Norðurslóð - 24.05.1989, Qupperneq 3

Norðurslóð - 24.05.1989, Qupperneq 3
NORÐURSLÓÐ - 3 Skólaslit á Húsabakka og Dalv ík Skolaslif fóru fram í Húsa- bakkaskóla laugardaginn 13. maí í köldu en góðu veðri. Þessi athöfn er jafnan með hátíðlegum blæ og var svo einnig að þessu sinni. Mættir voru nemendur vetrarins, en þeir voru alls 55 að þessu sinni, og að auki margt aðstandenda og var hátíöasalurinn stútfullur og ílóði útyfir langt fram á ganga. Skólastjórinn Björn Þórleifs-. son hélt kveðjuræðu að vanda afhenti síðan prófskírteini og út- skrifaði að lokum út úr skólanum (8. bekk) 6 nemendur. Þá söng Húsabakkadeild Tón- listarskóla Dalvíkur undir stjórn Hlínar Torfadóttur. Síðan var gestum boðið að skoða handa- vinnu- og teiknisýningu nemenda í Gamlaskóla og að lokum var kaffisala í borðstofu mötuneytis. Allt með mesta myndarbrag. Fram kom, að nær allir nemendur búa í heimavistunum. Er þetta nú víst eini barnaskólinn í héraðinu, sem byggir á heimavist og bendir ekkert til, að á því verði breyting á næstunni. Einnig kom það fram hjá skólastjóra, að engin breyting á kennaraliði er væntanleg á næsta skólaári og má skólinn teljast heppinn að búa við slíkt stabilítet að þessu leyti. Þá var það einnig upplýst, að tala ncmenda mun heldur ekki breytast næsta árið, ef að líkum lætur. Dalvíkurskóla verður sagt upp næstkomandi sunnudag 28. maí. Nemendur 9. bekkjar eru nú á skólaferðalagi í Danmörku og koma aftur heim aðfaranótt laug- ardags 27. maí. Nánar verður sagt frá skóla- uppsögn þar í næsta blaði, og kannske fáum við að frétta meira um Danmerkurferð þá. Skólastjóri afhendir Sigursteini Ingvarssyni verð launabikar í skólaskák 7. til 9. bekkjar þar sem hann var sýslumeistari. Myndir: SH Úr hátíðarsa! Húsabakka. Skólaslit Stýrimannadeildar- innar á Dalvík fóru fram í Vík- urröst, laugardaginn 13. maí síðastliöinn að viðstöddu miklu fjölmenni. Það var haustið 1981 sem kennsla í skipstjórn- arfræðum hófst við Dalvíkur- skóla og er þetta því áttunda árið sem Stýrimannadeildin er starfrækt hér. Það er ekki að efa það, að við upphaf þessarar fræðslu á Dalvík hefur verið stigið stórt spor í sjómanna- fræðslu hér á Norðurlandi, því að eins og flestir vita var ekki hægt fyrir sjómenn að mennta sig í slíkum fræðum nema í Reykjavík og Vestmannaeyj- um. Fyrstu árin var aðeins um kennslu á 1. stigi að ræða, en það nám veitir réttindi til skipstjórnar á 200 tonna skipi. Haustið 1987 veitti þávérandi menntamálaráð- herra leyfi til kennslu hér á 2. stigi, sem veitir skipstjórnarrétt- indi á hvaða stærð fiskiskipa sem er, auk réttinda á kaupskip allt að 400 tonn. Að þessu sinni útskrifuðust 33 nemendur af báðum stigum - 14 af 1. stigi þar af 4 með ágætis- einkun og 19 nemendur af 2. stigi, þar sem 3 nemendur hlutu ágætiseinkunn. Á þessu skólaári var stofnað nemendaráð, sem var á ýmsum sviðum stjórnendum skólans til aðstoðar við skóla- starfið í vetur. Þá hafa nemendur gefið út skólablaðið, Sextant. Blaðið heitir eftir þar til gerðu siglingartæki, sem var fyrir þann tíma er hin nýtísku siglingartæki komu til sögunnar, eitt hið full- komnasta staðsetningartæki sjó- farenda sinnar tíðar. Nú kom út 2. tölublað blaðsins allt hið vand- aðasta sem og það fyrra. Útgef- endur segja í formálsorðum blaðsins: „Það var ennfremur markmið nemenda að gera blað- ið eins gott og kostur var á, svo það yrði nemendum og skóla til sóma,“ það hefur gengið eftir. Ávörp Við skólaslitin flutti ávarp Jón Þórðarson brautarstjóri í sjávar- útvegsfræðum við Háskólann á Akureyri. Jón ræddi um sjávar- útvegsmál og þá sérstaklega þá kennslu sem fyrirhugað er að hefja að hausti komandi. Kristján Þór Júlíusson bæjar- stjóri flutti ávarp og beindi orð- unt sínum til nemenda, hann minnti þá á þá ábyrgð sem þeir við þessi tímamót tækju sér á herðar og nú væri komið að þess- um tímamótum þar sent þeir sjálfir yrðu að stinga út og ákveða þær stefnur sem ætti að halda á lífsleiðinni. Þá þakkaði Kristján Þór Trausta Þorsteins- syni skólastjóra störf hans í þágu Stýrimannadeildarinnar á Dal- vík, en Trausti lætur nú af starfi skólastjóra, þar sem hann tekur við starfi Fræðslustjóra Norður- landsumdæmis eystra. Valdimar Bragason frant- kvæmdastjóri Útgerðarfélags Dalvíkur hf. flutti einnig ávarp við skólaslitin. Valdimar talaði til nemenda þar sem hann ræddi þau samskipti, sem hann hafði átt við þá á vetrinum. Þá ræddi hann um útgerðarmál almennt, þ.e. veiðar og vinnslu. Verðlaun Frá því að brautskráning hófst hér við Stýrimannadeildina hefur Skipstjórafélag Norðlendinga veitt verðlaun þeim nemendum sem hæstu einkunn hafa hlotið í siglingafræðum. Guömundur Steingrímsson frá því félagi ávarpaði nemendur og afhenti verðlaun. Þau hlutu, af 1. stigi Sævaldur Gunnarsson Dalvík, Þröstur Jóhannsson Hrísey og Ómar Örvarsson Blönduósi og af 2. stigi Quentin Bates Skaga- strönd. Þá hafa útvegsmenn á Norðurlandi einnig veitt viður- kenningu fyrir hæstu meðal- einkunn á báðum stigum. Fyrir hönd Útvegsmannafélags Norð- urlands flutti ávarp og afhenti viðurkenningu, Sverrir Leósson formaður félagsins. Af 1. stigi hlut verðlaun þeir Valgarður Jökulsson og Ómar Örvarsson Skólastjóri afhendir nemendur á 2. stigi prófskírteini. Við afhendingu prófskírteina á fiskvinnslubraut. Myndir: H.joð Auk þess veitti Dalvíkurskóli þeim nemendum viðurkenningu sem besta ástundun sýndu og jafnframt námsframfarir á vetrin- um. Þær hlut Finnur Sigurbjörns- son Hofsósi, Rögnvaldur K. Jónsson Ólafsfirði og Þórður M. Sigurðsson Akureyri. Þá var Trausta Steinssyni veitt sérstök viðurkenning frá skólanunt. Trausti, sem auk þess að vera nemandi á 1. stigi skólans, kenndi íslensku á báðum stigum og í 9. bekk Grunnskólans. Við þessi skólaslit flutti Trausti Þor- steinsson skólastjóri ítarlega ræðu, þar sem hann tíundaði allt skólastarfið á liðnu skólaári. Trausti talaði til hinna verðandi skipstjórnarefna og bað þeim velfarnaðar á ókomnum árum. Að lokum flutti hann ljóð eftir frænda sinn Þorstein Valdimars- son. Jafnhliða skólaslitum Stýri- mannadeildarinnar á Dalvík voru afhent prófskírteini þeim nemendum sem stunduðu nám á Fiskvinnslubraut Dalvíkurskóla. Það var á sl. hausti sem kennsla hófst á þessari braut hér og hófu þá 11 nemendur nám. Þetta er tveggja og hálfs árs nám og er að vænta að hægt verði að ljúka tveim stigum hér á Dalvík, sem gefur réttindi sem fiskiðnaðar- maður. Að þessu sinni luku 7 nemendur námi. Hæstu einkunn hlaut Sigrún Friðriksdóttir. Slysavarnardeild kvenna á Dalvík var með kaffisölu að loknum skólaslitum. JKr báðir frá Blönduósi. Af 2. stigi Quentin Bates Skagaströnd, Guðmundur Guðmundsson Akur- eyri og Ólafur I. Þórðarson Sauðaneshreppi. Friðrik Friðriksson sparisjóðs- stjóri veitti viðurkenningu frá Sparisjóð Svarfdæla fyrir hæstu einkunn í íslensku. Þær hlut Val- garður Jökulsson af 1. stigi og Ölafur I. Þórðarson af 2. stigi. Stýrimaimadeild Dalvíkurskóla

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.