Norðurslóð - 24.11.1993, Page 4

Norðurslóð - 24.11.1993, Page 4
4 — NORÐURSLÓÐ Háttsett hryssa horfir yfir byggðina PETTA ER SlNDY, 12 vetra hryssa frá Stóra-Hofi íá Rangárvöllum nú í eigu Jóns bónda Þórarinssonar á Hæringsstöðum. En hvar stendur hún svona hátt og horfir yfir byggöina? Jú hún stendur efst uppi á Skeiös- fjalli og ef myndin prentast þokkalega má sjá ána Grýtu mæta Dalsánni og bæina Skeiö, Göngustaöakot, Klaufa- brekkur og Klaufabrekknakot djúpt niöur í dalnum. Myndina tók Jón í fyrstu göngum í haust en þá þurfti Jón aö sækja kindur upp á efstu grös og fylgdi hryssan honum eftir, húsbóndaholl eins og vera ber. Fullvíst má telja aö ekki hafi hross áöur gengiö á tind Skeiðsfjalls en aö sögn Jóns fer merin allt sem tófan kemst. Jón fékk Sindy á sínum tíma frá hjónunum á Hofi í skiptum fyrir mjólkurkvóta og telur sig hafa gert þar góðan „bisniss“. nSparisjóður Svarfdæla Dalvík - Arskógsströnd - Hrísey Má bjóða ykkur t bæinn að gömlum íslenskum sveitasið og eiga við okkur hagstæð viðskipti? Já, takk! Eflum heimabyggð með heil- brigðum viðskiptum í traustum lánastofnunum á heimaslóðum Já, takk! Sparisjóðurinn ® 61600 Dalvík ^ 61880 Árskógi ® 61785 Hrísey Stökur mán- aðarins XVI Alltaf er maður að gera ein- hverjar vitleysur í þessu jarð- lífi. Aldrei skyldi maður treysta því, að maður fari 100% rétt með stöku, nema fletta henni fyrst upp í bók. En hvaða bók? Það er nú einmitt höfuðverk- urinn, maður veit ekki hvaða bók á að fletta upp í. Þessar hugleiðingar eru auð- vitað sprottnar af því að ég fór, í síðasta þætti, vitiaust með vís- una: Yggjar sjó ég út á legg uggandi um Dvalins kugg. Hyggjudugur dvínar segg duggan þegarfer á rugg. (Ekki hyggjut/rí/rtg/'). Þóroddur Jónasson, fyrrver- andi héraðslæknir á Akureyri, skrifar blaðinu nokkrar línur og segirm.a.: „Þriðja hendingin í vísunni er skökk í blaðinu. Hún á að vera svona: „Hyggjudugur dvínar segg“. Við skulum segja, að hyggjudugur sé sama og „kjark- ur“. Og þá er merking fyrri og seinni hluta vísunnar eiginlega alveg sú sama, Þ.e.: Höfundurinn kvíðir þeirri sjóferð, sem hann á framundan. Hann er kvíðandi og kjarkur hans dvínar. Enda sjó- ferðin, að ætla að yrkja rímu und- ir þessum mjög svo harðsnúna bragarhætti. Enginn bamaleik- ur.“ Síðan greinir Þóroddur frá því, að stakan sé úr mansöng að Griðkurímu eftir þá Gamalíel Hallsson bónda í Haganesi við Mývatn og Illuga Einarsson, fæddan Mývetning, sem lengi bjó í Bárðardalnum, á Litlu-Völl- um, Hlíðarenda og víst víðar. Þá höfuni við það. Ég hélt í einfeldni minni, að orðið ætti að vera Hyggjudrungi, sem gæti þá þýtt kvíði eða eitthvað þvíumlíkt og þá væri meiningin í seinni- partinum sú, að ferðakvíðinn dvínaði jafnskjótt og „duggan fer á rugg “, nefnilega um leið og ferðin er hafin og ljóðaduggan kemst á flot og fer að rugga mjúklega á óðarsænum. Er þetta ekki fullteins líkleg skýring? Um vísuna Vindaþengill viti fjœr o.s.frv. segir Þóroddur, að ef einhver stingi upp á, að hún sé eftir Sigurð Breiðfjörð, þá muni hann ekki mótmæla. Nú hefur hinsvegar Sigurður Hafstað í Reykjavík hringt í blaðið og sagt, að höfundurinn sé Andrés Bjömsson, eldri, frá Hofi á Höfðaströnd. Þá vitum við það. •••••••••• Þá er að snúa sér að heima- verkefninu, þ.e.a.s. að tilfæra vísur, sem byrja á Þ, Æ og Ö. Það á nú ekki að vera mikill vandi. Ég sting upp á þessum: Þ Það er líkt og ylur í ómi sumra braga. Mér hefur hlýnað mest á því marga kalda daga. Er þessi ekki áreiðanlega eftir Þorstein Erlingsson? Æ Ætti ég ekki, vífaval, _ von á þínumfundum, leiðin eftir Langadal löng mér þœtti stundum. Mér hefur verið sagt, að þessi staka sé eftir Gest, þ.e. Guðmund Bjömsson landlækni. En er það nú ábyggilegt? Sumir segja allt annað og einnig það, að Langi- dalurinn sé alls ekki sá, sem Hringvegurinn liggur um. Hvað er nú hið rétta í þessu máli? Ö Öfund knýr og eltir mig til ókunnugra þjóða. Fœ ég ekki að faðma þig, fósturjörðin góða. Sagt er, að þessi gamla staka sé eftir sjálfan Éggert Ólafsson. Hér ætti eiginlega að koma lokapunkturinn. En nú hefur ein- hver stungið því að mér, að ég hafi sleppt úr þremur íslenskum stöfum, nefnilega Ei, Ey og Au. Þetta er nú umdeilanlegt, en ætli maður taki ekki vinsamlegri ábendingu og framlengi þáttinn um einn rófulið með þessum þremur tvöföldu sérhljóðum. Að svo mæltu þakka ég Þór- oddi tilskrifið og þeim öðrum, sem hafa sýnt þættinum áhuga og sent efni. P S. Pálmi í Odda rakst á mig í Kaupfélaginu um daginn og baðst forláts á, að hafa sagt mér að vísan „Allt fram streymir endalaust" væri eftir séra Bjöm í Laufási, Halldórsson. Hann sagðist nefnilega hafa ruglast á henni og annarri keimlíkri stöku, sem áreiðanlega er eftir séra Bjöm, þ.e: Girnast allar elfur skjól undir mjallarþaki. Þorir varla að sýna sól sig að fjallabaki. Að svo rituðu kveð ég heiðr- aða lesendur og bið þá vel að lifa. HEÞ Innilegar þakkir til allra þeirra sem glöddu mig með gjöfum og heimsóknum á áttræðisafmæli mínu 12. nóvember sl. Lifið heil. Kristín Stefánsdóttir Ég sendi ættingjum, vinum og öllum þeim sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og heillaóskum á áttræðisafmæli mínu þann 30. október sl. mínar bestu þakkir. Guð blessi ykkur öll Margrét Jóhannesdóttir frá Hofsárkoti Kirkjuvegi 10 Dalvík

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.