Norðurslóð - 26.05.1992, Side 6

Norðurslóð - 26.05.1992, Side 6
iimi Svarfdælsk byggð & bær Tímamót Aninian Vallý Jóhannsdóttir mcð Margréti Ósk. Skírnir 8. maí var skírö á Dalbæ, dvalarheimili aldraðra Dalvík, Mar- grét Ósk, langalangafabarn Óskars Kristins Júlíussonar á Kóngsstöðum. Foreldrar hennar eru Elísabet Sigursveinsdóttir og Elías Þór Höskuldsson, Öldugötu 15, Árskógssandi. 3. maí var skírður í Dalvíkurkirkju Ari Jóhann. Foreldrar hans eru Lilja Vilhjálmsdóttir og Júlíus Magnússon (Hildigunnar Kristinsdóttur), Lokastíg 2, Dalvík. Afmæli Pann 1. maí s.l. varð 85 ára Jónína Jóhannsdóttir fyrrum hús- freyja á Skeiði Svarfaðardal, nú til heimilis á Dalbæ Dalvík. Þann 4. maí s.l. varð 90 ára Jón EtnilStefánsson Hvoli Dalvík. Jón er heiðursborgari Dalvíkurbæjar og er nú til heimilis á Dalbæ. Þann 8. maí s.I. varð 100 ára Óskar Júlíusson á Kóngsstöðum í Skíðadal, nú til heimilis á Dalbæ, sjá grein í síðasta tbl. Nsl. Á afmælisdeginum var Óskar ágætlega fyrirkallaður og í glöðu skapi, enda voru börn hans öll og fjöldi barnabarna samankomin til að gleðjast með ættföðurnum á þessum merkis- degi. Fréttamaður Norðurslóðar leit og inn til afmælisbarnsins. Þá voru m. a. rifjaðar upp gamlar minningar frá brautarvinnudög- um og farið með vísur og ljóð, sem menn rauluðu sér til gamans í dentíð. Þann 12. maí s.l. varð 85 ára Sigríður Sölvadóttir Reykjum Dalvík, nú til heimilis á Dalbæ. Þann 12. maí s.l. varð 75 ára Steinunn Sveinbjörnsdóttir Vega- mótum Dalvík. Þann 19. maí s.l. varð 75 ára Kristinn Guðiaugsson fyrv. slátur- hússtjóri, Karlsbraut 6 Dalví Norðurslóð árnar heilla. Andlát Þann 23. maí andaðist á Dalbæ Dalvík Soffía Stefánsdóttir, fyrrum húsfreyja í Hlíð í Skíðadal. Hennar verður minnst nánar í júníblaði Norðurslóðar. Ferming Fermingarbörn í Dalvíkurkirkju 24.maí 1992: Anna María Valdimarsdóttir, Dalbraut 6 Arndís Finna Ólafsdóttir, Hjarðarslóð 1 d Benedikt Sigurbjörnsson, Hafnarbraut 2 Bergvin Fannar Gunnarsson, Svarfaðarbraut 4 Dagbjört Sigurpálsdóttir, Sunnubraut 7 Eva Björk Bragadóttir, Svarfaðarbraut 20 Finnur Pór Gunnlaugsson, Mímisvegi 1 Guðmundur Heiðar Jónsson, Ægisgötu 1 Helga Maren Birgisdóttir, Karlsbraut 19 Helga íris Ingólfsdóttir, Hólavegi 1 Helgi Indriðason, Smáravegi 6 Hreggviður Símonarson, Sunnubraut 3 Jón Freyr Halldórsson, Sunnubraut 1 Jóna Sigurardóttir, Ásvegi 8 Margrét Víkingsdóttir, Mímisvegi 8 Olga Guðlaug Albertsdóttir, Brimnesbraut 5 Róbert Már Porvaldsson, Hjarðarslóð 3 e Sigtryggur Veigar Herbertsson, Hafnarbraut 16 Sindri Daði Rafnsson, Hringtúni 2 Snjólaug María Jónsdóttir, Drafnarbraut 8 Stefán Bjarmar Stefánsson, Hjarðarslóð 2 b Sylvía Sigurðardóttir, Karlsbraut 2 Porleifur Kristinn Níelsson, Skíðabraut 17 Össur Willardsson, Svarfaðarbraut 30 Fermingarbörn í Vallakirkju, hvítasunnudag, 7. júní 1992, kl. 13.30. Anna Lilja Gunnlaugsdóttir, Klaufabrekknakoti Auður Ármannsdóttir, Laugasíeini Birna Katrín Hallsdóttir, Skáldalæk Daníel Jóhannsson, Ytra - Hvarfi Heiðbjört Harpa Sigursteinsdóttir, Hofsá Kristín Svandís Jónsdóttir, Hæringsstöðum Rannveig Vilhjálmsdóttir, Syðra - Garðshorni Svanberg Snorrason, Hnjúki Daníel Á. Daníelsson níræður Þann 21. maí varð níræður Daníel Á Daníelsson í Árgerði, fyrrverandi héraðslæknir Dalvík- urlæknishéraðs. Hann er fæddur 21. maí 1902 að Hóli í Mosvalla- hreppi í Önundarfirði. Foreldrar hans voru Guðný Kristín Finns- dóttir frá Kirkjubóli í Valþjófs- dal í Önundarfirði en faðirinn Daníel Bjarnason frá Tannanesi í Önundarfirði. Þetta kváðu vera sterkar ættir vestfirskra bænda og sjómanna, sem Daníel læknir er runninn af. Faðir hans var sjó- maður og smiður og bræður hans voru sjómenn. Tveir þeirra, Bjarni og Guðmundur, fórust á sjó, ungir menn, en sá þriðji, Finnur, fyrrverandi togaraskip- stjóri, býr á Akuryeri, maður á níræðisaldri. Daníel braut sér aðra leið og fór í langskólanám, fyrst í Sam- vinnuskólann í Reykjavík einn vetur. Síðan lá leið hans til Norð- ur-Ameríku þar sem hann stund- aði menntaskólanám og tók stú- dentspróf 1928 eða 29. Hann kaus sér læknisfræði að ævistarfi og nam þau fræði hérlendis og varð cand. med. frá Háskóla íslands 1935. „Kandidatsár“ sitt, 1936- '37, vann hann á Land- spítalanum í Reykjavík. Daníel varð héraðslæknir á Hesteyri í Jökulfjörðum, Sléttu- hreppi 1938 - ’39. Dvalar sinnar þar minnast þau hjónin með ánægju þrátt fyrir frumstæð lífs- skilyrði og örðugar samgöngur. Það var sérstæð og dýrmæt lífs- reynsla. Síðan var hann starfandi læknir á Siglufirði 1939 -’44 og á þaðan margar skemmtilegar minningar. Héraðslæknir varð Daníel í Svarfdælalæknishéraði á Dalvík í nóv. 1944 og hélt því til 1972, er hann varð sjötugur. Ofanskráðar upplýsingar eru að mestu teknar úr uppsláttarrit- um: Svarfdælingum II og íslensk- um samtíðarmönnum. En þetta er aðeins ramminn utan um æviskrá óvenjulegs manns, sem Daníel læknir í Ár- gerði er. Sú skrá verður heldur ekki rakin hér. Aðeins skrifuð nokkur orð í tilefni dagsins, 21. maí. Daníel kvæntist 10 júni 1938 Dýrleifu Friðriksdóttur, ljósmóð- ur, frá Efri-Hólum í Núpasveit, nú Öxarfjarðarhreppi. Börn þeirra hjóna eru Guðný læknir, Friðrik efnaverkfræðingur og Bjarni skólastjóri Myndlistar- skólans, öll búsett í Reykjavík. Skömmu cftir komuna til Dal- víkur keyptu hjónin af Ingimar Óskarssyni gamla timburhúsið í Árgerði, sent fyrsti læknir hér- aðsins, Sigurjón Jónsson, hafði látið flytja frá Grenivík og endur- reisa hér 1907. Þar byggðu þau síðan steinhúsið, sem þar stendur nú, á einum fegursta stað, sem fyrirfinnst í Svarfdælabyggð og þótt víðar væri leitað. Á þessum stað í „hvíta húsinu“ við ána búa þau hjónin enn. Það mun vera sammæli manna í héraðinu, að Daníel væri hinn besti héraðslæknir, sam- viskusamur, glöggskyggn og „heppinn" í störfum sínum, eins og stundum er að orði komist um lækna og ljósmæður, sem vel gengur í starfi. Þetta viðhorf kom glöggt fram við verkalok Daníels, er hann lét af opinberu læknisstarfi 1972. Þá undirritaði stór hópur héraðsbúa þakkar- ávarp og árnaðaróskir til læknis- ins. Sennilaga hafa menn almennt búist við, að gömlu læknishjónin væru senn á förum suður, þangað sem flestir opinberir embættis- menn hverfa að loknu starfi. En ekki Dýrleif og Daníel læknir. Nú 20 árum síðar eru þau enn „á sínum stað“ mitt á meðal vor og fylgjast grannt með gangi mála í héraðinu. Skyldi ekki gamli læknirinn hafa forpokast óskaplega þarna í fásinninu? Nei, ekki aldelis. Daníel í Árgerði er ekki einn þeirra, sem leyfir sér að forpok- ast. Og liann lifir heldur ekki í neinu fásinni. Þvert á móti. Hann lifir, fyrir tilstyrk bóka sinna, a.m.k. hálfu lífi í fjölskrúðugum heimi bókmennta og lista og á daglegt samneyti við andans jövra heimsbókmenntanna bæði austan hafs og vestan. Það er öðru fremur ljóðsins list, sem hefur haldið huga hans föngnum, líklega allt frá unga aldri. Og hann lætur sér ekki nægja að Eins og sagt var frá í síðasta tölublaði Norðurslóðar hélt Kirkjukór Dalvíkur konsert í Dal- víkurkirkju 26. apríl. Þar flutti kórinn meðal annars Requiem eftir Fauré. Kórinn var síðan meðaðra tónleika á Siglufirði 10 maí sl. Voru móttökur á Siglu- firði hinar bestu. Var kórnum boðið í samsæti í safnaðarheimil- inu að loknum tónleikunum. Kórinn hefur fengið góða dóma fyrir flutning sinn á sálumessunni njóta sjálfur andans ávaxtar erlendra meistara, heldur hefur hann á langri ævi haft það að tómstundagamni að þýða Ijóð þeirra á íslenska tungu, sem heimtar að þýðandinn virði „stuðlanna þrískiptu grein“ og aðrar hömlur hins hefðbu ndna, íslenska ljóðforms og gerir hon- um oft svo yfirmáta erfitt fyrir. Fyrir Daníel í Árgerði eru ljóðaþýðingar e. t. v. fyrst og fremst íþrótt, sem er yndi að stunda og gefur tímanum inni- hald. En að öðrum þræði líka löngun til að miðla öðrum nokkru af anda höfuðskálda evrópskrar ljóðagerðar að fornu og nýju. Ég styð þessar ályktanir með tilvísun til bókar þeirrar gagn- merkrar, sent út kom á vegum Menningarsjóðs 1989. Þar birtast þýðingar hans á sonnettum Shakespeares í heild auk merki- legrar ritgerðar um líf og starf „trúbadoranna" svonefndu í Frakklandi mið alda og víðar. Fyrir þessi verk sín hlaut Daníel læknir lof bæði fagurkera og meinhorna og leyfi ég mér að taka á þeim mark. Hér fyrir utan þyrfti að nefna frumsamin Ijóð Daníels, sem að viti undirritaðs eru sum stórgóð, þ. á. m. náttúrulýsingar og erfi- ljóð, sem sum hafa birst á prenti en önnur hvergi. Þetta greinarkorn er ritað til að sýna Daníel lækni lit á þakk- iátssemi fyrir mjög góð og gagn- leg kynni. Það er hann, sem afmælið á í dag svo hann er í sviðsljósinu. Þar fyrir er Dýrleif ekki gleymd. Hvernig mætti það líka vera, þegar rætt er um eigin- manninn, svo lengi og vel, sem þau tvö hafa bollokað saman allt frá þrönga læknisbústaðnum á Hesteyri til hvítu hallarinnar á Árgerðishólnum? Fyrir hönd lesenda Norður- slóðar sendi ég Árgerðishjónum og börnum þeirra bestu heilla- kveðjur. Ég óska Daníel þess, að hann fái notið samvista við það besta úr bókmenntaheiminum, innlendum og erlendum, svo lengi sem ævi endist. og stendur honum til boða að flytja verkið á tónlistadögum í Dómkirkjunni í Reykjavík næsta haust. Ekkert hefur verið ákveð- ið í því sambandi en það er rnikill hugur í kórfélögum og söngstjóra og hefur meðal annars verið rætt um söngferðalag til Norðurlanda næsta sumar. Sólveig Hjálmarsdóttir söng einsöng með Kirjukórnum á tónleikunum í vor. Sólveig er að útskrifast frá Tónlistarskólanum á Akureyri nú í maí. Hún er fyrsti nemandinn sem líkur 8. stigi í söngnámi frá Tónlista- skólanum á Akureyri. Sólveig var með „opið próf" eða lokatón- leika 20. maí sl. á sal skólans. Kór úr Söngdeild Tónlistaskól- ans, Óskar Pétursson tenór og Jón Helgi Þórarinsson bariton sungu með á tónleikunum en Guðrún A. Kristinsdóttir lék undir á píanó. Húsfyllir var og voru undirtektir áheyrenda mjög góðar. Efnisskrá tónleikanna var mjög fjölbreytt og sýndi vel hve fjölhæfur söngvari Sólveig er orð- in og þótti hún standa sig með mikilli prýði. Kennari hennar- í vetur var Margrét Bóasdóttir, áður hafði hún verið í námi hjá meðal ann- ars Sigurði Dedmentz og Sigur- veigu Hjaltested. Þakkarávarp Öllum þeim, sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og árnaðaróskum á níræðisafmælinu, sendi ég hugheilar þakkir og kveðjur. DANÍEL Á. DANÍELSSON Þakkarávarp Þakka öllum ættingjum og vinum sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og heillaóskum á 100 ára afmælisdegi mínum 8. maí sl. Sérstakar þakkir til hreppsnefndar Svarfaðardals- hrepps og allra Svarfdælinga fyrir þann heiður sem þeir sýndu mér á þessum tímamótum. Guð blessi ykkur öll. ÓSKAR KR. JÚLÍUSSON FRÁ KÓNGSSTÖÐUM HEÞ. F réttahornið

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.