Norðurslóð - 24.02.1987, Qupperneq 4

Norðurslóð - 24.02.1987, Qupperneq 4
HEIMSOKN IRAI .Fjölbreytt starfsemi fer fram í Ráðhúsinu á Dalvík. Þegar ákveðið var að byggja húsið var einmitt hugsunin að safna á einn stað sem allra mestu af þeirri þjónustu sem almenningur þarf á að halda. Byrjað var á byggingunni árið 1975 og þeir fyrstu fluttu inn 1979. Eigendur húsins eru Dalvíkurbær 45%, Sparisjóður Svarfdæla 27%, Verkalýðsfélagið Eining 10% og síðan Ríkissjóður vegna bæjar- fógetaskrifstofu, Brunabótafélag fslands og Bókhaldsskrifstofan h/f um 6% hver þessarra aðila. Ljósmyndari Norðurslóðar gekk um húsið á dögunum og tók nokkrar myndir af fólki að störfum, og af starfseminni sem þarna fer fram. almenn afgreiðsla, þar sem auk bæjarsjóðs er afgreiðsla fyrir fyrirtæki bæjarins. svo sem veiturnar og hafnarsjóð og einnig Sjúkrasamlagið og Útgerðarfélag Dalvíkinga h/f. Nýlega hefur verið samþykkt að bærinn kaupi tölvubúnað sem komi í stað núverandi búnaðar, sem þykir um margt ófullkom- inn í dag og dýr í rekstri. Þessi nýi búnaðurverðursamtengdur nýrri tölvu Bókhaldsskrifstof- unnar h/f, og verður þar með kominn fullkominn og góður tölvubúnaður í Ráðhúsið. Þessi ákvörðun var tekinn þar sem í Ijós kom hversu fjárhagslega þetta er hagkvæmt fyrir báða aðila. Bæjarfógetinn er einnig með sína afgreiðslu á jarðhæðinni. Þótt hér séekki sjálfstætt bæjar- Bókhaldsskrifstofan er með talsverðan hluta af annari hæð- inni fyrir sína starfsemi. Auk síns eignarhluta og þess sem leigt er af Einingu er eignarhluti Brunabótafélagsins nýttur af þeim sem almennar skrifstofur. Bókhaldsskrifstofan er með umboð fyrir Brunabótafélagið og afgreiðsla þess er með annari afgreiðslu fyrirtækisins. Eins og áður er komið fram er tölvu- búnaður sem Bókhaldsskrif- stofan býr yfir og verður með í samstarfi við bæinn nokkuð öflugur. Það er í undirbúningi að fyrirtæki tengist þessari tölvu utan úr bæ með símalínum. Það færist í vöxt að fyrirtækin fái sér tölvur sjálf sem ýmist vinna sjálfstætt eða tengjast stærri tölvum með línu eins og fyrr greinir. Dalvíkurbær á hluta af annarri hæðinni. Sá hluti var innréttaður á síðasta ári, en hefur ekki verið tekinn í notkun ennþá. Arkitektinn sem teikn- aði húsið er nú að skila tillögum að nýtingu skrifstofuhúsnæðis bæjarins. bæði af jarðhæðinni og annari hæðinni og verður þá tekin ákvörðun um hvernig húsnæðið á efri hæðinni verður nýtt. Sparisjóðurinn á einnig hluta af annarri hæðinni sem hann Emilía Höskuldsdóttir og Birna Björnsdóttir í Sparisjóðnum. fógetaembætti, fer talsverður hluti af agreiðslumálum fram á skrifstofunni hér. Þó er það svo að nokkur hluti fer fram á Akureyri, ýmist þannig að fólk þarf sjálft að sækja þjónustuna þangað eða að skrifstofan hér sendir skjöl og pappíra til frágangs. Eins og oft hefur komið fram hefur fast verið sótt á um aukið sjálfstæði skrif- stofunnar hér eða það sem eftirsóttast er að Dalvík verði sjáifstætt bæjarfógetaumdæmi. Með þessu er ekki verið að kasta rýrð á þá þjónustu sem skrif- stofan hér hefur veitt, heldur verið að óska eftir að auka hana og styrkja. Nú er komið beint tölvusamband við bókhald embættisins á Akureyri sem auðveldar alla afgreiðslu og að gefa upplýsingar t.d. til gjald- Ábúðarmikill „fógeti“ Císlína Císladóttir. leigir eitt þeirra sem skrifstofu fyrir framkvæmdastjórann og skrifstofumann. Annað er leigt Útgerðarfélagi Dalvíkinga h/f fyrir framkvæmdastjórann. Bókhaldsskrifstofan h/f leigir síðan tvö minni herbergin. í öðru þeirra er nú framtals- þjónusta, en tölva og ýmiss tengdur búnaður í hinu. nýtir að hluta til sjálfur fyrir skráningu og kaffistofu. Að öðru leiti leigir Sparisjóðurinn Söltunarfélagi Dalvíkur h/f skrifstofuaðstöðu og hefur svo verið um sex ára skeið. Þriðja og efsta hæðin er enn ófrágengin. Þar hefur verið gert ráð fyrir að fundarherbergi, kaffistofa og sitthvað fleira Á tæknideild bæjarins: Jóel Kr. Ríkharðss. og Ævar Ármannss. tækifr. í kjallaranum hefur Héraðs- skjalasafnið verið til húsa í allmörg ár. Á síðast liðnu ári flutti Bókasafn Dalvíkur þangað inn í mjög snyrtilegt og rúmgott pláss. Niður í kjallarann liggur sem sagt leið grúskara og bókmenntaunnenda. Víða erlend- is eru frægustu bjórkrár hverrar borgar í ráðhússkjöllurum. Hér er enginn bjór og þar af leiðandi engin krá. Á jarðhæðinni eru afgreiðslu- salir helstu stofnana. Sparisjóður Svarfdæla gegnir miklu hlut- verki sem eina raunverulega peningastofnun þessa byggða- lags. Þangað liggur því leið margra. Á undanförnum árum hefur talsverð breyting átt sér stað í íslenskri bankastarfsemi. Þessar breytingar hafa að sjálf- sögðu einnig snert Sparisjóðinn hér. Smátt og smátt hefur verið aukið við tölvunotkun sjóðsins. Nú í byrjun mars verður náð mikilvægum áfanga í þeim efnum. Svokölluð beinlínu vinnsla hefst þá. Beinlínuvinnsla hefur það í för með sér að tölvu- skjár gjaldkera í afgreiðslu er í beinu sambandi við Reiknis- stofu bankanna fyrir sunnan, svo að um leið og gjaldkeri afgreiðir, færast allar bókhalds- færslur jafnóðum, í stað þess að þetta er gert í lok hvers vinnu- Kristjana Sigurbjörg Cestsdóttir við tölvuskjá í Sparisjóðnum. Björgvinsdóttir við bókhaldsvinnu hjá bænum. enda um stöðu sína. Á annari hæð Ráðhúsins er Verkalýðsfélagið Eining með skrifstofu sína. Þangað sækja félagsmenn ýmsa aðstoð og þjónustu, auk þess sem atvinnu- rekendur þurfa oft að bera sig saman við skrifstofuna um réttindamál starfsfólks. Verka- lýðsfélagið nýtir fyrir sína starf- semi aðeins eitt skrifstofu- herbergi af sínum eignarhluta en leigir önnur út. Sæplast h/f dags nú. Þarmeðgeturgjaldker- inn t.d. séð hvort innistæða er á hlaupareikningi fyrirávísunsem hann er að bóka. Allt miðar þetta að því að gera þjónustunna liprari og öruggari. Einhverjar breytingar þarf að gera á innréttingum og vinnutilhögun og er verið að skipuleggja slíkt nú. Dalvíkurbær er með skrifstofu sína gegnt Sparisjóðnum. Þarer Cr afgreiðslusal Sparisjóðsins: Ásgerður Jónasdóttir gjaldkeri. 4 - NORÐURSLÓÐ

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.