Norðurslóð - 24.02.1987, Blaðsíða 1

Norðurslóð - 24.02.1987, Blaðsíða 1
Svarfdælsk byggð & bær ll.árgangur Þriðjudagur 24. febrúar 1987 2. tölublað ÞORRABLÓT Gott blót á Grundinni Ungmennafélagar skemmta með gamanvísum. SEXTÁN NÝ.JAR IBÚÐIR? Það er kunnara en frá þurfi að segja að á undanförnum árum hafa mjög fáar íbúðir verið byggðar hér á Dalvík, eins og víða út á landsbyggðinni. Það hefur heyrt til algjöra undan- tekninga að borist hafi umsóknir um lóðir. Nú bregður svo við að margar umsóknir liggja fyrirum lóðir. Sótt hefur verið um að minnstakosti fjórar einbýlis- húsalóðir. Tréverk h/f hefur sótt um tvær raðhúsalóðir og gera þeir ráð fyrir að byggja fjögurra íbúðaraðhús á hvorri þeirra. Þá hefur Dalvíkurbær sótt um lán frá Húsnæðisstofnun til að byggja leiguíbúðir. Umsókn- in var um átta íbúðir, og eru taldar góðar líkur á að lán fáist fyrir a.m.k. fjórum nú í ár. Á síðasta ári var Dröfn rifin. Þar voru á sínum tíma fjórar leigu- íbúðir, svo það sem byrjað yrði á nú væri til að fylla það skarð sem Dröfn skildi eftir. Líkur eru til að fleira verði byggt í sumar en íbúðir. Olís hefur óskað eftir að fá lóð undir starfsemi sína, það er bensín- afgreiðslu og einhverja verslun. Þeir Olísmenn hafa óskað eftir lóð austan við þjóðveginn inn í bæinn neðan við Vegamót. Héi á árum áður hafði Olís fengið úthlutað lóð við Gunnarsbraul en vegna þess að þeir höfðu ekki hafið framkvæmdir höfðu þeir misst lóðina. Þá lóð hefur Elektro fengið úthlutaða og hyggst reisa verk- stæðisbyggingu þar í sumar. Stofnuð hefur verið radio- viðgerðadeild hjá Elektro og veitir Kristinn Hauksson henni forstöðu. Sú deild er í leigu- húsnæði i gamla Allahúsinu hjá KEA. Önnur starfsemi fyrir- tækisins er í húsnæði þeirra við Skíðabraut. Með nýju bygging- unni færist starfsemin á einn stað. Fjárhagsáætlun Dalvíkurbæjar hefur ekki enn verið lögð fram svo ekki er vitað með vissu um framkvæmdir á vegum bæjarins í sumar. Þó er ákveðið að unnið verður við Krílakot, og áfang- inn sem byrjað var á í fyrra kláraður. Af þessari upptalningu má ljóst vera að miklar byggingar- framkvæmdir verða á Dalvík í sumar. FJALLIÐ Útivistarsvæði skipulagt Það var gaman á Grundinni að kvöldi Þorraþræls 21. febrúar þegar sveitamenn blótuðu Þorr- ann. 160 manns höfðu pantað miða fyrirfram og urðu aðrir frá að hverfa því eigi var rúm fyrir þau í Þinghúsinu. Höfðumargir af því áhyggjur fyrirfram að Grundin gamla bæri ekki allan þennan Ijölda orðin þetta mikið ræksni. En Grundin stóð af sér þorrablótið og voru menn þó ekkert að tipla á tánum þegar dansinn stóð sem hæst. í sveit- inni er enn sá ágæti háttur hafður á að hver fjölskylda kemur með sinn þorrabakka og gjarnan ekki annan borðbúnað en vasahnífinn og hafa margirá orði að annað sé óekta ef ekki hrein úrkynjun. Einhver hafði á Arngrímur og Kristjana. orði þegar húsmæðurnar stóðu í röð við miðasöluna hver með sitt trogið vandlega reifað borð- dúk eða öðru klæði, hvort konur þessar ætluðu virkilega að taka með sér smábörn á aðra eins brennivínssamkomu. Undir borðhaldinu voru flutt skemmtiatriði og virtust flestir á einu máli um að þau væru með albesta móti enda öll heima- tilbúin af Svarfdælsku hæfi- leikafólki. Er augljóst að það fellur alltaf í besta jarðveginn sem aflað er innan sveitar. Jóhann Daníelsson stjórnaði almennum söng við góðar undirtektir. Meðal annars sungu menn sönginn sem orðinn er sígildur á þorrablótum Svarf- dælinga: Þorrablótin þar á Grund það er heilög stund. Þangað sækja sveinn og sprund og sjá ekki málaðan hund. Að borðhaldinu loknu var salurinn ruddur og tekið til við dansinn. Dans hefuraldrei verið feimnismál í Svarfaðardal og skulfu veggir og hrikti í undir- stöðum Þinghúss hreppsins þegar hljómsveitin spilaði ijöruga polka. Klukkan að nálgast fjögur var ballinu slúttað og hver hélt glaður til síns heima. Þorra- blótsnefndin á heiður skilinn fyrir sérlega skemmtilegt blót. Hj.Hj. Blótað hjá KEA Dalvík Þorrablót var einnig hjá Starfs- fólki KEA á Dalvík s.l. laugar- dagskvöld og var þar fjölmennt að venju. Heiðursgestir á samkomunni voru hjónin Arngrímur Stefáns- son og Kristjana Sigurpáls- dóttir, en Arngrímur hefur starfað í 40 ár hjá KEA og hlaut hann við þetta tækifæri viður- kenningu stofnunarinnar, heiðurs- pening m.m. Einnig hlaut viðurkenningu fyrir jafn langt starf Hörður Sigfússon, en hann var fjarver- andi. Báðir þessir menn hafa starfað á Bílaverkstæði KEA á Dalvík þessi 40 ár. Þeir sem hafa vaxið úr grasi á Dalvík minnast víst flestir ánægju- stunda sem þeir áttu sem börn og unglingar uppi í Hólum. Þá var „alltaf' gott veður og unaðslegt að sulla og synda í tjörnunum, finna leðjuna í Stór- hólstjörninni spýtast upp á milli tánna og úða í sig berjum. Margir hafa haldið tryggð við Hólana og leita þar andlegrar og líkamlegrar endurnæringar við skíðaiðkan að vetri og berja- ferðir eða lautartúra að sumri. Flestir eru á því að fjallið okkar sé hrein Paradís á öllum árs- tímum, og veit nokkur fegurri sjón en Böggvisstaðafjall að hausti, logandi rautt með hvíta hettu? í frumdrögum/tillögum Árna er lagt til að Böggvisstaðafjall og Böggvisstaðahólar verði frið- lýstir sem fólkvangur, en fólk- vangur eru útivistarsvæði, og þá fyrst og fremst fyrir íbúa við- komandi sveitarfélaga, en reyndar opnir öllum, sem fylgja reglum um umferð og afnot sem settar hafa verið um þá. Þá er m.a. lagt til að skipu- lagður verði útivistarskógur í Hólunum og að þungamiðja skógræktarsvæðisins verði við Stórhólstjörn og Stórhólinn. Og til að vatn haldist í Stórhóls- tjörn allt árið, er varpað fram þeirri hugmynd að lækur úr Brimnesá verði endurnýjaður, (Gamli lækurinn í sundpoll Frá gróðursetningu kvenfélagsins í Hólunum 1985. Þó er það svo að ýmsum hefur þótt sem við Dalvíkingar gætt- um þessarar gersemi okkarekki sem skyldi, mannvirkjagerð verið handahófskennd og spjöll unnin, bæði af mönnum og búfénaði. Það var því afráðið að láta skipuleggja þetta útivistarsvæði okkar og Árni Steinar Jóhanns- son (Árni Valrósar) fenginn til þess. Nú hafa frumdrög að tillögum borist Skipulagsnefnd og hefur Bæjarstjórn þegar samþykkt eina þá hugmynd sem fram er komin, en það er að aðkoma að svæðinu verði frá Böggvisbraut, upp úr Mímis- vegi, eftir landslaginu upp að Stórhól og tengist það vegi að skíðamannvirkjunum. Dalvíkur) því enn móti fyrir farvegi lækjarins víða og því tiltölulega auðvelt að koma vatni frá ánni í tjörnina. Jafnframt eru hugsanleg mörk fólkvangsins tiltekin og lögð á það rík áhersla að skipulega verði unnið að mannvirkjagerð, samræmis gætt innbyrðis og við náttúruna sjálfa. Það er rétt að undirstrika það að hér er aðeins um frumdrög að tillögum að ræða og Skipulags- nefnd hefur þau nú til skoðunar og umsagnar. Endanlegar til- lögur koma síðan frá Árna þegar hann hefur unnið úr þeim athugasemdum og óskum sem nefndin kann að setja fram á grundvelli þessara frumdraga

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.