Norðurslóð - 30.04.1990, Blaðsíða 3

Norðurslóð - 30.04.1990, Blaðsíða 3
NORÐURSLÓÐ - 3 Rósa Þorgilsdóttir, póst- og símstjóri á Dalvík: Rætt við konu í ábyrgðarstarfi Póstnieistarinn ásamt eiginnianni með dófturina Önnu Maríu. Innfellda myndin: Eldri dóttirin Kagnheiður. í febrúarblaði Norðurslóðar var sagt frá því að nýr stöðvar- stjóri Pósts og síma á Dalvík hefði verið skipaður í starfíð 1. febrúar s.l. Blaðamaöur Nsl hafði lengi áforniað að ná tali af honuiti, og lét loks verða af því núna á dögiinnm. Það þarf kannske ekki að kynna Rósu Þorgilsdóttur fyrir lieimamönnum á Dalvík og í sveitinni, því segja má að hún hafí alist npp á símanum, þar sem báðir foreldrar hennar unnu um langan aldur. Faðir hennar Þorgils Sigurðsson var stöðvarstjóri á Dalvík í 34 ár eða frá árinu 1955, og móðir hennar Ragnheiður Jónsdóttir varð símastúlka á Dalvík árið 1938 og vann við það starf í rúm 40 ár. Sjálf hefur Rósa gegnt flestum þeiin störfum sem tengjast pósti og síma allt frá unglingsárum. En lesendur Norðurslóðar eru víðar en á Dalvík og í Svarfaðardal og ekki síst þeirra vegna verður skyggnst inn í starf og einkalíf stöðvarstjórans nýja. Eg er fædd á Dalvík árið 1951. segir Rósa, og hefi átt heima á Dalvík allt mitt líf. Fyrstu 10 árin átti eg heima í Lambhaga Árið 1964 byggði Póstur og Sími þetta hús hérna og þá flutti fjölskyldan hingað. Eg var auðvitað í Barna og unglingaskólanum hér í Dalvík, en settist síðan inn í Samvinnuskólann í Bifröst og útskrifaðist þaðan áriö 1971. Síðan fór eg að vinna hér heima, strax eftir nám, fyrst hér á Stöðinni, og meðan eg var í námi vann eg á sumrin hér á Pósti og sínra leysti pabba af í hans sumarfríum. Seinna vann eg við Dalvíkurskóla sem ritari í ein 5 eða 6 ár. Hjá Fjölrita hér á Dal- vík vann eg í tvö ár. Þá fór eg aft- ur að vinna hérna. í hálft annað þá. maður var meira í tengslum við fólkið. Þið liafíð auðvitað verið afskaplega fróðar uni hagi fólks í þá daga, þið hafið varla komist hjá því að heyra mörg leyndarmálin? Jú maður komst alveg hjá því, en það var mjög algengt að t'ólk hringdi bara til að spjalla víö okkur, og þá fylgdist maður meira með því sem var að gerast. og var í meiri snertingu við fólkið og persónulegum tengslum. Þetta hefur breyst mikið, kerfið er orð- ið svo fullkomið núna aö erfitt er að hugsa sér að það geti orðiö fullkomnara. Þetta er stafræn símstöð og býður upp á flest allar tækninýjungar senr þekkjast. Hvað eru svo margir starfandi hérna? Það eru þrír í fullu starfi, einn í hálfu, og bréfberarnir tveir í 75% starfi, og ein kona í ræstingu. Starfsmenn Pósts og síma á Dal- vík eru sem sagt auk Rósu: Krist- ín Pálsdóttir símavörur sent hef- ur unnið þar lang lengst eða frá því sncmma á sjötta áratugnum. Ólöf Maríusdóttir í póstafgreiðslu. hefur starfað frá 1. júlí 1989. Gerður Jónsdóttir í póstafgreiðslu hefur unnið 3 ár í hálfu starfi. Þá koma bréfberarnir tveir. þær Ragnhildur Jónsdóttir sem hefur unniö í 5 ár og Guðrún Magnúsdóttir í 2 1/2 á.Þær tvær síðastnefndu hafa ekki alltaf átt 7 dagana sæla í vetur við blaðburð- inn í öllum snjónum og ófærð- inni.Nú svo síðast en ekki síst vinnur Þórlaug Kristinsdóttir viö ræstinguna cg buin að gera það lcngi. AIIí konui? Ætli það sé ekki fremur sjáldgæft, á svona vinnustað? Eg veit það ekki, við vildum gjarnan hafa einhvcrn karlmann starfandi hjá okkur. Það sóttu margir um þessa stöðu þegur hún var auglýst bæði karlar og konur. en þetta fór nú svona . Launin hjá Pósti og sínta eru ekki há, því miður. og það er kannske þes- svegna sem þetta er oröin vinn- ustaður kvenna Irekar en áður var. En Pósti og síma helst vel á starfsfólki sínu er það ekki? Jú sem betur fer, þetta er mjög fjölbreytt og lifandi starf. Eg hefði ekki sóttst eftir því annars. þetta er óneitanlega dálítið erfitt en gaman að takast á við það. Og það er erfiðara fyiir kven- mann en knrltnann að vera í þessu starfi.eins og líklega í flest- um stjórnunarstörfum, það eru gerðar meiri kröfur til kven- mannsins. það er mín tilfinning að minnsta kosti. og þar fyrir utan :í konan eftir að sinna heim- ilisstörfunum þegar heim er kom- ið eltir að vinnudegi lýkur á vinnustaðnum. Þú lítursamt hjörtum augum fram á veginn er það ekki? Jú þaö geri eg. eg er ákaflega heppin með starfsfólkið, alveg sérstaklega heppin, og andinn mjög góður á vinnustaðnum og það er ekki lítils virði. Þessvegna er þetta mikið auðveldara fyrir mig. Yfirmenn mínir á Aku'eyri hafa líka reynst mér mjög vcl, og það er auðvclt fyrir mig að leita mér upplýsinga hjá þeim, og fá aðstoö ef eitthvaö bjátar á, þeir Ársæll Magnússon umdæmis- stjóri og Þorvaldur Jónsson full- trúi hans eru mjög elskulegir, svo og aðrir hjá stofnuninni sem eg þarf að leita til. Rósa er gil't Siguröi Valdemar Bragasyni framkvæmdastjóra Útgerðarfélags Dalvíkinga. Hann er Þingeyingur. frá Landa- mótsseli í Köldukinn. Þau kynnt- ust í Samvinnuskólanum í Bifröst á skólaárunum. Þau eiga 2 dætur, þær heita Ragnheiður og Anna María 17 og 1 I ára. Hér lýkur hinu eiginlega viðtali við Rósu Þorgilsdóttur, en gam- an væri að grúska svolítið í sögu þóstsins hér um slóðið. Ymislegt hefur verið rifjað upp um komu símans hér í dalinn, síðast í jóla- blaði Norðurslóðar 1989. Og í Dalvíkursögu er ítarleg frá- sögn af símamálinu. En hvern- ig var það með póstinn? Á 19. öldinni var bréfhirðing á Tjörn fyrir dalinn.cn hún lagðist niður um aldamótin eða fluttist niður á Sandinn, þvf um eða upp úr alda- mótum er komin bréfhirðing á Dalvík, í Nýjabæ.Það var ekki fyrr en árið 1929 að sett var upp póstafgrciðsla á Dtilvík með ákveðnum opnunartíma og þá líka í Nýjabæ. Árið 1943 var póstur og sími sameinaöur á einn stað á Dalvík. Skíðabraut 4. sem nú heitir svo, áður var símaafgreiðsla í Bald- urshaga á heimili Þorsteins Jóns- sonar allt frá 1907 þegar lína var lögð frá Völlum til Dalvíkur. Fram í dalnum voru símstöðvar á Völlum og á Uröum. Þorsteinn Jónsson var fyrsti stöðvarstjóri Pósts og síma á Dalvík og gegndi því starfi til ársins 1955. Þessar upplýsingar komu fram í viðtalinu við Rósu, kannske vekur það forvitni einhverra, að kynna sér betur þennan ákveðna þátt í svarfdælskri sögu. Blaðamaður þakkar fyrir samtal- ið og óskar Rósu vellarnaðar í starfi. Póstur og sími á Dalvík er augsýnilega notalegur vinnustað- ur. Þar er glaðlegt og lipurt afgreiðslufólk bæði við símann og póstinn og þannig hefur þaö verið síðan undirrituð fór aö eiga erindi þangað. Megi svo verða um ókomnar tíðir. S.H. ár sem stöðvarstjóri í veikinda- forföllum pabba, eða þar til eg var skipuð í starfið núna í febrú- ar. Hvernig er svo starfið? í hverju er það fólgið? Það má kannske segja að það sé stjórnunarstarf, þetta er fjöl- breytt og skemmtilegt starf, en töluvert erfitt , það verða svo örar breytingar því tækninni fleygir svo fram. Maður hefur varla við að fylgjast nteð nýjung- unun. Það hefur breyst gífurlega mik- ið síðan eg man fyrst eftir, áður en sjálfvirki síminn kom. Það var reyndar ekkert síður skemmtilegt Póstur og sími Dalvík. Starfslið Pósts og síma. F.v. Kristín, Gerður, Guðrún, Rósa, Ólöf og Ragnhildur. Ljósm.: SH Frá Samstökum Svarfdæla í Reykjavík Vel lukkað fjölskyldukaffi Fjölskyldusamkoma Samtak- anna var haldin í Sóknarsaln- um, Skipholti 50 A, sunnudag- inn 29. apríl. Veður var milt en skýjað loft þegar Svarfdælir og skyídulið þeirra, fólk á öllum aldri, mættu og skráðu sig alls 152 manns í gestabókina. Fólk naut dagsins við samræð- ur og kunningja- og vinafundi að ógleymdum hlaðborðsveitingum af svarfdælskri rausn. Kári Gests- son lék á píanóið milda tónlist og sameiginlega stjórnuðu þeir Júlí- us J. Daníelsson almennum söng. Söngsveitin Drangey kom og söng allnokkur lög við mikla ánægju og gleði fólksins. Dagurinn var í alla staði hinn ánægjulegasti. Næst á dagskrá Samtakanna er Viðeyjarferð, sem farin verður um mánaðarmótin maí-júní. Dagsetning er ekki enn fastráðin. Farið verður út í Viðey eftir hádegi þar sem staðarhaldari, sr. Þórir Stephensen mun fræða hópinn um eyjuna, sögu hennar og minni. Eftir gönguferð um Viðey verður staldrað við í vist- legum húsakynnum staðarins, og notið veitinga áður en heim er haldið. Nánari dagsetning og til- högun ferðarinnar verður kynnt í bréfi. Þá er til athugunar gróðursetn- ingarferð á vegum Samtakanna. Ekki er enn fullráðið hvert eða hvenær farið verður, en ákvörð- un verður tekin áður en langt um líður, og þá gerð grein fyrir því.

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.