Nú er í byggingu fyrsti áfangi A, sem er tveggja hæða að hluta, gunnflötur er 667 ferm en gólfflötur 855 ferm. Þarna rúmast fimm kennslustofur og bráðabirgðaaðstaða fyrir kenn- ara. Enn hefur aðaláherslan verið lögð á að ljúka frágangi tveggja kennslustofa, en vænt- anlega verður hægt að taka fleiri í notkun haustið 1981. Bygg- ingu á grunni og botnplötu annaðist Hallgrímur Antons- son, en síðan er verkið í höndum Tréverks hf. Heyrst hefur að áhugi sé meðal kennara og skólayfir- valda á að ráða fagstjóra. Hvað þýðir það fróma orð? Til Bæjarstjórnar Dalvíkur. Við nemendur 9. bekkjar Dal- víkurskóla höfum verið í um- ferðarfræðslu vikuna 22.-26. september. M.a. könnuðum við ástand umferðarmála á Dalvík og komumst að því, að ýmsu er ábótavant hvað snertir skipu- lagninu þeirra. Þær fram- kvæmdir sem við teljum mest aðkallandi eru eftirfarandi: 1. Nýtt hámarkshraðamerki með 50 km. innan við bæinn. 2. Gatnamótamerki á vestur- kanti norðan við hæðina við Sæland (á Gunnarsbraut). - Já, við höfum farið fram á það við bæjaryfirvöld að þau heimili ráðningu fagstjóra (ca 2 tíma á viku) í kjarnafögunum svonefndu, okkur hefur dottið í hug að byrja með móðurmál. Ef ég útskýri þetta nánar, má segja að fagstjóri sé sá kennari sem hefur yfirumsjón í ákveðinni kennslugrein allt frá 1. bekk og upp úr. Kennarastarfið er í raun mikið einstaklingsstarf og væri þetta tilraun til að samræma kennslu í sama faginu á öllum aldursstigum. Sem dæmi má nefna að móðurmálskennslu ,sinna, nú a.m.k. tólf kennarar við Dalvíkurskóla og er því auðsætt að samvinna þeirra á skipulögðum vinnufundum undir stjórn fagstjóra hlyti að verða til góðs með réttum vinnubrögðum. Dalvíkurskóli býr við sérstöðu á tvennan hátt: vegna húsnæðisvandans hittast margir kennarar lítið á daginn, og svo hitt að í efri deildunum tekur hann við nemendum frá þremur öðrum skólum. Þess má og geta að þessi hugmynd er á kreiki víða í skólum og hefur sums staðar verið gerð að veruleika við góðan orðstír. Áður en Norðurslóð kveður Trausta og þakkar fyrir sig, skjótum við að honum því sem Gróa á Leiti hvíslaði að okkur á milli bæja í gær: Er það satt að verið sé að kenna nemendum að hjóla í Dalvíkurskóla? - Á vissan hátt má e.t.v. orða það svo. Við höfum þessafyrstu viku í skólanum haldið uppi annars árlegri vettvangsfræðslu sem að þessu sinni fjallar um umferðamál. Þar höfum við fengið til liðs við okkur lögregl- una á staðnum auk Björns Mikaelssonar lögregluþjóns frá Akureyri. Börnin fá að sjálf- sögðu fræðslu um það m.a. hvernig góður hjólreiðamaður hegðar sér í umferðinni og hversu reiðhjól þarf að vera útbúið til að öryggi sé tryggt sem kostur er. Norðurslóð sækir hér með um skólavist í Dalvíkurskóla fyrir Gróu á Leiti, ætli henni veiti af að byrja í „núllbekk." Að lokum er nemendum og starfsliði skólans óskað alls velfarnaðar í starfi á nýbyrjuðu skólaári. Brynja. 3. Gangbraut við Mímisveg. 4. Steyptar gangstéttir með- fram helstu umferðargötum. 5. Merkingar á akbrautir, svo sem stöðvunarlínur við stans- merki. 6. Betri lýsing á götur sunnan Mímisvegar. Vonum við að bæjaryfirvöld sjái sóma sinn í því að ljúka þessum framkvæmdum sem fyrst og stuðla þannig að auknu öryggi bæjarbúa. Virðingarfyllst. Nemendur 9. bekkjar Dalvíkur- skóla. Björn Mikaelsson lögregluþjónn útskýrir umferðarreglur. Ljósm. T.Þ. Vinsamlegar ábendingar Nýju ábúendurnir í Syðra-Garðshorni. Nýstárlegnr búskapur Framhald af forsíðu. bílaumferð eins og t.d. Tung- urnar og allt svæðið norður frá Tunguréttinni og þar um slóðir. Sömuleiðis eru góðir reiðvegir fram með þjóðveginum á löng- um köflum. Reyndar hefur Síminn spillt þeim til muna nú í sumar með jarðsímalögninni og einkupt þó með merkistaurum, sem hafa verið reknir niður með vissu millibili, stundum beint ofan í reiðgötuna, svo stór- hættulegt er í myrkri. (Spurning er hvort ekki mætti færa þessa staura svolítið til símanum að meinalausu. Ath. Norðurslóð- ar). Auk alls þessa finnst okkur vera miklu meiri ró og næði til að stunda hér tamningastörf heldur en var t.d. inn við Akureyri, þar sem alltaf voru einhverjir að koma og forvitnast um hvað við værum að aðhafast og trufla okkur þannig við störfin. Og hverskonar starfsemi er þetta þá, sem þið stundið? Þetta er fyrst og fremst tamningarstarf. Við gerum það á tvennan hátt. í fyrsta lagi tökum við hesta í tamningu gegn gjaldi. Algengast er að hafa hestinn í 2-3 mánuði og afhenda hann síðan eigandan- um. f öðru lagi kaupum við ótamda hesta, temjum þá og seljum síðan sem „unna vöru“. „Framleiðsla" þessa búskapar okkar er sem sagt þjálfun reiðhesta. Það þykir hæfilegt að tamningamaður hafi eina 12 hesta í takinu í senn og láti hvern hafa nokkra kennslutíma á dag. Við þetta er maður mestan hluta ársins, en þó ekki á haustin og fyrri hluta vetrar, þ.e. í okt-nóv. eða svo. Ein- hverntímann verður maður að hafa frí, enda eru hestar líka daufastir og síst fallnir til tamningar á þeim tíma. Það kom líka fram að Albert tekur að sér að járna hesta, því að hann er kunnáttumaður á því sviði. Er hægt að hafa viðunandi afkomu með þessu búskapar- lagi? Þessu vara þau Albert og Freyja á þá leið að það sé tvímælalaust hægt, en árangur- inn fari reyndar alveg eftir því hvernig er á spilunum haldið í þessu eins og öðru. Ef menn leggja sig fram og eru tilbúnir að vinna mikið, þá á þetta að geta verið góður atvinnuvegur. Al- gengur taxti á hest í tamningu nú er kr. 70.000 á mánuði og eitthvað hærra á veturna, þegar hesturinn þarf dýrt fóður. Hafið þið einhver önnur plön í sambandi við hestamennsku hér? Engin ákveðin plön. Hins- vegar eru auðvitað ýmsir mögu- leikar, sem gaman væri að reyna í framtíðinni. Það er t.d. hesta- útleiga og jafnvel leiðsögn um leið. Það eru afskaplega skemmtilegar reiðleiðir hér yfir fjöllin, sem margir mundu vilja borga mikið til að geta farið á hestum, ekki síst útlendingar. Það er t.d. bæði Heljardalsheiði vestur í Skagafjörð og Reykja- heiði út í Ólafsfjörð og sjálfsagt miklu fleiri leiðir, sem við kunnum ekki enn að nefna. Svona ferðalög getur líka verið þáttur í tamningunni, en þetta er nú bara framtíðarmúsikk. En möguleikarnir eru miklir. Og svo að síðustu samvisku- spurning. Nú hafið þið tekið þessa jörð til 5 ára leigu. Eruð þið ekkert farin að iðrast eftir þessu uppátæki. Búist þið við að halda þetta út? Nei, það er síður en svo að við iðrumst eftir því. Okkur líður prýðilega hérna. Fólk hefur tekið okkur ágætlega, enginn heyrst mögla út í það, að nú eigi að fara að innleiða hingað hrossaómenningu, eins og stund um heyrist annarstaðar. Þeir í hestamannafélaginu hafa verið okkur ákaflega hjálplegir og stutt okkur í þessu fyrirtæki. Fyrir það erum við mjög þakklát. Það lítur líka út fyrir að við höfum yfrið nóg að gera. Við fáum viðskipti frá Akureyri og úr Skagafirði auk sýslunnar hérna, svo sú hlið málsins er í góðu lagi. Annars er best að vera ekki með neina spádóma, en við erum bjartsýn á fram- tíðina. Þannig fórust þeim orð Syðra-Garðshornshjónum, sem með réttu ættu þó víst að kallast sambýlisfólk á nútímamáli heldur leiðinlegu. Svörin eru ýmist hans eða hennar eða þeirra . beggja eftir atvikum. Blaðamaður hefur soðið þau saman í eitt, sem lítill vandi var, því þau Albert og Freyja virtust sammála í öllu, sem um var spurt. ■ Norðurslóð vill fyrir sitt leyti bjóða þetta glæsilega, unga fólk velkomið i sveitina og óska þeim alls velfarnaðar. H.E.Þ. NORÐURSLÓÐ - 5

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.