Norðurslóð


Norðurslóð - 14.12.1988, Side 5

Norðurslóð - 14.12.1988, Side 5
NORÐURSLÓÐ - 5 Bréf Amgríms Gíslasonar „alltaf fer óáranin vaxandi...“ Á síðastliðnu hausti fékk undirritaður bréf frá Haraldi Bessasyni, háskólarektor á Akureyri. I bréfi Haralds voru gögn varðandi Árn- grím Gíslason málara. Það er bréf, frá honum til Nönnu dóttur hans af fyrra hjónabandi, sem ung hafði fiust til Ameríku. Hún var gift Benedikt Benediktssyni frá Stóruvöllum í Bárðardal. Bréfinu fylgdu 3 myndir, 1 af Arngrími sjálfum og 2 af Nönnu. Konan, sem sendi dr. Haraldi þessi gögn er af ísiensku bergi brotin, skrifar sig Lady Elton og er fósturdóttir Aðalbjargar, dóttur þeirra Nönnu og Bcnedikts. Hún hefur beðið Harald að koma þessu dóti á eitthvert safn sem vilji taka við því. Haraldi hefur svo fundist, að þetta ætti helst heima hér og því sendi hann það hingað úteftir. Nú eru þessi gögn komin í örugga vörslu hjá Héraðsskjala- safni Svarfdæla í Ráðhúsinu á Dalvík. - Árið 1983 kom út bók um Arngríni málara eftir dr. Kristján Eldjárn. Þar er gerð ítarleg grein fyrir ævi Arngríms og lífshlaupi bæði heima í Þingeyjarsýslu og hér í Svarfaöardal. Kristján notar sér allar þær heimildir, sem honum eru tiltækar um ævi listamannsins. Meðal þeirra eru nokkur bréf frá honum til manna hér innanlands. Hins vegar vitnar hann hvergi til bréfa Arngríms til dóttur sinnar í Ameríku, svo bréfið sem hér fylgir og þær upplýsingar, sem í því felast, hefur hann ekki haft undir höndum. Af þessuin sökum finnst ritstj. Norðurslóðar ástæða til að birta það hér í jólablaðinu. Það gefur átakanlega mynd af aðstæðum málarans og ástandinu hér um slóðir á harðindakaflanum fyrir alda- mótin. Til viðbótar skal þess aðeins getið, að aldrei koin til þess, að Arn- grímur færi til fyrirheitna landsins með fjölskyldu sína. Hann andað- ist rúmlega hálfu ári eftir að hann skrifaöi dóttur sinni þetta bréf. Aftur á móti fór elsta dóttir þeirra hjónanna í Gullbringu, Petrína Soffia, vestur nokkrum árum síðar. Dóttursonur hennar er m.a. Ted Arnason bæjarstjóri í Gimli og er þannig kominn út af þeim Arn- grími og Þórunni mikill ættbogi í Ameríku. H.E.Þ. Gullbringu þann 30. júlí 1886. Elskulega dóttir: Loksins sest jeg nú niður að hripa þjér fáar línur enda þótt þær verði ómerkilegar. Mikið gleður mig að frétta að ikkur lýð- ur bærilega og að þið kunnið við ikkur þar vesturfrá, og sjé jeg nú að þið hafið farið á réttum tíma burtu af landi hér, því altaf fer óáranin vaxandi og hvar það lendir er ósjéð. Nú er eg búin að fá fastan vilja á að komast vestur ef jeg gæti og Þórunn hefur altaf haft hann, en jeg hef alt undir þetta verið því fráhverfur, enn nú álít jeg skildu mína að forða rnjer áður enn allir veigir eru horfnir þó nú líti út fyrir að ekki verði Arngrímur málari. mögulegt að selja nokkuð því enginn getur borgað og því til sönnunar var selt nú í vor á upp- boði 6 ær í góðu standi hvur á 6 kr. og annað að tiltölu eptir þessu, nú ætla jeg að biðja ikkur að ráðleggja mjer hvað ikkur sín- ist í þessu. Ekki hef jeg heilsu til að gánga í stránga vinnu enn jeg hef von um að jeg gæti komist af án þess með ímsu móti sem ekki er ofvaxið 'heilsu minni. Þórunn er heilsugóð og hraust til vinnu, börnin eru heilsugóð og efnileg þótt þau sjcu heldur ung en þá, ingsta sistir þín heitir Nanna og er hún ekki fullra tveggja ára enn þá, hún er fjörug og heilsugóð, enn nett og smá að vexti. og að kalla fulltalandi. Jeg gjet ekki Nanna Arngrímsdóttir eldri. sagt þjer mikið af kringum stæð- um mínum því þær eru ekki góð- ar heldur enn neinna hjer eða fárra, maður getur fengið enn þá nóg að gjöra enn ómögulegt er að fá borgað nema hjá einstöku manni t.a.m. fæ jeg borgað Alt- aristöblur sem jeg hef gjört og er það nú máske það helsta jeg hef selt þær alt að 200 kr. og þó það sje nú lítil borgun þá er það þó besta sem jeg gjöri hjer, skepnur hef jeg aungar aðrar enn 2 kír og hest og nú lítur út fyrir að ekki fáist nema ónóg handa annari og þegar svona gengur ár frá ári er ekki að búast við góðu. i firras- umar hafði jeg 3 kír nokkrar ær og 2 hesta enn varð að eyða þessu í haustið var, og nú er þó mikið verra útlit en þá var. Nú hef jeg ekkert vinnufólk og þikir mjer það mikil bót því verst fer það með allar kringumstæður. Eg er kominn fyrir nokkru í Musterismanna félag (Good Templ) og kann jeg mjög vel við það enda var mjer eingin afneit- un oröin í að bragða vín, jeg er að reina að koma á dálítilli Must- erismanna deild hjer í Svarfað- ardal og hef jeg góða von um að það lukkist. Eg sní mjer nú aptur að því sem eg var að minnast á nl. að biðja ikkur að skrifa mjer og seigja mjer álit ikkar því nú er full alvara mín að fara. Máske Þórunn kjæmist að með aö gjeta feingið forþjenustu sem yfirsetukona og gjæti það orðið að gagni hún er orðin æfð og reind. Eg veit að maður þarf að breita sjer allavega eftir kringum- stæðum og getur ekki haldið sjer stöðugt við sama atvinnuveg. Nú bið eg ikkur fyrir alla hluti fram að skrifa mjer með fyrstu ferð sem hægt er því fyrr fer jeg ekki neitt að búa mig undir að reina að komast. Jeg hef nú að svo stöddu ekk- ert til að skrifa meira. Eg legg hér innan í mind af okkur sem jeg kalla góða eptir því sem hjer má búast við, elsku dóttir sendu mjer ef þú átt góða mind af þér, helst ef það væri stór brjóstmind, því skjeð getur að við aldrei sjáust- um þótt jeg hafi nú fast ákveðið að fara, enn Forlögin munu kannskje taka í taumana. Eg sje mjer ekki til neins að skrifa Benedikt því jeg læt þessar línur gilda fyrir ikkur bæði. Það jeg gjet ekkert skrifað sem þið hafið gaman af, af því þið eruð hjer svo ókunnug, enn þið fáið bréf altaf úr Stóruvöllum og í þeim fréttir sem þið hafið gaman af. Brít jeg svo saman miðann fel- andi ikkur Guðs forsjón. Þinn elskandi faðir A.Gtslason. P.S. Margir hafa hjer hug á að fara vestur og sumir af þeim í góðum efnum. A. Þórunn Hjörleifsdóttir inuó börn sín f.v. Guöluug Þórarinsdöttir, Björg, Nanna yngri og Angantýr. (Petrína llutti til Ameríku.) /-----------------------------------------\ Gömul þula Hafið þið heyrt um ána og hetjuna hann Stjána. Snemma dags til dala drengur fór að smala. Út um alla móa alltaf var að hóa. Hund sinn lítinn hefur honum skófir gefur. Sauðfé saman elti seppi hljóp og gelti. Hjörð í húsið gengur hópinn telur drengur. Eina vantar ána œ það er hún Grána. Hann varð afar hrœddur hurðum lokar mæddur. Lagði af stað í leitir lengi göngu þreytir. Hana loks hann hitti hálfdauða í pytti. Ekkert orð hann sagði ána á herðar lagði. Hana í bœinn bar hann býsna þreyttur var hann. Bjó um hana í heyi hlúði að nótt sem degi. A nýmjólk hana nœrði nýja krafta fœrði. Ef menn eins og Stjáni ynnu að hinna láni, hlýnaði í hugarsetri og heimurinn yrði betri. N_________________________________________/

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.