Norðurslóð - 21.02.1984, Blaðsíða 3
Sveinn Jóhannsson
fyrrverandi sparisjóðsstjóri
Sveinn Jóhannansson fyrrv.
sparisjóðsstjóri andaðist á Land-
spítalanum í Reykjavík þann 20
janúar.,
Með honurn er i'allinn í valinn
einn þeira manna, sem lengi
haf'a sett svip á Dalvíkurbæ.
Hann íæddist 16. maí 1911.
Faðir hans var Jóhann Jóhanns-
son sem lengi bjó í Jaðri á
Dalvík, en móðirin var Rósa
Stefánsdóttir frá Hofsárkoti,
systir Önnu móður Sigvalda og
þeirra systkina.
. Sveinn ólst upp með móður
sinni, en er hún féll frá var hann
mcð föður sínum og stjúpmóð-
ur á Jaðri. Hálfsystkini Sveins
voru fjögur, þrír bræður og ein
systir sem búsett eru á Akurcyri
og í Reykjavík.
Skólaganga Sveins var stutt
eins og títt var á þeim árum,
aðeins barna- og unglingaskóli.
Það bætti hann sér hins vegar
upp mcð lestri og öðru nánti í
skóla lífsins, því að hann var
fróðleiksfús og vakandi fyrir
straumum mannlífsins í kring-
um sig. Ungur fór hann að vinna
hin hversdagslegu störf sjávar-
plássins, einkum við fisk bæði á
sjó og landi eins og nálega allir
ungir ntenn og konur í dæmi-
gerðu sjávarplássi á þeim árum.
Sem fulltíða maður varð hann
verkstjóri í fiskvinslunni og
gegndi öðrum trunaðarstörfum
á því sviði.
Þanning stóð þegar hann
fékk það verkefni í hendur, sem
hann átti eftir að helga krafta
sína næstu tuttugu árin. Árið
1959 féll þáverandi sparisjóðs-
stjóri Stefán Jónsson, á Brim-
nesi. frá nteð nokkuð skjótum
hætti. Kona hans Anna tók þá
að sér að sjá sparisjóðnum far-
borða um nokkurra mánaða
skeið, en síðar á árinu réð spari-
sjóðsstjórnin Svein Jóhannsson
til að taka við forstöðu hans.
Við þau tímamót flutti
sjóðurinn inn í leiguhúsnæði hjá
KEA þar sem hann var til húsa
við rnikil og vaxandi þrengsli
þar til hann lluttist í eigið
húsnæöi í Ráðhúsinu á Dalvík á
rniðju ári 1979.
Sveinn reyndist hinn ágætasti
sparisjóðsstjóri og í því starfi
komu best fram þeireiginleikar,
sem einkenndu hann öðru frem-
ur, vandvirkni og reglusemi í
stóru og smáu. Jafnframt hafði
hann glöggan skilning og
ákveðnar skoðanir á því, hvern-
ig reka bæri sparisjóð á stað eins
og Dálvík. Hann lagði jafnan
mikla áherslu á, að það fé, sem
almenningur trúði sjóðnunt fyrir
til ávöxtunar, væri sem mest
notað til að efla heilbrigðan
atvinnurekstur til sjós og lands
svo og til að aðstoða menn við
að konta upp húsnæði, en síður í
það sem hann taldi horfa til
eyðslu og óþarla. Samstarfs-
ntenn Sveins við Sparisjóð
Svarfdæla treystu honum í
öllum greinum, og ég veit ekki
til að neinn þeirra hafi nokkurn
tíma séð ástæðu til þess að finna
að verkurn hans.
Það var í santræmi við heil-
steypta skapgerð Sveins og
umhyggju fyrir hag og þróunar-
möguleikum sjóðsins, að hann
ákvað það sjálfur og fylgdi því
fast eftir að hann léti af störfum
sent sparisjóðsstjóri þegar flutt
væri í nýja húsnæðið með þeim
tæknibreytingum í bókhaldi og
auknu starfssemi, sem hann sá
manna best að hlaut að verða
við þau tímamót.
Sveins verður trúlega lengst
minnst sent hins trausta spari-
sjóðsstjóra, en hann kom þó
mikið við sögu í margs konar
félagsskap öðrunr á Dalvík og á
víðari vettvangi. Hann var t.d.
lengi ntjög virkur félagi í UMF
Svarfdæla og brennandi af
áhuga á hollum iðkunum æsku
manna svo sem í íþróttum og
skák. Hann var í stjórn UMSE í
9 ár.
Sveinn kvæntist Petrínu
Soffíu Zophoníasdóttur 24.
apríl 1943 og er dóttir þeirra
Rósa gift Jóhannesi I'ómassyni
f'orstjóra í Reykjavík. Þeirra
börn eru tvö, dóttir og sonur.
Þau Sveinn og Petrína stund-
uðu fjárbúskap í smáunt stíl til
hliðar við önnur störf sín.
Sveinn hafði rnikla ánægju af
þessu tómstundastarf'i sínu, því
hann var skepnuvinur mikill og
aðdáandi hinnar lifandi náttúru.
Ég veit að ég mæli fyrir munn
margra, þegar ég þakka Sveini
Jóhannssyni afar verðmæt og
vel unnin störf í þágu almenn-
ings hér í byggðarlaginu. Útför
hans var gerð frá Dalvíkur-
kirkju þann 28. janúar að
viðstöddu ntiklu fjölmenni.
Ég votta konu hans og öllu
skylduliö sarnúð við fráfall
hans.
Hjörtur L. Þórarinsson
Dalvíkingar, Svarfdælingar
Við höfum sölu- og þjónustuumboð fyrir
Mazda-, Ford- og Suzukibifreiðar
á Akureyri
Ávallt nýir bílar á staðnum
Einnig höfum við umboð fyrir
DAF og Hino Vörubifreiðar
og Komatsu þungavinnuvélar.
Þá höfum við mjög fullkominn
bílasprautuklefa,
réttingaverkstæði og ryðvörn.
6 ára ryðvarnarábyrgð.
Sveinn Jóhannsson
Kveðja
Hneig að helbeði Mörgum hjálparhönd
halur prúður hlýja rétti.
féllust í faðma Hvers manns vandræði
friður og hvíld. vildi leysa.
Ljúf var lausn Réttsýnn, raunsær
eftir langvarandi og rakaglöggur.
sjúkdómsnauð Hollráður vel
og sárar þrautir. °g hyggjuríkur.
Mitt í söknuði Stóð að störfum
og sárum trega stefnufastur
klökkum með huga framsýni með
á kveðjustundu og fyrirhyggju.
gott er að eiga Andans var aðall
góðs að minnast æfinlega
mannkostamanns hreinskilni sönn
og mannvinar. og heiðarleiki.
Gekk gagnvegi Vertu sæll vinur
gæf'umaður og vildar þakkir
alla daga fyrir eitt og allt
til æviloka. í orði og verki.
Trúr og trygglyndur. Minning dáðadrengs
traustur í raun. dýrmæt lifir
Hjartahlýr meðan blómgast byggð
og hreinlundaður. undir Böggvisfjalli.
H.Z.
Frá RARIK
Norðurlandi eystra
SMÁSALA RARIK Á NORÐURLANDI EYSTRA Á ÁRINU 1983
Seldar voru 88.793.000 kWh fyrir kr. 132.445.000.- meddlverd' c. kWh kr.1.49.
Petfa skiptist eftir sveitarfélögum eins og hér segir:
Sveitarfélag Seldar kWh Samtals kr. Medalverd kr. c- kWh Ath.
Olafsfjördur 4.556.000 11.713.000 - 2.57 Hitaveita
Dalvík 4.342.000 11.267.000.- 2.59 Hitaveita
Grímsey 356.000 1.138000.- 3.20 Raforkpn framleidd med disilvélum.
Svarfadardalshr. 2.997.000 3.459 0 00- 1.15
Hrísey 1.768.000 4.331.000- 2.45 Hitaveita
Árskógshreppur 3.508.000 4.462.000.- 1.27
Arnarneshreppur 2.344.000 2.851.000.- 1.22
SkridUhreppur 1.77 7.000 1.710.000,- 0.96
Öxnadalshreppur 702.000 817.000.- 1.16
Glœsibœjarhreppur 4.149.000 5.433000.- 1.31
Hrafnagilshreppur 3.878000 5.277.000.- 1.36
Saurbœjarhreppur 3235000 3.283.000,- ■ 1.01
Öngulsstadahr. 3.060000 5.556.000.- 1.82 Hitaveita ad hluta
Eyjafjardarsýsb ón Ólafsfj. og Dalvfkur 27.774.000- 38.315.000- 1.38
Svalbardsstr.hr. 4.784.000 6.60 6.000,- 1.38 Hitaveita ad hluta
Grýtubakkahr. 5026.000 6949.000,- 1.38
Hálshreppur 1.849.000 2.241.000.- 1.21
Ljósavatnshr. 1.686.000 2.293.000- 1.36
Bárddœlahreppur 1.414.000 1.556.000- 1.10
Skútustadahr. 3.943.000 6.188.000,- 1.57 Hitaveita ad hluta
Reykdœlahr. 2.543000 4.112.000.- 1.61 Hitaveita ad hluta
Adaldœlahr. 4049.000 4.561.000,- 1.13
Reykjahreppur 448.000 985.000,- 2.20 Hitaveita
Tjörneshreppur 1.167.000 1.3 6 9 000- 1.17
S. Pingeyjarsýsla 26.911.000 36961.000.- 1.37
Kelduneshreppur 2.150.000 2.420.000- 1.13
Öxarfjardarhr. 1.4 5 6.000 1.650.000- 1.13
Presthólahreppur 3.767000 5.264000,- 1.40
Raufarhafnarhr. 8.241.000 12.484.000,- 1.51
Svalbardshr. 1.210000 1.441.000.- 1.19
Pórshafnarhr. 7.739000 10.250000.- 1.32
Saudaneshreppur 647.000 780 000- 1.21
N. Pingeyjarsýsla 25.210000 34289.000,- 1.36
Eins og sést á þessu yfirliti er
mikill mismunur á meðalverði
raforku eftir sveitafélögum.
Þessu ræður hvort seld er raf-
orka til hitunar eða ekki.
Dalvík og Ólafsfjörður eru
dæmigerð hitaveitusvæði, og
því nær engin raforka seld á
hinum tiltölulega lágu húshit-
unartöxtum.
I dreifbýli er algengast að
raforkan sé seld eftir mark-
taxta sem er blandaður taxti
sniðinn fyrir búrekstur, alla
almenna heimilisnotkun oghús-
hitun. Með góðri nýtingu á
þessum taxta næst lágt meðal-
verð.
Ofanskráð er til upplýsinga ef
Norðurslóð hefur áhuga á að
birta.
Með kveðju til Svarfdælinga
og Dalvíkinga.
1. febr. 1984
Ingjólfur Árnason.
NORÐURSLÓÐ 3