Norðurslóð - 30.04.1990, Síða 4

Norðurslóð - 30.04.1990, Síða 4
4 - NORÐURSLÓÐ Að lokimii leiksýningu hjá Leikfélagi Dalvíkur Brúðhjónahvarfíð dularfulla Presturinn og skólastýran. Sigurbjörn Hjörleifsson og Kinilía Sverrisdóttir. Um og eftir páskana sýndi Leikfélag Dalvíkur sjónleikinn Um hið átakanlega sorglega og dularfulla hvarf ungu brúð- hjónanna Sigríðar og Indriða daginn eftir brúðkaupið og leitina af þeim, eftir Ingibjörgu Hjartardóttur, Sigrúnu Ósk- arsdóttur, Unni Guttormsdótt- ur og Hjördísi Hjartardóttur. Um síðustu jól stóð félagið fyr- ir menningarvöku í Víkurröst þar sem lesið var upp úr verkunt svarfdælskra skálda og flutt tón- list með textum eftir Svarfdæl- inga. Þarna var sem sagt á ferð- inni rjómi þess menningarlífs sem við svarfdælingar hreykjum okkur gjarnan af og teljum á há- tíðlegum augnablikum svo ágætt og ómissandi í okkar svarfdælska bæ og byggð. Er skemmst frá því að segja að þarna mættu 14 áhorfendur ívið færri en flytjendurnir sem lagt höfðu ómælda vinnu í að koma þessari dagskrá saman. Þegar þetta er ritað er lokíð sýningum á Hinu dularfulla hvarfi. Sýningar voru 7 og áhorf- endur urðu samtals rúml. 400. Það verður aö teljast fremur lélagar heimtur í 1700 manna byggð. Það er því ef til vill ofmælt að tala um blómlegt menningarlíf. En þrákelkni er það, og nánast óeðlileg bjartsýni, að leggja nótt við dag vikum saman við þessa menningarstarfsemi, sem ekki er meiri gaumur gefinn. En mál er að ljúki ræðuhöldum og útásetningi, og snúa sér þess í stað að leiknum sem verið var að sýna. Leikritið „Hið dularfulla hvarf...“ er eitt nokkurra leikrita áhugaleikfélagsins Hugleiks í Reykjavík, og samið fyrir það og er raunar sjálfstætt framhald leikritsins „Ó þú" sem leikiö var syðra árið 1987. Hjá áhugaleik- félaginu Hugleiki gildir það almenna sjónarmið að allir félag- ar sem hug hafa á, eigi að fá hlutverk, og er þá bara bælt við persónum eftir því sem þurfa þykir. Dregur þetta leikrit óneit- anlega dám af því, þannig mætti alveg sleppa einhverjum persón- um án þess að framvinda sögu raskaðist nokkuð. Það var sem sagt ekki alvaran sem sat í fyrir- rúmi á fjölunum í Ungó aö þessu sinni. Raunar er ekki auðvelt að skilgreina hverskonar leikrit hér er á ferðum. Gamansamur sakamálaleikur með þjóðlegu ívafi, gefa ef til vill einhverja hugmynd um óvenju- legan margbreytileika verksins. Skorinorður titill leiksins segir í raun nóg um innihaldiö. Indriði og Sigríður hafa horfið sporlaust daginn eftir brúðkaup sitt og koma aldrei fram í verkinu þó allt snúist um þau. Fylgst er með rannsókn málsins, og kallar sýslumaður, sem reyndar er kona, til vitnis ýmsa þá sem sam- skifti höfðu átt við brúðhjónin rétt áður en þau hurfu. Við fáum að kynnast ýmsum skrautlegum persónum, svo sem Flóka fugla- fræðingi og sinnisveikri konu hans, rómantíska bóndanum sem hætti að versla með búöing í borginni og fluttist út í sveit, Jónu gömlu sem er skygn og sér lengra en nef hennar nær, kúgaða sýsluskrifaranum, prestsmad- dömunni Karen Krusenstjerne hinni dönsku, húsmæðraskóla- stýrunni með ýmsar nýjar þver- faglegar hugmyndir frá Þýska- íandi, athafnamanninum Jónda sem rekur stórmarkað, áfengis- sölu og hvalaeldi og vansælli eig- inkonu hans sem vill bara flytja suður, skáldmæltum presti, kvennaskólapíum og húsverði sem hefur komist í það verra. Inn í sjálfa rannsóknarlögreglu- söguna fléttast örlaga- og ástar- sögur persónanna. Texti er oft á tíðum drepfyndinn ekki síst fyrir það hvað hann er fáránlegur og út í hött. tek sem dæmi miðils- fundinn þar sem Reynisstaða- bræður, (sem að öðru leyti eru alls ekki í verkinu) koma aftur og aftur í gegn og trufla sambandið. Við getunr kalla þetta „absúrd" húmor. Sjálf ráðgátan gekk hins vegar ekki alveg upp, eiginlega gufaði hún upp í lokin þegar lokaatriðið fór að snúast upp í það að allir næðu saman. Það er þó óneitan- lega nokkuð skondið og nýstár- legt að í rannsóknarlögreglugátu sé lausnin sú að hreinlega hafi þarna gerst yfirnáttúrlegir hlutir, fólk horfið, með því að ganga í björg. Svona lausn hefði Agata Cristie aldrei látið sér detta í hug. Leikstjórinn hefur fyrir sitt leyti ekki dregið úr „absúrd" ein- kennum textans, söngatriðin koma til dæmis jafnan skemmti- lega flatt upp á mann, sveitaten- orinn, brilljantínrokkarinn, og sígonatrúbadorinn allt sitt úr hverri áttinni en brjöta sýninguna skemmtilega upp. Persónur eru ýktar og yfirdrifnar og auka enn á fjarstæðuhúmorinn, t.d. bóndinn í 19. aldar búningi með færeyska húfu. Leikmyndin var sömuleiðis hlægilega einföld, en þó þótti mér atriðið þar sem fólkið gengur í bergið einum of einfalt fyrir svo dramatískt augnablik. Álaga- bergið minnti helst til nrikið á strigapoka. Leikarar stóðu sig allir með prýði. Sumir fóru hreinlega á kostum en eg nefni engin nöfn svo allir leikarar geti tekið það til sín. Greinilegt var að áhorfendur kunnu vel að meta þetta framlag Leikfélags Dalvíkur til upplyft- ingar andans þetta árið, og verð- ur lokaniðurstaða þessarar um- fjöllunar sú að leikstjóra, leik- endum og aðstandendum sýninga hafi tekist í alla staði mjög vel við uppfærslu þessa skringilega ærslaleiks. Hj.Hj. Frá Sæplasti Dalvík Vorið er komið og grundirnar gróa... Nú er vetur úr bœ... Lóan er komin að kveða burt snjóinn.. Sólin heim úr suðri snýr... soeplast hf vitnar í vorljóðin og sendir bestu óskir um gott og gleðilegt sumar til viðskiptavina nœr og fíœr Sparisjóður Svafdæla Dahrik sendir bestu sumarkveðjur til allra viðsldptamamia og jþakkar samstarfið á liðnrnn vetri „Senn kemur sumarið sólin blessuð sldn. Víst batnar veðrið þá veturinn dvín. “ Sparisjódurinn

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.