Norðurslóð - 04.10.1982, Blaðsíða 4
Tímamót
SKÍRNIR
Þann 18. júlí var skírð Karen Dúa, foreldrar Kristján
Gunnarsson sjómaður og Svanhildur Karlsdóttir frá Hóli á
Upsaströnd.
Þann 25. júlí var skírður Brjánn, foreldrar Guðjón Brjánsson
fyrrv. forstjóri Dalabæjar á Dalvík og kona hans Linda
Olafsdóttir. Þau búa nú að Furugrund 34b í Kópavogi.
Athöfnin fór fram í Dalbæ.
Þann 8. ágúst var skírð íris Dögg, foreldrar Haukur
Haraldsson og Asta Aðalsteinsdóttir, Svarfaðarbraut 5
Dalvík.
Þann 8. ágúst var skírð María Helena, foreldrar Svavar
Marinósson frá Búrfelli og Hallfríður Hauksdóttir frá Sæbóli.
Þau búa á Skíðabraut 11 Dalvík.
Þann 24 ágúst var skírður Egill, foreldrar Anton Angantýrs-
son áður verkstæðisformaður á Dalvík og Halla Jónasdóttir.
Þau búa nú að Hraunbæ 98 Reykjavík.
Þann 28. ágúst var skirður Birgir Þór, foreldrar Gunnar
Gunnarsson bifvélavirki og Stella Bára Hauksdóttir,
Hjarðarslíð lb Dalvík.
Þann 18. sept. var skírð Harpa Rut, foreldrar Þorvaldur Óli
Traustason og Arnleif Gunnarsdótir Hjarðarslóð la Dalvík.
HJÓNAVÍGSLUR.
Þann 19. júní voru gefm saman í Vallakirkju SigurðurEinars-
son bílstjóri frá Uppsölum og Birna Ragnheiður Björg
Jóhannsdóttir (Þorsteinssonar frá L-Hámundarstöðum).
Þann 3. júli voru gefin saman í Urðakirkju Gunnlaugur Einar
Þorsteinsson og Jónasína Dómhildur Karlsdóttir búendur í
Klaufabrekknakoti.
Þann 7 ágúst voru gefin saman í Dalvíkurkirkju Jón Smári
Jónsson bílstjóri á Dalvík og Þóra Vordís Halldórsdóttir frá
Melum.
Þann 11. sept. voru gefin saman í Dalvíkurkirkju Sveinn
Arnason Bjarman verkstjóri frá Akureyri og Kristín Sigríður
Þorgilsdóttir á Dalvík.
ANDLÁT
Sunnudaginn 25. júlí 1982, varð
það hörmulega slys, að Hrefna
Björg Júlíusdóttir 8 ára drukkn-
aði í Glerá, nálægt vistheimilinu
Sólborg á Akureyri. Þar hafði
hún dvalið um tíma siðastliðið
sumar og átti að vera þar aftur í
nokkrar vikur í sumar. Hrefna
var dóttir Regínu Þorvalds-
dóttir frá Ólafsfirði og Júlíusar
Jónassonar frá Dalvík, nú búsett
í Reykjavík.
Hrefna Björg.
Ingibjörg.
Þann 28. júní andaðist á Kristneshæli SoffíaFanney Sigurjóns-
dóttir, sem síðast átti hér heima í Sólgörðum á Dalvik og áður
á Böggvisstöðum hjá þeim Jóni Jónssyni og Ónnu
Stefánsdóttur. Hún var fædd í Gröf 25. mars 1895. Hún var
öryrki lengst af æfi sinnar, ógift og barnlaus. Hún var jarðsett
í Vallakirkjugarði þann 3. júlí.
Þann 23. ágúst andaðist Ingibjörg Arnadóttir fyrrv. húsfreyja í
Dæli, síðast vistmaður i Dalbæ. Hún var fædd í Dæli 6. júlí
1888. Árið 1908 giftist hún Rögnvaldi Tímótheus Þórðarsyni
frá Hnjúki og bjuggu þau í Dæli til 1947 og héldu áfram að
eiga þar heima í nokkur ár eftir að þau höfðu látið búið í
hendur syni sínum og tengdadóttur. Þau eignuðust 11 börn og
eru afkomendur þeirra nú orðnir mjög margir, búsettir hér i
héraði og annarstaðar á landinu.
Ingibjörg var jarðsett í Vallakirkjugarði 28. ágúst.
Þann 20. sept. andaðist Kristín Gunnlaug Jóhannsdóttir í
Svalbarði á Dalvík. Hún var einn allra elstiborgari Dalvíkur,
fædd 9. maí 1887 í Háagerði. Árið 1909 giftist hún Sigurði
Beek Bjarnasyni frá Lækjarbakka. Þau bjuggu í Háagerði
1911-1933 er þau fluttu í Svalbarð, sem þau höfðu reist þar á
hólnum norðan við Brimnesána, en þar hafði ekki áður verið
byggt ból. Þau eignuðust 4 börn. Sigurður andaðist 1964.
Kristín var jarðsett í Dalvíkurkirkjugarði þann 25. sept.
Má ég kynna?
Stefán Jón Bjamason heitir
maðurinn, sem 1. nóv. tekur við
starfi bæjarstjóra á Dalvík úr
höndum Valdemars Bragasonar.
Stefán er Húsvíkingur, fædd-
ur þar 30. sept. 1948, sem sagt 34
ára gamall. Hann tók gagnfræða-
próf í heimabæ sínum 1968 og
útskrifaðist úr Samvinnuskólan-
um í Bifröst 1971.
Fyrri störf hans voru hjá
Verkalýðsfélagi Húsavíkur og
Lífeyrissjóðnum Björg, en síðan
hjá Kaupfélagi Þingeyinga.
Stefán er kvæntur maður og
heitir konan Þórdís Amgríms-
dóttir sjómanns Gíslasonar á
Húsavík. Þau eiga 2 böm:
Hafrún Ösp 10 ára og Bjama
Jakob 6 ára.
Aðspurður kvað Stefán sér
lítast vel á staðinn og allt það
fólk, sem hann hefur kynnst enn
sem komið er og hyggur hann
gott til nýja starfsins.
Kominn er til Dalvíkur nýr
bæjarritari og er tekinn til starfa
af fullum krafti. Hann heitir
Snorri Finnlaugsson (Snorra-
sonar frá Syðri-Bægisá Þórðar-
sonar frá Hnjúki.) Hann er
fæddur á Selfossi 21. febr. 1960
þ.e. 22 ára gamall. Á Selfossi
ólst hann upp og síðan í Reykja-
vík, en mörg sumur á uppvaxtar-
árunum var hann í Mývatnssveit.
Hann tók stúdentspróf frá
Verslunarskóla íslands 1980,
vann eftir það á bókhaldsskrif-
stofu í Rvík. og síðast sem
erindreki hjá Framsóknarfélög-
unum hér í kjördæminu og við
Dag á Akureyri.
Spurður um áhugamál utan
starfsins segist Snorri hafa
mikinn áhuga á íþróttamálum,
einkum knattspyrnu, svo og á
stjómmálum. Segist langa til að
verða að liði í knattspyrnu-
málum Dalvíkinga.
Kona Snorra (óvígð sambúð)
er Sigríður Birgisdóttir úr Rvík,
en að miklu leyti alin upp í
Mývatnssveit þar sem faðir
hennar var framkvæmdastjóri
Kísiliðjunnar. Eina dóttur eiga
þau, Lindu Björk, 4 ára gamla.
Snorri segir að sér lítist
prýðisvel á sig hér og í starfmu
vonast hann eftir góðri sam-
vinnu við bæjarbúa.
Nýr forstjóri Dalbæjar er Gunn-
ar Bergmann og tók hann til
starfa hér á siðastliðnu vori.
Hann er menntaður í Banda-
ríkjunum í öldrunarfræðum
(gerontologie).
Fyrir mistök var Gunnar ekki
kynntur hér í blaðinu í vor, eins
og til stóð, og aftur nú náðist
ekki til hans um persónulegar
upplýsingar sem fyrirhugað var.
Við birtum samt myndina,
hún stendur fyrir sínu.
Norðurslóð býðUr ofannefnda
velkomna til starfa hér.
Gunnar á tali við vistmenn.
Meiri afli og meiri sókn
Það sem af er árinu hefur verið
landað 320 tonnum meiri afla en
á sama tíma í fyrra. Afli línu- og
netabáta er nú 890 tonnum minni
en i fyrra. Hins vegar er afli
togara og togskipa 1.210 tonnum
meiri nú. Þó aflinn sé nú aðeins
meiri í ár, er hann í raun minni ef
tekið er tillit til aukinnar sóknar
héðan þar sem skipastóll Dalvík-
inga er nú stærri en nokkru sinni
áður. Norðurslóð leitaði til nokk-
ura sem standa fyrir útgerð og
fiskvínnslu um fréttir og viðhorf
til málanna.
Björgvin Jónsson Utgerðarfélagi
Dalvíkinga h/f:
Afli togara Ú.D. er litlu meiri
nú en í fyrra, þrátt fyrir miklar
frátafir þá. í fyrra var Björgvin
EA þrjá mánuði og Björgúlfur
rúmar þrjár vikur frá veiðum
vegna vélabilana. Aflaaukning
milli ára er í engu samræmi við
sóknaraukningu þessa árs. Þá er
aflasamsetning og fiskverð
þannig, að aflaverðmæti hefur
ekki aukist í neinu nágrenni við
útgjaldaaukningu og verðbólgu.
Þetta þýðir; að fjárhagsstaða
Ú.D. hefur versnað á árinu og
hefur sjaldan verið erfiðari en
nú.
Björgvin sagðist vilja benda á
hve varhugavert það er fyrir
sjávarpláss eins og Dalvík,
þegar rekstrargrundvöllur sjávar-
útvegs erekki traustur. Fyrreða
síðar veikir slíkt búsetu á svona
stöðum. Því er það hagsmunamál
allra að treysta þennan grunn.
Aðalsteinn Gottskálksson hjá
Frystihúsi K.E.A. Dalvík hvað
einkennandi fyrir þetta ár, að
þorskur hafi verið minni í afla
togara en í fyrra, en svokallaður
skrapfiskur vaxið. Skrapfiskur
(grálúða, karfi o.fl.) fer allur í
frystingu, en frystigeta hússins
er það takmörkuð, að vandræði
er að koma öllu í gegn.
Hægt er að frysta meira magn
þegar pakkað er fyrir Rússlands-
markað en aðra markaði. Hefur
takmörkuð frystigeta leitt til
þess að mikið hefur verið
framleitt hér fyrir Rússland.
Hins vegar hefur þegar verið
framleitt það magn sem Rússar
kaupa í ár svo birgðir hlaðast
upp. Eins og er eigum við í
geymsluvandræðum, en 3/4
hlutar þeirra birgða sem til eru,
fara á Rússlandsmarkað.
Ottó Jakobsson hjá Blika h/f
sagði það áberandi hve rekstur
væri erfiðari nú en oftast áður.
Minnkandi afli bátanna væri
hluti af vandamálinu en þó
kanske verra að birgðir af skreið
hefðu hlaðist upp síðari hluta
þessa árs. Afurðalán út á skreið
eru of lág og vextir þeirra það
háir, að erfitt er að halda birgðir
til langs tíma. Hins vegarmundi
muna miklu ef skreiðin færi að
fara og þá yrði þetta ekki svo
slæmt.
Framleiðsla Blika h/f ermjög
svipuð að magni nú í ár og sama
tíma síðastliðið ár.
Framhald á bls. 3.