Norðurslóð - 25.09.1990, Síða 6
Tímamót
Skírnir
Þann 27. júní var skírður í Húsavíkurkirkju Alexander. For-
eldrar hans eru Sigríður Pétursdóttir, kennari frá Húsavík og
Þorsteinn Briem, blaðamaður, uppeldissonur Eriku og Alex-
anders í Hlíð í Skíðadal. Þau eiga heima að Hringbraut 44,
Reykjavík.
I. júlí var skírð í Urðakirkju Guðrún. Foreldrar hennar eru
Anna Lísa Stefánsdóttir og Magnús Þorsteinn Jónasson , Koti
Svarfaðardal.
II. júlí var skírð í Dalvíkurkirkju Sigrún Arna. Foreldrar henn-
ar eru Þóra Halldórsdóttir frá Melum og Jón Smári Jónsson
(Jónssonar mjólkurbílstjóra), Hafnarbraut 25 Dalvík.
28. júlí var skírð í Dalvíkurkirkju Hrund. Foreldrar hennar eru
Ester Margret Ottósdóttir (Jakobssonar) og Valur Björgvin
Júlíusson (Eiðssonar). Lokastíg 1, Dalvík.
12. ágúst var skírður í Dalvíkurkirkju Gunnar. Foreldrar hans
eru Guðbjörg Ringsted og Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri,
Steintúni 1, Dalvík.
5. september var skírð á Fjóröungssjúkrahúsinu á Akureyri
Brynhildur Heiða. Foreldrar hennar eru Ingibjörg Ragnheiður
Kristinsdóttir og Jón Þórarinsson, Hæringsstöðum, Svarfaðar-
dal.
9. september var skírð í Dalvíkurkirkju Alexandra. Foreldrar
hennar eru Eva Björg Guðmundsdóttir (G. Inga Jónatanssonar)
ogÖrn Heiðar Sveinsson (Jónssonar).Böggvisbraut 11, Dalvík.
9. september var skírð í Dalvíkurkirkju Sœunn. Foreldrar henn-
ar eru Dórothea Elva Jóhannsdóttir (Haukssonar og Önnu
Aradóttur.) og Þórir Matthíasson (Jakobssonar) Lokastíg 1,
Dalvík.
9. september var skírð í Tjarnarkirkju Björk. Foreldrar hennar
eru Kristjana Arngrímsdóttir og Kristján Eldjárn Hjartarson,
Tjörn Svarfaðardal.
12. september var skírður í Tjarnarkirkju Andri Freyr. Foreldr-
ar hans eru Harpa Sigfúsdóttir og Þorsteinn Friðþjófsson,(Þór-
arinssonar) Hraunbæ 4, Reykjavík.
Hjónavígslur
Þann 14. júlí voru gefin santan í Dalvíkurkirkju Dúi Kristján
Andersen (Sæmundar A) og Elísabet Kristín Guðmundsdóttir.
Heimili þeirra er að Skíðabraut 17, Dalvík.
Þann 17. júlí voru gefin saman í Tjarnarkirkju RagnarStefáns-
son, jarðskjálftafræðingur og Jngibjörg Hjartardóttir frá Tjörn.
Heimili þeirra er að Tryggvagötu 4, Reykjavík.
28. Júlí voru gefin saman í hjónaband í Dalvíkurkirkju Jón
Heiðar Sveinsson (Jónssonar) og Bryndís Brynjarsdóttir (Frið-
leifssonar). Heimili þeirra er í Kaupmannahöfn.
Má ég kynna?
Þann 1. september tók til starfa í
Dalvíkurlæknishéraði nýr heilsu-
gæslulæknir sem starfa mun við
hlið Braga Stefánssonar. Sá heitir
Þórir V. Þórisson, fæddur í
Reykjavík 1957. Faðir hans var
Þórir Ólafsson af Hjarðarfellsætt
á Snæfellsnesi. Hann er nú
nýlega dáinn. Móðirin er frá Kól-
umbíu í Suður-Ameríku. Hún
heitir Elvíra fædd Herrera,
spænskrar ættar. Hjónin kynnt-
ust þegar þau voru bæði við
háskólanám í Madrid á Spáni.
Þórir ólst upp að nokkru í Kól-
umbíu, höfuðborginni Bogotá,
og talar spönsku reiprennandi,
en annars í Reykjavík þar sem
hann gekk í gegnum öll skólastig
allt upp í háskóla. Hann lauk
prófi frá læknadeild HÍ árið 1984.
Hann vann sent kandidat á Akur-
eyrarspítala í eitt ár og sem
heimilislæknir líka á Akureyri
annað ár. í Ólafsfirði vann hann
sem afleysingalæknir einn mánuð
1986. Þá lá leiöin til Svíþjóðar,
þar sem hann starfaði sem læknir
í bænum Eskilstuna þangað til í
ágúst nú í sumar.
Kona Þóris er Sigríður Bjurna-
dóttir frá Akureyri. Hún er
röntgentæknir og hyggst stunda
fag sitt á Akureyri þegar frant
Þórir V. Þórisson.
líða stundir þótt hún búi hér.
Börn þeirra eru tvö, Bjarni 5 ára
og Anna Elvíra 2Vi árs.
Fyrir áhugantenn um ættfræði
og persónulega sögu skal þess
getið, að hún rekur ættir hingað í
Svarfaðardalinn. Móðir hennar
er Anna Antonsdóttir Sigurjóns-
sonar verkamanns á Akureyri. en
hann var fæddur í Koti 1892, en
ali nn upp „hjá Hunda-Lofti og
Guðríði á Skeiði" eins og segir í
Svarfdælingum II, bls.375. Þar
fær Sigurjón í Koti, langafi Sig-
ríðar læknisfrúar, þá einkunn, að
hann hafi verið „natinn fjármað-
ur og mikill dýravinur, góður
verkmaður, skyldurækinn og
lastvar “.
Aðspurður segist nýi læknirinn
vonast til að vera hér til frambúð-
ar og sýnist staðurinn álitlegur til
að starfa í. „Þetta er uppgangs-
bær, sýnist mér, með marga
möguleika og nálægðin við Akur-
eyri gerir, að læknir hér á ekki að
þurfa að finna til faglegrar ein-
angrunar eins og er svo algengt í
afskekktum læknishéruðum."
Aðspurður um hugðarefni
utan starfsins segist Þórir hafa
verið töluveröur áhugamaðaur
um knattspyrnu og hana stundaði
hann talsvert á Svíþjóðarárun-
um. Nú er hann byrjaður í golfi
og líst prýðilega á sig á Arnar-
holtsvelli.
Noröurslóð býður fjölskylduna
velkomna hingað í héraðið og
vonast til, að hún uni sér hér vel
og lengi.
í Húsabakkaskóla hefur orðið
nokkur breyting i kennaraliðinu
eins og greint er frá annarstaðar í
blaðinu. Nýr kennari (leiðbein-
andi ) er komin til starfa, Heiða
Björk Sturludóttir. Hún er fædd í
Vestmannaeyjum 24.maí 1967 og
var því 6 ára, þegar gosið varð
þar. Foreldrar hennar eru Sturla
F.Þorgeirsson húsgagnasmiður í
Hafnarfirði og Guðbjörg Páls-
dóttir kaupkona í Mosfellsbæ.
Heiða Björk í S.-Ameríku.
Fjölskyldan flutti í land í gosinu
eins og aðrir Vestmanneyingar,
en átti ekki afturkvæmt þangað.
Húsið þeirra við Suðurveg liggur
nú undir grasi vaxinni hlíð og
gata liggur þvert yfir. Heiða
Björk gekk í barna-og gagn-
fræðaskóla í Mosfellsbænum,
settist síðan í Menntaskólann við
Hamrahlíð og tók stúdentspróf
vorið 1989. Innritaðist í sagn-
fræði við Háskóla Islands þá um
haustið. Nú gerir hún hlé á námi
um sinn. Hún hefur ferðast tölu-
vert um heiminn, helst til Suður-
Ameríku, þar sem hún dvaldi
aðallega í Perú og Bólevíu og tal-
ar nú allgóða spönsku, segir hún.
Hingað er hún komin til að kynn-
ast betur eigin landi og safna
reynslu - og peningum ef kostur
er. því ætlunin er að fara aftur til
rómönsku Ameríku, sem hefur
fangað hug hennar og hjarta. Þar
mundi hún halda áfram námi í
sagnfræði og spönsku o.fl. Heiðu
Björk líst vel á skólann og nem-
endurna, sem hún er aðeins farin
að kynnast og kvíðir engu um
komandi vetur. Hún hefur tölu-
verðan áhuga á íþróttum. frjáls-
um íþróttum, handbolta, hjól-
reiðum og skíðunr. Hún er boðin
velkomin hingað í byggðarlagið.
4. ágúst voru gefin saman í Liljulundi ofan við Akureyri Anton
Vilhelm Hallgrímsson og LHja Björk Reynisdóttir (Hjartar-
sonar) Skíðabraut 3, Dalvík. (Sjá fréttahorn).
25. ágúst voru gefin saman í Dalvíkurkirkju Gunnlaugur
Antonsson (Gunnlaugssonar) og Guðbjörg Stefánsdóttir (Frið-
geirssonar). Heimili Þeirra er að Mímisvegi 30, Dalvík.
1. september voru gefin saman í Reykjavík Þröstur Haraldsson
blaðamaður og Steinunn Hjartardóttir félagsráðgjafi frá Tjörn.
Heimili þeirra verður að Öldugötu 5, Dalvík.
1. september voru gefin saman í Dalvíkurkirkju Jón Baldvin
Halldórsson (frá Jarðbrú) og Svanhildur Ágústa Árnadóttir.
Heimili þeirra er að Hraunbæ 188, Rcykjavík.
Afmæli
Þann lO.ágúst varð áttatíu árnJóna Kristjánsdóttir (frá Uppsöl-
um),húsfreyja Karlsbraut 29, Dalvík.
Þann 25.ágúst varð sjötug Lilja Hannesdóttir húsfreyja í Odda
á Dalvík.
Þann 30.ágúst varð 70 ára Steinn Símonarson bílstjóri, Arnar-
hvoli Dalvík.
Þann 2.september varð 75 ára Gunnlaugur Kárason útgerðar-
maður, Hjarðarslóð 2c Dalvík.
Þann 13.september varð 95 ára Helgi Símonarson á Þverá í
Svarfaðardal.
Þann 16. september varð 75 ára Ragnheiður Björndóttir hús-
freyja Karlsbraut 15, Dalvík.
Þann 23. september varð áttræð Aðalrós Björnsdóttir í Gríms-
nesi, Dalvík.
Þann 17. september varð 95 ára ElínborgJónsdóttirnú til heim-
ilis á Dalbæ, heimili aldraðra á Dalvík. Elinborg er ekkja Krist-
ins Stefánssonar og bjuggu þau hjónin á Akureyri lengst af síns
búskapar. Meðal barna þeirra er Stefanía á Hrafnsstöðum.
Brúðhjónin Anton Vilhelm og Lilja Björk.
Þann 16. sept 1990 áttu afmæli hjónin í Dæli Skíðadal. Kristín-
Oskarsdóttir varð sjötug og Gunnar Rögnvaldsson varð sjötíu
og fimm ára. Af því tilefni sen
steinn Óskarsson þeim eftirfan
Þú seiðir enn, svipfagri dalur,
er sólin slær roða um tinda.
Frá fæðingu okkur þú aldir.
við ástfóstri náðum að binda.
Já veðrin þín helköldu.. og hlýju
þau hafa frá mörgu að segja.
kólgur þær koma að nýju
og kné okkar oft vilja beygja.
i „Bóndinn í Birkimel", Aðal-
ídi ljóð:
En alltaf er eitthvað sem gleður,
það yndi og kærleika vekur.
Saman við sæl höfum unað
það sárindi og kvíða burt hrekur.
Við dáum þig, dalurinn okkar,
með dýrðlegan minningaljóma.
I trausti þess tifum við áfram
meðan tónaspil fjallanna hljóma.
Andlát
Þann 19. ágúst andaðist í
Reykjavík Soffía Sigurhjartar-
dóttir frá Urðum, fædd þar
23.4. 1899. Móðir hennar var
Friðrika Sigurðardóttir, seinni
kona Sigurhjartar á Urðum
Jóhannessonar. Annað barn
þeirra Hjartar og Friðriku var
Sigfús stórtemplari og Alþingis-
maður, sem dó fyrir aldur fram
árið 1950.
Soffía á Urðum fór ung að
heiman og giftist 1925 Pálma
Einarssyni ráðunaut hjá Búnaðarfélagi íslands og síðar Iand-
námsstjóra. Hann var frá Svalbarði í Miðdölum, Dalasýslu.
Þau Soffía og Pálmi eignuðust 6 börn, sem upp komust og eru
þau öll á lífi, mætir borgarar hver á sínu sviði og eiga að sínu
leyti öll afkomendur.
Soffía var mikill Svarfdælingur og geymdi vel í hugskoti sínu
minningar frá æskuárunum hér í dalnum, þótt ung færi hún að
heintan. Til vitnis um tryggð hennar við æskuslóðir er það m.a.
að þegar þau hjónin komu sér upp eigin húsi með dálitlu landi
til nytja við Engjaveg í Sogamýri í Reykajvík, þá nefndu þau
býlið Urðir. þar sem þau bjuggu til 1940. Hún fylgdist líka vel
með mönnurn og málefnum hér heima alla tíð og fannst mikill
fengur í að fá Norðurslóð í hendur, þegar blaðið hóf göngu sín
1977 og æ síðan. Blaðið flytur nú afkomendum hennar samúð-
arkveðjur úr heimabyggð.
Blaðið sendir heillakveðjur.