Norðurslóð - 26.02.1992, Blaðsíða 3

Norðurslóð - 26.02.1992, Blaðsíða 3
NORÐURSLÓÐ —3 Horft til baka um hálfa öld III. hluti I síðasta þætti var sagt frá því þegar sögumaður kom til Edin- borgar, höfuðborgar Skotlands, á inyrku síðkvöldi 15. nóvember 1941. Einnig var sagt frá því, að hann innritaðist í Landbúnaðar- deild Edinborgarháskóla og var reyndar eini íslenski stúdentinn í háskólanum þennan fyrsta námsvetur hans þar, 1941-’42. Þá var loks frá því greint, að seint um veturinn gekk hann sem óbreyttur liðsmaður í eina deild skoska Heimavarnarliðs- ins, sem hafði bækistöð í því hverfi þar sem hann bjó í borg- inni. Víkur þá aftur sögunni að heræfingunum. Að búa sig undir þýskainnrás Um allar helgar, á laugardags- kvöldum, en oftast á sunnudögum, skyldu liðsmenn sveitarinnar (pla- toon) koma í bækistöðina stund- víslega á tilsettum tíma, herklædd- ir og „alvopnaðir'* þ. e. a.s. með riffilinn að ógleymdum byssu- stingnum. Það þótti alvarlegt mál ef liðsmaður kom of seint eða alls ekki. Endurtekin brot af þessu tagi gátu varðað brottrekstri með hneisu - meira held ég það hefði aldrei orðið, en það var svo sem nógu háðuleg refsing. Smátt og smátt gerðust æfing- arnar strembnari og „blóðugri". Það voru settir á svið smábardaðar með allskonar óvæntum uppákom- unt og liðsmenn voru æfðir í að bregðast rétt við. Það voru skot- bardagar með kúlulausum skotum og sprengjukast með „dauðum" sprengjum. Þá vorum við þjálfaðir í bar- daga í návígi. Sérstaklega man ég vel eftir æfingum í að nota byssu- stinginn. Þá var korpóral (liðþjálfi) Strachan í essinu sínu. Það hafði verið troðinn út hálmpoki og festur milli tveggja lárettra strengja, hvorum upp af öðrum. Þama var ó- vinurinn og kominn svo nærri, að engin tími var til að taka til byssunnar og miða. Byssustingur- inn var það eina, sem dugði. Og nú vildi liðþjálfinn sýna hvernig hann hefði meðhöndlað Þjóðverj- ana í fyrra stríði, fyrir 25 árum þegar hann var sjálfur um tvítugt. Hann tók undir sig stökk, óð fram með riffilinn með stinginn áfestan, og rak hálmpokann í gegn umleið og hann rak upp skaðræðis öskur, setti síðan fótinn á óvininn og rykkti út. „Svona á að hantera þá“ sagði liðþjálfinn, „og gleymið ekki, piltar, að snúa upp á á meðan stingurinn er enn í sárinu. Það er kúnstin". Það var hræðilegt að sjá hvem- ig gæðablóðið, korpóral Strachan, gat umtumast á svipstundu þegar hann lék rullu skotgrafahermanns- ins í Frakklandi í fyrra stríði. Korpóral Strachan var reyndar af- arvinsæll, maður sá meinleysingj- ann og gæðadrenginn í gegnum tilbúinn hrjúfleikann. Það jók á vinsældir liðþjálfans, að á sunnu- dögum a.m.k. kom hann alltaf með mat í dollum og bmggaði te með. Alltaf man ég eftir blóðpylsunni, sem var eftirlætis matur hans. „Black pudding" heitir það á ensk- unni, „svartpylsa" mundi það vera á íslensku og er gert úr brytjuðu innvolsi úr kindum, held ég, að viðbættu blóði, sem gefur svarta litinn, og svo byggmjöli. Hvernig sem hún annars er búin til, er vfst, að svartpylsa er dásamlegur matur með heitum kartöflum og krús af heitu, sterku mjólkurtei, ekki síst ef étið er úti á víðavangi í kalsa- veðri, eins og oft vill vera á skosk- um vetrardögum. Fallin stríðshetja Ég má til að segja sögu af korpóral Strachan, áður en hann er alveg úr sögunni. Hann lét sér ekki nægja að æfa byssubrögð, heldur líka það, sem kalla mætti vopnlaus brögð. hann setti sig i stellingar og manaði okkur að koma og leggja í sig hvemig sem við vildum, óvopnaðir þó. Þeir djörfustu réðust að honum með hnúum og hnefum, en korpóral Strachan varðist öllum og varpaði sumum yfir öxl sér, eins og maður sér í bófahasar í sjónvarpinu. Ekki var hann ánægð- ur með frammistöðu okkar í sókn- inni, svo hann snéri við hlutverk- unum. „Hver vill taka á móti mér?" spurði hetjan. Stór og sterk- ur maður úr deildinni bauð sig fram, járnsmiður, minnir mig. Korpóralinn hafði engar vöflur á, réðst að jámsmiðnum og hugðist velta honum um koll. En annað hvort vanmat hann andstæðinginn eða ofmat sjálfan sig kominn á sextugsaldurinn, nema hvort- tveggja væri. Smiðurinn náði góð- um tökum á honum, lét sig síga niður á annað hnéð og sveiflaði á- rásarmanninum yfir öxl sér. Mikill dynkur kvað við og brestur í dynknum. Korpóral Strachan sett- ist upp hægt og silalega, náfölur og fár. Hann þuklaði upp um hægri öxl sér og gretti sig af sársauka. Læknir var einn í okkar liðsveit og hann hljóp strax til, fór höndum um hinn fallna og kvað upp þann úrskurð, að maðurinn væri kyrfi- lega viðbeinsbrotinn. Þetta vom ill tíðindi og varð ekki meira úr heræfingum hjá okk- ar deild daginn þann. Líklega hafa fleiri en ég hugsað sem svo, að nú væri búið með svartpylsuveislurn- ar. En það var ástæðulaus kvíði, að viku liðinni var aftur æfing og á réttum tíma birtist á vettvangi sjálfur korpóral Strachan, með hægri hönd í fatla. En í hinni hendi bar hann góðu, gömlu skotgrafa- matardollumar sínar. lfklega frá fyrra stríði, og upp úr þeim komu í fyllingu tímans blessaðar svart- pylsurnar og stórar mjölmiklar kartöflur. Nýr liðsmaður Loksins var liðinn langur drunga- legur vetur og komið yndislegt skotskt vor. Ég vann nokkrar vikur á sauðbúinu við rætur Blackford- hæða, en um sumarið og fram á haust á hveitibúinu skammt frá smábænum Haddington. En unt hverja helgi fór ég til borgarinnar og tók þátt í æfingum. Svo kom haustið og skólinn tók til starfa. Ég varð hissa þegar einn skólafélagi minn sagði mér einn daginn, að það væri einhver ný- kominn landi minn að spyrjast fyr- ir um mig. Ég svipaðist unt eftir honum í nokkra daga, en varð hans ekki var. Þá var það ein dag, að ég sat niðri í Félagsheimili stúdenta, á bjórstofunni að sjálfsögðu, og fjöldi manns að fara og koma. Samt ekki stúdínur því þeim var stranglega bannað að láta svo mik- ið sem sjá á sér nefbroddinn innan þeirra helgu véa. Nema hvað, allt í einu sé ég háan, mjög Ijóshærðan rnann birt- ast í dyrunum og þoka sér upp að bamum. Ég var strax sannfærður um, að þarna væri Islendingurinn, og nú sítera ég dagbókarfærsluna, sem ég skrifaði um kvöldið 31. október 1942: „ Ég gerði inér erindi upp að barnum við hliðinu á þeim Ijós- hærða og spurði ógnar sakleys- islega á ensku, hvort hann væri nýr hér. Já, sagði sá ljóshærði. Og hvaðan ertu, spurði ég. Ég er frá Islandi, sagði sá ljósi. Virkilega, sagði ég, þú líkist ekki hót eskimóa. Ég horfði á hann meðan andlit hans varð lengra og lengra en hann fann ekkert orð sem passaði í þess- um kringumstæðum. Loksins rétti ég honum höndina og sagði á móðurmáli okkar: Komdu blessaður og vertu vel- kominn í íslensku nýlenduna í Edinborgarháskóla". (Við vorum tveir einir í „ný- lendunni" þennan vetur!) Enn sé ég í huga mér feginssvipinn, sem rann á andlit vinarins, við að heyra þessi íslensku orð. Ég sé ekki ástæðu til að nefna nafn. þessa vinar míns, sem nú er látinn. Það má kalla hann W, því sá stafur var í nafninu hans. Ég tók þennan útúrdúr m.a. af því að seinna um veturinn dró ég hann með mér inn í „Heimagarðinn" eins og við kölluðu Home Guard okkar á milli. Ég gerði það að nokkru leyti af því að ég hélt, að það gæti kannske gert honunt gott andlega og líkamlega. Hann þurfti á því að halda. I sókn og vörn Hér kemur glefsa úr dagbókinni 24. febr. 1943: „Þetta átti að heita afmælis- dagurinn minn. ( ég varð 23 ára) At „haggis" sjálfum mér til heiðurs. Var á næturvakt í Heimagarðinum og fékk 2 1/2 skilding í þóknun. Ekki svo slæmt". þetta var 1/8 partur úr pundi og mátti kaupa sér fyrir góða máltíð á kaffiteríu." Onnur bókun 28. febrúar: „Sunnudagur, tók jrátt í 3 tíma heræfingu í Heimagarðin- um. Ovinurinn hafði lent í fall- hlífum og tekið sér stöðu á hæð nokkurri langt uppi í Kings Park. Þeirri hæð áttum við að ná á okkar vald, hvað sem það kostaði. Gangan var hin erfið- asta. Við urðum að skríða gegn- um hvað, sem fyrir varð, grjót- urð, leirflög og þymirunna, alltaf með byssuna í höndunum. Vesalings W þrúgaðist áfram í vetrarfrakkanum alla leiðina. Ég fylgdist með honum álengd- ar og var dauðhræddur um, að hann örmagnaðist, félli úr mæði, eins og sagt er í Islend- ingasögum, enda munaði víst litlu, að svo færi. Að lokum náðum við þó hæðinni og felld- um alla fjendur vora til síðasta manns". Ekki voru allar æfingar svona hetjulegar. Og ekki var virðingin fyrir öllu bröltinu eða trúin á slag- kraft herdeildarinnar, ef til alvör- unnar kæmi, sérlega mikil. Það má t.d. sjá af enn einni dagbókarfærslu frá 23. apríl 1944: „í dag var æfing í Heima- garðinum, sem fólgin var í því, að conpany ( nokkrar herein- ingar saman) átti að hörfa skipulega niður til gömlu kirkj- unnar en verjast þar til síðasta manns. Þetta er líklega það eina, sem foringjar vorir hafa gert af viti, því að ef til innrásar kæmi yrði hlutverk okkar einmitt eitthvað þessu líkt, nema hvað í stað þess að verjast til síðasta manns þá myndum við rétta upp hendurnar og hrópa: „Kamarat, kamarat". Fleiri höfðu efasemdir um bar- dagagetu Heimavamarliðsins. Ein- hverju sinni er flokkur minn mar- seraði eftir fáfarinni götu sá ég, að strákar voru að glettast og gera gys að okkur, og ég heyrði, að einn þeirra kallaði: Thank God we have the Navy ! þ.e. Guði sé lof að við höfum flotann ! Allt má þetta skoða í því ljósi, að þegar hér var komið sögu, hið eftirminnilega vor og sumar 1944, voru úrslit heimsstyrjaldarinnar í rauninni ráðin og hættan af þýskri innrás í Bretlandseyjar örugglega liðin hjá. Og til frekvari glöggvun- ar skal það rifjað upp, að Banda- menn gengu á land á Norm- andískaga í Frakklandi þann 6. júní og Þjóðverjar hófu grimmi- legar loftárásir á Lundúnir með Ilugsprengjum, VI, viku síðar. Þeir gátu sem sé ennþá bitið frá sér og það svo um munaði. Ekki verður hér með alveg hætt að minnast á þjónustuna í „Heima- garðinum", en fleira varð til að gera þetta vor sérstaklega eftir- minnilegt fyrir undirritaðan frá- sögumann. HEÞ Af Þorrablótum Nú er þorrablótavertíðin því sem næst á enda runnin með tilheyrandi glauin og gleði- veislum. Dalvíkingar voru heldur óduglegir að bióta þorrann að þessu sinni og hef- ur blaöið ekki haft spurnir af neinu blóti í bænuin sem kalla mætti að stæði undir því nafni. Nokkur smáblót voru haldin en ekkert í líkingu við gömiu Kaupfélags- eða Verkalýðsfélagsblótin. Nú eru báðir þessir aðilar komn- ir í bland við tröllin á Akur- eyri og er það tímanna tákn. Sveitamenn voru þeim mun iðnari við kolann og var blótað á Grundinni tvær helgar í röð. Fyrri helgina héldu ungmennafé- lög sveitarinnar veglegt blót fyrir íbúa dalsins. Var þar þröngt set- inn bekkurinn og svignuðu borð undan súrmeti, hákarli og öðru góðgæti sem hæfir slíkum stund- um. Seinni helgina mættu til leiks brottfluttir Svarfdælir eða "brottflæmdir” eins og sumir vilja kalla þá, öðru nafni „flæm- ingjar”. Þar var sömuleiðis fjöl- menni og mikið við haft í mat og drykk. Á ungmennafélagsblótinu var að vanda fluttur langur og ýtar- legur annáll í bundnu og óbundnu máli og léttum dúr. Nefndarmenn sáu um óbundna málið en með yrkingar var leitað til Bjöms Þórleifssonar þess mikilvirka rímsnillings. (Það mætti jafnvel titla hann „rím- verktaka"). Með leyfi höfundar birtum við hér örlítið brot af kveðskapn- um. Tilefnið mátti lesa í síðasta tölublaði Norðurslóðar og þarfn- ast ekki nánarí skýringar. Lag- boði kvæðisins er „Silungakvin- tett“ Schuberts. Örlög Skakkabakkabrúarinnar Við lygnan lœkjarstrauminn var lítil, illafarin brú. En ýmsir áttu drauminn að yrði nothœf sú. Hún bakka báða tengir en bílum ekki fœr. Þar straumur stólpa flengir og stör við sporðinn grœr. Það bagar býsna marga að brúin dugar ekki meir. Því vildu bœndur bjarga, að brakinu fóru tveir. Það vert er góðra gjalda efgagnast mœtti þcim er þreyttir þurfá að lialda afþorrablótwn heim. Nú hœndttr beggja kjálka að brúarsporði drógu tjakk. Það heyrðist brak íbjálka og brúin fór meira á skakk. Á skadda skriflið Ijóta nú skttllu vötnin ströng. Við bakkann bundin fljóta sést brúin endilöng.

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.