Norðurslóð - 30.04.1990, Síða 2

Norðurslóð - 30.04.1990, Síða 2
2 - NORÐURSLÓÐ NORÐURSLÓÐ Útgefendur og ábyrgðarmenn: Hjörtur Þórarinsson, Tjörn, Svarfaóardal Jóhann Antonsson, Dalvík Umsjón, dreifing og innheimta: Sigríður Hafstað, Tjörn. Sími 96-61555 Prentun: Dagsprent hf. Akureyri Ný áburðarverksinidja Oft er það sagt, að það sem einu sinni hafi komið f'yrir geti hvenær sem er komið fyrir aftur. Rétt mun það vera, en hitt er líka sann- mæli, að stundum gerast atvik, sem enginn veit til, að áður hefði gerst eða grunaði að gætu gerst. Þetta er fært í tal í tilefni þeirrar lygilegu uppákomu, að eldur skyldi geta kviknað á þaki ammoní- umtanks Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi eins og gerðist á páskadag, sem víðfrægt er orðið. Mörg orð er búið að hafa um þetta fyrirbæri og ekki öll viturleg og sjálfsagt á eftir að heyrast margt og misjafnt áður en síðasta orðið er sagt. Eitt er það, að ekki þurti svo sem neinn tilbúinn áburð á íslandi, því landbúnaður sé á niðurleið, svo markaðurinn verði senn lítill sem enginn. Sér er nú hver vitleysan. Auðvitað heldur landbúnaður áfram á Islandi og bændur þurfa á áburði að halda til grasræktar og annarrar ræktunar, auk þess sem öll framtíðaráform um landgræðslu byggj- ast að miklu leyti á áburðargjöf. Markaðurinn mun því ekki minnka, þvert á móti. Hitt er annað mál, að rekstur Áburðarverk- smiðju ríkisins er ekki fyrst og fremst landbúnaðarmál. Það er hægt að fá jafngóðan og jafnódýran áburð erlendis frá. Fram- leiðsla tilbúins áburðar er iðnaðar- og atvinnumál og er mikilvæg í sambandi við orkunýtingu á Islandi. En hvað sem svona heimskulegum sjónarmiðum líður og hvað sem líður öfgafullu tali um óbærilega hættu af verksmiðjunni í jaðri þéttbýlisins, þá verður sjálfsagt að gera ráð fyrir því, að þessi starfsemi eigi ekki langa, kannske svo sem enga framtíð fyrir sér á þessum stað. Ekki ber að harma það út af fyrir sig. Sjálfsagt átti Áburðarverksmiðjan aldrei að byggjast þama og ekki á Suðvest- urlandi yfirleitt. Þar réð eflaust fyrst og fremst það illræmda og lífseiga sjónarmið, að stóríðnaður geti helst ekki þrilist hér á landi nema í næsta nágrenni höfuðborgarínnar, þar sem allt vit og þekk- ing á hvort eð er að vera saman komin. Það er því fyllilega tíma- bært og í alla staði eðlilegt, að undirbúa hið fyrsta flutning þessarar starfsemi út á land. Húnvetningar hafa í þetta sinn orðið fýrstir til að bjóðast til að taka við nýrri áburðarverksmiðju. Sem landsbyggðarblað tekur Norðurslóð sterklega undir þessa tillögu. Við göngum út frá því sem gefnu, að framleiðsla köfnunarefnisáburðar hljóti að vera þjóðhagslega hagkvæmt fyrir okkur, sem eigum mestallan orku- forðann ónýttan og ekki skortir loft og vatn, sem em hráefnin. (Steinefnin kalíuin, fosfór o.s.frv. þurfum við eins og flestir aðrir að flytja inn frá fjómm löndum.) Áburðarverksmiðja á borð við þá í Reykjavík er ekki mannfrekara fýrirtæki en svo, að þess vegna getur staður á borð við Húnaflóabyggð auðveldlega ráðið við hana, hvort heldur væri austur- eða vestursýslan. Ekki veitir atvinnulílinu við Húnaflóa af dálítilli blóðgjöf og hvað er eðlilegra en að eitthvað af Blönduorkunni sé notað til hagsbóta heim- abyggðinni. Markaður lýrír tilbúinn áburð á íslandi er viðlíka mik- ill sunnan sem norðan heiða. Það er því bókstaflega allt, sem mæl- ir með en ekkert gegn því, að Áburðarverksmiðjan flytjist frá Reykjavík, þar sem hún er nú óvelkomin, og rísi á ný í einhverju skynsamlegu formi norður við Húnaflóa. Það væri sannarlega í anda heilbrígðrar byggðastefnu. HEÞ. Til áskrifenda Enn er komið vor ef vor skyldi kalla. Það er 25. apríl og vika af sumri. Það er blindbylur svo húsið nötrar í kviðunum og meters- þykkur snjórinn hylur lönd. Einhvern tímann hefði þessi harð- neskja boðað fjárfelli og von bráðar sult í bú manna hér á norðurslóð. En nú eru aðrir tímar sem betur fer og við höldum geðró okk- ar í vissunni um, að sólin skín björt ofan við hríðarsortann og senn brýst hún fram og tekur til við að skapa sumarið með blómaangan og fuglasöng. Að loknum þessurn skáldlega for- mála komum við aftur niður á jörðina og snúum okkur að hvers- dagslegri hlutum. Enn lifir Norðurslóð og eins og allt, sem lífs- andann dregur þarf hún næringu við og við. Mikill hluti nær- ingarinnar er í formi áskriítargjalda og er þá komið að efninu. í fyrra hækkaði árgjaldið ansi mikið, ein 40%,sem við skýrðum með fallandi auglýsingatekjum, og rétt var það. Nú verður hækkunin minni eða um 100 krónur úr 900 í 1000. Þetta er bara rösklega 10% hækkun og 1000 er falleg tala. í því trausti, að áskrifendur séu sömu skoðunar sendum við nú fyrstu gíróseðl- ana með þessari upphæð til ca. þriðjungs kaupenda og ljúkum umferðinni með maí- og júníblöðunum. Jafnframt sendum við okkar bestu kveðjur, góðir lesendur nær og fjær, og óskum ykk- ur gleðilegs sumars þrátt fyrir allt og allt. Útgefendur. S Ur dagbók Jóhanns á Hvarfi Anno 1900 9. sept. Eg og Páll fórum á stað í göngur, eg reiddi Adda. Jón á Syðra-Hvarfi samferða. Fór Lauga ofaneftir, Jói fylgdi henni. 10. sept. Gott gangnaveður, drógrm sundjír, allt í björtu. Var Jóhann gamli á Hellu með þeim sem tóku fé úr Arnarneshreppi og innhreppum. 12. sept. Fórurn við hjón og bræður í veislu við Böggvisstöð- um, giftust þorsteinn Baldvins- son og Helga Björnsdóttir (for- eldrar Baldvinu á Ögðurn). Vor- s!.t þar nóttina. Fór eg svo út í hús Ágústs, sementaði grunn yndir austurhlið hússins, annað eigi búið að hlaða af honum. (Þetta er Fell). 17. sept. Kom Sveinn og Jónas gamli, (barnakcnnari) gistu. Markaður á Hofsrétt. Þessir keyptu: (umboðsmenn í sviga) Gránuverslun, (Sveinn) 200 rúm- lega, Consúll (Dúi) 150 rúml. Havsteen (Kristján) 150, Laxdal (Benedikt) 80, Óli Möller (Lúðvíg) 40, Þorvaldu r Davíðs- son (Steindór) 40, Snorri (Gísli á Hvarfi) 190. Lætur nærri að 1000 hafi verið selt á markað og 350 í pöntun. Hygg eg að alls sé selt 1400 úr sveitinni til ýmissa. Þór- finnur tók mest, allt til reksturs. Snorra fé var sér og Hjalteyringa. 20. sept. Hiti 2 gráður að morgni, vestan stormur, fyrst úr- fellislaus en þegar eftir fullbirt- ingu fór að hvessa, og fór vaxandi til nóns. er það mesta óveður er elstu menn muna. Allt var í einu roki ár lækir og pollar og við bættist fjarska úrfelli. Reif víðast af húsum og heyjum. Mesta tap á heyjum á Skeiði, Hreiðarsstöð- um, Hofi og Syðra-Holti. Víða mistist fáir hestar. Hér fauk við Neðstakofa og Bæjarhesthús 3-5 hestar úr hvoru. Urðakirkja og Upsakirkja fuku báðar , brotn- uðu í spón. Vallakirkja færðist af grunni, og gekk frá suðurhlið. Tjarnarkirkja lítið skekkst. Einn fiskibátur fauk. Fóru þeir með markaðsfé. Léði eg Sigurlaugu á Sandinum Sokku í kaupstað. Komst það með fé inn á Hillur og hafðist þar við í 5 tíma. Fauk að mestu bær og hey á Hillum og timburhús á Rauðuvík, létust 2 börn af því. Fórst skip, Kári frá Siglufirði, sem var í Vesturál milli Múshóls og Krossatóttar. Þegar rokið kom hafði hann drif- ið í land, fórust allir menn sem á voru. Ráku mörg hákallaskip og fiskiskip er lágu á Akureyrarpolli út á Oddeyrarbótina að innan. Löskuðust meira og minna. Talið að öll hafist út aftur. Fleira ekki frétt og ekkert lengra að 21. sept. Gerðum að heyjum, bárum grjót og lagfærðum. 22. sept. Gerðum við hjalla og hús, það sem af reif. 23. sept. Gísli með okkur í Velli. Skoðuðum kirkju þar, en hún er hrakin út af grundvelli og rifin frá syðri hlið. Stólpar á grunni brotnir. Álitið illt aðgerð- ar. 24. sept. Kom Jóhannes á Skriðulandi með Sokka úr tamn- ingu. Borgaði kr. 5 fyrir allt, hagagöngu og tamningu. Fór með honum í Mela, reið Sokku. Voru menn að bera saman ruslið úr Urðakirkju. 26. sept. Fór eg ofan á Sand með 2 hesta undir reiðingi, keypti fisk. Besti fiskur hjá öllum og síldarfengur í net mikill alls- staðar á Víkinni. Fór heim með þungt á báðum. Fengu drengir 26 silunga, áður í mánuðinum á annað hundrað. Tryggvi Jóhannsson og Soffta Stefánsdóttir hjón á Ytra-Hvarfi. 27. sept. Tók 10 Iömb til skurðar. Það fyrsta sem eg hef fargað í þetta sinn. Fór Jói ofan að vita hvort hann gæti fengið róður. 29. sept. Fór eg með hesta ofan, kom með full þungt á þeim, báða hluti Jóa. 4. okt. Fór Jói á Upsakirkju viðar axion og keypti fjalvið fyrir kr. 9,40. Jói sagði að uppboð hafi hlaupið á kr. 300. 6. okt. Hreppaskilaþing. Mætt- ir um % ábúenda. Rætt um heyjaskoðun og skepnuhirðingu. þar næst um skoðun á fé og' hundalækningar. Kosnir menn til alls starfans. Boðin upp Guðrún Jónsdóttir og ungbarn sem fædd- ist á Hrísum hjá hjónum sem fluttust frá Ólafsf irði síðast liðið vor með tveim börnum. Boðið upp óskilafé 15 að tölu, vetur- gamalt og lömb. 7.okt. Fór Sól- veig ofan til að komast í kaupstað með Skálholti. Fylgdi Jói henni á hesti. Fór Tryggvi á kirkjuviðar- axion að Urðum. Bauð í fyrir kr. 2.00. 15. okt. Sólveig kom heim í dag frá Hjalteyri út á Sand. Kom svo með Jóa heim eftir hátta- tíma. Var sett á land á Hjalteyri, fór með Skálholti þangað 13. í stórhríð. Komst enginn í land þá nótt, fóru svo allir farþegar á land á Hjalteyri sem ætluðu á Dalvík , og vörur allar skipaðar upp í Hrísey sem hingað áttu að fara. Kvika, svo eigi var gott á sunnudag 14. 1. nóv. Dó Sigríður Sigurðar- dóttir seinni kona Þorkels á Hofsá. Egill liggur hér við Sandinn, tók Snorrafisk. Með Agli sigldi Þorsteinn Jónsson Stefánssonar á Sandinum. (Þor- steinn kaupmaður.) 2. nóv. Fór Tryggvi að Völlum til kirkjuverka, en Jói í Hof til bólusetnings, við Sólveig til úthafningar líksins. Komu þeir utanað frá Völlum, sperrtu við kirkjuna, verður látið við svo búið standa fyrst um sinn. 4. nóv. Gísli á Hvarfi fór i Hofsá til að smíða kistu. Tryggvi fer á morgun til að hjálpa til. 5. nóv. Fór Páll ofan, léði eg honum reiðingshest og hann fór með annan fyrir mig eftir lopaull og kornhálftunnu sem Tryggvi tók á Oddeyri 27.f.m. Hvolpur- inn drapst úr hundapest. 7. nóv. Kom Alla inn úr Stef- ánshúsi með prjónaskap sem hún fór með efni í. 14. nóv. Mikið stórfenni og snjór yfir allt. 20. nóv. Tryggvi og Jói fóru ofan með rjúpur sínar, náðu ekki í þá sem fóru í kaupstað á Holts- byttu. Þeir tóku á sleða það sem Jói bauð í úr Upsakirkju. Það er viðillt og fúið sumt. Jói og Leifi ætla inn á Litla-Árskógssand með rjúpur og selja Norðmönnum þar. Kom eg með kettling frá Hnjúki til Jóa. 25. nóv. Kom Leifi á Hjalta- stöðum með Stefni, Heimskringlu og Lögberg. Kom póstur í gær á Sandinn. 1. des. Fór Jói innað Hámund- arstöðum til bólusetninga. Tryggvi og Steini fóru ofan í Böggvisstaði, komu að kvöldi með kistu og kofort Guðlaugar. 2. des. Sagt að Nordkyn ? gufuskip með síldarfarm hafi ver- ið ferðbúið til Noregs við Litla- Árskógssand í gærkvöldi. Ætlaði að leggja út í dag. Tók Ólafur Jónsson, faðir Adda litla hér, sér far með því, að leita sér atvinnu. Kom Jói og Lauga með honum, líklega alfarin til veru nú og svo framvegis.(Jóhann og Guðlaug í Sogni foreldrar Baldvins, Jór- unnar og Aðalbjargar. Þau tóku við búi á Ytra-Hvarfi þegar Jó- liann Jónsson dó árið 1901. en fluttu til Dalvíkur 1905, þegar Tryggvi var búinn í Hólaskóla og tók við búinu.) 3. des. Kom Steini (Syðra- Hvarfi) í gærkvöldi, verður þessa viku, lærir ensku Tryggvi les með, Jói kennir.( Steini.er Þor- steinn Þ. Þorsteinsson seinna rit- höfundur í Vesturheimi.) Fór Tryggvi ofan með 60 pör sokka á sleða, sem Páll flytur fyrir okkur í kaupstað. 10. des. Sent til mín úr Syðra- Garðshorni kl 3 í nótt, frá Júlíusi, að fara með bát til kaup- staðarferðar. Fór eg og Páll strax af stað, gengum ofan á Sand í hríðarveðri. Fórum fjórir, eg með Júlla á Hálsbát, en Páll með Jóni á Hreiðarsstöðum á Háa- gerðisbát. Komum við dagsetur á Oddeyri. 11. des. Verslað dálítið. Tók eg á Oddeyri, hjá Jóni Normann: 2 pund kaffi, 2 pund export, 2 pund melís, 1 pakka 3“ saum, 1 pakka 2“ saum, 1 pakka smá- saum, 1 pott brennivín, pappír, 2 bækur, 2 pund tóbak hjá Þ. Davíðsyni, 8 krónur í peningum hjá Consúl, 1 f lösku sherrý 1 flösku brennivín. Fór eg til Guð- mundar Hannessonar læknis, skoðaði hann eyru mín. Fórum af stað kl 6 e.m. leiði gott. Komum á Hólsnaust kl 11 að kvöldi. Gisti á Hóli. 12. des. Fór frá Hóli, gekk heim. kom kl 5 e.m. Páll þá ný- kominn. 22. des. Kom Sigurður Þórðar- son frá Hólaskóla. ‘'(S. frá Hnjúki, síðar bóndi á Egg í Hegranesi.) 24. des. Kom Stefán í Hofsár- koti, skilaði Helgapostillu, er eg léði honum um jól í fyrra til árs lestrar. Var sótt naut í Bakka. Svarthjálmu. veturgamalli kvígu haldið. Litli -Boli brúkaður. Gisti Jóhann Páll hér, Jói og Lauga niður á Böggvisstöðum síðan í gærkvöldi.

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.