Norðurslóð - 25.08.1993, Qupperneq 1

Norðurslóð - 25.08.1993, Qupperneq 1
HNiali Svarfdælsk byggð & bær Veðurfarið 17. árgangur Miðvikudagur 25. febrúar 1993 8. (ulublað Sameining sveitarfélaga Tillögur kynntar á aðalfundi Eyþings í byrjun september í síðasta tölublaði Norðurslóðar var greint frá þeim hræringum sem eru varðandi sameiningu sveitarféiaga. Þar kom m.a. fram að umdæmanefndin, sem á skv. lögum að leggja fram tillögur sem kosið verður um 20. nóvember n.k. mundi funda með öllum sveitarstjórnum í Eyja- firði og reifa þær hugmyndir sem uppi eru til að kynnast við- horfum sveitarstjórnarmanna. Að sögn Guðnýjar Sverrisdótt- ur, formanns umdæmanefndarinn- ar, eru fundir með sveitarstjórnum á svæðinu nú að baki og reiknar nefndin með aó leggja síðustu hönd á tillögur sínar í þessari viku og kynna þær á aóalfundi Eyþings (Samband sveitarfélaga á Norður- landi eystra) dagana 2.-3. septem- ber. Það veróur því ekki fyrr en þá að við vitum um hvað við komum til með aó greiða atkvæði hinn 20. nóvember. Spurningar vakna Það cr ljóst að því færri og stærri sem sveitarfélögin eru því fleiri verkcfni geta þau tekist á við. Fjöl- mennari sveitarfélög eru forsenda þess aö verkefni flytjist frá ríki til sveitarfélaga, að ákvarðanir sem okkur varða verði teknar nær vett- vangi. Sveitarfélag er samkvæmt lög- Knattspyrna: Stúlkurn- ar kom- ust áfram Þótt meistaraflokki karla á Dalvík gangi heldur slaklega í 3. deildinni um þessar mundir eru nógir til að halda uppi merki staðarins á knatt- spyrnusviðinu. Meistaraflokkur kvenna hefur staðið sig mcð prýði í sumar og geta verið stoltar af ffammistöðu sinni þrátt fyrir tap í bikarkeppninni fyrir Stjömunni úr Garðabæ. Þær unnu sinn riðil í 2. deildinni mcð glæsibrag þegar þær sigr- uðu helstu kcppinauta sína úr Tindastóli 3:1 í síðasta Ieiknum í riólakeppninni. Þar meó unnu þær sér rétt til þátttöku í úrslitakeppni um tvö sæti sern losna í 1. deild næsta ár. Það verður þungur róður því stúlkurnar voru óheppnar þeg- ar dregið var um leiki. Þær fengu tvo útileiki, fyrst gegn Haukum úr Hafnarfirði sunnu- daginn 29. ágúst og svo gegn Reyni í Sandgerði viku síðar. Síðasti lcikurinn verður hér á Dalvík 12. september gegn Hetti frá Egilsstööum. Meistaraflokkur kvenna á Dalvík hefur aldrei náð svona langt í íslandsmótinu í knatt- spyrnu. Það sama gildir um Framhald á baksíðu um svæði þar sem íbúarnir vinna sameiginlega að þeim verkefnum sem þeim eru falin samkvæmt lög- um og/eða samkomulag er um aó þurfi að vinnast. Það á við um skólahald, umönnun aldraðra og barna, heilbrigðismál, umhverfis- mál, hafnarmál, skipulagsmál, at- vinnumál og ótalmargt fleira. Það má segja að ef tiltekið svæði hefur ekki þann íbúafjölda og/eða tekjur að það sem sveitarfélag geti staðið undir slíkum verkefnum þá hafi það í raun glatað rétti sínum til að kallast sveitarfé'ag því flest þau verkefni sem sveitarfélögum eru falin samkvæmt lögum eða íbúarn- ir gera kröfur um að séu unnin, eru unnin í samvinnu við önnur sveit- aríelög, jafnvel mörg. En er þá nokkuð að því? Nei, hreint ekki því annars væru þau tæpast unnin. En á móti má spyrja, ef flestar ákvarðanir sem máli skipta eru teknar annarsstaðar eða með öðr- um, hversvegna þá að halda uppá gömlu sveitarfélagamörkin? Já, ef þau gegna nánast einungis orðió því hlutverki aö ég geti kallaó mig Dalvíking, Svarfdæling eða Olafs- firðing? Mundi ég ekki kalla mig það áfram þó sveitarfélagamörkin breyttust? Og ef ég vil hafa félag við mína næstu nágranna eru þá ekki allir möguleikar á því án þess að blanda sveitarstjórnarlögunum inn í þann félagsskap. Hvað með atvinnumálin? Þurfum við ekki líka í atvinnulegu tilliti aó horfa framhjá gömlu sveitarfélagamörkunum? Sam- göngur eru orónar svo gjörbreyttar að við viljum geta sótt vinnu þang- að sem hana er að hafa og jafn- framt aó geta horft á möguleika til atvinnusköpunar út frá nýjum for- sendum. Þessar vangaveltur og ótal fleiri hafa sótt á nú síóustu vikur og spurningunum á efalaust eftir að fjölga þegar umdæmanefndin hef- ur kynnt sínar tillögur og við höf- um eitthvaó handfast að pæla í. SJ Það er hefð hér á Norðurslóð að gefa dálitla skýrslu um veður lið- ins mánaðar ekki síst til fróð- leiks komandi kynslóðum. Það er þá best að segja það strax, að veóur hér á Miðnoróur- landi á þvi herrans sumri 1993 hefur verið fádæma sólarlítið og kalt, víst einum 3 gráðum undir meðallagi. Það var reyndar júlí- mánuður, sem áður kallaðist sól- mánuóur! Svo kom ágúst og var svo sem ekkert betri, aftur og aftur dettandi ofan í kuldapollinn svo gránaði í íjöll og svipur mann- fólksins var hallærislegur. Utyfir tók 14.-15. ágúst. Þá kom mikið nýsnævi og náði nióur í miójar hlíðar. Og enn, þegar þetta er skrif- aó er hann í einu norðankastinu ntcð tilheyrandi kuldagjósti. Víkjum svo að heyskap og sprettu. Þrátt fyrir allt og allt og allt hefur grasvöxtur orðið dágóóur, en háarspretta samt sáralítil og verður tæpast slegin. Og þrátt fyrir allt er heyskapur orðinn mikill og mun ásamt með miklurn fyrningum tryggja svarfdælskum skepnueig- endum í sveitinni og á Dalvík gnægðir vel verkaðs fóóurs. „Kussu má tað til bera?“ segja bræður vorir Færeyingar. Svarió felst að miklu leyti í einu orði: Rúllubaggar. An þeirra væri ástandió líklega heldur aumt. Trjágróður hefur sprottið með minnsta móti, einkum lerkið, sem einhverra orsaka vegna kom stór- lega veiklað undan síóasta vetri. Það eru meiriháttar vonbrigði. Þá heyrir maður um mikinn uppskerubrest á kartöflum og jafn- vel öðru grænmeti vítt um land. Hér um slóðir stendur þó kartöflu- grasið lítt eða ekki skemmt af frosti, svo of snemmt er að afskrifa meðaluppskeru þar. Sama er að heyra af bcrjafréttum. Menn tala um, að cngin ber bláni á þessu sumri og hausti. Þetta er ótímabært harmakvein. Það þarf ekki nema svo sem viku eða 10 daga normalt veóur og dálitla sól (og ekki nætur- frost) til þcss að berjaspretta verði a.m.k. dágóð. Nógir eru berja- kopparnir. Svo þaó er bara að vona og biðja meó krosslagða vísifingur „Ekkert drottni er um megn “ eins og þar stendur „En sú himnarisnal Sunnlendingum send’ann regnlsvo þeir skyidu ei gisna Svo fer að styttast í göngurnar. En um þá miklu uppskeruhátíó fá- um við að heyra í næsta blaði. HEÞ Dalvíkurskóli var málaður á dögunum og þótti sumum að litirnir hefðu mátt vcra ögn líflegri. Enn má þó bæta úr því, til dæmis mcð því að Iáta nemendur fá málningu og pcnsla og segja þeim að skreyta þcssa stóru fleti á göflunum. Skólahald að hefjast: Sjávarútvegsdeildin styrkist í sessi Hvort sem menn hafa aðhyllst þá kenningu að það hafi einungis náð að vora þetta sumarið, eða að haustið hafi lagst að strax í vor þá verður ekki um hitt deilt að nú er að koma haust sam- kvæmt dagatalinu og skólafólk því farið að setja sig í stellingar fyrir veturinn. Kennsla við Dalvíkurskóla hefst þriðjudaginn 7. september. Nokkrar breytingar verða á kenn- araliði skólans. I vor hættu störfum vió skólann þær Guðrún Pálína, Magnea Steinunn og Karl Frí- mannsson. Jafnframt fengu leyfi þær Margrét, Sigríður og Heiða. I stað þeirra hafa verið ráðin Birna Björnsdóttir sem mun kenna dönsku og smíðar, Heimir Krist- insson sem kemur aftur til starfa við bekkjarkennslu, Helga Stein- unn við bekkjarkennslu, Inga Matth. kemur aftur til starfa, aðal- lega við íþróttakennslu, Gísli Bjarna kemur aftur, einnig aðal- lega í íþróttakennslu og þá kemur aftur að skólanum Rannveig Hjaltadóttir en hún kenndi hér veturinn 1988-1989, þá réttinda- laus. Síðan hefur hún lokið kenn- aranámi. Þá er þess að geta að Sveinbjörn yfirkennari, sem dvaldi við nám í Danmörku sl. ár kemur aftur til starfa. Nemendafjöldi er svipaóur og verið hefur, í kringum 250, líklega þó heldur fleiri í ár. Fyrsti bekkur er tvískiptur í ár cn hann hefur ekki verió svo fjölmennur í nokkur ár. Heimavist fyrir nemendur grunnskólans verður að Húsa- bakka eins og áður hefur verió greint frá hér í blaóinu, en þaó er nýmæli. Sjávarútvegsdeild Sjávarútvegsdeildin verður sett fimmtudaginn 2. september klukk- an 10 á Ráðhúsloftinu. Breytingar á kennaraliði eru Iitlar. Guðrún Pálína sem kenndi íslensku síðasta vetur hætti í vor en vió tekur Hermína Gunnþórsdóttir. Að sögn deildarstjóra, Huldu Arnsteinsdótt- ur, er reiknað með því að nem- endafjöldi verði á bilinu 55-60; álíka margir í stýrimannanámi og í fyrra, örlítil fækkun á fyrsta ári fiskvinnslu sem er bóknám og ýmsir sem hyggja á bóklegt fram- haldsnám hafa notfært sér að taka hér heima til að létta af sér þeim kostnaói sem óhjákvæmilega fylg- ir námsdvöl aö heiman; hinsvegar umtalsverð fjölgun á ööru ári fisk- vinnslunáms þar sem virkileg sér- hæfrng hefst. Þar er aó stærstum hluta um að ræða fólk sem kemur að og hefur ýmist lokið öðrum bóklegum undirbúningi hér cða vió aðra framhaldsskóla. Þessi breyting gæti verið vís- bending um tvennt; að deildin hafi unnið sér traustan sess í skólakerf- inu og aó unga fólkið haft komið auga á alla þá möguleika sem fel- ast í sjávarútveginum eóa munu opnast á næstu árum. Heimavistin á Dalvík verður í vetur cinungis nýtt fyrir nemendur framhaldsskólans og er langt kom- in með aó fyllast. Húsabakkaskóli Nemendur Húsabakkaskóla mæta í skólann mióvikudaginn 8. septem- ber. Samkvæmt tilskipun fræðslu- yfirvalda hefur verið tekin upp átta og hálfs mánaða kennsla í stað átta mánaða eins og veriö hefur. En það er ekki eina breytingin sem verður á skólastarflnu á komandi starfsári. Eins og ítarlega var sagt frá í síðasta blaói eru ýmsar breytingar að eiga sér stað nú á haustdögum. Nú koma Grímseyingar í skólann og er búið að ráða starfskraft til að annast heimilishald fyrir Gríms- eyinga um helgar. Mun Guðmunda Gunnlaugsdóttir á Þorsteinsstöð- um annast það starf en Anna Lísa Stefánsdóttir í Koti hleypur í skarðið ef Guómunda forfallast af einhverjum ástæðum. Frést hefur að almenn ánægja sé hjá foreldrum í Grímsey með þessa nýju skipan mála og er nú komið á daginn að nemendur 9. bekkjar þaðan munu að eigin ósk stunda nám í Húsa- bakkaskóla frekar en að fara dag- lega til Dalvíkur eins og fyrir- hugað var. Það verður því aóeins 10. bekkur sem sækir skóla til Dal- víkur frá heimavistinni á Húsa- bakka. Eins og fram kom í síðasta blaói verður í vetur tekinn upp daglegur akstur með yngri börnin og er stefnt að því aó þau komi í skólann kl. 10.30 alla daga nema föstudaga og verði til 4.00. I sumar var skipt um inn- réttingar í heimavist gamla skóla og einnig bctrumbætt nokkuð sctu- stofan þar. Engar breytingar eru fyrirsjáanlegar á kennaraliói skólans. SJ/lijhj

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.