Norðurslóð - 22.03.1983, Page 3

Norðurslóð - 22.03.1983, Page 3
Sameining sveitarfélaga? Rabbað við oddvita Svarfaðardhr. Við heyrðum það í fréttum að haldinn hefði verið í Reykjavík ráðstefna um sameiningu sveitarfélaga. Við höfðum enn- fremur pata af því að oddviti Svarfaðardalshrepps, Halldór Jónsson á Jarðbrú hefði verið meðal þátttakenda. Þau hjón Halldór og Ingi- björg eru á förum til Noregs að heimsækja synina, sem þar eru við nám um þessar mundir* datt okkur í hug að spyrja hann nokkurra spurninga um ráð- stefnuna. Var þetta mikill fundur, Halldór? Já já, þetta var heilmikill fundur. Hann stóð að vísu aðeins einn dag, 10. mars. Hann var boðaður og skipulagður af Félagsmálaráðuneytinu og Sambandi íslenskra sveitarfél- aga. Þátttakendur voru um 120 en sveitarfélög á landinu nú eru 224, svo ekki mættu nú fulltrúar úr þeim öllum. Hrepparnir á Islandi eru margir mjög smáir t.d. eru 118 þeirra með færri en 200 íbúa, af þeim eru 49 með færri en 100 og af þeim 11 með færri en 50 íbúa. Hvað fór þarna fram? í byrjun fluttu þeir ávörp Félagsmálaráðherra, Svavar Gestsson og form. Samb. ísl. sveitarfélaga Björn Friðfinns- son. Þá héldu erindi fulltrúarfrá landshlutasamtökunum, sem nú eru 6. T.d. talaði fyrir hönd Fjórðungssambands Norölend- inga framkvæmdastjórinn Askell Einarsson. Að þessu loknu varfundinum skipt upp í 8 umræðuhópa, sem hver fékk sitt verkefni í spurn- ingarformi til að vinna úr. Hér koma sýnishorn af nokkr- um spurnaratriðum: Teljið þið að sveitarfélögin eigi að hafa frelsi til að samein- ast eða ætti að setja löggjöf um sameiningu tiltekinna sveitar- félaga t.d. innan 10 ára? Teljið þið, að lögfesta ætti lágmarksíbúafjölda í sveitar- félagi? Teljið þið að samvinna sveit- arfl. (um framkvæmd einstakra verkefna) geti komið í stað sameiningar? Hvaða verkefni sveitarfl. knýja helst á um stækkun þeirra? Hvert er álit ykkar á milli- stjórnsýslustigi (sýslur, ömt eða fylki)? Ætti að stefna að því að sveitarfl. yrðu sem líkustaðgerð og mannfjölda? Hvaða sjónarmið teljið þið að hafa beri í huga við sameiningu sveitarfélaga? (eingöngu dreif- býlissveitarfélög sameinist eða að dreifbýlis- og þéttbýlissveitar- félög sameinist)? Fengust skýrar niðurstöður úr umræðuhópunum? Nei, það get ég ekki sagt. Skoðanir voru mjög skiptar um sjálft grundvallaratriðið, hvort sameining væri nauðsynleg eða æskileg. Það er þó óhætt að segja að sameining með valdboði átti fáa eða enga formælendur. Aftur á móti var það mjög almenn skoðun að samvinna sveitarfélaga um ákveðin verk- efni væri afar eðlileg og víða bráðnauðsynleg, en að slíkt ætti að þróast smátt og smátt. Þó var rætt um að skipuleggja þyrfti vel slíka samvinnu, jafnvel með aðstoð ofan frá, og ganga tryggi- lega frá samningum, fjárhags- lega og stjórnunarlega. Sú skoð- un kom fram hjá mörgum að þörf væri á heildarstefnu í þessum samvinnumálum. Nú er þegar mikil samvinna í gangi milli sveitarfélaga, ekki satt? Jú jú, mikil lifandi ósköp, það hefur verið að gerast bæði margt og mikið í þessum málum undanfarin ár, eins og við þekkjum vel hér í okkar eigin héraði. Algengust er líklega samvinna á skólasviðinu, en líka er hún mjög víða í sambandi við heilbrigðismál, elliheimilismál, löggæslu, brunamál og safna- mál. Var rætt um nokkur sérstök héruð, þarsem sameining sveitar- félaga væri líkleg? Varla get ég sagt það. Þó töluðu menn um að sveitahrepp- ar í Arnessýslu væru ekki ólík- legir í þessu sambandi. Sömu- leiðis í Dalasýslu. Fulltrúi úr Skagafirði talaði um nauðsyn á að sameina Sauðárkrók og Skarðshrepp, sem liggur bæði innan og utan við kaupstaðinn. Og fulltrúi úr Snæfjallahreppi í N-Isafjarðarsýslu taldi að allir 5 hrepparnir við Inn-Djúp ættu að sameinast í einn. Svo var þarna fyrrverandi oddviti Dyrhólahrepps, sem skýrði frá hvernig þeir stóðu að sameiningunni við Hvamms- hrepp. (Vík í Mýrdal.) Hvað ræddu menn um sýslu- félögin? Yfirleitt voru þeir, sem úttöl- uðu sig um það, á einu máli um að þetta millistig, sem sýslurnar eru, væri algjörlega gagnslaust og óþarft. Það var t.d. álit Böðvars Bragasonar sýslu- manns á Hvolsvelli, sem var í þeim hóp, sem ég stýrði. Nú hafa heyrst raddir, sem telja, að Dalvík og Svarfaðardal- ur ættu að sameinast aftur í eitt sveitarfélag. Hver er þín persónu- lega skoðun á slikum hugmyndum? Eg hef nú lengi haft samúð með þeim hugmyndum. Samt held ég að ekki sé ástæða til að flýta sér í því efni. Þetta þokast nú allt í samvinnuátt milli okkar og þeirra á Dalvík. Vel má vera að það leiði svo til sameiningar síðar meir. Eg get vel hugsað mér það. Ertu þá ánægður með sam- starfið við Dalvíkinga eins og það hefur þróast? Já, það er ég að langsamlega mestu leyti. Við höfum nú ágætt samstarf á nokkrum sviðum. Ég nefni fyrst heimili aldraðra Dalbæ, en það samstarf tel ég vera til fyrirmyndar. Ég vil líka nefna Heilsugæslustöðina, skólaheimavistina, Héraðs- skjalasafnið, brunavarnir og fleira mætti nefna. Reyndar vil ég segja það að a.m.k. sumt af þessu hefur kostað hreppin mikil aukin útgjöld. Á móti hafa hinsvegar ekki komið nýjar tekjur, þar sem þessar stofnanir eru staðsettar og reknar á Dalvík og bæjarfélagið þar nýtur skatttekna af öllu því fólki, sem þarna vinnur. Sam- eining sveitarfélaganna mundi leysa vanda af þessu tagi. Gæturðu hugsað þér samvinnu þessara sveitarfélaga á enn fleiri sviðum? Já því ekki það? Mér finnst t.d. afar eðlilegt að bókasöfnin hér og á Dalvík væru sameinuð nú þegar þeir eru að flytja í nýtt og betra húsnæði niðurfrá. Og verði komið upp byggðasafni, þá ætti það vera stofnun beggja sveitarfélaga. En samkomuhús? Það hefur mér auðvitað líka dottið í hug sem einn valkostur af fleirum, sem ætti að athuga í fullri alvöru, þegar röðin kemur að þeirri framkvæmd. Þvískyldi það ekki geta komið til greina, að nýtt, sameiginlegt samkomu- hús rísi einhverstaðar sunnan við Dalvíkina. Ég vil a.m.k. ekki útiloka það fyrirfram. Þetta látum við vera síðustu orðin, en þökkum Halldóri fyrir rabbið og óskum þeim hjónum góðrar og skemmtilegrar ferðar til frænda vorra í Noregi. H.E.Þ. Óvenjulegt slys Tryggvi Jónsson segir frá Allir kannast við það, að tækninni fylgir aukin slysahætta. Sjóslys hafa fylgt okkur Islend- ingum frá alda öðli eins og öllum þjóðum, sem sækja verða lífsbjörg sína út á hafið. Bifreiðaslys eru mönnum þó líklega efst í huga vegna þess hve tíð þau eru og fer sífellt fjölgandi með vaxandi bílaeign. Flugslys eru líka allt of tíð, einnig hér á landi, og eru þau oft skelfileg vegna þess, hve margir menn farast þá oft í einu, stundum fleiri hundruð og kemst enginn af. Járnbrautin i Brimnesárgili. Auglýsing um utankjörfunda- atkvæðagreiðslu vegna Alþingis- kosninga 23. apríl 1983 Utankjörfundaatkvæðagreiðsla hefst 26. þ.m. Kosið verður á skrifstofu embættisins, Hafnarstræti 107,3. hæð, Akureyri, alla virka daga á venjulegum skrifstofutíma kl. 9.30- 12.00 og kl. 13.00-15.30. Ennfremurkl. 17.00- 19.00. Frá 5. apríl n.k. verður skrifstofan auk þess opin kl. 20.00-22.00. Á skrifstofu embættisins á Dalvík verður kosið á virkum dögum kl. 16.00-18.OOog um helgar eftir samkomulagi við fulltrúann á staðnum. Hjá hreppstjórum verður kosið eftir sam- komulagi. Akureyri, 21. mars 1983. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu. Dalvíkingar Kjörskrá vegna Alþingiskosninganna 23. apríl n.k. mun liggjaframmi áskrifstofu Dalvíkurbæj- ar frá 22. mars til 7. apríl n.k. Kærum og aðfinnslum við kjörskrá skal koma á framfæri við bæjarstjóra fyrir 9. apríl n.k. Dalvíkurbær. í útlöndum er enn ein tegund umferðaslysa algeng þ.e. járn- brautarslys. Þau eru talin með hroðalegri slysum vegna þess hve margt fólk verður oft fyrir þeim samtímis og meiðist illilega, þó það haldi lífi. En hafa orðið járnbrautarslys á Islandi? Ég geri ráð fyrir að flestum finnist hér heldur fávís- lega spurt, þar eð aldrei hafi verið neinar járnbrautir hér á landi, eða hvað? Mikið var á sínum tíma rætt um það, bæði á Alþingi og manna á meðal, að álitlegt væri að leggja járnbraut um Suður- landsundirlendið til Reykjavík- ur og jafnvel mun hafa komið til athugunar að leggja járnbraut frá Húsavík til Mývatnssveitar. Eins og menn vita urðu engar framkvæmdir á þessum hug- myndum. Þó er ekki þar með sagt að hvergi á Islandi hafi verið lagðar járnbrautir. I apríl 1913 var búið að leggja járn- braut frá Öskjuhlíðinni í Reykjavík niður að höfninni og var hún notuð til að flytja efni til hafnargerðar í Reykjavíkur- höfn. Þetta var fullkomin alvörujárnbraut með eimreið og öðrum vögnum tilheyrandi, að vísu ekki til farþegaflutninga. NORÐURSLÓÐ - 3 Tapað fundið Blá kvenhúfa úr kanínu- skinni tapaðist á þorra- blóti ungmennafélaganna á Grund febr. sl. Finnandi skili henniáafgr. blaðsins. Rakara- stofan auglýsir Nýtt símanúmer 61140. Herra- og dömu- klippingar. Lárus Gunnlaugsson. Fyrsta ferðin var farin 17. apríl 1913. Að sjálfsögðu þótti þetta mikil nýlunda og 13. maí var verið að skemmta fólki með því að flytja það með járnbrautinni. Stúlka ein ætlaði þá að stökkva af einum vagninum í því að lestin stansaði en varð undir honum og fótbrotnaði og hlaut fleiri meiðsli. Ekki veit ég um önnur slys í sambandi við Reykjavíkurjárnbrautina. Árið 1939 var byrjað á undirbúningi við hafnargerð á Dalvík og í því sambandi voru teinarnir úr járnbrautinni í Reykjavík fluttir til Dalvíkur þar sem leggja átti rúmlega eins kílometra langa járnbraut frá höfninni og upp í Brimnesárgil, en þar varefnisnáman. Eimreið- in var ekki flutt norður en keyptur dráttarvagn frá Þýska- Framhald á bls. 5

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.