Norðurslóð - 29.06.1990, Blaðsíða 1
/----------------------------------------------------
Til lesenda
Nú er komin sól og sumar og margir að búa sig undir sumarfríið.
Norðurslóð ætlar líka í frí og mun því ekki bera fyrír augu les-
enda fyrr en mcð haustinu. Með þessu blaði eru sendir síðustu
gíróseðlarnir og þakkar blaðið öllum þeim, sem þegar hafa
greitt árgjaldiö og líka þeim, sem það gera við fyrsta tækifærí.
Með þeim orðum kveður Norðurslóð lesendur sína og óskar
þeim öllum góðs og árangursríks sumars við leik og störf.
Útgefendur.
Nefhdir og ráð
- Gangverk lýðræðis
Aö afloknum kosningum til sveit-
arstjórnar er mikið mál að skipa í
allar nefndirnar og embættin,
sem er gangverkið í nútíma
bæjartelagi. Á Dalvík kom
nýkjörin bæjarstjórn saman til
fyrsta fundar þann 8. júní.
Þar var samþykkt endurráðn-
ing Kristjáns Þ. Júlíussonar sem
bæjarstjóra næstu 4 árin. Hann
fékk atkvæði allra 7 bæjarfull-
trúa. Forseti bæjarstjórnar var
kosinn Trausti Þorsteinsson, 1.
varaforseti Jón Gunnarsson og 2.
varaforseti Guðlaug Björnsdótt-
ir. í bæjarráð voru kosin Jón
Gunnarsson, Svanhildur Árna-
dóttir og Valdimar Bragason.
I stjórn Sparisjóðs Svarfdæla
var kosinn Gunnar Aðalbjörns-
son sent kemur í stað Jóhanns
Antonssonar.
Síðan hefur bæjarstjórnin kos-
ið í fjölmargar nefndir ýmist
þriggja- eða fimm manna nefnd-
ir, sumar nýjar svo sem umhverf-
isnefnd og ferðamálanefnd. Hér
skulu nokkrar taldar:
Skólanefnd: Guðbjörg Antons-
dóttir, Kristján Aðalstcinsson,
Elva Matthíasdóttir, Ósk Finns-
dóttir og Sigurlaug Stefánsdóttir.
Skólanefnd Tónlistarskóla:
Anna B. Jóhannesdóttir, Helga
Ámadótir og Jón Helgi Þórarins-
son.
Stjórn Dalbæjar: Ragnheiður
Sigvaldadóttir, Árnfríður Valde-
marsdóttir, Heimir Kristinsson,
Erla Björnsdóttir og Kristín
Björnsdóttir. Auk þessara til-
nefnir hreppsnefnd Svarfaðar-
dalshrepps 2 fulltrúa í nefndina.
Stjórn heilsugæslustöðvar:
Elín Rósa Ragnarsdóttir og
Hulda Þórsdóttir. Einn fulltrúi
kemur í þcssa stjórn frá hreppn-
um.
Veitunefnd: Þorsteinn Skafta-
son, Trausti Þorsteinsson, Ottó
Jakobsson, Magnús Jónsson og
Kristinn Jónsson.
Ferðamálanefnd: Anna Jó-
hannsdóttir, IJalldór Guðmunds-
son og Haukur Snorrason.
Atvinnumálanefnd: Sveinbjörn
Sverrisson, Anna S. Hjaltadóttir,
Símon Ellcrtsson, Snorri Snorra-
son og Helgi Jónsson, Ásvegi.
Bygginganefnd: Kristinn Guð-
laugsson, Símon Ellertsson,
Helga Matthíasdóttir, Sverrir
Sigurðsson og Einar Arngríms-
son.
Félagsmálaráð: Hjörtína
Guömundsdóttir, Anna B. Jó-
hannesdóttir, Þóra Rósa Geirs-
dóttir, Ósk Finnsdóttir og Petra
Ingvadóttir.
Hafnarstjórn: Júlíus Snorra-
son, Jón Gunnarsson, Valdimar
Snorrason, Anton Gunnlaugsson
og Kristján Ólafsson.
íþrótta- og æskulýðsráð: Yrsa
Enn er mikill snjór á Heljardalsheiöi.
Ljósm. H. Ein.
Veður og gróður
Vorið kom seint á því herrans ári 1990. Alhvítt land
og himingnæfandi skaflar fram í maí. Þá kom batinn
og tók snjóa hratt en þó ekki hraðar en svo, að áin
hafði við að skila leysigavatninu til sjávar án þess að
flóa yfir bakka sína. Það getur hún reyndar átt eftir
að gera enn, nógur er snjór í fjöllum til þess.
Gróður kom ágætlega undan vetri að þessu sinni,
tún óskemmt af kali víðast hvar og trjágróður, sem
nú er orðinn svo mikill þáttur í umhverfi manna,
kom vel undan, að því undanskildu, að snjóþyngsli
höfðu brotið greinar og jafnvel stofna stórra trjáa.
Um mánaðarmót maí/júní var tekið að gróa og
hefur gróðri fleygt svo fram, að nú 26. júní eru
menn að setja sig í heyskaparstellingarnar hér í
sveit, sem væri þá 1-2 vikum fyrr en algengast er nú
á síðari árum. Þess má einnig geta, sem mun gleðja
marga, að horfur á berjasprettu eru aldeilis fork-
unnar góðar á þessu sumri, blómgun berjalyngsins
er með allra mesta móti, en það er jú frumskilyrði
til þes að ber verði til á síðsumrinu. En hinsvegar er
svo framhaldið auðvitað komið undir hitastiginu í
júlí/ágú st og því, að ekki geri harðar frostnætur
áður en berin þroskast.
í kringum þjóðhátíðina 17. júní og einkum þó
dagana fyrir var blítt sumarveður og fór hátíðin vel
fram um allt land þ.á m. á Dalvík, þótt ekki væri
veður jafndýrðlegt og í fyrra á þeim degi.
Að lokunt skal þess þó getið upp á heimildargild-
ið, að nokkra undanfarna daga hefur aftur brugðið
til verri vegar með tíðina og hefur nætt helkaldur
norðangustur með úrkomuhraglanda svo að nú, að
morgni 26. júní, þegar þoku lyfti að fjöllum, kom í
ljós, að nýsnævi var á hnjúkum og langt niður eftir
hlíðum.
En öll él styttir upp um síðir og nú er aftur bjart-
ara framundan.
Bæjarstjórn og bæjnrstjóri Dalvíkur: Standandi f.v. Kristján Þór .lúlíusson,
hæjarst jóri; Valdimar Bragason; Trausti Þorsteinsson, forseti hæjarstjórnar
og Haukur Snorrason. Sitjandi f.v. Jón Gunnursson; Svanhildur Árnadóttir;
Giiölaug Björnsdóttir og Gunnar Aöalbjörnsson. í síðasta tbl. vígsluöust
nöfn kvcnnanna seni nú sitja í bæjarstjórn. Blaöiö biöst vclvirðingar.
l.josm. Hcimir
Hörn Helgadóttir, Gunnar Aðal-
björnsson, Olafur Árnason,
Gunnlaugur J. Gunnlaugsson og
Hilniar Guðntundsson.
UmhverfismáIanefnd: Ujördís
Jónsdóttir, Anna Bára Hjalta-
dóttir, Kolbrún Pálsdóttir, Guð-
björg Stcfánsdóttir og Erla
Björnsdóttir.
Fleiri eru nefndirnar og eru
nefndamenn alls milli 80 og 90 og
svo eru allir varamennirnir, scm
hér eru ótaldir. AIIs eru þetta
hátt í 200 nöfn, en þess ber að
gæta, að margir eru í tveimur
nefndum eða fleirum. Samt er
þetta mikil dreifing starfs og
ábyrgðar og verður það að teljast
jákvætt og í anda lýðræðis.
Svarfaðardalshreppur
Ný hreppsnefnd Svarlaðardals-
hrepps hefur fyrir sitt leyti komið
saman, skipt verkum og skipað í
nefndir.
Oddviti var kjörinn Atli Frið-
björnsson Hóli, varaoddviti
Kristján E. Hjartarson Tjörn og
fjallskilastjóri Jón Þórarinsson
Hæringsstöðimi.
Skólanefnd: Svana Halldórs-
dóttir Meluni, Sigurhjörg Karls-
dóttir Grund og Kristján E.
Hjartarson Tjörn.
Umhverfisnefnd: Dagbjört
Jónsdóttir Sökku, Filippía Jóns-
dóttir Hofi og Sigríöur Hafstað
Tjörn.
Riöu- og fjárskiptanefnd: Jón
Þórarinsson Hæringsstööuni,
Árni Steingrínisson Ingvörum og
Hallgríniur Einarsson Urðuni.
Forðagæslumenn: Þórarinn
Jónsson Bakka og Hallgríniur
Einarsson Urðum.
Fulltrúi í stjórn Sparisjóðs:
Gunnar Jónsson Brekku.
í stjórn Héraðsskjalasafns Dal-
víkur: Guðbergur Magnússon
Þverá og Ástdís Óskarsdóttir S-
Holti.
í stjórn Dalbæjar, Dalvík:
Gunnlaugur Sigvaldason Hofsár-
koti og Óskar Gunnarsson Dæli.
I stjórn heilsugæslustöðvar,
Dalvík: Svana Halldórsdóttir
Meluni.
Samt er sláttur hatinn í Svarfaöardal. Sigurlaug Hanna Hafliöadóttir á Urö-
iim er byrjuö. Ljósm. H. Ein