Norðurslóð - 24.03.1992, Síða 6

Norðurslóð - 24.03.1992, Síða 6
Hvert fer Norðurslóð? Stundum eru aöstandendur þessa blaðs spurðir um, hvaðan af landinu kaupendur Norður- slóðar séu. Þetta er áhugaverð spurning og auðveld að svara. Viö lítum á kaupendaskrána og þá kemur eftirfarandi í ljós: Skráðir viðtakendur Norður- slóðar voru um áramótin síðustu 905 nákvæmlega. Ekki eru þetta allt kaupendur, t.d. fá dagblöðin Norðurslóð ókeypis og mörg hér- aðsblöð fá hana í „vöruskiptum". En hér kemur grófskipting í fjóra flokka: Dalvík/Svarfaðardalur 340 Akureyri/Eyjafjarðarsýsla 170 Reykjavík og nágrenni 260 Dreift um landið og erlendis 145 Ef litið er á síðasta flokkinn, sem telur 145, þá skipting í ljós: kemur þessi Vesturland 8 Vestfjarðarkjálki 7 Norðurland vestra 40 Ólafsfjörður/Hrísey 12 Norðurl. austan Vaölaheiðar 19 Austurland 20 Suðurland 18 Síðan fara ca. 12-15 blöð til út- landa. Ef einhver tortrygginn les- andi fer að endurskoða þessar tölur kemst hann að því, að þetta passar ekki nákvæmlega. En það munar svo sem engu. Ofanskráðar tölur eru áhuga- verðar því að þær gefa að líkindum nokkuð glögga mynd af því, hvemig brottfluttir Svarfdælir hafa dreift sér um landið. Af 575 brott- fluttum kaupendum em 45% á höf- uðborgarsvæðinu, 30% í Eyja- fjarðarhéraði innan við okkur og 25% á landinu annarsstaðar, eink- um á Norðurlandi bæði eystra og vestra. Þetta hafa menn auðvitað haft á tilfinningunni, en hér fæst sú tilfinning staðfest ágætlega. Nú er blaðstjómin með „átaks- verkefni" í þá vem að fjölga áskrif- endum og stefnt á heildarfjöldann eittþúsund. Þegar hafa gefið sig fram nokkrir nýir kaupendur og nú væri vel þegið, að velunnarar blaðsins athuguðu í rólegheitum, hvort þeir þekkja einhvem eða ein- hverja, sem myndu vilja fá blaðið en hafa ekki komið því í verk að panta áskrift. Athygli skal vakin á því, að árgjald fyrir 1992 eru einar 1200 krónur eða álíka og ein flaska af rósavíni, svo eitthvað sé nefnt til samanburðar. FRÉTTAHORN Nú er það ljóst orðið að skíða- landsmót verður ekki haldið í brekkum Böggvisstaðafjalls í byrj- un apríl eins og ætlunin var. For- svarsmenn skíðafélaganna á Dal- vík og Olafsfirði funduðu með Ak- ureyringum um síðustu helgi og réðu þar ráðum sínum. A fundin- um var ákveðið að leggja til við Skíðasamband Islands að mótið yrði haldið nyrðra, keppni í alpa- greinum færi fram í Hlíðarfjalli ofan við Akureyri, en norrænu greinamar, ganga og stökk, yrðu í Ólafsfirði. Engu að síður yrðu það Ólafsfirðingar og Dalvíkingar sem héldu mótið og sæju um alla fram- kvæmd þess. Ekki vom komin nein svör frá Skíðasambandinu þegar blaðið fór í prentun, en að sögn Jóhanns Bjamasonar, for- manns Skíðafélags Dalvíkur, er nægur snjór í Hlíðarfjalli til að halda landsmót. Það ylti því á Skíðasambandinu og styrktaraðil- um hvort þeir legðu blessun sína yfir þess tilhögun. Að svo stöddu væri því ekki hægt að segja til um það hvort félagið bíði beint fjár- hagslegt tjón af þessu ævintýri, en tekjur félagsins hefðu alveg brugð- ist þennan vetur vegna snjóleysis. Isíðustu viku varð það ljóst að Dalvíkurbær myndi ekki notfæra sér forkaupsrétt að bát og kvóta Snorra Snorrasonar sem hann hugðist selja úr bænum. Er því ljóst að báturinn, Kristján Þór, fer til Bolungarvíkur á næstunni og með honum 163 þorskígildistonn af kvóta. Alls hafði báturinn rúmlega 300 tonna kvóta, að miklu leyti rækju, en afganginn flytur Snorri yfir á hinn bátinn sem hann gerir út, Þór. Kristján Þór hefur hlotið nafnið Gunnbjöm og einkennis- stafina ÍS 302. Svo vildi til að áður en Snorri keypti bátinn var hann gerður út á rækjuveiðum í ísa- fjarðardjúpi svo segja má að hann sé kominn aftur á heimaslóðir. Eins og kunnugt er af fréttum hefur rækjuvinnslan Árver hf. á Árskógssandi átt við mikla erfið- leika að stríða og er reyndar búið að taka fyrirtækið til gjaldþrota- skipta. I síðustu viku náðust um það samningar að Söltunarfélag Dalvíkur tæki rekstur Árvers hf. á leigu og ræki fyrirtækið amk. fram á haustið. Með þessu móti er um tuttugu starfsmönnum Árvers tryggð vinna í það minnsta meðan samningurinn gildir, en hætt er við að þeir hefðu flestir farið á at- vinnuleysisskrá ef reksturinn hefði stöðvast. Hér að framan er fjallað um skíðalandsmótið sem átti að fara fram á Dalvík að hluta en gerir það ekki sökum snjóleysis. Unn- endum íþrótta til huggunar skal þó frá því greint að í sumar, nánar til- tekið dagana 10.-12. júlí, verður haldið fyrsta unglingalandsmót UMFI og verður þungamiðja þess á Dalvík. Mótið er ætlað unglingum 16 ára og yngri og verður keppt í átta greinum: frjálsum íþróttum, knattspymu, sundi, borðtennis, skák, golfi, hestaíþróttum og glímu. Búist er við allt að 2.000 þátttak- endum á mótið sem fer fram í Hrís- ey, Árskógi og Þelamörk þar sem verður synt, auk Dalvíkur. Hér í bænum verða höfuðstöðvar mótsins og verður komið upp mikilli tjald- borg fyrir keppendur og aðstand- endur þeirra. Til þess að hægt verði að halda mótið þarf að gljúka fram- kvæmdum við íþróttavöllinn og koma upp aðstöðu fyrir tjaldbúð- imar. Vonandi fer ekki að snjóa. Síðast en ekki síst ber að geta þess að Dalvíkingar em nú orðnir 1.500 talsins. Það mun hafa gerst í haust en komst ekki inn í bráða- birgðatölur Hagstofunnar í desem- ber. Veruleg fólksfjölgun hefur átt sér stað á Dalvík undanfarin ár og endurspeglar gott atvinnuástand. MÁ ÉG KYNNA Nú eftir áramótin tók til starfa hér á Dalvík Guðmundur Jóns- son sjúkraþjálfari og hefur hann að- stöðu í Heilsugæslustöðinni. Þörfin fyrir slíka þjónustu hér var orðin afar brýn og hefur Guðmundur haft margfalt meira en nóg að gera frá því hann hóf hér störf. Guðmundur er borinn og barn- fæddur Dalvíkingur. Foreldrar hans em þau Jón Pálsson og Sesselía Guðmundsdóttir sem bjuggu hér til skamms tíma en kona hans er Ósk Jórunn Ámadóttir fá Hæringsstöð- um í Svarfaðardal. Þau eiga eina dóttur, Bergþóm Björk tæpra þriggja ára og búa á Akureyri (í grænu blokkinni nánar tiltekið). Blaðið hitti Guðmund að máli til að forvitnast um starf hans og hann sjálfan. Eg ólst upp hér á Dalvík og gekk hér í skóla en fór síðan á Laugar- vatn í 2 vetur á íþrótta- og félags- málabraut. Stúdentsprófi lauk ég frá Fjölbrautarskólanum í Ármúla. Eftir það starfaði ég einn vetur sem íþróttakennari á Selfossi en síðan lá leiðin í sjúkraþjálfun í Háskólan- um. Það eru raunar mun færri karl- menn en konur sem fara í þetta nám. Ég held það útskrifist 1 eða 2 karlarámóti 15 eða 16 konum á ári. Þó er þetta oft á tíðum líkamlega erfitt starf. Þar spila launin inní. En ég semsagt útskrifaðist 1988 og við fluttum norður til Akureyrar. Ég byrjaði þar sem sjúkraþjálfari á Bjargi en fór síðan í prívatbransann í Endurhæfingarstöðinni við Gler- árgötu. Þar var ég í 2 ár eða þangað til ég kom hingað. - Er nóg að gera jyrir þig hér? Já, það er sko nóg að gera hér fyrir tvo sjúkraþjálfara. Ég get alls ekki sinnt öllum sem þyrfti. Ég er með Dalvík, Svarfaðardal, Ár- skógsströnd, Hrísey og Ólafsfjörð á minni könnu sem stendur en það eru góðar líkur á að sjúkraþjálfari fáist til Ólafsafjarðar í sumar. Á meðan þetta er nýtt er eftirspumin náttúrulega meiri en sú sem seinna verður en þrátt fyrir það sýnist mér nóg að gera fyrir tvo sjúkraþjálfara á Dalvík. Margt fólk hér, eins og í mörgum sjávarplássum, vinnur við tiltölulega einhæf störf s.s. fisk- vinnslu og skrifstofustörf þar sem ákveðnir atvinnusjúkdómar eru á- berandi. Annars fæ ég hingað fólk úr öllum starfsstéttum frá 0 ára upp í áttrætt en hef þó ekki getað sinnt öllum. T.d. vildi ég gjaman geta sinnt elliheimilinu betur. - Nú er konan þín, hún Osk, líka sjúkraþjálfari. Liggur þá ekki hein- ast við að þið flytjið hingað úteftir og hún taki til starfa hér? Ég get náttúrulega ekki svarað fyrir hana. En í augnablikinu er það ekki á dagskrá hvað svo sem gerist í framtíðinni. Ósk er nýbúin að ráða sig sem yfirsjúkraþjálfara við hjarta- og lungnaendurhæfingar- deild sem starfrækt er á Bjargi. Svo erum við tiltölulega nýkomin í eig- in íbúð á Akureyri og búin að koma okkur nokkuð vel þar fyrir. - Er góð aðstaða hér fyrir sjúkraþjálfara ? Já, hún er ágæl. Ég leigi þessa aðstöðu hér í Heilsugæslustöðinni og rek þetta semsagt á eigin vegum. Raunar hefur verið sótt um það til fjármálaráðuneytisins að fá stöðu sjúkraþjálfara við stöðina en það leyfi hefur ekki fengist. Svona fyrirkomulag er frekar óvenjulegt en alls ekkert óhagkvæmt. Tækin hér eru gefin eða fengin fyrir fé úr þartilgerðum gjafasjóði og hafa framlög frá einstaklingum, fyrir- tækjum og félögum hér á staðnum staðið undir því. Tæki þessi tilheyra því ekki ríkinu eða heilsugæslu- stöðinni sem slíkri. Þar með er hægt að flytja þau í nýtt húsnæði seinna meir. í nýju sundlaugarbygging- unni sem nú er verið að byrja á er Guðmundur Jónsson með ungan Svarfdæling í heimsókn. gert ráð fyrir sjúkraþjálfunarað- stöðu og þar verður hún í framtíð- inni. - Hver eru svo að lokum þín helstu áhugamál fyrir utan starfið? Ég hef alla tíð verið viðloðandi íþróttir, einkum fótbolta. Ég hef verið hér á Dalvík á sumrin og hef þá alltaf eitthvað fitlað við boltann þó ég hafi ekki alltaf keppt. Ætli það verði ekki að teljast mitt aðalá- hugamál en svo hef ég gaman af að ferðast og lesa og sjálfsagt ein- hverju fleiru. Blaðið þakkar spjallið og býður Guðmund velkominn til starfa. Hj.Hj. TÍMAMÓT Skírnir 15. mars var Aron Birkir skírður í Dalvíkurkirkju. Foreldrar hans eru Lilja Björk Ólafsdóttir og Óskar Óskarsson Jónssonar, Hjarðar- slóð 6f, Dalvík. 21. mars var Jóhann skírður í Dalvíkurkirkju. Foreldrar hans eru Ingunn Bragadóttir Jónssonar og Óli Þór Jóhannsson og Valrósar, Lynghólum 2, Dalvík. Afmæli Þann 11. febrúar varð 70 ára Óskar Kató Valtýsson, bifreiðastjóri, Hafnarbraut 8, Dalvik. Þann 22. febrúar varð 80 ára Sævaldur Sigurðsson, fyrrv. vélstjóri, áður í Runni, nú vistmaður á Dalbæ, Dalvík. Þann 23. febrúar varð 75 ára Jónmundur Zóphóníasson bóndi á Hrafnsstöðum, Svarfaðardal. Þann 23. febrúar varð 75 ára Jóhannes Jóhannsson frá Búrfelli, nú vistmaður á Dalbæ, Dalvík. Þann 6. mars varð 90 ára Rannveig Stefánsdóttir frá Sogni, nú vistmaður á Dalbæ, Dalvfk. Þann 30. mars verður 75 ára Sveinn Vigfússon, fyrrv. bóndi á Þverá í Skíðadal, nú að Skíðabraut 13, Dalvík. Andlát 1. mars lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri Jóhanna Sigurbjörg Jónasdóttir. Jóhanna fæddist í Brekkukoti í Svarfaðardal 22. maí 1904, dóttir hjónanna Ingigerðar Soffíu Jóhannsdóttur og Jónasar Jóhannssonar. Var hún næstelst af þremur dætrum er þau hjón eignuðust saman, en þær eru auk hennar Stein- unn og Auður. Föður sinn missti Jóhanna sex ára að aldri og fluttist móðir hennar þá inn á Árskógsströnd og giftist þar nokkrum árum síðar Gunnlaugi Þorvaldssyni. Eignuðust þau eina dóttur, Soffíu. Fljótlega eftir fermingu kom Jóhanna á ný í Svarfaðardal og átti næstu árin heimili í Syðra-Garðshomi. 16. desember 1930 giftist hún Ingimari Guttormssyni og hófu þau búskap í Hreiðarsstaðakoti árið eftir. 1936 fóm þau í Skeggstaði og bjuggu þar til ársins 1964 að undanskildum ámnum 1949-54 er þau voru á Dalvík. Eftir að þau hættu búskap á Skeggstöðum bjuggu þau sér heimili að Gmndargötu 6 og áttu þar heima æ síðan. Þau hjón eignuðust þrjú böm sem em: Guðrún Jónína, Jónas Auðunn og Steingerður. Síðasta ár hrakaði heilsu Jóhönnu mjög en hún gat dvalið heima að langmestu leyti með góðri aðstoð síns fólks. Var það henni mikils virði. Jóhanna lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 1. mars s.l. 87 ára að aldri. Hún var jarðsungin frá Dalvíkurkirkju 7. mars en jarðsett í Tjamarkirkjugarði. 14. mars lést á Dalbæ, dvalarheimili aldraðra Dalvík, Þórarinn Valdimarsson. Þórarinn fæddist á Göngustöðum í Svarfað- ardal 23. september 1913 elstur þriggja sona hjónanna Valdimars Júlíussonar og Steinunnar Sigurðardóttur. Eru yngri bræður hans Óskar og Jónas. Eftir að hafa lokið námi frá Hólaskóla tók Þórarinn við búi á Göngustöðum, fyrstu árin með foreldrum sínum. Var hann fjármaður góður og naut þess mjög að sinna kindum sínum. Þórarinn var maður gleði og gáska eins og samferðarmenn hans þekkja og lagði gjaman sitt af mörk- um til að skapa gleði og ánægju meðal fólks. Sambýliskona hans var Óddný Jóhanna Zophoníasdóttir frá Hóli. Ólu þau upp þrjú böm. Elstur er fóstursonur Þórarins, Zopho- nías Antonsson, næstur er Valur Steinar og yngst er Hrafnhildur Ingibjörg. Oddný lést árið 1975 eftir langvarandi veikindi og Þór- arinn brá búi stuttu síðar. Dvaldi hann næstu árin á Jarðbrú hjá Hall- dóri og Ingibjörgu þar til hann fór á Dalbæ árið 1985. Þar á heim- ilinu lést hann 14. mars 78 ára að aldri. Þórarinn var jarðsunginn frá Urðakirkju 21. mars.

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.