Norðurslóð - 29.03.1990, Blaðsíða 1

Norðurslóð - 29.03.1990, Blaðsíða 1
Svarfdælsk byggð & bær 14. árgangur Fimmíudagur 29. niars 1990 3. tölublaö Móðir og barn. Eigandi og Ijósmyndari Sig. Marinósson. Mikill snjór - Dýr snjór Utan hmgt úr gráum geim geysist kuldur vindur. Hcrt er nú á hnútum þeim sem himnakóngurinn bindur. Ekki þarf að fara mörgum orðum um snjóinn og vcðráttuna. Hríö á liríð ofan liefur verið forskrift veðurguðsins þessar undan- gengnu vikur. svo að nú eru snjóþyngsli „meiri en elstu menn muna" a.m.k. síðan í fyrravetur. Allt kapp er þó lagt á að halda leiðum opnunt bæði í sveit og bæ. Fólk þarf að komast til vinnu sinnar, fólk þarf að komast í búð, börn þurfa að komast í skóla, bændur þurfa að koma mjólk í samlag o.s.frv. Það er því mikill peningur sem sekkur í snjómoksturinn þessa dagana og horfa margir á með blóðgum augum. Bæjarritari á Dalvík sagði l’yrir síðustu helgi aö af 5 milljónum, sem á fjár- hagsáætlun er ætlaö í snjómokst- ur, sé trúlcga búið að eyða tveim- ur. Oddviti Svarfaðardalshrepps taldi hinsvegar að hreppurinn væri scnnilcga búinn að setja á aðra miljón króna í moksturinn nú þegar og er það nokkuð þung- bært fyrir lítið sveitarfélag. Hins vegar er ógerlegt aö kveða nákvæmlega á unt kostnaðinn nú, þar sem moksturinn er kostaöur af hreppi og Vcgagerð sameigin- lega og uppgjör þeirra á milli fer fram síðar. Sáttlúsir hcstamcnn framtíðarstaður Hrings í Ytra-Holtí? Snemma í marsmánuði hélt hestamannafélagiö Hringur aðalfund sinn í kaffistofu frystihúss K.E.A. Dalvík. Mættir voru 20 félagar af alls um 100, sem eru á skrá. Það gerðist merkast á fundin- um, að samþykkt var tillaga um að sækja aftur um inngöngu í Landssamband hestamanna. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að eyfirsku hestamannafélögin Funi, Hringur og Léttir sögðu sig úr löguni við Landssamband hestamanna fyrir 3-4 árum síðan. Aðalágreiningurinn var um þá ákvörðun L.H. að landsmót færu aðeins fram á einuni stað hér norðanlands þ.e. á Vindheima- melum í Skagafirði. Þar með voru Melgerðismelar úr leik og því vildu Eyfirðingar ekki una. Nú mun hins vegar liggja í loft- inu, að breytingar verði gerðar á landsmótshaldi þannig að Mel- gerði konii inn í myndina, og í því trausti mun aðalfundur Hrings hafa samþykkt inngöngu á ný. Þó var það ekki gert ein- huga því tillagan var samþykkt með 10 gegn 8 atkvæðum. I lok fundarins var félaginu Fískmiðlun Norðurlands „gólfmarkaðuru á Dalvík Blaöiö átti tal viö Hilmar Daníclsson forstjóra Fiskmiðl- unar Norðurlands á Dalvík og innti hann eftir gangi mála hjá fyrirtækinu. Hilmar sagði að aðalnýungin væri nú stofnun þess, sem kallað er gólfmarkaður fyrir fisk á Dalvík. Þetta þýðir einfaldlega, að ekki er lengur einvörðungu um að ræða miölun fiskiafla um fjarskiptakerfi eins og verið hefur, heldur verður nú beinlínis keyptur fiskur af bátum á Dalvík og annarstaðar frá, hann hafður til sýnis í kössum og körum á gólfi markaðshússins þar sem „lysthafendur" bjóða svo í hann hver eftir sínum smekk og til- gangi. Þetta er að mestu eftir fyrirmyndum frá Suðurnesjum. Samtímis mun gamla símamiðl- unin halda áfram. Þá er þess að geta, að ætlunin er að hafa svokallaðar útstöðvar fyrirtækisins á Húsavík og á Ólafsfirði þar sem fengnir verða til menn til að taka á móti afla, flokka hann og vigta og hafa til sýnis væntanlegum kaupendum. Fiskmiðlunin er ábyrg fyrir greiðslu til sjómannanna. Yfir- leitt hefur tilkoma markaða haft þau áhrif að hækka verð til selj- enda. Aðspurður, hvort fréttamaður gæti farið á markaðinn og keypt einn kassa af fiski. sagði forstjór- inn: „Já að sjálfsögðu, ef þú býð- ur betur en aðrir." Markaðurinn kosin ný stjórn til tveggja ára. Formaður var kosinn Ingvi Bald- vinsson Bakka í stað Þorsteins Stefánssonar Jarðbrú. Aðrir í stjórn eru Verónika Konráðs- dóttir Dalvík, Gunnar Sigur- steinsson Dalvík, Þór Ingvason Bakka og Skarphéðinn Pétursson Hrísum. Nýju stjórnarinnar bíöur þaö vandasama verkefni að leiða til lykta samninga um framtíðarstað hestamanna á Dalvík, hugsanleg kaup á rcfaskálanum á Holts- móum og samninga um landsfnot í Ytra-Holti eða aðra lausn á til- vistarvanda reiðmennskunnar á Dalv'k. Frá Dalvík. Ein mesta fiskiliöfn Noröurlands. verður til húsa í fiskhúsi Harald- ar h.f. við Hafnarbraut. Af öðrum nýjungum hjá fyrir- tækinu nefndi Hilmar útflutning til Svíþjóðar á sykursöltuðum þorskhrognum. Farin er fyrsta sendingin, 160 tunnur, en alls er gert ráð fyrir að selt verði þangað um 1500 tunnur. Áfram er unnið með útflutning á ferskum fiski í gámurn, en að því er varðar skrciðarsöluna, þá eru nú menn á Ítalíu aö liðka til í þeim málunt. Þar er starfsmaður Fiskmarkaðarins Hallsteinn Guðmundsson og þar er Helgi Jakobsson á Dalvík svo nú má búast við að meiri hreyfing kom- ist á saltfisksöluna á Ítalíuskaga. Af þessari samantekt má Ijóst vera, að Fiskmiðlun Norðurlands á Dalvík er fyrirtæki í framþróun og er komin mikil breidd í starf- semina.

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.