Norðurslóð - 24.05.1989, Qupperneq 5

Norðurslóð - 24.05.1989, Qupperneq 5
NORÐURSLÓÐ - 5 Hann ruddi brautina Pann 8. maí 1892 fæddist hjónun- um á Hverhóli í Skíðadal, Júlíusi Hallssyni og Kristínu Ágústínu Rögnvaldsdóttur, sveinbarn. Barnið var heldur veikburða, svo foreldrarnir töldu ráðlegt að láta sem fyrst skíra það í nafni föður, sonar og heilags anda, því sú var trú, að óskírðum börnum væri ógreiðari leiðin til eilífu sælunnar heldur en þeim, sem skírn höfðu hlotið, svo ósanngjarnt sem það nú sýnist vera. Því var það að strax samdægurs var sendur mað- ur niður í Velli að biðja prestinn að koma frameftir og gefa barn- inu nafn. I dagbók Jóhanns á Hvarfi seg- ir við dagsetninguna 10. maí 1892 m.a.: „Séra Tómas fram að Hverhóli að skíra barn, sem heit- ir Óskar.“ Ótti foreldranna um skammlífi barnsins reyndist óþarfur sem betur fer því dreng- urinn lifir enn 97 árum síðar og býr á Dalbæ á Dalvík, slakur nokkuð að Iíkamskröftum og nálega alblindur orðinn, en þeim mun sterkari í andanum og minni hans á gamla daga óbilað. Norðurslóð heimsótti Óskar daginn eftir 97 ára afmælið og rabbaði við hann um gömlu dag- ana einkum og sér í lagi um reynslu hans af vegum og veg- leysum í Skíðadal og Svarfaðar- dal á árum áður. Óskar man vel eftir sér á árunum eftir aldamót- in. Þá var Skíðadalsbotninn albyggður, þ.e. hvert býli setið nema auðvitað Stafn sem var meira að segja komið í eyði um aldamótin 1700. Hvergi var brú- artylla á á fyrr en sá stórviðburð- ur gerðist í svarfdælskri sam- göngusögu 1896 og 97, að byggð- ar voru brýrnar á Skíðadalsá í Hvarfinu og Svarfaðardalsá við Hreiðarsstaði. Reyndar er þetta ekki alveg rétt, því nokkru áður hafði hreppurinn látið setja brú á Ingvaraósinn útundir á (Helga- fellshyl). Enginn uppbyggður vegarspotti var þá í allri sveitinni, enda engir vagnar eða kerrur til flutninga. Þannig var þá ástandið, þegar Óskar Júlíusson man fyrst eftir sér. Við ræðum um ferðir Skíð- dælinga „ofan á Sand“ á þessum árum. Þær ferðir voru ekki farnar oftar en nauðsynlegt var, því 5 tíma lestargangur var talinn frá Dalvík fram í botn byggðar í Skíðadal. Meðan róðrar stóðu yfir vor og haust af Böggvisstaða- sandi þurfti þó að fara oft, stund- um annan hvern dag, „ofan“ ef maður frá bænum var í skipsrúmi á Sandinum, en það var mikið keppikefli allra heimila. Hver- hólsbóndinn átti alltaf mann í skipsrúmi oftast frá Böggvis- staðasandi, en stundum líka frá Árskógssandi. Þessum mönnum þurfti að senda matarkost annan- livern dag og flytja svo heim fisk- meti, þ.e. smáfiskinn, hausa, dálka m.a. vegna sundmagans, kútmaga og lifur. Stóri fiskurinn fór í salt sem verslunarvara. Óskar fór slíkar fiskiferðir á ungum aldri, ríðandi með reið- ingshest í taumi. Hann rakti fyrir blaðamanni slóðina í huganum eins og hann sæi alla leiðina ljós- lifandi fyrir sér eins og hún lá niður eftir dalnum um aldamótin. Fyrsti farartálmi gat verið Þverá- in (í Skíðadal). T.d. var það, að þegar Soffía Zóphóníasardóttir á Sveinsstöðum fór til fermingar á Völlum aldamótaárið varð hún að fara upp á dal og yfir Þverána á snjóbrú hjá Ytri-Nautshól til að komast leiðar sinnar til ferming- arinnar. En þetta var útúrdúr. Áfram lá leiðin út Þverár-, Másstaða- og Dæliseyrar, út Um vegi og vegagerð fyrr á árum bakkana fyrir neðan Dælistún, út Hólana og út á melinn þar sem Tungurétt stendur nú. Væri lítið í ánum var riðið út Flötutungu og yfir Svarfaðardalsá skammt ofar en þar sem Þveráin rennur í hana og er þessi leið oft riðin enn í dag. Nú var um 2 leiðir að ræða. Önnur var sú að ríða út bakkana frantan við Bakkatún, niður á árhólmana fyrir neðan Garðs- hornin og Grund og út á Skakk- abakka. Þá út eftir öllum Grund- ar- og Tjarnarbökkum eins og fjölmargar samsíða, grónar götur vitna um enn í dag. Þá var riðið vestur að Ingvaraósnum og farið yfir hann á brúnni. Síðan var haldið norður í gegnum Helga- fellsland eftir vegargarði, sem lagður hafði verið yfir keldusvæði og sést þessi garður enn. Þá var farið skáhallt upp og út að Holt- sánni og yfir hana mjög nærri þeim stað, sem brúin og vegurinn eru nú. Þá var riðið norður Holt- smóana í stefnu ofan við Hrapp- staðakot, Hrappstaði og Bögg- ustaði (svo notuð sé gamla rit- venjan) og að lokum þaðan ská- hallt niður á Sand. Þetta var oft kallað að „fara bakkana". Hin leiðin hét að „fara sveit- ina“. Þá var riðið upp nteð Þver- ánni og yfir hana hjá Steindyrum. Síðan skáhallt upp fyrir ofan Syðra-Garðshorn og alla bæi allt út fyrir ofan Gullbringu. Þá var riðið fyrir ofan Tjarnarkeldur, niður á Reiðholt og þaðan út fyr- ir ofan Ingvarir og áfram norður og yfir Holtsána ofan við Syðra- Holt. Loks var komið á áðurlýstu leiðina í Ytra-Holtslandi, þar sem nú er Gróðrarreiturinn. Báðar þessar reiðleiðir fór Óskar á Hverhóli með trússa- hestinn í taumi oft og mörgum sinnum og enn í dag sjást göturn- ar og vitna um ferðir svarfdælskra manna og hesta í aldanna rás. Vegaverkstjórinn Upp úr aldamótunum fóru miklir breytingatímar í hönd m.a. á sviði vegamála í svarfdælskri byggð. Það átti fyrri Óskari Kristni Júlíussyni að liggja (því svo heitir hann fullu nafni) að eiga mikinn og merkan þátt í þeirri framfarasögu. Ekki verður hér rakin ævisaga Óskars, en aðeins drepið á helstu staðreynd- Fjórir Óskarar: F.v. Gunnarsson (og Kristínar), Júlíusson, Valdemarsson og Árnason. ir lífs hans. Hann kvæntist 1916 Snjólaugu Aðalsteinsdóttur bónda á Þverá í Skíðadal. Fór að búa heima á Hverhóli 1913, en flutti sig út í Kóngsstaði 1924 og bjó þar til 1949. Við þann bæ er hann jafnan kenndur enn í dag enda hélt fjólskyldan áfram að nytja Kóngsstaði og búa þar öðr- um þræði og er svo enn í dag. Og þar er Iögheimili Óskars enn. Snjólaug andaðist 1980. Börn þeirra hjóna urðu 6, jafnt af hvoru kyni: Aðalsteinn, Kristín, Valdemar, Friðrika, Árni og Ástdís, tvö þau síðustu tvíburar. Óskar var góður bóndi og vel metinn maður í Svarfdælsku sam- félagi. En það sem tryggja mun nafn hans stað „á spjöldum sögunnar" eins og sagt er, er vegaverkstjórn hans í Svarfaðardal um margra áratuga skeið. Árið 1909 hótst hin margfræga vegarlagning um Svarfaðardal, sem unnin var í fyrstunni algjörlega í sjálfboða- vinnu. Byrjað var út við Dalvík og haldið fram Vesturkjálka. Á þessu herrans merkilega ári var Óskar Kr. Júlíusson 17 ára vinnumaður á Hóli niður hjá Jóni Halldórssyni Lyngstað og Jóhönnu Þorleifsdóttur, sem þá bjuggu þar á hluta jarðarinnar. Jón hafði lofað dagsverkum í „brautarvinnuna" eins og aðrir og sendi Óskar vinnumann í verkið. Þar kynntist Óskar vinnu- brögðunt og verkstjórn Jóns Sig- urgeirssonar frá Hólum í Eyja- firði, sem stýrði brautarvinnunni hér í ein 9 ár. Þegar Ólafsfirðingar síðar báðu Jón að bcnda sér á einhvern góðan mann til að stjórna braut- arvinnu hjá sér. mælti hann með Óskari í Hverhóli. Það varð úr, að hann fór til Ólafsfirðinga og vann með þeim að vegarlögn vestan við Ósinn í áttina frameft- ir sveit, líklega vorið 1915, og lík- aði vel við mannskapinn ungan og áugasaman. Síðar var hann kallaður út í Hrísey og stjórnaði eyjarskeggjum við brautarlögn um land Syðstabæjar og Selár- klappar. Þetta varð upphafið að áratuga löngu starfi sem vega- verkstjóri hér, því Óskar tók við af Jóni, þegar hann liætti árið 1918. Þegar Óskar tók við verk- stjórninni var „brautin“ komin fram á milli Bakka og Steindyra, bein og breið (3,20 m), malborin og hin ágætasti vegur fyrir hest- vagnana, sem urðu svo vinsæl og gagnleg flutningartæki á fyrstu tugum aldarinnar. Og þegar bíll- inn hóf svo innreið sína hingað laust fyrir 1930 var hér til staðar ágætlega fær vegur alla leið fram að Hreiðarsstaðabrú. Á þeim árum eftir að Árgerðisbrúin var Snjólaug og Óskar með börnum sínum. F.v. Ástdís, Árni, Friðrika, Valdemar, Kristín og Aðalsteinn. byggö 1929 hófst fyrir alvöru veg- arlögn austan ár, yfir Hrísatjörn, uppeftir Hrísamóum og svo frameftir Austurkjálka. Og all- staðar var Óskar á Kóngsstöðum nálægur sem verkstjóri og verk- fræðingur því það kom líka í hans hlut að velja vegarstæðið og mæla út fyrir veginum. Til við- miðunar um tímann má geta þess að þcgar Jarðskjálftinn reið yfir 2. júní 1934 var Óskar að mæla fyrir veginum við Saurbæjarhól milli Skáldalækjar og Sökku. Áfram þokaðist vegurinn með gömlu vinnubrögðunum og um miðjan 5. áratuginn var hann kominn fram að Hofsá. Þá urðu aldahvörf í vinnu- brögðum við gerð vcga og margra annarra mannvirkja. Aldahvörfunum olli tæki eitt, sem fyrst var kallað Bulldozer upp á ensku. en heitir nú því sjálfsagða nafni jarðýta. Ekki var lokið hlutverki Öskars Júlíusson- ar þrátt fyrir það og stjórnaði hann verki í mörg ár eftir þetta. En tímarnir voru breyttir og mennirnir með og nú finnast varla menn, sem kunna að stinga sniddu í kant eða klömbru í vcgg. Það skrýtna er, að vegirnir í Svarfaðardal, sem lagðir voru undir verkstjórn Óskars, eru nú nær gjörsamlega ósýnilegir. Ástæðan er sú, að nýir, upp- hækkaðir vegir eru komnir ofan á þá gömlu. Það sýnir sig þá, að val vegarstæðis hefur verið býsna skynsamlegt hjá gamla verk- stjóranum. Við sláum nú botninn í þetta vcgaspjall. Mikil saga hefur gerst síðan Gísli á Hofi byggði brýrnar 1895-6 og síðan drengurinn í Hverhóli teymdi reiðingshest og fór sveitina ofan á Sand um alda- mótin. Komnar eru nýjar brýr á allar ár og uppbyggðir vegir á löngum köflum í dalnum. Samt er það enn eitt hið brýnasta hags- munamál að bæta vegarkerfið í þessari ægilegu snjóasveit og ekki líklegt að öldin endist til að því verki verði lokið. En gamli vegaverkstjórinn, Óskar Kr. Júlíusson á Kóngs- stöðum, býst ekki við að lifa þann dag og æskir þess lieldur ekki. „Þetta er nú orðið alveg nógu langt“ segir hann ljúfmann- lega og æðrulaust. „Það er kom- inn tími til að hafa vistaskipti.“ Ekki er að efa, að honuum verði greiður vegurinn, sem liggur til eilífu sælunnar, þegar þar að kemur. Hann hefur greitt götu svo margra hér á lífsleiðinni, að hann á örugglega inni góðar við- tökur hjá hinum mikla vegamála- stjóra, sem stjórnar „brautar- vinnunni“ hinumegin. HEÞ

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.