Norðurslóð - 24.05.1989, Page 2
2 - NORÐURSLÓÐ
NORÐURSLÓÐ
Útgefendur og abyrgðarmenn:
Hjörtur Þórarinsson, Tjörn, Svarfaðardal
Jóhann Antonsson, Dalvík
Afgreiðsla og innheimta: Sigríður Hafstað, Tjörn
Sími 96-61555
Ljósmyndari: Rögnvaldur Sk. Friðbjörnsson
Prentun: Dagsprent
Arsreikningur Dalvíkurbæjar ‘88
Útdráttur
Ársreikningar Dalvíkurbæjar og
fyrirtækja hans fyrir árið 1988 voru
teknir til fyrri umræðu í bæjarstjórn
Dalvíkur þann 25. apríl sl. og sam-
þykktir samhljóða við síðari
umræðu þann 16. maí sl.
Heildartekjur bæjarsjóðs Dalvík-
ur urðu á árinu 126.681.202 kr. sem
greinast þannig að tekjur sem
mynduðust í rekstri voru rúmar 30
milljónir kr. og sameiginlegar tekjur
urðu 96.626.247 kr. Stærstu tekju-
liðir eru: Útsvar: 56.652.088 kr. eða
55,6% sameiginlegra tekna. Að-
stöðugjald: 17.003.665 kr. eða
16,7% sameiginlegra tekna. Fast-
eignagjöld: 11.581.334 kr. 11,4%.
Heildarrekstrargjöld ársins urðu
110.020.739 kr. og rekstrarafgangur
varð því kr. 16.660.463 eða 17,25%.
Laun og launatengd gjöld á veg-
um bæjarsjóðs er stærsti útgjaldalið-
urinn og námu þessar greiðslur um
50,6 milljónum kr. á árinu 1988.
Fjárfrekustu málaflokkar í rekstri
bæjarsjóðs voru þessir: Almanna-
tryggingar- og félagshjálp
16.250.761 kr. Fræðslumál:
12.056.764 kr. Fjármagnsgjöld:
12.028.487 kr. Yfirstjórn bæjarins:
8.579.959 kr. Hreinlætismál:
7.420.904 kr. og íþrótta- og æsku-
lýðsmál: 6.551.958 kr.
I heildina urðu tekjur bæjarsjóðs
um 11% hærri en áætlun hafði gert
ráð fyrir og rekstrargjöldin fóru tæp
4% fram úr áætlun. Til fjárfestinga
bæjarsjóðs var varið samtals kr.
46.666.713. Tekjur sem mynduðust
á móti voru kr. 17.030.918 og nettó-
útgjöld til fjárfestinga urðu því kr.
29.635.795.
Framkvæmdir
Til byggingar áhaldahúss og
slökkvistöðvar var varið um 6 millj-
ónir kr., tæpum 5,9 milljónum til
bygginga verkamannabústaða og
leiguíbúða, rúmar 5 milljónir fóru
til gatnagerðar, að frádregnum
gatnagerðargjöldum, 2,2 milljónir
til byggingar sorpþróar og rúmar 2
milljónir kr. fóru til íþrótta- og
æskulýðsmála.
Á árinu urðu lántökur bæjarsjóðs
um 21,4 milljónir eða rúmum 9
milljónum umfram afborganir lána.
Heildarskuldir í árslok voru um 92,5
milljónir, þar af voru langtímalán
um 60,4 milljónir og er það meðtal-
in skuld við Vatnsveituna, tæpar 10
milljónir kr. Á móti skuldum voru
veltufjármunir og langtímakröfur í
árslok um 35,8 milljónir kr. Varð-
andi fyrirtæki bæjarsjóðs þá eru
helstu niðurstöðutölur þær að tekjur
Hafnarsjóðs urðu 11.705.642 kr. og
almenn rekstrargjöld 7.305.365 kr.
Höfn, veitur o.fl.
Framkvæmdir á vegum Dalvíkur-
hafnar á árinu kostuðu 4.804.551 kr.
og er vegagerðin meðfram höfninni
þar stærsta verkið. Tekjur Vatns-
veitunnar urðu 14.795.292 og
almenn rekstrargjöld námu
4.980.803 kr. en vegna mikils fjár-
magnskoslnaðar eða 4.607.153 kr.
urðu tekjur umfram gjöld af starf-
semi-Vatnsveitunnar kr. 5.207.336.
Fjárfest var í varanlegum fasta-
fjármunum hjá Vatnsveitu fyrir
3.747.920 kr.
Tckjur Hitaveitu Dalvíkur urðu á
árinu 1988 kr. 24.886.223, almenn
rekstrargjöld kr. 7.744.353 og af-
skriftir og fjármagnskostnaður
nárnu 8.826.384 kr. þannig að hagn-
aður af rekstri varð 8.315.486 kr.
Framkvæmdir ársins tóku til sín
5.208.149 kr.
Gerð ársreiknings fyrir Dalbæ er
ékki lokið og því ekki fjallað um
hana hér.
A Islandskorti
memilngarínnar
Á annan í hvítasunnu var
útvarpað á rás 1 í Ríkisútvarp-
inu barnamessu úr Dalvíkur-
kirkju. Það skal sagt strax, að
þessi guðsþjónusta fór vel fram
í alla staði og var öllum til
sóma, sem við hana voru
riðnir. Séra Jón Helgi flutti
ræðuna en Kór (barnakór)
Tónlistarskóla Dalvíkur söng
undir stjórn skólastjórans
Hlínar Torfadóttur. Kórinn er
blandaður efniviður frá skól-
unum á Dalvík og Húsabakka.
í byrjun athafnar blésu
nemendur nokkur lög á flautu
og setti það strax skemmtileg-
an blæ á athöfnina.
f>að er mikið talað um
„atgervisflótta" úr dreifðum
byggðum landsins til Reykjavík-
ur, og ekki að ófyrirsynju.
Það er gleðilegt þegar það
gerist, sem of sjaldan er, að
höfuðborgin skili aftur einhverju
af því, sem þangað er komið. Það
sýnir sig bæði hér og víða annar-
staðar, að einn eða tveir eða þrír
áhugamenn með hæfileika og
þjálfun geta gjörbreytt menning-
arástandi eins byggðarlags til hins
betra og kveikt í ungum brjóstum
áhuga á fögrum listum.
Með þessari útvarpsmessu, og
einnig reyndar með sjónvarpsvið-
tali við Steingrím Þorsteinsson í
Vegamótum um sama leyti, hefur
Dalvík komið sér betur en fyrr
inn á íslandskort menningarinnar
á þessu landi.
Guðbjörg Ringsted. Sjá Vorkomu á bls. 1.
Dagbók Jóhanns
á HvarB
- Anno 1896
24. sept. í dag fór ég Jói og
Sveinn með Gísla að sementa
austurstópa Skíðadalsárbrúar og
fleira þar af lútandi, eru nú
sementaðir stólparnir og tvímál-
aður báðar brýrnar.
25. sept. Kom Soffonías úr
kaupstað sagði að í gær hefði ver-
ið skipað fé frá Christinsen í 3ja
skipið er það sem Slimon kaupir
og svo líka kaupmenn fyrir hans
hönd.
26. sept. Kom Ragnhildur á
Brimnesi, fór þangað ofan og
vakti yfir kú og gaf henni inn.
Fjaska úrfelli og brim, afli góður
þessa viku. Fór Tryggvi ofan og
kom með fisk á tveim hestum.
27. sept. Var á Brimnesi þenn-
an dag for í Hól og Háagerði.
Fengu þeir mikla síld í netin á
Sandinum, voru þau dregin upp,
illt að Ienda sökum kviku. Drífa
að kvöldi.
28. sept. Hafði Rauðku í
Háagerði (hestur) sótti liana og
fór heim. Kýrin á bata vegi.
29. sept. Frost og heiðríkt, allt
hornfrosið og ekki hægt að vinna
úti. Gerðum við fjóslæk. Jói fór
til rjúpna fékk 24.
2. okt. Fór ofan til kaupstaðar-
ferðar brim svo ekki var farið og
ekki róið, ófært út að fara. Hýst
aftur ær og lömb.
3. okt. Komu Fúsarnir úr Hol-
árkoti og Krosshóli í fyrradag yfir
Heiðnamannadal með fé úr
Fornhagarétt, vaktað hjá þeim.
5. okt. Sama veður norðan
stórhríð í alla nótt. Rákum lömb
út í Skriðukot og bárum hey fyrir
þau þar í húsum. Gáfunt öllu full-
orðnu fé, sótt hross og hýst.
Komu 5 Skíðdælir af Litla-
Árskógssandi frá róðrum sögðu
þeir að Vesta væri á Akureyri en
Brimnes lægi við Hrísey á útleið.
Líka hefði heyrst skip pípa austur
á sundi töldu það Axel frá Noregi
að fara áleiðis til Noregs. Líka
frétt að hafís væri frá Horni í
Vatnsnes og fullur allur vestur-
flóinn.
9. okt. Heiðríkt bakki til hafs.
Kom Sigurðu r á Tungufelli og
Hjörtur á Urðum. Hjörtur tók
500 kr. lán úr sparisjóði til að
kaupa Þorleifsstaði úr dánarbúi
Sigurðar (bóndi á Hæringsstöð-
um) sál. Jónssonar áður á Urðum
(Urða-Sigurður) dó á Akureyri
næst liðið vor. Á jörð þessi að
kosta 704 kr., biður Hjörtur mig
fyrir þetta fé til Sigurðar smiðs á
Ákureyri (sonur U-Sigurðar).
12. okt. . . . gerðum okkar í
kaupstað. Hvass og ekki lagt út
yndir nótt.
13. okt. . . . biðum til kl. 6.
Komum kl. 12 að kvöldi út á
Sand, hefur tekið svo að jörð er
allgóð.
14. okt. Fór heim fékk hest á
Hrappstöðum. Hreppaskil í dag.
Jói mætti fyrir mig (Jói hans).
15. okt. Fann Tryggvi litli
lambið hennar Sollu í Hraunhól-
um hefur vantað í hálfan mánuð,
var ennþá í fönn, gat gengið heim
og er lífvænt. Sveinn fór ofan
með 2 reiðingshesta, kom í kvöld
með fisk salt og korn. Hýsti í nótt
allt fé og hross.
17. okt. Allar skepnur fengu
vel úti í dag í krafstri.
21. okt. Skifti lömbum í húsin,
4 ær skornar, hefi ég fargað 10,
og svo skornir 2 geldingar vetur-
gamlir og hrútur. Fóru margir
ofan með hesta í slóð þá í gær.
22. okt. I dag gifta sig Guðjón
Daníelsson og Anna Dóttir Jóns
á Hreiðarsstöðum. Alltaf mok
drífa.
29. okt. í dag voru skorin 3
Baldvin á Böggvisstööum.
lömb, læt ég bíða að skera fleira
fé.
6. nóv. í dag giftist Þorleifur
Sigurðsson frá Auðnum og ekkj-
an Kristín Gunnlaugsdóttir frá
Syðra-Holti áður gift Sigfúsi Páls-
syni bónda þar (foreldrar Sigfús-
ar útgerðarmanns).
15. nóv. Rósa í Búðarhóli í
Ólafsfirði, var á ferð inn á Litla-
Árskógssand, sagði sama snjóa-
Iag í firðinum og hér afli þar lítill.
18. nóv. Allt svellrunnið og
jarðbann, var þó hleypt út milli
gjafa. Komið með Sokka litla fyr-
ir mig frá Kongsstöðum, hefir
gengið framfrá síðan 26. júní.
Fékk fé einn þriðja úti af léttings
stráum er það tíndi upp úr klaka
börðum, því engin skepna krafs-
ar skelina. Stendur Sokki litli vet-
urgamli inni við hey (trippi).
20. nóv. Vestan rokveður hef-
ur gert bleytu snjóklessing í nótt,
gaddur ofaná gadd. Allt fé stend-
ur inni í dag. . . . margir komnir
með nel til síldveiði inn á fjörð,
afla töluvert og selja Norðmönn-
um strokkinn á 5,50-6 kr. Hjá
þeim bestu 60 kr. hlutur í djúp
lagnet, en mjög lítið í vörpur.
Eru gufuskip Norðmanna að ráð-
gera heimferð.
21. nóv. . . . kom í gærkvöldi
með tímarit kaupfélaga 1. árgang
sem á að komast til Hallgríms á
Melum, frá Þórði í Höfða, 20
eintök, kosta 0,75 kr. hvert,
útgefandi er Pétur frá Gautlönd-
um. Kom Jói frá Sökku og Árni
litli með.
22. nóv. Fór Jói var að koma í
Sökku og Árni aftur t' rökkrinu.
Tíðarfar hið lakasta alltaf til sjós
og lands.
24. nóv. Lokið við og fullgert
íshúsið á Böggvisstaðasandi.
25. nóv. Fóru Böggvisstaða-
menn í kaupstað með smiðina,
Baldvin fór með. Er orðið svo
þröngt hér af því sem Skíðdælir
koma í geymslu, að úti er talsvert
svo sem fiskur og fleira.
27. nóv. Fór ég í Syðra-Hvarf,
gerðum yfirlit yfir brúargreinar
sem séra Kristján fær til stuðn-
ings (á sýslufund). Fór í Brekku-
kot að skoða fola sem bólginn er
til muna um geldingarstað.
30. nóv. Mörg gufuskip norsk
liggja enn inn á firði og leita
eftir síld og margir íslenskir veiða
einnig í sín net og selja Norð-
mönnum fyrir peninga út í hönd,
hafa ýmsir haft mikinn hag af
því. Þessi mánuður hefir verið
stirður sem október (veðrið).
1. des. Fór Leifi á Hvarfi til
kaupstaðarferðar, tók kálf og
annan böggul til Jakobínu konu
Ágúst í Felli.
Fr. Kristjánssonar frá Sólveigu
fyrir það sem hún dvaldi þar í
fæði og húsnæði í sumar við
augnlækningu. Fór Tryggvi með
þetta ofan á Sand. Einnig bað ég
Leifa fyrir bréf til sýslumanns þar
með lagt vottorð um brúarsmíði
hér á ánum eftir að hann hafði
skoðað þær nákvæmlega, gildir
það sama og úttekt.
5. des. Eftir Þorleifi á Siglunesi
haft að hafís sjáist þaðan og af
Siglufjarðarskarði, glöggt sein-
ustu daga í fyrra mánuði í lok
vestanhríðanna.
7. des. Fór í Háls, þar liggja 2
kýr á básum veikar.
8. des. Fór heim því kýrnar átu
og drukku.
16. des. . . . gisti á Böggvis-
stöðum, Jói og Tryggvi í Háa-
gerði, tókum hákallinn þar og
borð á Sandinum, ókum heim,
besta færi . . . mikið um sleða-
drátt því færi er hið besta.
25. des. Ekki messað á Völl-
um. Drengir fóru í Upsakirkju,
stúlkur út í Gröf. Ég var heima
og gerði við kindur.
28. des. Bjart frost 6 gráður.
Fór ég ofan í íshús á fund, fjöl-
menni og reikningar yfir vinnu og
tillög yfirfarnir. Kosin 5 manna
nefnd til að gera samþykkt. Gisti
á Böggvisstöðum.
29. des. Kom Jón á Brimnesi,
Ágúst, (í Felli og Ysta-Bæ held
ég) Jón Stefánsson, Baldvin og
ég saman í nefnd, sömdum reglu-
gerð fyrir íshúsið og ræddum
ýmislegt fleira því viðvíkjandi.
Ég gisti á Hrappstöðum.
30. des. Gerði drífu í skóvarp
og bleytu, þar eftir stórviðri að
vestan, kom kl. 4 heim. Hafði Jói
verið við sparisjóðsreikninga
þessa daga.
31. des. Jón á hreppsenda-Á
hér í dag. Jarðlítið fyrir allar
skepnur, óstöðugt alltaf síðan
fyrir jól. Endar þannig árið.
Árið 1896 var snjólítið frá nýj-
ári til sumarmála, engin áfelli að
vorinu en kuldar í maí og júní
gras spratt því illa og var því mik-
ill brestur á heyfalli bæði túna og
engja, nýting var heldur ekki góð
sökum votviðra í ágúst, málnytja
í betra lagi. Afli góður að vori
meðan til vannst ... 4. október
skall á norðan stórhríð og varaði
í 3 daj>a svo allt settist í hús.
í Arnes og Rangárvallasýslu
urðu stórkostlegir jarðskjálftar,
hrundu víða bæir og öll penings-
hús til grunna í ágúst og septemb-
er (26. ágúst og 5. september).
Voru hafin samskot innanlands
og erlendis til hjálpar bágstödd-
um.