Norðurslóð - 24.02.1987, Page 3
Fiskiland - Dalvík
Nýtt fyrirtæki
Gígja Kristbjörnsdóttir og Viðar Valdimarsson.
Þessa dagana er að koma á
markaöinn í Svarfdælabúð og
öllum öðrum matvælabúðum
KKA frosinn fiskur í nýjum
umbúðum. I>að er lofttæmdur
plastpoki i bláum, grænum og
gulum lit og sýnir öldu, sem ris
og brotnar í hvítfyssandi löðri.
Ofan við stendur orðið FISKI-
FAND.
Þessi fiskur er ættaður frá
Dalvík frá nýju fyrirtæki KEA,
sem rekið veröur sem sjálfstæð
rekstrareining en þó í nánum
tengslum við Frystihúsið.
Fréttamaður brá sér inn í 0/
gamla húsnæði Kjörbúðarinnar
við Skíðabraut. sem nú er
allögð. Þar er hið nýja lyrirtæki
Fiskiland til húsa. Þar voru að
störlum lorstjórinn. Viðar
Valdemarsson matreiðslumeist-
ari og aðstoðarmaður hans,
Gígja Kristbjörnsdóttir. (Vegna
ættlræðinnar skal þess getið
hér. að Viðar er bróðir Óla
Valdemarssonar sláturhússtjóra
og yfirmanns kjötsviðs KEA á
Akureyri og er því hálfur
Dalvíkingur. sonur Önnu
Kristinsdóttur Hallgrímssonar í
Miðkoti.)
Viðar leiddi blaðamann í
allan sannleika viðvíkjandi
rekstrinum. sem var að fara í
gang þessa dagana. Hann kom
hingað til Dalvíkur í september
síðastliðinn og hefur síðan
unnið að undirbúningi fram-
leiðslunnar. sem hefur dregist
töluvert vegna seinagangs við
alhendingu tækja og umbúða.
Fiskur í
neytendaumbúðum
En í stuttu máli er það einkum
tvennt. sem stefnt er að a.m.k.
til að byrja með. Annað er að
pakka frosnum fiski í neytenda-
umbúðir eins og drepið er á hér í
upphafsorðunt þessa máls.
Fiskurinn kemur allur úr laus-
frystingunni í Frystihúsinu hér á
staðnum bæði venjuleg l'lök og
formflök af ýmsum fisktegund-
um. þorsk. ýsu. karfa, kola
o.s.frv. Flökunum er stungið í
plastumbúðirnar sem síðan fara
í gegnum lofttæmingarvél. sem
síðan lokar pokanum kyrfilega.
Þetta er gert til að auka
geymsluþol fisksins. Að lokinni
meðferð fara pakkarnir á tölvu-
vog. sem vigtar þá og verð-
merkir og síðan eru þeir tilbúnir
til að fara í verslanirnar og út til
neytandans.
Þessi starfsemi hófst 12.
febrúar og nú er verið að koma
upp dálitlum lager í frysti-
geymslunni á staðnum. Þó að
það sé ætlunin að þessi vara
seljist fyrst og fremst í búðum
Kauplélagsins er þó hugmyndin
að hún fari miklu \ íðar og seljist
hverjum sem hafa \ ill út um allt
land.
Tilbúnir fiskréttir
Hinn þátturinn. sem fyrirhugaður
er, er framleiðsla ýmiskonar
tilbúinna fiskrétta. sem neyt-
andinn þarf aðeins að hita upp
eða lítið þar fram yfir. Þarna
telur Viðar matreiðslumeistari
að séu fólgnir mjög miklir
möguleikar fyrir fyrirtækið.
Telur þó að þarna sé hollast að
flýta sér mjög hægt og fikra sig
áfram með fáar tegundir rétt til
að byrja með og sjá hvernig
markaðurinn bregst \ ið.
Þessi framleiðslugrein er alls
ekki komin í gang. tækin sem til
þarf. ókomin til landsins sum
hver. en eitthvað ætti samt að
fara að gerast í þessari fram-
leiðslu líka þegar líður á árið.
Fiskiland er fyrirtæki. sem
lætur ekki mikið yfir sér þarna í
lága húsinu við Skíðabrautina
og starfsfólkið er aðeins 2
manneskjur. En stundum er
mjór mikils \ ísir og hver veit
nema þetta fyrirtæki eigi eitirað
sanna þann málshátt.
Leikfélag Dalvíkur
Aftur af stað
JSmk |
f
1" 4v i * MÉanT ■Tftíli ’
Sviösmynd úr Táp og fjör. Bræöurnir og töffarinn.
Við Dalvíkingar höfum oft
státað okkur af því að eiga
gott og metnaðarfullt leikfélag.
Á hverju hausti er það í umræðu
manna á meðal, hvað verði nú
sett upp í vetur. og er auðheyrt
að l’ólki finnst leikíélagið hafa
alla burði til að setja upp bæði
viðamikil og metnaðarfull verk.
Starfsemin hefur enda ekki
gefið tilefni til annars, þvi
undanfarin ár hefur hver stór-
viðburðurinn rekið annan,
okkur hér í byggðarlaginu til
óblandinnar ánægju. Höfum
við alla jafna gengið út af sýn-
ingum leikfelagsins ekki bara
ánægð, heldur einnig stolt af því
að í okkar heimabyggð skuli
vera til fólk sem bæði hefur
hæfileika og gefur tíma sinn til
að auðga mannlífið með þessum
hætti.
Eins og áður hefur komið
fram setti félagið í vetur upp
sýninguna Til sjávar og sveita.
samantekt úr verkum Jónasar
Árnasonar. Sú sýning gekk vel
og gaf aðsókn og áhugi ekki
tilefni til annars en að hugað
yrði að stærra verkefni í vetur.
Varð niðurstaðan sú að sett yrði
upp Túskildingsóperan og var
Guðjón Pedersen fenginn til að
leikstýra. Ágætur hópur áhuga
og hæfileikafólks var tilbúinn
að standa að sýningunni, en -
þótt leitað væri. svo að segja.
með logandi ljósi. varð niður-
staðan sú að ekki tókst að
manna tvö karlhlutverk. Það
hefur því orðið úr að Túskildings-
óperan verður geymd en ekki
gleymd. því þó ekki hafi tekist
að manna verkið nú er fullur
áhugi á því að taka það upp
síðar.
Það er því einskonar hlé í
starfseminni núna á meðan
verið er að leita að verki sem
hentar þeim hópi, sem eins og
áður sagði, er tilbúinn að standa
að uppsetningu á sýningu nú á
útmánuðum. Guðjón Pedersen
er tilbúinn að leikstýra og þar til
rétta verkið er fundið og æfingar
á því hefjast, sem gæti orðið í
næstu viku, er hugmyndin að
hafa námskeið fyrir hópinn.
Leikfélag Dalvíkur lætur ekki
deigan síga frekar en Guðmund-
ur sá er núspókarsigá fjölunum
í Freyvangi.
Svarfdælinga-
samtökin
30 ára
Á þessu ári verða 30 ár liðin frá stofnun Svarfdælinga-
samtakanna í Reykjavík. Aðalhvatamenn að stofnun
samtakanna sem jafnframt skipuðu fyrstu stjórn þeirra
voru þeir Snorri Sigfússon, Kristján Eldjárn og Gísli
Kristjánsson.
Samtökin hafa á þessum tíma beitt sér fyrir ýmsum
verkefnum til heilla fyrir byggðarlagið og ber þar hæst
ritið Svarfdælingar sem Stefán Aðalsteinsson tók saman
en entist þó ekki aldur til að sjá í bókarformi. Ritið er í
tveimur bindum og kom út árið 1976 og 1978. Telja má víst
að bækur þessar séu til á svo til öllum heimilum í
Svarfaðardal og víðar og eru þær mikið notaðar. Flafa
margir Svarfdælingar fundið „rætur“ sínar með aðstoð
þeirra og orðið margs vísari um uppruna sinn og Svarf-
dælska sögu almennt. Svarfdælingasamtökin hafa einnig
staðið fyrir samkomum fyrir brottflutta Svarfdælinga á
Reykjavíkursvæðinu í áraraðir við góðan orðstír. Stjórn
samtakanna skipa nú þau: Kristján Jónsson, formaður,
Sigurlína Árnadóttir, Hrönn Haraldsdóttir, Sólveig
Sveinsdóttir og Sólveig Jónsdóttir.
Lesendum Norðurslóðar til fróðleiks og gamans birtum
við hér greinargerð um félagsskapinn sem Kristján Eldjárn
tók saman og sendi áhugamönnum árið 1965.
Frh. á bls. 5
NORÐURSLÓÐ - 3