Norðurslóð - 25.01.1983, Blaðsíða 3
Mjólkin 1982
Blaðið hafði samband við Vern-
harð Sveinsson í mjólkursam-
laginu á Akureyri og spurðist
fyrir um mjólkurframleiðslu
svarfdælskra bænda á síðasta
ári. Ut úr því kom eftirfarandi
upplýsingar:
Heildarmjólkurmagn úr
Svarfdæladeild, sem til samlags-
ins kom 1982 var 3.239.566
lítrar. Þetta er 199.652 lítrum
meira en 1981 eða aukning upp
á 6,56%. Þetta er 10 sinnum
meiri aukning milli ára heldur
en heildaraukning var í samlag-
inu, en hún var 0,65%. Mest
varð mjólkurframleiðsla Svarf-
dælinga árið 1978 3.653.000 og
1979 aðeins litlu minna.
Meðalfitan varð að þessu
sinni 4,05%. Fyrir þessa mjólk
fengu svarfdælskir bændur
greiddar inn í reikninga sína
rösklega 18 milljónir króna að
frádregnum flutningskostnaði
og sjóðagjöldum.
Að lokum birtum við hér lista
yfir þau bú, sem sendu meira en 100.000 lítra í samlagið:
Hofsárkot 160.500
Jarðbrú 144.100
Hóll fram 141.300
Dæli 129.500
Sakka 125.800
Steindyr 124.700
Hrafnsstaðir 116.600
Hofsá 116.100
w f. ísS b %
Fuglar 26.12. ’82
Og svo eru það fuglarnir. Eru
annars nokkrir fuglar hér um
slóðir á þessum kalda ogfrosna
tíma ársins? Jú, ekki ber á öðru,
og hér kemur niðurstðan úr
talningunni á annan dagjóla.
Þennan dag, 26. des. var
allgott veður, vestan 2 vindstig,
4 gráðu frost, vötn öll ísilögð og
mikill snjór. A Dalvík gekk
Steingrímur Þorsteinsson
strandlengjuna frá mynni Svarf-
aðardalsár að Brimnesá og sá
eftirfarandi fugla: Stokkönd 42
Hávella 70
Straumönd 2
Æðarfugl 50
Gulönd 2
Sendlingur 35
Silfurmávur 25
Svartbakur 30
Hvítmávur 15
Teista 2
Hrafn 8
Snjótittlingur 30
Ogreindir mávar 12
(ungmávar)
I sveitinni var farin hringferð
frá Tjörn um Sundskála Ingvar-
ir, Hánefsstaðaskóg, Jarðbrú,
Húsabakka og heim. Eftirtekj-
an var fremur rýr:
Hrafn 4
Snjótittlingur 6
Rjúpa 30
Þess skal getið að næsta dag sá
Gunnsteinn bóndi Þorgilsson á
Sökku rjúpnahóp stíga upp úr
Hánefsstaðaskógi og koma eins
og hvítur stormsveipur heim
undir bæ og síðan til baka.
„Hljóta að hafa verið einar
200“, sagði Gunnsteinn. Gott er
til þess að vita, að ekki lentu þær
allar á jólaborðið.
Snjómokstur fyrir
einstaklinga
á Dalvík
Ákveðið hefur verið að bjóða bæjarbúum upp á
snjómokstur á bílastæðum við íbúðarhús gegn
föstu gjaldi sem er nú kr. 260.- hverju sinni og
breytist með taxtabreytingum.
Pöntun um moksturskal gera hjáverkstjórasem
skipuleggur mokstur svo hægt sé að tengja
hann mokstri á götum. Ef mokað er á öðrum
tímum verður reiknað venjulegt tímagjald.
Aðeins er miðað við að gera innkeyrsluna
bílgenga, en ekki er um fullkomna hreinsun að
ræða.
Mokstur þessi er á ábyrgð húseigenda svo sem
skemmdir sem orsakast af illa merktum lóða-
veggjum og hlutum sem eru á kafi í snjó og öðru
slíku sem ókunnugur getur ekki varast.
Þetta er aðeins tilraun til að bæta þjónustu við
bæjarbúa og óvíst hvernig til tekst, er því allur
fyrirvari gerður um að breyta þessu fyrirkomu-
lagi eða hætta því án frekari fyrirvara.
Sorphirða
- sorppokar
Önnur breyting sem vert er að vekja athygli á er í
sambandi við sorphirðu. Nú verður öllum
pokum sem bærinn leggurtil dreift í upphafi árs.
Er því reknað með ca. 1 poka pr. hreinsun, eða
um 50 pokum pr. hús.
Er þetta gert til að auðvelda sorphreinsunina og
draga úr kostnaði.
Eftir sem áður verður hægt að kaupa poka á
bæjarskrifstofunni eða í áhaldahúsi.
Bæjarstjóri.
Dalbær
Undirbúningur er nú að hefjast vegna dag-
vistunar aldraðra í hinni nýju álmu Dalbæj-
ar. Hér með erauglýsteftirumsóknum. Allar
nánari upplýsingar veittar í síma 61379 kl.
11-12 virka daga. Forstöðumaður.
I||l|||i||l| r Örugg þjón L lusta
© SJÓVÁ OOó"'" SUÐURLANDSBRAUT SJÓVÁ tryggt er vel tryggt 4 - SÍMI 82500
Grímur Bjarnason - Brekkugötu 19 - 625 Ólafsfjörður - Sími 96-62110
Kristján P. Guðmundsson - Glerárgötu 20 - 600 Akureyri - Sími 22244
NORÐURSLOÐ - 3