Norðurslóð - 30.06.1992, Side 1
Svarfdælsk byggð & bær
Unglingalandsmót UMFI á Dalvík:
íbúatala bæjarins
þrefaldast
16. árganíjur
Þriðjudagur 30. júní 1992
6. tulublað
Eins og fram hefur komið í
blaöinu og flestum er kunnugt
verður fyrsta Unglingalands-
mót UMFÍ haldið á Dalvík dag-
■ *%■
■h f - M
Óvanaleg sjón um Jónsmessu: Rimarnar hvítar af snjó niður undir túnjaðra. Raunar var jörð alhvít í rúman sólarhring í þessu síðbúna vorhreti.
s
A sólstöðum
Enn einu sinni er sólin komin í
efstu stóðu og fer nú lækkandi
næstu sex mánuðina. Dapur-
legt, eða hvað? Varla, fram-
undan er kannske besti tími
ársins, júlí-ágúst, jafnvel sept-
ember, einir 100 dagar fullir af
fvrirheitum.
Vorið var gott. aidrei norðan-
áhlaup með kalsarigningu, sem við
könnumst svo vel við héma á norð-
urhjaranum. Hitastig var viðun-
andi og jörð lifnaði vel í seinni
hluta maí. Gróður kom prýðisvel
undan vetri. hvergi kalskella í túni.
Einnig trjágróður gekk vel fram,
eins og sagt er um búpeninginn. Þó
varð lerkið fyrir töluverðum
skakkaföllum. Það fór að vaxa á ný
í hlýviðrinu í september í fyrra.
hafandi áður verið byrjað að búa
sig undir vetur. Svo komu venjuleg
haustfrost á það óundirbúið.
Lakasta veðurbragðið, sem við
höfum séð á þessu vor-sumri er
hvassviðrið. sem hann reif sig upp
í á dögunum, ein 10-11 vindstig í
byljunum. Þetta herbragð hefur
farið illa með suman trjágróður,
einkum h'klega ungar aspir. Öspin
hefur stór, heil blöð á löngum stilk.
sem berjast illilega í hvassviðri.
merja sig og meiða.
Fé á f jall
í nóvemberblaði Norðurslóðar
sjáum við, að sauðfé í Svarfaðar-
dalshreppi á vetur sett var um
1500. þriðjungurinn genilingar.
Sauðburður gekk víða nokkuð
stirðlega eins og verða vill, þegar
mikið er um gemlingaburð (ein-
vetlur, vildi Gísli í Brautarhóli
kalla ársgamlar gimbrar). Nær allt
fé er nú vetrarrúið og komið á fjall,
um fimmtungur þess í Skíðadalsaf-
rétt, eign hreppsins. Svo nú má aft-
ur fara að hlakka til að sjá þegar:
Sumaifögur saufiahjörð
seig úr drögumfjalla.
eins og Jóhann Daníelsson komst
forðum að orði í frægri gangna-
stöku. Og síðan gleðja sig við að
sjá svo sem 700 kinda hjörð koma
til Tunguréttar úr Afréttinni í miðj-
um september.
Svo eru komin þangað ein 150
hross, og ekki verður síður stæll
yfir hrossaréttinni seinna á haust-
inu. Þetta potast allt til réttrar áttar,
vonandi.
Heyskapur hafinn
En snúum aftur að gróðurfarinu.
Upp úr miðjum júní voru bestu tún
tilbúin til sláttar. Fyrstu bændur
hófu líka slátt 19.-20. júní. Fáireru
svo ósmekklegir að hefja heyskap-
inn á sunnudegi og engir á mánu-
degi. Það er engin ástæða til að
vera að storka huldum máttarvöld-
um. Maður veit aldrei....
Og svo kom hretið
Lengra var blaðamaður ekki kom-
inn að kvöldi hins 22. júní. áður en
þreyta og svefn yfirbuguðu liann.
Hann hafði verið að planta út 120
öspum úr bökkum. Þegar liann
vaknaði að morgni 23. var komið
föl á jörð. eiginlega blindhríð. Það
er gamla sagan, ef maður leyfir sér
svo mikið sem að minnast á veður-
far þá lirtast æðri máttarvöld og
hugsa vfst sem svo: „Hver ert þú,
litli minn, setn þykist vitaeitthvað
um veðrið. Hér er það ég sent
ræð“. Og svo stilla þau veðrið á allt
annað prógramm og sjá, á næstu
andrá er komið nýtt veður, nýr
himinn og ný jörð.
Nema hvað, það var komið
hrakviðri, svo ekki var hundi útsig-
andi, hvorki í bæ né byggð, það-
anafsíður kýr útlátandi og bændur
höfðu jafnvel áhyggjur af fé sínu á
fjalli, lítt ulluðu og lömbunum
ungum og óhörðnuðum. Einhverjir
hafa líklega hugsað til 17. júní
1959, þegar svipað og líklega verra
norðanáhlaup gerði. Þá var farinn
björgunarleiðangur fram í Afrétt
og veitti ekki af, ef marka má sam-
tímaheimild svarfdælska, sem
hljóðar svo
Líklega munum við lengi þann
daginn,
lýöveldisafmœliö fimmtíu og níu.
I SkíÖadalsafrétt við ösluðum
snœinn
Framltald á hls. 5
ana 10.-12. júlí n.k. Skráningu
keppenda lýkur nú um mánað-
armótin og undirbúningsvinna
er í fullum gangi. Að sögn
Katrínar Sigurjónsdóttur
framkvæmdastjóra er reiknað
með að um 1500 keppendur
taki þátt í mótinu og með for-
eldrum og fylgdarliði má
reikna með að 3000 manns
komi til bæjarins þessa daga.
Gestirnir munu búa í tjöldum á
tjaldstæði bæjarins en heimamenn
bjóða upp á morgunmat og kvöld-
mat alla mótsdagana. Katrín sagð-
ist reikna með að virkja þyrfti um
160 starfsmenn lil ýrnissa sjálf-
boðastarfa í kring um mótið og
vonaðist hún til að finna það fólk á
Dalvík og í nágrannasveitarfélög-
unum.
Eins og nærri má geta krefst
svona mikið mót gífurlegs undir-
búnings og skipulags og hefur
mikið starf nú þegar farið fram við
skipulagningu hinna ýmsu greina í
fjölmörgum undimefndum. Til
marks um fjöldann í einstaka ald-
urshópum má nefna að í tjölmenn-
um greinum eins og langstökki
verða keppendur að bíða klukku-
stundum saman milli stökka.
Keppt verður í frjálsum íþróttum,
sundi. borðtennis, glímu, skák,
golfi, og hestaíþróttum og auk þess
í knattspymu á þrem völlum: Dal-
vík, Arskógi og í Hrísey. Auk þess
verðurgestum mótsins boðið upp á
skemmtiefni og afþreyingu ýmis-
konar s.s. tívolí, hestaleigu. veiði-
ferðir. gönguferðir og skokk,
starfsleiki, karaoke og dansleiki.
Starfsmenn bæjarins eru nú í
óða önn að reyna að gera íþrótta-
svæðið klárt fyrir leikana og hafa
veðurguðimir gert flest sem í
þeirra valdi stendur til að það megi
ekki takast. Við skulum bara vona
að ekki verði að áhrtnsorðum sú
bölsýnisspá sem fram kom i blað-
inu í vor að fyrst ekki var hægt að
halda hér skíðalandsmót vegna
snjóleysis væri eins víst að hætta
yrði við unglingalandsmótið vegna
fannfergis. Hj.Hj.
Fiskvinnsla KEA, Dalvík:
Sókn er besta vörnin
Veruleg verðmætaaukning með smápakkavinnslunni
- Umtalsverð aukning atvinnutækifæra
Margir eru kvíðnir vegna
frétta af minnkandi afraksturs-
getu helstu nytjastofna hér við
land. Spár um stærð þorsk-
stofnsins og hvað verður óhætt
að veiða næstu árin þvkja ugg-
vænleg tíðindi. Þar sem ekki
hefur enn verið ákveðið hver
kvótinn verður á næsta fisk-
veiðiári er ekki hægt að gera
grein fyrir því hvernig þetta
mun koma út fyrir byggðarlög
eins og Dalvík. Það er hins veg-
ar Ijóst að kvóti skipa héðan er
að uppistöðu til þorskur svo
sýnilega hefur þetta mikil
áhrif.
Með minnkandi magni eða
færri tonnum sem á land koma
skiptir sífellt meira máli að sköpuð
séu sem mest verðmæti úr því sem
veiðist. Það fer líka saman aukið
verðmæti og aukin vinna. Minnk-
andi afli leiðir að öðru óbreyttu til
minnkandi vinnu. I lok árs 1990
keypti frystihús KEA á Dalvík
vinnslulínu fyrir smápakkningar
sem verið hafði í notkun í Hvaleyri
Mikilvægt er að auka verðmæti þess afla sem berst til hafnar á Dalvík.
i Hafnarfirði, flutti hana hingað
norður og sett upp í gamla slátur-
húsinu sem sambyggt var við
frystihúsið. í janúar 1991 hófst síð-
an vinnsla í smápakkningar og hef-
ur magnið sem þar fer í gegn sífellt
verið að aukast. A dögunum heim-
sótti tíðindamaður Norðurslóðar
frystihússtjórann, Gunnar Aðal-
bjömsson, til að fræðast af honum
hvemig þetta hafi gengið og
hvemig framtíðin blasir við þeim.
Lítill þorskafli
Fram kom hjá Gunnari að svipað
magn hafi farið til frystingar á
fimm fyrstu mánuðum þessa árs og
sama tímabil í fyrra. Hins vegar
hefur verulega dregið úr saltfisk-
verkun eða um helming og einnig
úr hausaþurrkun. Hann benti á að
það væri ekki síður aflaleysi en
kvótaminnkun sem ylli þessari
minnkun. Togararnir hefðu varla
komið með fullorðinn þorsktúr, ef
svo má segja, frá því í september á
síðasta ári. Afkoma fiskverkunar-
innar í heild hjá vinnslustöðinni
hér er heldur lélegri í ár en í fyrra.
Sumpart er það fyrir lækkandi af-
urðaverð á erlendum mörkuðum
og sumpart fyrir það að þegar
dregið er úr t.d. saltfiskverkun þá
nýtast sumar einingarnar f vinnsl-
unni verr en áður og erfiðara að
draga snöggt úr kostnaði í takt við
samdráttinn.
Sérvinnsla ýmiss konar í fryst-
ingunni hefur vaxið mjög mikið á
þessu tímabili. Allt árið 1991 voru
framleidd 350 tonn af fullunninni
vöru í smápakkningar. A fimm eða
raunar fjórum fyrstu mánuðum
þessa árs var búið að framleiða
svipað magn. Gunnar sagði að það
Framhald á hls. 5