Norðurslóð - 24.05.1989, Qupperneq 6
Svarfdælsk byggð & bær
Tímamót
Skírnir
24. apríl var skírður í Dalvíkurkirkju Gunnar Már. Foreldrar
hans eru Gitta Unn Ármannsdóttir og Leif Erik Andersson,
Syðri-Haga, Árskógsströnd.
7. maí var skírður í Dalvíkurkirkju Aðalbjörn. Foreldrar hans
eru Steinunn Aðalbjarnardóttir og Hannes Garðarsson. Heimili
þeirra er að Böggvisbraut 12, Dalvík.
13. maí var skírð í Dalvíkurkirkju Karen Lena. Foreldrar henn-
ar eru Lilja Björk Ólafsdóttir og Óskar Óskarsson. Heimili
þeirra er að Hjarðarslóð 6f, Dalvík.
20. maí var skírð á Dalvík Kristrún. Foreldrar hennar eru Rakel
Óskarsdóttir (Valtýssonar) og Gunnar Guðmundsson. Heimili
þeirra er að Flyðrugranda 6, Reykjavík.
Hjónavígsla
29. apríl voru gefin saman í hjónaband í Dalvíkurkirkju Guð-
mundur Aðalsteinn Sigurðsson (frá Bessastöðum) og Antia
Kristín Ragnarsdóttir. Heimili þeirra er að Sunnubraut 7,
Dalvík. JHÞ
100 ára
Alltaf þykir það nokkur tíðindi þegar ein-
hver borgari landsins nær 100 ára aldri.
Fað gerðist þó ótrúlega oft í okkar fámenna
landi, enda erum við sem þjóð meðal
þeirra allra lífseigustu. Einkum er það þó
kvenfólkið, sem skarar fram úr í þessu eins
og svo mörgu öðru. Hvað Svarfdæli varðar
þá hafa þeir lengi verið eftirbátar annarra
í þessari grein og þekkjum við engin dæmi
um að fólk héðan hafi náð 100 ára mark-
inu.
Það er að segja þangað til nú, 3. maí 1989. Þá varð 100 ára
Svarfdælingurinn Valgerður Steinunn Friðriksdóttir frá Hánefs-
stöðum. Hún var dóttir hjónanna Friðriks Friðrikssonar og
Guðrúnar Jóhannsdóttur, sem bjuggu á hálfum Hánefsstöðum
1885 til 1909, Til Akureyrar flutti fjölskyldan 1915. Tvær systur
eldri átti Valgerður: Önnu Friðriku og Elínu. Báðar eru þær
dánar og náðu liáum aldri, Anna 98 en Elín 96 ára aldri. Arið
1913 giftist Valgerður Jónasi Franklín frá S.-Kálfskinni. Þau
eignuðust 2 börn, sem nú eru bæði látin en eiga afkomendur,
svo fjölskylda Valgerðar er orðin margmenn.
Norðurslóð kom að máli við þennan aldraða sveitunga núna á
dögunum, þar sem hún sat inni á herbergi sínu í dvalarheimilinu
Hlíð á Akureyri. Það fyrsta sem maður veitir athygli er hve slétt
og ungleg hún er og glaðleg í viðmóti. Hún var reyndar að
prjóna lítinn sokk, sem á að fara á ófætt barna-barna-barna-
barn úti í Svíþjóð, sagði hún með glettningsglampa í augum.
Valgerður er mikill Svarfdælingur, segir að þær systurnar hafi
alla tíð fylgst vel með mönnum og málefnum heima í sveitinni
sinni og farið þangað í bílferð á hverju ári eftir að vegurinn opn-
aðist upp úr 1930. Svo voru þær í orlofsdvöl á Húsabakka eitt
eða fleiri skipti fyrir mörgum árum og það var nú skemmtilegur
tími, segir Valgerður.
Líklega kem ég aldrei aftur út í blessaðan dalinn, segir hún, og
biður að lokum byggð og fólki blessunar guðs.
Norðurslóð þakkar Valgerði samtalið og óskar henni og hennar
fólki öllu gæfu og friðar. HEÞ
Andlát
4. maí lést á Akureyri, Ingibjörg Jóhanna
Magnúsdóttir, Þorsteinsstöðum, Svarfað-
ardal.
Ingibjörg fæddist í Klaufabrekknakoti,
Svarfaðardal, 22. júní 1898, dóttir Magn-
úsar Guðmundssonar og Ingibjargar Jóns-
dóttur í Koti. Hún var elst fjögurra systra
sem voru auk hennar: Gunnlaug, búsett á
Atlastöðum, Guðrún, sem bjó í Koti en er
nú látin og Kristjana sem býr í Siglufirði.
1922 giftist Ingibjörg Tryggva Halldórssyni
frá Melum. Tóku þau við búi á Þorsteinsstöðum fjórum árum
síðar og áttu þar bæði heimili til dauðadags. Þeim varð þriggja
barna auðið. Halldór var þeirra elstur en lést ungur, Gunnlaug-
ur býr á Þorsteinsstöðum og Ingibjörg Guðrún býr á Akureyri.
Tryggvi lést 6. október 1967. Ingibjörg dvaldi hjá dóttur sinni
hin síðustu ár og þar lést hún 4. maí, 90 ára að aldri.
Ingibjörg var jarðsungin frá Urðakirkju 13. maí.
Fermd verða eftirtalin börn í Urðakirkju 28. maí kl. 13.30:
Erna Kristín Hauksdóttir, Skeiði,
Hafdís Jóhannsdóttir, Ytra-Hvarfi,
Heiðrún Jóhannsdóttir, Ytra-Hvarfi,
Klemens Bjarki Gunnarsson, Brekku,
Sigursteinn Ingvarsson, Göngustöðum,
Unnur Erla Ármannsdóttir, Laugasteini.
JHÞ
■d M [á éi < 9 5EE a •
Guðbjörn, Halla og sonurinn Snorri Páll.
Nýr skrifstofustjóri er kominn
til Útibús KEA á Dalvík í stað
Þórðar Viðarssonar, sem far-
inn er af staðnum og mun ætla
sér í framhaldsnám. Nýi mað-
urinn er Guðbjörn Gíslason
frá Akureyri. Hann er fæddur
Gaflari, þ.e.a.s. Hafnfirðing-
ur, 11. október 1959, svo það
styttist í kringlótt afmæli eins
og það er kallað. Foreldrarir
eru Gísli Sigurbentsson smiður
og Kristbjörg Ásbjarnardóttir,
(systir Arna Ásbjarnarsonar
sem um tíma var bóndi í Kaup-
angi og lengi síðar fram-
kvæmdastjóri Náttúrulækn-
ingahælisins í Hveragerði).
Guðbjörn flutti til Akureyrar
með móður sinni og systrum 1971
og hefur átt þar heima síðan.
Hann lauk prófi frá verslunar-
braut G.A. og fór að starfa hjá
KEA 1979 og vann þar í 10 ár
sem bókari, tölvustjórnandi og
síðast sem starfsmannastjóri.
Guðbjörn kvæntist 1985 Höllu
Steingrímsdóttur frá Akureyri.
Hún er fóstra að mennt og for-
stöðukona barnaheimilisins Síðu-
sels. Þau eiga þriggja ára son,
Snorra Pál.
Nú virðist sem ÚKED hafi
haldist fremur illa á skrifstofu-
stjórum upp á síðkastið. Á Guð-
björn von á að endast lengi hér?
Já, það er sannarlega ásetningur
hans að tjalda ekki bara til einnar
nætur, en reynslan sker úr um
það. Hann er mikill áhugamaður
um allskonar íþróttir og spilaði
áður handbolta í meistaraflokki
KA. Ennfremur knattspyrnu
þegar hann var yngri. Guðbjörn
væntir sér alls góðs af starfinu hér
og kvíðir ekki samstarfi við heima-
menn, sem hann hefur reynd-
ar kynnst allmörgum í gegnum
starf sitt á Akureyri. Hann ekur
enn heiman að frá sér á Akureyri
og bíður nú eftir húsnæði hér svo
hann geti flutt úteftir.
Norðurslóð býður hann vel-
kominn og óskar honum langra
lífdaga í starfinu hér.
Fréttahomið
Föstudaginn 28. apríl sl. afhenti
Byggingarfélagið Viðar hf.
Dalvík 10 fullfrágengnar íbúðir í
fjölbýlishúsi við Lokastíg. Fjórar
íbúðanna eru byggðar í verka-
mannabústaðakerfi 2 í kaupleigu-
kerfi, 2 eignaíbúðir og 2 eru í
eigu Dalvíkurbæjar og ætlaðar
fyrir starfsmenn Dalbæjar.
Þetta eru allt glæsilegar íbúðir
ýmist 2ja eða 3ja herbergja.
Hilmar Daníelsson afhenti verð-
andi íbúum hússins lykla ásamt
blómvöndum f.h. Viðars hf. Það
kom fram í máli hans að á sl.
tveim árum hefur Byggingar-
félagið Viðar hf. byggt 20 íbúðir
á Dalvík, og hafa þeir hug á að
halda áfram á þessu ári því enn er
næg eftirspurn eftir íbúðum.
Hinir nýju eigendur og íbúar
hússins er allt kornungt fólk og
flestir að byrja búskap.
síðasta ári varð talsverð um-
ræða um stofnun útflutnings-
fyrirtækis á Dalvík. Þá var meðal
annars rætt um sölu á skreið. í
framhaldi af þessu var ákveðið að
Fiskmiðlun Norðurlands þreifaði
fyrir sér í þessum efnum. Svo
virðist sem þessar þreifingar hafi
borið mjög góðan árangur því
allt bendir til þess að mest öll
skreiðarsala til Ítalíu af svæðinu
hér í kring verði á vegum Fisk-
miðlunarinnar. Umboðsmenn á
Ítalíu sem sjá um málin þar hafa
í áraraðir skipt við íslendinga.
Hallsteinn Guðmundsson fisk-
Firmakeppni í karlaflokki á Dalvík sl. sunnudag. F.v. Þorleifur Karlsson 1.
verölaun, Stefán Friðgeirsson 2. v., Magnús Magnússon 3. v., Sveinbjörn
Hjörleifsson 4. v., Anton Níelsson 5. v.
Frá stórfallegri sýningu á handavinnu aldraðra á Dalbæ um síðustu helgi.
Leiðbeinendur í vetur voru Helga Þórsdóttir Bakka og Kolbrún Pálsdóttir
Dalvík.
matsmaður hefur verið ráðinn til
Fiskmiðlunar en hann hefur í
nokkur ár verið viðriðinn skreið-
arútflutning. Svo getur farið að
rúmlega helmingur skreiðarsölu
til Ítalíu nú í ár verði á vegum
Fiskmiðlunar Norðurlands.
Talið er að um 30% magn-
aukning verði á skreiðar-
framleiðslu hér á Dalvík. Nú í
vor var stærri fiskur hengdur upp
en áður svo reikna má með að
verðmætaaukning verði meiri en
magnaukningin gefur til kynna.
Talsvert á annað þúsund tonn af
hráefni var flutt norður af suð-
vesturhluta landsins. Flutninga-
og vörubifreiðar voru á ferðinni
dag og nótt. Það þykir ýmsum
undarlegt háttarlag að flytja fisk
á þennan hátt á milli landshluta.
En vegna veðráttu og verkþekk-
ingar næst mest verðmæti í
skreiðarverkun fyrir Ítalíumark-
að hér á þessu svæði. Skreiðar-
verkun er arðbær svo það er í
fylsta máta rökrétt að flytja hrá-
efni þvert yfir landið undir svona
kringumstæðum.
Hársnyrtistofan Jódý tók til
starfa 18. maí sl. í gömlu
lögreglustöðinni á Dalvík. Eig-
endur eru Svala Sveinbergsdóttir
og Elín Gunnarsdóttir. Þar er
opið frá kl. 10-18 nema á þriðju-
dögum kl. 13-20 og föstudögum
9-16. Einnig verður e.t.v. hægt
að panta tíma á laugardögum
þegar mikið liggur við.