Norðurslóð - 28.01.1988, Blaðsíða 2
NORÐURSLÓÐ
Útgefendur og ábyrgðarmenn:
Hjörtur E. Þórarinsson, Tjörn, Svarfaðardal
Jóhann Antonsson, Dalvík
Afgreiðsla og innheimta: Sigríður Hafstað, Tjörn
Sími 96-61555
Ljósmyndari: fíögnvaldur Sk. Friðbjörnsson
Prentun: Dagsprent hf.
Breyttar áherslur
í umræðu manna um byggðastefnu undanfarin ár hefur
átt sér stað ákveðin breyting frá því talið var nægjanlegt
að tryggja örugga og mikla atvinnu á landsbyggðinni,
þá myndi annað svo sem þjónusta fylgja á eftir, svona
nánast af sjálfu sér, til þeirrar umræðu sem nú rís
hæst, að landsbyggðin verði sjálf að hafa meira yfir sín-
um málum að segja og að vandi einstakra byggðarlaga
verði ekki leystur með skýrslugerð í Reykjavík.
Það er Ijóst að sú hugmynd að næg atvinna nægði til
eðlilegrar byggðafestu hefur beðið skipbrot. Þó svo
næg atvinna sé ein af forsendum þess að byggð haldist
á ákveðnum svæðum er nú að renna upp fyrir flestum
að ýmislegt fleira þarf til að koma.
Undanfarin ár hafa íbúar landsbyggðarinnar skynjað
æ ríkar valdaleysi sitt og þær takmarkanir sem þeim eru
settar varðandi að hafa áhrif á þróun atvinnu og þjón-
ustu heima fyrir. Akvarðanir sem varða landbúnað og
sjávarútveg eru í vaxandi mæli teknar syðra og lands-
byggðin njörvuð niður við ákvarðanir pólitískt kjörinna
aðila eða hagsmunasamtaka. Þjónusta við atvinnuveg-
ina og þróunarstarf er sömuleiðis víðsfjarri og afleidd
störf í þeim greinum því ekki nema í litlum mæli á
landsbyggðinni.
Varðandi stjórnsýsluna má segja að sama hafi verið
upp á teningnum. Þar eru þó mál örlítið að komast í
hreyfingu þar sem á dagskrá er komin frekari verkefna-
skipting ríkis og sveitarfélaga. Það er mikil nauðsyn að
sveitarstjórnir út um landið geri sér grein fyrir sinni
ábyrgð hvað það varðar að axla breytt hlutverk í stjórn-
sýslunni ef sú verkefnaskipting kemst á sem nú er á döf-
inni. Margt af því er þess eðlis að það verður best leyst
fyrir íbúana með aukinni samvinnu þeirra sveitarfélaga
sem saman eiga atvinnu- og félagslega og nauðsynlegt
að þar hafi sveitarstjórnirnar sjálfar frumkvæði en bíði
ekki eftir skrifborðslausnum að sunnan. Það gengur
ekki upp lengur að kvarta undan valdaleysi heima ef
menn skirrast við að taka þær ákvarðanir sem nauðsyn-
legar eru heima fyrir svo vel fari.
I atvinnumálum þarf einnig að sýna frumkvæði og
krefjast eðlilegrar hlutdeildar í því bákni sem byggst
hefur kringum það syðra. Auðvitað á þróunarstarf og
skipulag í þeim efnum að vera sem næst framleiðslunni
svo nýsköpun og frumkvæði fái notið sín og fólkið sem
vinnur í undirstöðuatvinnuvegum þessarar þjóðar finni
að þekking þess og reynsla sé einhvers metin. Það er
jafnframt forsenda þess að sérstaða hvers byggðarlags
komi fram og að á þeirri sérstöðu verði byggt en
„pakkalausnum“ hafnað. Maðurinn lifir ekki af brauð-
inu einu saman og þegar talað er um sjálfsákvörðunar-
rétt byggðarlaganna er jafnframt verið að tala um sjálf-
svirðingu hvers íbúa og þörf fyrir það að fá að hafa áhrif
á mótun eigin lífs og umhverfis. J.A.
Viöskiptavinir athugiö
Svarfdælabúð
Þorramatur
í miklu úrvali.
Byggingavörudeild
Verðlækkun á ýmsum rafmagnsvörum,
hreinlætistækjum, hitastýrðum ofnkrönum,
gólfdúkum og teppum
vegna breytinga á tollalögum.
Ú.K.E. Dalvík.
Dagbók Jóhanns
á Hvarfi
- Anno 1889 -
1. janúar. Kom Porgils á Sökku á
áliðnum degi, fullgerðum jafnað-
arreikning Sparisjóðs.
2. janúar. Komu 3 skólapiltar
frá Hólum, úr Þingeyjarsýslu á
leið vestur, voru í nótt.
5. janúar. Kom Sigurður á
Tungufelii (Sigurðsson). Færðum
inn í gjörðabók Sparisjóðs.
16. janúar. Komu Skíðdælir úr
kaupstað og margir fleiri. Afla-
laust alls staðar. Fór í Böggvis-
staði og tók kú blóð, var þar um
nóttina. Komu piltar þá úr fisk-
flutningsferð norðan frá Lax-
mýri, fóru þaðan að morgni 15. í
gær.
23. janúar. Reif af eldhúsi í
nótt, versta veður, stórhríð,
fjarska veður, reif af annan
strompinn.
24. janúar. Tekið nokkuð af
því sem dreif í nótt, reif af
skekkla í Skriðukoti.
25. janúar. Gerði Gísli á
Hvarfi við eldhússtrompinn, við
settum hann á.
11. febrúar. Fundur á Völlum,
nokkuð fjölmenni, rætt um
ómaga. Ráðið að kaupa salt.
21. febrúar. Kom Friðleifur í
Háagerði, færði mér selskinns-
skæði (F. Lækjarbakka).
22. febrúar. Kom Oddný á
Urðum, verður í nótt (O. Syðra-
Hvarfi).
24. febrúar. Norðan þoka,
dreif lognsnjó, klessti í jörð.
Fylgdi Leifa (sami Friðleifur) í
Gerði yfir ána í skinnsokkum
ofan á ís.
26. febrúar. Kom Valla-
madaman fór í Syðra-Hvarf (Val-
gerður Þórunn Jónsdóttir
madama séra Tómasar á Völlum
Hallgrímssonar).
2. mars. Lokað bréfum Jónas-
ar (barnakennara) og Sigfúsar til
Ameríku.
15. mars. Róið bæði á Ár-
skógsströnd og hér á Böggvis-
staðabát 30 í hlut á B-bát 50 á
Árskógsströnd. Ekki fengist neitt
teljandi úr sjó síðan í nóvember
fyrra ár. Kom Jón á Upsum og
margt fleira.
19. mars. Fór ég og Jóhannes
ofan á Sand, fékk Pál á Skálda-
læk til að róa á bátnum næstkom-
andi dag. Ég réri hjá Anton (A.
Árnason Hamri).
21. mars. Réri á sama stað.
28. mars. Sumir eru að hætta
vegna beituleysis og fiskrýrðar.
30. mars. Farið ofan, fékk
Tryggvi litli að fara með (Jó-
hannsson), róið 16 í hlut á mín-
um bát, komu piltar ofan, flutt-
um fiskinn heim.
31. mars. Sunnudagur. Fór ég
og fleiri til kirkju. Fóru Jóhann á
Böggvisstöðum og Þorgils á
Sökku yfir í Nes með sauðalof-
orð, 170, og vörupöntunarlista.
1. apríl. Piltar fóru ofan til
róðra. Kom margt manns.
5. apríl. Fórum við Jón á
Hreiðarsstöðum ofan að gera við
skut og stýri á bát okkar. Fengum
Jón Stefánsson til þess (Nýjabæ).
Vorum nótt á Sandinum 17 í hlut
á Hrísabát, þar réri Jóhannes.
6. apríl. í fyrradag fékk Bald-
vin sel. Fórum við Jón á Hreið-
arsstöðum ofan á Sand og gjörð-
um að bátnum, það sem eftir var.
Bárum koltjöru innan í bátinn.
9. apríl. Fórum á Syðra-Holts
bát 8-rónum á Hjalteyri: Hjörtur
á Urðum, (Sigurhjörtur Jóhann-
esson), Jón Hreiðarsstöðum, og
ég. Tókum síldartunnu á 7 krón-
ur og blakkfernis. Skófum bátinn
utan og bikuðum með blakkfern-
is, málað grátt efsta borðið.
10. apríl. Selur kominn, hefur
náðst.
13. apríl. Tryggvi á Látrum
varð var við íshroða fram við
Grímsey og Mínerva sá 1 jaka á
sömu slóðum. Ekki róið á
dalnum, allir hættir. Hlutir orðn-
ir svo hundruðum skiftir.
17. apríl. Kom Jón á Hnjúki
(Nonni) innan frá Selárbakka,
sagði húsbrunasögu eftir sjón frá
Nesi 14.-15. þessa mánaðar.
20. apríl. Kom Jóhannes frá
Möðruvöllum var í nótt á Hallgils-
stöðum. Sannfrétt að brann í
Nesi nýtt timburhús og mestöll
önnur bæjarhús, fjós og eitt
fjárhús, öll föt og búslóð utan
sængurföt það sem í baðstofu
var. Eldspýta féll hjá barni í tré-
spæni. Komið kaupskipið Rósa til
Ákureyrar með alls konar vörur.
ar vörur.
22. apríl. Kom Jónki á Hnjúki
(Nonni) frá Selárbakka, réðist
hér til fulls næsta vinnuár.
24. apríl. Sumardagurinn
fyrsti. Fórum í hús að skoða
skepnur (hann og Sólveig). Ær
mínar 60, þar af tvær lamblausar,
sjálfsagt önnur, sauðir fullorðnir
30, tvævetur 20, alls 50, 3 hrútar,
1 3ggjavetra og tveir tvævetra.
Lömb heimafóðruð: Geldingar
24, hrútar 3, gimbrar 11, alls 38.
Mínar sauðskepnur: ær 60, sauð-
ir 50, hrútar 3 fullorðnir, og
lambgemlingar 38. Alls til sam-
ans 151 kind. Svo á ég 3 geldinga
í fóðri, 1 hjá Jóni á Þverá, 2 hjá
Sigurði á Þverá, er þá 154 alls.
Kom í orð að ég keypti einn geld-
ing í Klængshóli sem séra Tómas
á í prestsfóðri og einn á ég hjá
Jóni Fr.s. á Grund fyrir afgjalds-
skuld. Svo eru kýr 4 og 2 kvígur
með kálfi, hross tamin 4 og 1
trippi. Kom séra Tómas og fólk
úr Hofsárkoti og tafði lengi.
27. apríl. Sást Lukkan, skip
Gránufélagsins. Sigldi hér upp að
Sandi.
28. apríl. Fór útlent skip inn,
óþekkt.
29. apríl. Fór ég, Jóhannes og
Jón á Syðra-Hvarfi ofan á Sand
til skipsins - farið ofan að vestan
með 12 hesta - fram að austan.
Keypti hálfan sel af Sigurði í
Árgerði (Sigurðssyni).
30. apríl. Frétti til hákarla-
skipa, afli 60-100 tunnur. Fisk-
laust hér nú.
3. maí. Klofið vetrartað. Byrj-
að vinna á. Sagt er nýtt skip Ingi-
björgu hafa komið til faktora (á
Akureyri) í dag.
4. maí. Járnaðir hestar, rakað
af hrossum, stungið út, marið
sundur og dreift vetrartaði. Logn
og hiti.
5. maí. Farið að sjást hér
lambagras og ljónslumma og
sprungið út á víði. Kom Sigurður
á Urðum, fékk hér býtti á 10 kr.
gulls í silfur.
9. maí. Kom Hallur (Gíslason)
og byrjaði á kálgarði suður og
niður á velli.
10. maí. Enti Hallur við garð-
hleðsluna og fór heim.
13. maí. Ent við að mylja, og
öllu á suðurvelli ausið, þaktir
ofan sáðgarðsveggir.
15. maí. Kom Jón á Jarðbrú
með landskuldir gemlinga, vænt.
Borið saman tað úr ærhusum, þar
með lokið eldiviðar hirðing. Rek-
ið saman og rúið geldfé, kom
þoka að kvöldi og norðan átt og
regn skúr mikill, gaf öllu geldfé
mínu hey, og beið það til næsta
morguns inni.
22. maí. Rekið geldfé, ráku
Páll og drengir. Stunginn garður
suður og niður það sem eftir var.
Björn Snorrason hér.
23. maí. Stungið og hresst
uppá garða út og upp. Kom
Baldvin í Höfða (Gunnarsson)
ræddum um pöntun. Gert við
myllu. Lagaður og þakinn fjós-
veggur að austan, skorið torf í
það. Sett ofan í garð kartöflur.
Kom Sigurður búfræðingur og
trók ofan af þúfum með Nonna
milli sauðhúsa (Jón Þórðarson
Hnjúki, Hlíð, Þóroddsstöðum .
Nonni kominn í stað Jóhannesar
sem flutti í Hrísa, Hof, Skriðu-
kot).
28. maí. Rist um 90 af heytorfi
suðurfrá, þakinn hjallur.
30. maí. Kom Þorsteinn
smiður, ætlar til Ameríku. Kom
síld, reyndir róðrar.
5. júní. Kom Þorsteinn smiður
frá Hvarfi (var að kveðja), verð-
ur hér í nótt, kom Þorsteinn á
Urðum úr kaupstað (Jóhannes-
son).
7. júní. Fór Þorsteinn smiður
héðan alfarinn með því áformi að
flytjast til Ameríku. Réru bátar
hér í dag, 30 í hlut.
10. júní. Annar í hvítasunnu.
Margt til altaris, héðan 5. var far-
ið á stað með Þorstein smið (Þ.
Þorsteinsson smiður Upsum faðir
Þ.Þ.Þ. rithöfundar og Freyju á
Hrísum) meðfram eftir síld (til
Akureyrar).
11. júní. Fórum ofan, var dreg-
ið fyrir fengum 12 bröndur í hlut
(silungur) ekki róið, bálveður að
kvöldi, lágum í búðinni.
12. júní. 30-50 í hlut á silung
sem fékkst í gærkvöldi. Kom
J.V. Hafsteen (Jakob Valdimar
faktor og konsúll Akureyri).
17. júní. Dregið fyrir við
sandinn, fékkst silungur, róið á 4
bátum, 50-80 í hlut. Fór ég ofan
og Gústi á Hvarfi og Nonni.
Dregið fyrir, fékkst silungur.
22. júní. Víseteraði prófastur á
Völlum, fór eg þangað af Sandin-
um.
26. júní. Róið almennt, rérum
með sjóbeitu og saltaða síld, 35 í
hlut. Rérum út hjá Forvaða,
gekk í rok, börðum heim. Kom
jakt Gránufélagsins með korn-
vörur sótti ull. Ég verslaði ekki í
kvöld en var að yndirbúa.
29. júní. Rekin lömbin. Ég átti
56, þar af 24 geldingar, 4 hrútar,
28 gimbrar, 2 eftfr yndir ám,
hrútur og gimbur, alls til í dag 58
mín. Ær hafa mjólkað ágætlega
þessa viku. Byrjað að slá.
30. júní. Lagði séra Kristján
(K. Eldjárn Þórarinsson Tjörn) á
stað ásamt Þorbjörgu systur
sinni suður í Borgarfjörð, til
fylgdar Árni Sölvason (bóndi
Hverhóli). Framhald í næsta blaði.
Vtra-Hvarfsbærinn fyrir aldamót. Stafnhúsið næst á myndinni stendur enn.
2 - NORÐURSLÓÐ