Norðurslóð - 25.09.1990, Side 3
NORÐURSLÓÐ - 3
Skólastarfið hafið
Dalvflairskóli
Nemendur Dalvíkurskóla
mættu mánudaginn 10. sept-
ember í skólann á þessu skóla-
ári. Nemendur grunnskólans
eru nú 260 talsins en auk þeirra
stunda um 50 nemendur nám í
Sjávarútvegsdeild og hafa
aldrei verið lleiri.
Að sögn Þórunnar Bergsdóttur
skólastjóra er ekki að vænta stór-
vægilegra breytinga á skólastarf-
inu. Þó má geta þess að skólinn
hefur fengið styrk frá þróunar-
sjóði menntamálaráðuneytisins
út á nýbreytni í starfi á unglinga-
stigi, þ.ám. hraðferð og hægferð
í íslensku og stærðfræði og svo
kallaða sjálfsmennsku sent áður
hefur verið minnst á í blaðinu.
Ákveðið hefur verið að leggja
aukna áherslu á ákveðna
afmarkaða þætti skólastarfsins á
hverju skólaári og endurskoða
það sem þurfa þykir. Með þessu
móti vill skólafólk á Dalvík kom-
ast hjá stöðnun. Að þessu sinni
verða þrjú atriði tekin fyrir:
1. Áhersla á verklegar greinar
Þórunn skólastjóri.
og endurskipulagning þeirra bæði
hvaö varðar innihald og vægi
miðað við þær bóklegu.
2. Áframhaldandi uppbygging
sérkennslunnar.
3. íslenska (einkum lestur).
Af framkvæmdum við skólann
er það að frétta að nýbyggingu
verður lokað nú um mánaðamót-
in. Gangar Gamla skólans hafa
fengið nýja dúka og veggir verið
málaðir.
Mannaráðningar hafa gengið
vel og taka nú 5 nýir kennarar til
starfa við skólann. Það eru þau
G-ísli Bjarnason sem er kominn
aftur fullnuma í íþróttafræðum,
Ásrún Ingvadóttir, Arna
Jóhannsdóttir, Pálmi Finnboga-
son og þá er kontinn til starfa nýr
deildarstjóri Sjávarútvegsdeild-
ar. Sá heitir Ómar Karlsson.
Um Sjávarútvegsdeildina er
því viö aö bæta að menntamála-
ráðuneytið hefur rýmkað starfs-
mannakvóta hennar. Þannig er
ritari skólans, hún Marín, komin
í fullt starf í stað hálfs áður vegna
aukinna umsvifa deildarinnar.
Auk þess fékk deildin úthlutað
einni ntilljón frá ráðuneytinu til
tækjakaupa.
Deildin hefur aldrei verið fjöl-
mennari og sækja hana nemend-
ur allt vestan af ísafirði og austur
á Stöðvarfjörð. Að undanförnu
hafa þeir tekið þátt í námskeiöi á
vegunt Slysavarnaskólans og
hafa björgunaræfingar nteð þyrl-
um og öllu tilheyrandi farið i'ram
í Dalvíkurhöfn.
/
Iþættinum Tímamót er m.a.
greint frá brúðkaupi Antons
Vilhelnts Hallgríntssonar og Lilju
Bjarkar Reynisdóttur. er fór
fram 4.ágúst í suntar. Athöfnin
var nokkuð óvenjuleg. Hún fór
frant í Liljulundi, fögrum skógar-
reit, sent Hjörtur Gíslason og
Lilja kona hans, afi og antma
Lilju Reynisdóttur, komu sér
upp á sínum tíma skammt fyrir
ofan Akureyrarbæ. Það, sem
setti þó mestan svip á þessa hát-
íðlegu athöfn, voru hestar.
Brúðirin er ntikill hestaunnandi
eins og foreldrar hennar og fleiri
ættmenni. Þarna voru því mættir
margir brúðkaupsgestir með
gæðinga sína.
Að sjálfri giftingarathöfn lok-
inni settust brúðhjónin og prest-
urinn. sr.Jón Helgi Þórarinsson,
svo og margir gestir á bak hestuni
sínum og riðu eins og leið liggur
frá lundinum góöa og út í Brá-
velli, sem er býli niður undir sjó
nokkru norðan við Krossanes.
Þar eiga þau heima Reynir og
kona hans, Margrét Hallsdótt-
ir.foreldrar Lilju.
Þetta var hin veglegasta reið. í
fararbroddi riðu brúðhónin.
hann í kjólfötum en hún á upph-
lut sitjandi „kvenveg" í söðli og
presturinn hempuklæddur. (sjá
mynd). Síðan riðu gestir á eftir í
prósessíu. Þetta má neð sanni
kalla brúðkaup ársins.
Héráðsfundur Eyjafjarðar-
prófastsdæmis var haldinn
að Húsabakka laugardaginn 8.
september s.l. Þar mættu prestar
prófastsdæmisins, prófastur og
safnaðarfulltrúar, alls 26-28
manns. Messað var í Tjarnar-
kirkju í upphafi fundar.
Myndin sýnir prestana sem
mættir voru á fundinunt: f.v. sr.
Birgir Snæbjörnsson prófastur
Akureyri, sr. Pétur Þórarinsson
Akureyri, sr.Svavar Jónsson
Ólafsfirði, sr. Hannes Blandon
Grundarþingum, sr. Torfi
Hjaltalín Möðruvöllum Hörgár-
dal, sr. Jón Helgi Þórarinsson
Dalvík, sr. Bragi Ingibergsson
Siglufirði og sr. Hulda Hrönn
Helgadóttir Hrísey.
Sorphaugarnir og sorpbrennsl-
an á Sauðanesi hafa farið fyr-
ir brjóstið á mörgurn Dalvíking-
Brúðkaup í lundinum góða.
um í orðsins fyllstu merkingu.
Flestum er nú Ijóst orðið að sú
leið sem þar hefur veriö farin við
förgun á sorpi (þ.e. ódýrasta leið-
in) er með engu móti viðunandi
enda tímaspursmál hvenær þess-
háttar „mengunarfabrikkur"
verða bannaðar með öllu.
Dalvíkingar Itafa beitt sér fyrir
því að sveitarfélög við Eyjafjörð-
inn leiti leiöa til sameiginlegrar
lausnar á þessu vandamáli.
Héraðsráð Eyjafjarðar er nú
með þetta mál í athu gun og fáum
við vonandi fljótlega að sjá ein-
hverjar niðurstöður úr henni
varðandi kostnað og annað.
Sæplast hf. heldur áfram að
færa út kvíarnar. Fyrirtækið
hefur fest kaup á Plasteinangrun
hf. á Akureyri, sem framleitt hef-
ur netakúlur og annað smálegt úr
plasti.
Til að fjármagna kaupin og
flutning fyrirtækisins til Dalvík-
ur, var ákveðið að auka hlutafé
Sæplasts. Hlutabréf voru auglýst
á almennunt markaði og hefur
fyrirtækið Kaupþing hf. séð um
þá hlið mála. Alls voru 6 milljón-
ir í hlutabréfum boðnar til kaups
og er gengi bréfanna 6.81. Bréfin
fara því á 40,86 milljónir saman-
lagt.
Tæp 40% bréfanna seldust
þegar á fyrsta degi og er því Ijóst
að kauphéðnar hafa trú á fyrir-
tækinu.
Sæplast hf. sýndi vöru sína á
sjávarútvegssýningunni í Reykja-
vík. Voru viðbrögð manna góð
og áhugi kaupenda síst minnk-
andi.
Fréttahomið
Húsabakkaskóli
Húsabakkaskóli var settur
miðvikudaginn 19. sept. við
fjölmenni foreldra og
nemenda. Nemendafjöldinn
að þessu sinni er 44 börn.
Heiga Hauksdóttir nýráðin
skólastjóri bauð börn og foreldra
velkomin í skólann og rakti
helstu breytingar sem verða á
skólastarfi og mannahaldi frá því
sem verið hefur. Nýir kennarar
hafa tekið til starfa. Það eru þau
Hjöricifur Iijartarson frá Tjörn
og Heiða Björk Sturludótir úr
Reykjavík og þá hefur Helga
Þórsdóttir húsfreyja á Bakka tek-
ið að sér handavinnukennsluna
eftir langt hlé. Sólveig Kristjáns-
dóttir í Helgafelli hefur tekið við
ræstingum al' Unni Hallsdóttur.
Og þá má ekki gleyma aðalbreyt-
ingunni sem Helgu raunar yfir-
sást í þcssari upptalningu. Það cr
að Helga Hauksdótir hefur tekið
við skólastjórninni af Birni Þór-
leifssyni.
Helga skólastjóri.
Hlín skólastjóri.
Tónlistarskólinn Dalvík
Tónlistarskóli Dalvíkur, seni
hefur nú starfað í rúnian aldar-
fjórðung, er að hefja starfsemi
sína um þcssar miindir.
Aðsókn að skólanunt hefur
aukist stöðugt undanfarin ár. í
fyrra stunduöu þar nám unt 80
nemendur og nú í vetur hafa milli
90 og 100 nemendur látið skrá
sig í skólann. Ráöinn hefur verið
kennari í fullt starf auk skóla-
stjórans Hlínar Torfadóttur, en
það er Valva Gísladóttir flautu-
leikari. Auk þeirra munu 3
stundakennarar starfa við
skólann. Kcnnt verður á píanó,
hljómborð, gítar, blokkflautu,
þverflautu, klarinett, trompet.
saxófón, og harmóniku.
Barna- og unglingakór veröur
starfræktur i vetur eins og undan-
farin ár. Stefnt er að því aö halda
námskeið i söng cf lekst að
útvega kennara.
Björn. Júlíana.
Vegir skiljast/
héðan burt skal halda
Á þessu hausti hurfu á brott úr byggðarlaginu skólastjórahjónin
á Húsabakka eftir 10 ára dvöl í dalnum fagra. Björn Þórleifsson
og Júlíana Lárusdöttir sögðu starfi sínu lausu og fluttu sig unt
set til Akureyrar, þar scm þau hafa nú haslað sér völl á nýjum
starfsvettvangi. |
Ekki kom þessi brottför á óvart, þar sem Björn hafði boöað-
hana skilmerkilega við skólauppsögn á síðastliðnu vori. Þaö er:
því ekki um að ræða neinn grát eða gnístrtin tanna í sveitinni at;
þessum sökum. I linsvegar er það áreiðanlega ekki ofmælt þótt
sagt sé, að Svarfdælingum sé eftirsjá í þessari fjölskyldu, svo.
fljótt og vel sem hún féll inn í svarfdælskt mannlíf við komuna
hingað fyrir einum áratug síðan. Fyrir utan sjálft skólastíirfíð"
voru hjónin bæði mjög virk í almennum félagsmálum, hún nt.a.j
í kven félaginu, en liann í sveitarstjórn. þar sem hann van
oddviti síðustu 4 árin.
Ekki sæmir að fara með harmatölur í þessu sambandi. Húsa-Í
bakkaskóli hefur fengið nýja starfskrafta og engin ástæða til aðí
bera kvíðboða fyrir framtíð hans. Hinsvegar verður vandfyllt|
skarðið (í vör Skíða), sem þau skilja eftir í hversdagslífi sveitar-j
innar. Hvernig mun Kvenfélaginu eða briddsmömujíi^um
snjöllu bætast ntissir Júlíönu, og hver mun halda á fofti'mdrkj
Braga og Óðins í honurn Svarfaðardal að Birni horfnum úr hér-í
aði? Spyr sá ekki veit. .......
En sem sagt: Eigi skal gráta Björn bónda, heldur skyldu
menn halda gleði sinni og færa fram þakkir til þeirra hjóna iyrir
ágætan þátt þeirra í svarfdælsku mannlífi þessi síðustu 10 árin.
Jafnframt óskar Norðurslóð fjölskyldunni allra heilla í framtíðin
ni á Akureyri. Megi þau ílendast þar sent lengst. Höfuðborgin á
yfrið nóg af góðu fólki og þarf ekki á fleirunt að halda frá okkur
Norðlendingum. HEÞ.