Norðurslóð - 30.06.1993, Page 3
NORÐURSLÖÐ —3
Samvinna sveitarfélaga:
Fjórar íbúðir fyrir aldraða afhentar
Þann 12. júní sl. voru aflientar
fjórar íbúðir fyrir aldraða sem
byggðar hafa verið á Dalvík. Það
eru Dalvíkurbær, Arskógs-
hreppur og Svarfaðardalshrepp-
ur sem byggja þetta hús en
þarna er um að ræða eignar-
íbúðir sem tilheyra félagslega
íbúðakerfínu og eru ætlaðar
fólki sem náð hefur 60 ára aldri.
íbúóirnar eru tveggja og þriggja
herbergja og inn í þær flytja tveir
einstaklingar og tvenn hjón. Stærri
íbúðirnar eru 91,9 m2 en þær minni
70,3 m2. Teiknistofan Form á Ak-
ureyri teiknaði íbúóirnar en Daltré
hf. á Dalvík var aóalverktaki við
bygginguna. Húsið stendur rétt
Sigvalda og Margréti leist harla vel á
sig í eldhúsi nýju íbúðarinnar.
austan við Dalbæ, dvalarheimili
aldraðra, og er gert ráö fyrir aö
byggja þrjú slík hús til viðbótar á
þessu svæði.
Svo var að heyra á nýju íbúun-
um að þeir væru hinir ánægðustu
meó framtíðarheimkynnin. Ibúð-
irnar eru hinar vistlegustu, bjartar
og vel búnar, auk þess sem hugað
hefur verið að aðgengi þeirra sem
erfitt eiga um gang.
Eins og áður segir er þessi hús-
bygging samvinnuverkefni þriggja
sveitarfélaga, en í byggingarnethd
sátu þau Kristján Snorrason frá Ar-
skógshreppi, Oskar Gunnarsson
frá Svarfaðardalshrcppi og Ragn-
heiður Sigvaldadóttir frá Dalvíkur-
bæ. Auk þess áttu sæti í nefndinni
tveir fulltrúar Félags aldraðra á
svæðinu, þeir Björgvin Pálsson úr
Hrísey og Friðgeir Jóhannsson,
Dalvík. -ÞH
húarnir fyrir utan nýja húsið, frá vinstri: Björgvin Jónsson, hjónin Sigvaidi
Gunntaugsson og Margrét Jóhanncsdóttir frá Hofsárkoti, Júlíus Eiðsson og
Valgerður Þorbjarnardóttir og Áslaug Jónsdóttir. Myndir: -I»H
Báturinn nafnlausi. Tveir af eigendunum, Bjarni Jónsson og Örn
Arngrímsson á dckki.
Ferðaþjónusta:
Sjóstangaveiði og
sportköfun í boði
- Hópur manna á Dalvík kaupir
bát tii skemmtiferða
Iþróttaannáll:
Unglingurinn kom, sá og sigraði
- Meistaramót FRÍ fyrir ungmenni haldið á Dalvík 9.-11. júlí
Þeir sem starfa við ferðaþjón-
ustu vita að það er ekki nóg að
gefa ferðamönnum að borða og
veita þeim húsaskjól. Það þarf
líka að hafa ofan af fyrir þeim.
Framboð á afþreyingu hefur að
margra dómi verið í rýrara lagi í
Svarfaðardal, en er þó að auk-
ast. Nú í vor bættist við mögu-
leiki á skemmtiferðum og sjó-
stangaveiði á Eyjafirði á bát sem
hópur manna hefur fest kaup á.
Júlíus Snorrason gestgjaíl í
Sæluhúsinu er einn af ellefu hlut-
höfum í bátnum. Hann segir að hér
á Dalvík hafi höfuðáherslan verið
lögð á að byggja upp veitinga- og
gistiaðstöðu fyrir ferðamenn, en
afþreyingin setió á hakanum. Þar
séu þó óðum að opnast miklir
möguleikar og nefnir hann þar
helst hið glæsilega hesthús Hrings-
holt og golfvöllinn, að ógleymdum
öllum gönguleiðunum um Trölla-
skagann.
Júlíus hefur ásamt fleirum stað-
ið að tilraunum með að sleppa físki
í Hrísatjörnina og selja mönnum
svo veiðileyfí. „Þarna er náttúru-
legur silungur, en við höfum verió
að sleppa urriða, bleikju og laxi í
tjörnina og fólki hefur líkað mjög
vel að renna eftir físki. Þaó er þó
Norðurslóð
ekki í frí
Olíkt því sem venja hefur
verið fer Norðurslóð ekki í
sumarfrí að þessu sinni held-
ur koma út blöð í lok júlí og
ágúst. Er þetta ákveðið ma. í
Ijósi þess að Bæjarpósturinn
er kominn í ótímasett frí, og
þörfín fyrir fréttablað því
meiri en vanalega. Ritstj.
ekki rnikið um útlendinga í þeini
hópi, en Islendingum líkar þetta
vel,“ segir Júlíus.
Og svo er það báturinn sem enn
hefur ekki hlotið nafn. Þetta er
rennilegt fley sem tekur fjórtán
manns. Hann er keyptur frá Akra-
nesi og var notaður til stangveiða
og skemmtiferða um Faxafíóa.
„Það geta átta manns verið að
veiðum í einu og við ætlum að
bjóða upp á fastar feróir í sjó-
stangaveiði kl. sex á hverjum
morgni. Það verður farið út þó ekki
mæti nema einn maður. Þessar
veiðiferðir standa í svona þrjá
tíma, en eftir það er báturinn laus
til skemmtiferóa fyrir hópa og aðra
sem panta hann.“
Júlíus segir að boðið verói upp
á ferðir til Hríseyjar, Grímseyjar,
Flateyjar á Skjálfanda og Akureyr-
ar. Auk þess eru eigendur bátsins í
sambandi við kafara og getur boó-
ið upp á námskeið í köfun eða
ferðir fyrir sportkafara, sem aó
sögn telja Eyjafjörðinn spennandi
svæði, einkum sé svæðió undan
norðurströnd Hríseyjar mikil
undraveröld.
Ferðamannatíminn er nú kom-
inn í algleyming, en að sögn Júlí-
usar hefur vertíðin, ef svo má
segja, farió hægt af stað hér út með
fírði. Því veldur leióinleg tíð. „Is-
lendingar ferðast eftir veðurkort-
inu og við höfum ekki haft veóur
til að Iokka þá hingað. Eg hef þó á
t 'fmningunni aó landinn verði
mikið á ferðinni innanlands í sum-
ar, spurningin er bara hvert hann
fer. Hvað útlenda ferðamenn varö-
ar þá litu bókanirnar vel út í vor, en
svo hefur verið töluvert um afbók-
anir. Eg er því ekki nema hæfilega
bjartsýnn á sumarið," segir Júlíus
Snorrason. -ÞH
Það hefur gengið á ýmsu í fót-
boltanum hjá Dalvíkingum á
þessu sumri. Meistarafíokkur
karla byrjaði íslandsmót 3.
deildar með látum og vann tvo af
þrem fyrstu leikjunum, Skalla-
grím 3-0 og Hauka 2-0, en gerði
1-1 jafntefli við Völsung í þeim
þriðja. Svo tók að síga á ógæfu-
hliðina. Fyrst lágu okkar menn
fyrir Víði í Garði, 0-3, og því-
næst fyrir Selfyssingum á heima-
velli, 1-2, þar sem gestirnir áttu
aðeins þrjú færi að sögn.
Það þótti því Ilestum harla lítil
ástæða til bjartsýni þegar 6. um-
ferðin hófst. Þá var von á spútnik-
liði deildarinnar í heimsókn. HK
hafói ekki tapað stigi og var mcó
markatöluna 19:3. En Heiðar Sig-
urjónsson lét orðspor gestanna
ekki hræða sig. Þessi 15 ára gamli
Dalvíkingur kom inn á sem vara-
maður í sínum fyrsta leik í meist-
arafíokki, skoraði eitt mark og
lagði upp annaó í 2-1 sigri heima-
manna. Dalvíkurliðið er nú um
miðja deild meó 10 stig úr sex
leikjum. Vonandi endurtekur sag-
an frá í fyrra sig ekki í ár en þá
varð ekki Ijóst fyrren síðasti leikur
sumarsins var fíautaður af aó lióið
hékk uppi í 3. deild.
Meistaraflokkur karla er blanda
af reyndum leikmönnum af Dalvík
og Ströndinni og svo er unglinga-
starf UMFS að skila sér í ungum
strákum sem ætla sér stóra hluti.
Ekki spillti heldur fyrir að kunnur
markahrókur úr KR, Björn Rafns-
son, gekk til liðs við Dalvíkinga í
vor. Eiríkur Eiríksson þjálfari
ætti því aö hafa sæmilegan efnivið
til að moóa úr. Og ekki truflar bik-
arkeppnin einbeitinguna lengur
því Dalvík féll út úr henni eftir
nauman ósigur fyrir Tindastóli.
Mikill áhuga á
knattspyrnu
Meistaraflokkur kvenna hefur líka
alla möguleika á að gera góða hluti
í sumar. Lióió leikur í 2. deild og
vann fyrstu tvo leikina í riðlinum,
fyrst Völsung 1-0 og þvínæst
Leiftur 10-0. Þriðji og síðasti leik-
ur fyrri umferðar riðilsins tapaðist
hins vegar á Sauðárkróki á laugar-
daginn var. Efsta lióið í riðlinum
kemst áfram í fímm liða úrslita-
keppni en tvö lið úr henni færast
upp í 1. deild. Stúlkurnar eiga svo
aö keppa vió Hött á Egilsstöðum
þann 6. júlí og er sá Ieikur í 8-liða
úrslitum bikarkeppninnar.
I yngri fíokkunum er keppnin
ekki langt komin, en þar er víða
mikil barátta og ekki þarf aó kvarta
undan áhuga unga fólksins á knatt-
spyrnunni. Aó sögn Kristjáns Sig-
urðssonar starfsmanns UMFS fer
ungu knattspyrnufólki ört fjölg-
andi. Til dæmis mæta nú 40 strákar
á hverja æfíngu 1. flokks cn þar
æfa 8 ára og yngri. Fyrir örl'áum
árum voru þeir aðeins 8.
„Unglingastarfíð cr að skila
sér,“ segir Kristján. „Þessir strákar
sem nú eru að gera það gott í 3. og
4. Ilokki hafa l'engið mun meiri
keppnisreynslu heldur en þeir sem
nú eru í meistaraflokki áttu völ á,“
bætti hann vió. Fyrir tveimur árum
voru mcistarallokkar UMFS og
Reynis á Arskógsströnd sameinað-
ir og í yngri fíokkunum er senda
UMFS og Leiftur í Ólafsfírði sam-
eiginleg liö til kcppni. Aó sögn
Kristjáns cr óvíst hvort þessi sam-
vinna muni aukast en Ijóst sé að
svæóið hér vió utanverðan Eyja-
íjörð sé það fjölmennt að það ætti
að geta staóið undir einu góóu liði
í meistarafíokki.
Meistaramót í frj'álsum
En það cru flciri íþróttagreinar
stundaðar hér vió tjöróinn en fót-
bolti. Frjálsar íþróttir njóta ávallt
vinsælda hjá unga lölkinu og ekki
letur þaó að hafa svo góða aóstöðu
sem nú er raunin á Dalvík. I fyrra
var haldið fjölmennt landsmót
UMFI fyrir unglinga, en helgina
9.-11. júlí fcr lram á Dalvík Meist-
aramót Frjálsíþróttasambands ís-
lands fyrir 18 ára og yngri. Þangað
er búist við 700 keppcndum og
meó þjálfurum og öðru fylgdarliói
má búast við yfír þúsund gestum.
Kristján segir aó til þessa hafí
þetta mót verið tvískipt, annars
vegar 15-18 ára og hins vegar 14
ára og yngri. Það hafi verió dýrt
fyrir félögin að senda tvö lið,
kannski hvort á sitt landshorn. Þess
vegna báru Dalvíkingar fram til-
lögu um að sameina mótið og buð-
ust jafnfrámt til aó halda það. Því
var vel tckið og nú er mótið að
bresta á.
„Við hefðum sennilega ekki
fengió að halda þctta mót ef ekki
hefði gengió svo vel að halda mót-
ið í fyrra," segir Kristján. „Nýi
völlurinn og önnur mannvirki
reyndust ntjög vel þá, en nú þurf-
urn við að bæta við þriðju lang-
stökksgryfjunni og annarri há-
stökksaðstöóu til þess aó mótið
gangi nógu hratt. Þcgar keppcndur
eru svona margir verða stökkgrcin-
arnar ansi tímafrekar.“
- En hvað um möguleika
heimamanna á þessu móti?
„Við eigum nokkra krakka sem
cru vcl frambærilegir. Rut Berg-
lind Gunnarsdóttir sem keppir í
millivegalcngdum í hlaupi, Stefán
Gunnarsson af Arskógsströnd
scm keppir í spretthlaupi og stökk-
urn, og svo verð ég að nefna Sig-
urð Bjarna Sigurðsson millivcga-
lengdahlaupara þótt hann sé bróðir
minn," segir Kristján og glottir.
Hann bætir því við að vellirnir
hafíi komið sæmilcga undan vetri,
hins vcgar hafi kuldatíðin að und-
anförnu tafíð sprcttu svo þeir verði
síðar tilbúnir en ella. Það yrði þó
allt komió í lag áður en mótið
hefst. -ÞH
Frá undirituninni í Sæluhúsinu, bæjarstjórar, uddviti, forsctar bæjarstjórna
og ráðherra samgöngumála munda pennann kampakátir. MynU: gg
Hafnasamlag:
Samkomulag undirritað
í byrjun júní var samkomulag um stofnun hafnasamlags Dalvíkur,
Ólafsfjarðar og Árskógshrepps undirritað á Dalvík, en samkomulag
náðist um að stofna það í maímánuði eins og við sögðum frá í síðasta
blaði. Bæjarstjórarnir tveir og oddviti Árskógshrepps undirrituðu
samkomulagið ásamt samgönguráðherra, Halldóri Blöndal.
Hafnasamlagið tekur strax til starfa og veróur fyrsta verk stjórnar þess
að ráða hafnarstjóra fyrir allt svæóið. Ráðherra varpaði hlutkcsti urn þaó
hvort Dalvík eóa Olafsfjöróur hefðu þrjá menn í stjórn fyrsta starfsárió og
vann Dalvík. Formennskan kemur því í hlut fulltrúa Ólafsfjarðar.
I framhaldi af undirskriftinni urðu nokkrar umræður um það hvort rétt
væri að stefna að því aó „innlima" Akureyri í samlagið, en það bíður betri
tíma. Hins vegar var bæði Hríseyingum og Grenvíkingum boðin þátttaka
í samlaginu en þcir vildu ekki vera meó að svo stöddu. -ÞH