Norðurslóð - 14.12.1988, Blaðsíða 2
2 - NORÐURSLÓÐ
NORÐURSLÓÐ
Útgefendur og abyrgðarmenn:
Hjörtur Þórarinsson, Tjörn, Svarfaðardal
Jóhann Antonsson, Dalvík
Afgreiðsla og innheimta: Sigríður Hafstað, Tjörn
Sími 96-61555
Ljósmyndari: Rögnvaldur Sk. Friðbjörnsson
Prentun: Dagsprent
s
I lundum
nýrra skóga
Nú þegar loksins er konrinn kaldur vetur og sólin hætt
að sjást hérna á norðurslóð er rétti tíminn til að hefja
umræðu um gróður og vor.
Aldrei hefur meir en nú síðustu misserin verið talað
um ástand gróðurs á íslandi, gróðureyðing og endur-
heimt gróðurs. Raddir gerast háværar og þungum
ásökunum er slöngvað að bændum og öðrum þegnum
þessa lands, sem eiga grasbítandi dýr sér til arðs eða
ánægju nema hvortveggja sé. Hér er ekki hægt að
blanda sér að neinu ráði í þá oft öfgafullu umræðu.
Aðcins slá því föstu sem staðreynd, að gróður á stórum
hlutum landsins hefur frá örófi alda staðið höllum fæti
vegna óhagstæðra náttúruskilyrða lofts og lands og hef-
ur ekki þolað þá viðbótar áraun sem fylgdi tilkomu
mannsins og húsdýrum hans.
Það er alveg ástæðulaust að reyna að sýkna sauð-
kindina af aðild að gróðureyðingunni. Birkiskógurinn
hefur cyðst af ýmsum ástæðum, beit og mörgum öðrum
ástæðum. En sauðkindin hefur síðan verið duglegust
við að hindra nývöxt skóga á eyddum svæðum. En í
leiðinni bjargaði hún svo íslensku þjóðinni frá að deyja
af hungri og kulda í landi sínu og því má helst ekki
gleyma.
Nú hefur sauðféinu fækkað mikið, sumstaðar mjög
mikið svo sem hér í Eyjafirði og afleiðingin er m.a. sú,
að víðir og jafnvel birki er tekið að skjóta upp kollinum
svo sumstaðar þekur nú mittishátt víðikjarr stór svæði
þar sem áður voru aðeins smávíðiplöntur niðri í gras-
rótinni. Það getum við t.d. séð þessa dagana á svæðinu
austan vegar í Arnarneshreppnum eða á Grundarengj-
um í Svarfaðardal.
Slíkt er gaman að virða fyrir sér, en aldrei verður
þetta að nytjaskógi. Hins vegar er nú hafin skógrækt
með nýju sniði víða um land og ekki síst í þessu héraði.
Milli 40 og 50 bændur í sýslunni eru nú þcgar þátttak-
endur í bændaskógaáætlun Búnaðarsambands Eyja-
fjarðar og Skógræktarfélags Eyjafjarðar og heildar-
svæðið, sem frátekið er og afgirt nemur meira en 1000
hektörum. Það er trú mjög margra og von allra að þetta
sé vísirinn að raunverulegum nytjaskógi framtíðarinnar
hér í Eyjafirði.
Það er óþarfi að láta orðaskakið í kring um land-
græðslumálin verða til þess, að menn taki ekki eftir
þeirri stórmerkilegu þróun, sem er að gerast hér á skóg-
ræktarsviðinu.
M.a.s. hér í Svarfaðardal, sem þó telst ekki búa yfir
fyrsta flokks skógræktarskilyrðum, eru nokkrir bændur
með í verkefninu. í þessum efnum gerast ekki stórir
hlutir á stuttum tíma. En óneitanlega er gaman að
reyna að sjá í andanum, hvernig umhorfs verður í sveit-
um Eyjafjarðar eftir svo sem hálfa eða heila öld, þegar
skógardraumar okkar sem nú lifum verða orðnir að
iðgrænum veruleika. HEÞ
Opnunartími verslana
á Dalvík:
Laugardag 17. des.
Þorláksmessu, 23. des.
Aðfangadag, 24. des.
Þriðjudag 27. des.
Gamlársdag, 31. des.
kl. 10.00-22.00
kl. 9.00-23.00
kl. 9.00-12.00
kl. 10.00-18.00
kl. 9.00-12.00
Sparisjóðurinn er opinn virka daga frá
kl. 9.15-12.00 og 13.00-16.00.
Lokað á aðfangadag og gamlársdag.
Dagbók Jóhanns
á Hvarfi
- Anno 1894
16. júlí. Bundum 30 hesta að
syðsthúsi. Eftir 30 fangahnappar
af því sem laust var fyrir helgi.
Kom Árni í Dæli, aflienti honum
fyrir Vestfjarðar smjörið kr.
27,50, og af Sparisjóð af inn-
stæðu Guðjóns í Skjaldarvík kr.
40 upp í kýrverð. Dó Stefanía
Hjörleifsdóttir prests Guttorms-
sonar, kona Jóns Jóhannssonar á
Tjörn 30 ára að aldri (foreldrar
Sesselju fyrri konu Jóhanns
Sveinbjörnssonar frá Brekku).
20. júlí. Kom Jón Hjaltalín á
Möðruvöllum á leið til aukaþings
í Reykjavík og fylgdarmaður
hans ásamt Birni Bjarnasyni
stúdent, fylgdi ég þeim yfir ána.
24. júlí. Gisti Guðrún gamla
hér, sem hér var næst liðið ár, er
nú á flækingi.
27. júlí. Fór gamla Guðrún
eitthvað út á bæi.
28. júlí. Fór Sveinn út á bakka,
skaut kóp sem lá upp í eyrar-
tanga undan Skeggsstöðum, vóg
40 pund óskertur.
31. júlí. Sleppt ánum i fyrsta
sinn síðan um fráfærur, hefur
Björn Snorrason verið yfir þeim
á nóttunni.
1. ágúst. Liggja factoraskip við
Sandinn. Hákarlaskip að koma
inn með afla.
12. ágúst. ...afli mikill, síld
fæst á ystu bæjum.
21. ágúst. Komu prestshjónin á
Þönglabakka og Gísli á Hofi á
Höfðaströnd. Gista hér.
22. ágúst. Fór Gísli. Flutti ég
hjónin frá Þönglabakka að
Völlum.
29. ágúst. Kom Shr. Hafsteen,
Gunnar á Hjalteyri, Sigurður
Hjörleifsson læknir frá Nesi, og
Jón í Arnarnesi, fylgdi ég þeim
öllum yfir í Klaufabrekknaskarð.
9. septcmber. Fórum í göngur
5 af heimili.
10. september. Töldum við öll
lömb mín 61 af fjalli, vantar
Þorra-Móra einan sauða.
14. september. Rekið á stað
markaðsfé hér úr sveitinni til
Oddeyrar. Besta veður. Alls selt
á markað úr sveitinni um 800
fjár. Kom bréf frá deildarstjóra
frá Pöntunarfélagi Svalbarðseyr-
ar um sauðavigt.
17. september. ...kl. 6 e.m.
farið á stað með alla sauði sem
vigtaðir voru 598 að tölu. Peir
héðan í Fagraskóg, Krossa, og
þriðju í Háls (þetta eru pöntun-
arsauðir).
20. september. I nótt kom Jói
frá pöntunarsauðarekstri, sagði
að öllu hefði verið skipað fram
sem komið var í eimskipið Món-
ark sem rúntar 10.000 fjár.
21. september. Fór allt fólk hér
frá heimili út að Völlum, giftist
Stefán Hallgrímsson Litla
Árskógi og Lilja Jóhannsdóttir
Ytra-Hvarfi (foreldrar Rannveig-
ar í Sogni nú á Dalbæ og Hall-
gríms síldarkaupmanns, föður
Stefáns og Hafliða Akureyri).
22. september. Kom Solla
ofan, sótti fisk á tveim hestum
(systir Sveins, það er Sólveig
kona Gamalíels móðir Sveins og
Hannesar í Reykjavík).
28. scptember. Skipt pöntun,
settur nótabáturinn. Kom
Tryggvi ofan, fórum heim með
flutning á tveim hestum. Fyrsta
nótt sem ég svaf í næði þessa
viku.
29. september. Rekið saman.
Tók ég frá 7 kindur sem fara með
drengjunum að Möðruvöllum,
líka tók ég fra éina vætt fiska og
20 bönd ýsu, bundum þetta og
koffort þeirra.
30. september. Fóru drengir
Jóhann og Sveinn á stað á
Möðruvallaskóla og Ólafur á
Völlum með þeim.
2. október. Kom Ólafur á
Völlum með hesta innanað sent
drengir fluttust á með dót sitt.
Komu gærur af 7 kindum aftur.
10. október. Gerðum við þrír
og krakkar tveir vegabót frá
Skriðukotslæk að Græntóarlæk.
20. októbcr. Fór Sólveig ofan
til kaupstaðaferðar á sjó nteð
Jóni á Hreiðarsstöðum. Lagðist
ég í rúmið hastarlega, með ákaf-
an hita, lungnabólgu og tak undir
vinstra herðablaði og beinverkj-
um, mátti engan veginn vera.
23. október. Veikindi mín
breytast lítið. Fór Stefán í Hofs-
árkoti í Klaufabrekknakot. Jón
sendi mér skammt sem ég tók inn
og spanskfl. plástur brenndi á
takið.
24. október. Jón í Klaufa-
brekknakoti kom, tafði lengi.
Kont Sólveig úr kaupstað. Var
mér mjög þungt þetta kvöld. Bar
Bót svartri kvígu, lifir handa
Ólafi (á Völlum).
25. október. Slæmur þennan
dag. Fréttist að Sig. Hjörleifsson
verði sóttur til Jóns Stefánssonar
á Sandinum. Sendi ég Fía á tveim
hestum með bréf ofan á Sand kl.
8 eftir m., Póra skrifaði sjúk-
dómslýsingu, hann kom aftur kl.
I um nóttina. Sagði þá komna
læknislausa, hann austur í Bárð-
ardal (læknirinn).
26. október. ...fór Jói vinnu-
maður með bréfið inneftir.
27. október. Var mikið skárri,
breyttist við svitann, má heita til-
finningalítill. Kom Sigurður
læknir kl. 10 e.m. með Jóa ...
læknirinn hér í nótt.
29. október. Þann 25. þ.m. gat
ég ekki sökum sansa deyfðar og
veikinda ntinna minnst hins blíða
og blessaða sumars við lok þess.
Það er einmælt af öllum að slíkt
gæðasumar muni þeir ekki, allt
hefir oltið því í hag til lands og
sjávar. Eg er 58 ára og man ekk-
ert slíkt suniar. frá fyrsta degi til
þess hins síðasta hefir enginn
óblíður dagur komið, og allt snú-
ist mönnum í ársæld og blessun.
Fyrir það finn ég mér skylt af
hrærðu hjarta að lofa Drottinn
og þakka honum.
30. október. Kom Sigurður á
Tungufelli, tafði mér til skemmt-
unar fram að háttatíma.
31. október. í morgun lá Kot-
asurtur dauður úr pestinni í
Syðra-Sauðhúsi.
3. nóvember. Öllu gefið í
morgun, svo látið út, gerði bleytu
og slettingshríð svo skepnur sví-
virtust.
17. nóvember. Kom Jói heim
(Jói vinnumaður) hefir aflað
nálægt 100 í allt sumir, búast við
að hætta. Sídl alltaf við Hrísey.
27. nóvember. í nótt fór Jói
fyrir mig með 23 pund smjörs og
fleira af fatnaði í Möðruvelli til
drengjanna, kom bréf í gær frá
þeim og skólaskýrsla.
29. nóvember. Kom Jói frá
Möðruvöllum, var hann þar um
kyrrt í gær og hlýddi á tíma.
2. desember. Kont Jón á
Hreiðarsstöðum og tók 15 krónur
af hreppsfé á sparisjóði, til að
borga Svalbarðsstrandarhrepp
með barni óskilgetnu fyrir utan-
sveitarmann á Tjörn. Þykir flest-
um óþurft að halda þann pilt sem
vinnumann hér í sveit.
8. desember. Sendi Friðrik út
að Skáldalæk nteð 20 pund haust-
ull og 26 og Vi alin hvítt vaðrnál
sem Rögnvaldur þar tekur af mér
til Gránuverslunar.
11. desember. Kom Rögnvald-
ur með umbúðir utan af vaðmáli
og ull sem hann tók af mér í
kaupstað.
17. desember. Áin hefir rutt
sig það sem sést.
19. desember. Fór í Mela og
vað ána í belgjum.
24. desember. Komu drengir
Jóhann og Sveinn frá Möðruvöll-
um, voru í nótt í Litla-Skógi.
30. desember. Lögðu drengir
héðan á stað aftur inn að Möðru-
völlum.
31. desember. Kom Anna Sig-
urðardóttir sem var í Tumsu
(Jarðbrúargerði), gistir hér, fékk
ég bréf frá Jóh. Árnasyni úr
Skjaldarvík. Hann biðurum 1 kr.
peningalán, ég sendi honum þá
krónu með Önnu.
Framhald í næsta blaði.
Svarfdælskur bær um aldamótin.