Norðurslóð - 24.02.1987, Síða 8

Norðurslóð - 24.02.1987, Síða 8
Svarfdælsk byggð & bær Tímamót Skírn Þann 8. febrúar var skírður í Dalvíkurkirkju Þórður, foreldrar Þórunn Þórðar- dóttir og Willard Helgason Svarfaðarbraut 30, Dalvík. Séra Jón Þorsteinsson prestur í Grundarfirði skírði. Blaðið flytur heillaóskir. Afmæli Þann 22. febrúar varð 75 ára Sœvaldur Sigurðsson áður í Runni, nú í Dalbæ, Dalvík. Norðurslóð óskar afmælis- barninu allra heilla. Fréttahornið Eins og áður hefur komið fram í fréttahorninu skipaði bæjarstjórn Dalvíkur nefnd um sjávarútvegsfræðslu á Dalvík. Nefndin skilaði bráðabirgðaáliti fyrir áramót og lagði til að þegar næsta haust verði annað stig skipstjórnarnáms kennt við Dalvíkurskóla. Erindi um þetta var síðan sent til Menntamála- ráðuneytisins og hefur bæjar- stjórn nú borist bréf ráðuneytis- ins þar sem gefin er heimild til kennslunnar. Nefndin hefur síðan um áramót verið að kanna möguleika til fleiri námsbrauta á sviði sjávarútvegsfræðslu og er komin í gott samband við Fiskvinnsluskólann í Hafnar- firði og er hugsanlegt að hægt verði að bjóða upp á kennslu í fiskiðn jafnvel á næsta skólaári. eirri hugmynd hefur stund- um verið hreyft að koma á daglegum skólaakstri milli Akureyrar og Dalvíkur. Þetta er hugsað þannig að námsfólk sem stundar framhaldsnám í Verk- menntaskólanum eða Mennta- skólanum á Akureyri, fari að morgni frá Dalvík og sé komið um átta til Akureyrar og geti síðan komist síðdegis til Dal- víkur aftur. Ef tekst að koma á fót nokkrum greinum á sviði sjávarútvegsfræðslu hér á Dal- vík er ekki útilokað að skóla- akstur komi einnig til greina frá Akureyri til Dalvíkur. Til við- bótar má svo benda á að háskólanám á Akureyri eykur líkurnar á að hægt verði að koma svona akstri við. Nýr bæjarverkstjóri hefur tekið til starfa. Ingvar Kristinsson húsasmiðurvarráð- inn verkstjóri í stað Vilhjálms Þórarinssonar sem sagði starfinu lausu á síðasta ári. Ingvar hefur nú um árabil rekið byggingar- fyrirtækið Kvist s/f ásamt Sigurjóni Kristjánssyni. Þeir félagar eru að hætta rekstri fyrirtækisins og hafa auglýst húseignina við Grundargötu til sölu, einnig vélar og tæki. Sunnudaginn 22. febrúar hélt Svarfdælingafélagið í Reykja- Stjórn Svarfdælingasamtakanna. vík og nágrenni árlegan aðal- fund sinn. Stjórn samtakanna sem talin er upp annarsstaðar í blaðinu var endurkjörin í heilu lagi og starfsemi samtakanna skipulögð næsta árið. Eitthvað á þessa leið er dagskráin: 15. mars verður haldinn köku- basar í safnaðarheimili Lang- holtssafnaðar. 10. maí verður vorkaffi samtakanna hjá Guðjóni Brjáns- syni í Múlabæ. Þangað verður boðið eldri Svarfdælingum á Reykjavíkursvæðinu, drukkið kaffi, spjallað og að öllum líkindum sýnd myndin ,,Við tökum marsinn" sem eins og kunnugt er var tekin á gömlu- dansaballi á Grundinni fyrir allnokkru. Sumarferð verður farin í sumar en ekki hefur enn verið ákveðið hvert eða hvenær. 14. nóvember verður svo árs- hátíðin, Svarfdælingamótið. Sem verður jafnframt 30 ára afmælishátíð Svarfdælinga- samtakanna. Menn gæla og við þá hugmynd að kórinn verði endurreistur en það er ekki frágengið enn. Jóninna Guðlaugsdóttir frá Hamri 90 ára Fyrir aldamótin voru fjölbyggð- ar sveitir austan Eyjafjarðar, heilar kirkjusóknir, sem nú eru algjörlega eyddar að mannfólki. Þetta eru Fjörðurnar, þ.e. Þorgeirsfjörður og Hvalvatns- fjörður, sem mynduðu Þöngla- bakkasókn og svo Flateyjar- dalur og heiðin, sem ásamt með Flatey á Skjálfanda mynduðu kirkjusókn og var kirkjan lengst af á Brettingsstöðum. Síðasti bærinn fór í eyði í Fjörðum 1944 en á Flateyjardal nokkru síðar. Enn er okkar á meðal margt fólk, sem fætt er í þessum byggðum og sumt átt þar heima mikinn hluta æfi sinnar. Ein þeirra er Jóninna Guðlaugs- dóttir, sem nú býr í Dalbæ á Dalvík, betur þekkt af öllu eldra fólki sem Jóninna á Hamri. Jóninna varð 90 ára þann 27. desember síðastliðinn eins og getið var um í jólablaði Norður- slóðar. Blaðamaður heimsótti hana í Dalbæ nú á dögunum og bað hana að rifja upp æfiferil- inn. Það kom í ljós að hún átti ekki erfitt með það, minnið er í besta lagi og hún rakti greiðlega minningavefinn. Að sjálfsögðu eru það einungis höfuðdrætt- irnir, sem hér verða skráðir. Hitt, sem þó skiptir mestu máli, fyrir einstaklinginn, draumar æskunnar og veruleiki lífsins, vonir og vonbrigði, sigrar og ósigrar mannsæfinnar, allt þetta er og verður ósögð saga. Hún fæddist á Eyri (Knarrar- eyri) á Flateyjardal þar sem foreldrar hennar, Guðlaugur Jónsson og Hólmfríður Tómas- dóttir, bjuggu þá hjá móður- foreldrunum Tómasi Guðmunds- syni og Hólmfríði Jóakims- dóttur. Á malarkambinum út við sjóinn standa enn traustlegir veggir fjárhúsanna, sem Árni föðurbróðir Jóninnu reisti þarna nokkru seinna. Sonur Árna var Sigurbjörn, Bjössi á Hamri, síðar trésmiður á Akureyri, sem margir hljóta að muna eftir frá því hann var hér unglings- strákur hjá frænku sinni á Hamri. Jóninna man eftir því þegar foreldrar hennar fluttu frá Knarareyri þegar hún var 4 ára að Tindriðastöðum í Hvalvatns- firði. Þau fóru Sandskarð niður að Kaðalsstöðum og hún man að hún sat á rauðum hesti sem teymdur var upp brattar brekk- . umar. Á Tindriðastöðum bjuggu foreldrar hennar lengi og eign- uðust mörg börn. Yfir á Rauðuvík á Árskógs- strönd bjó hinsvegar móður- systir hennar, Sólveig Tómas- dóttir, seinni kona Þorsteins Vigfússonar, en hans synir voru af fyrra hjónabandi Þorsteinn á Hálsi og Gunnlaugur á Hamri, sem seinna varð maður Jóninnu, og fleiri systkini. Þau Sólveig í Rauðuvík og Þorsteinn voru barnlaus, svo nú varð það að ráði að Jóninna var fengin þessum hjónum í fóstur, þá 7 ára gömul. Þarna dvaldi hún fram yfir tvítugt. Á hverju ári fékk hún að fara í heimsókn til foreldra og systkina á Tindriða- stöðum. Þá var hún ferjuð yfir á Kljáströnd og svo lá leiðin norður yfir Leirdalsheiði. Þetta var helsta tilbreytingin og til- hlökkunarefni allt árið. Ekki voru skólarnir á þessum árum, en til Akureyrar fór hún á námskeið og lærði fatasaum, sem hún stundaði mikið langan aldur eins og margir sjálfsagt muna enn. í Rauðuvík kynntist hún mannsefninu Gunnlaugi Þorsteins- syni, sem þangað kom oft í heimsókn til föður síns og stjúpu. Séra Stefán Kristinsson gaf þau saman í hjónaband í baðstofunni í Rauðuvík 16. maí 1918, eftir frostaveturinn mikla. Tveimur dögum seinna reið brúðirin út í Háls í Svarfaðardal og þar hófu ungu hjónin búskap á hluta jarðarinnar á móti Þorsteini og Jófríði. Þröngt var á Hálsi í tvíbýlinu, en eftir 7 ár losnaði Hamar, nágrannabærinn þar sem Jóhann Páll Jónsson og Ánna Jóhannes- dóttir höfðu búið síðustu 5 árin. Þessa jörð keyptu þau Gunnlaugur og Jóninna af Jóhanni Páli og fluttu þangað vorið 1925. Ekki var aðkoman glæsileg, ekkert hús sæmilegt nema baðstofan, nýbyggð eftir bruna. Túnið var lítið og kargaþýft það sem það var. Þarna bjuggu þau hjónin í 28 ár og björguðust vel af. Flest hús voru endurbyggð í gömlum stíl að vísu, fjósið og íbúðar- húsið var steinhús, sem enn stendur og notast sem sumar- bústaður. Búið var aldrei stórt en notadrjúgt. Eitthvað vann Gunnlaugur utan heimilis eftir getu og Jóninna tók til sín saumaskap og drýgði þetta tekjurnar nokkuð. Fósturmóðir Jóninnu, Sólveig í Rauðuvík, flutti til hennar þegar hún var orðin ekkja og „var í horninu hjá okkur síðustu 25 árin sem hún lifði" eins og Jóninna orðaði það. Ekki varð þeim Hamarshjónum barna auðið, en snemma tóku þau í fóstur systurdóttur Jóninnu, stúlkubarn, sem hét Jónína Gunnlaug Jóhannesdóttir. Tvítug giftist hún Sigurði Árnasyni frá Hjalteyri og eignuðust þau dóttur, Helgu. Jónína veiktist af berklum og dó 23 ára gömul árið 1946. Þá tóku þau Hamars- hjón litlu stúlkuna Helgu í fóstur og ólu hana upp sem sitt eigið bam eins og áður móðurina. Árið 1953 urðu aftur þáttaskil í lífi fjölskyldunnar. Þá ákváðu þau að selja jörðina og flytja til Dalvíkur. Um þessar mundir voru kaupstaðir og kauptún vítt um land að kanna möguleika á að koma sér upp hitaveitum. Dalvíkingar höfðu augastað á volgu lindinni á Hamri, þar sem sérfræðingar álitu að kynni að mega fá meira og heitara vatn. Þetta varð til þess að hreppurinn bauð vel í jörðina eða 140 þúsund krónur. Var talið að helmingur verðsins væri fyrir jörðina sjálfa ogjafnmikið fyrir vonina í heita vatninu. Svarf- aðardalshreppur átti hinsvegar forkaupsrétt að jörðinm og notaði sér hann. Leigði síðan Dalvíkingum hitaréttindin og verður sú saga ekki rakin hér. Nú segir Jóninna, að sér finnist gaman til þess að hugsa að hún og allir Dalvíkingar orni sér við ylinn frá gömlu lindinni á Hamri. Sjálf fluttu hjónin meðfóstur- dótturina í gamla húsið Ás við Grundargötu, sem þau keyptu af Jóni Björnssyni smið, sem þá var að flytja í rýmra húsnæði með barnahópinn sinn. Þeim leið vel á Ási. Gunnlaugur vann daglaunavinnu fyrstu árin á Dalvík, enda þótt hann væri kominn á sjötugsaldurinn. Og Jóninna hélt áfram sauma- skapnum enn um sinn. Gunnlaugur andaðist á nýárs- dag 1978 á 87. aldursári. Jóninna llutti í Dalbæ, heimili aldraðra, þegar það tók til starfa sumarið 1979. Þar býr hún enn og unir vel hag sínum. Þarna höfum við æfileiðina frá Flateyjardal til Svarfáðardals og ótrúlega litlir krókar eru á þeirri leið. Jóninna hefur ekki gert víðreist um dagana. Þó minnist hún með gleði skemmtiferðar sem þau hjónin fóru ríðandi allt austur í Öndólfsstaði í Reykjadal til kunningja þar. Á austurleið var gist á Veigastöðum gegnt Akur- eyri. En heimleiðin var farin í einum áfanga, Fljótsheiði, Ljósa- vatnsskarð, Vaðlaheiði, inn fyrir Eyjafjörð og alla leið út í Svarfaðardal. Löng dagleið það ríðandi fólki. Og út í Flatey á Skjálfanda fór hún að heimsækja eina systur sína. En vestur? Nei aldrei vestur fyrir öxnadals- heiði. Þetta er fróðlegt til umhugsunar þeim mörgu sveit- ungum Jóninnu, sem fara til sólarlanda á hverju ári. Þaðeru tvennir tímarnir, þótt stutt sé á milli. En Jóninna harmar ekki hlutskipti sitt, hún virðist hafa ánægju af að rifja upp lífsferil- inn. Hún er sátt við lífið og tilveruna og þakklát öllu því góða fólki, sem hún hefur orðið samferða á æfinnar braut. Hún kveður gestina brosandi, falleg gömul kona umvafin munum og minningum í litlu stofunni sinni í Dalbæ. HEÞ

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.