Norðurslóð - 24.11.1993, Blaðsíða 5
NORÐURSLÓÐ — 5
Uunnhildur Ottósdóttir á leið á Tungnahryggsjökul í velheppnaða vinnuferð.
Mynd: hjhj
Ferðafélag Svarfdæla:
Stuttar gönguferðir
á stefnuskránni
Veðráttan hamlaði starfseminni
á liðnu sumri
Ferðafélag Svarfdæla hélt aðal-
fund fimmtudaginn 10. nóvem-
ber. Þar var saman kominn
harði kjarninn í félaginu, sem er
10-15 manns, konur og karlar, af
Dalvík og úr sveitinni.
Þetta gerðist:
* Það kom fram í skýrslu stjórnar,
að famar voru 3 vellukkaðar
gönguferðir á liðnu sumri, en
aðrar féllu niður sökum óhag-
stæðs veðurfars. Aðalferðin var
„vinnuferð“ í Tungnahryggs-
skála þar sem m.a. var gengið
frá uppsetningu útikamars.
Einnig byrjað að hlaða vörður á
leiðinni til leiðbeiningar gestum
og gangendum.
* Féhirðir upplýsti, að félagið
hefði borgað 80 þúsund krónur
til kamarsins, en Skagfirðingar
framlag þar á móti. Ennfremur
hefði félagið styrkt Lionsklúbb
Dalvikur með 20 þúsund króna
framlagi til gerðar upplýsinga-
skiltis norðan Kóngsstaða í
Skíðadal. Þá fékk félagið loforð
um 50 þúsund krónu styrk frá
Landsambandi íslenskra vél-
sleðaeigenda.
* Rætt var lauslega um starfsemi
næsta árs og kom fram, að rétt-
ast væri að halda fram þeirri
meginstefnu að einbeita sér sem
mest að stuttum gönguferðum
innanhéraðs og til nágranna-
byggða.
* Kosin stjóm og er hún nú svo
skipuð: Brynjólfur Sveinsson,
Hjörleifur Hjartarson, Svein-
björn Steingrímsson, og til vara
Dagbjört Jónsdóttir og Kristján
E. Hjartarson.
* Brynjólfur sýndi slæðumyndir
frá ferðalögum liðinna ára,
mjög fallegar myndir úr byggð
og óbyggð á Tröllaskaga.
Blaðið þakkar upplýsingar og
hvetur fólk til að ganga til liðs við
Ferðafélag Svarfdæla. Það er holl-
ur félagsskapur.
HEÞ
Jólakopf Tjo Fnarkirkju
Minninqapkort oq afmœlispit
l<ip|qunnap fást í Vepsluninni
Soqni, Dalvík, oq fijá fopmanni
sóknapnefndap á Tjöpn
Sóknarnefndin
Ásetningsmenn í Svarfaðardal að störfum: Hallgrímur Einarsson á Urðum
og Árni Steingrímsson á Ingvörum. Mynd.sH
Bændur ríghalda
Framhald afforsíðu
kvað einn hrossaeigandi, sem var á
skrá í Svarfaðardalshreppi í fyrra,
hafa horfið af skránni með 30
hross.
Svo kemur skemmtilegasta
númerið. Geitum fjölgar úr 4 f 10.
Er það ekki 150%? Það er auðvitað
Soffía á Klaufabrekkum, sem
þama á heiðurinn.
Að lokum loðdýrin. Aðeins eitt
loðdýrabú var við lýði í Svarfaðar-
dal á haustnóttum. Það er bú þeirra
Ytra-Garðshomsfeðga. Þeir setja
nú á 60 minka og 200 refi. Það er
óskandi, að þeim takist að þrauka
þar til loðskinnamarkaðurinn er
kominn í eðlilegt horf. Mætti það
heita meiriháttar afrek.
Dalvík
Enn er Dalvíkin á blaði, þegar um
ásetning er að ræða. Enn eru þar 2-
3 kúabú og enn nokkur fjárbú, flest
ofursmá. Þarámóti eru hrossin orð-
in jafnmörg og mýflugur á meðal-
stórri mykjuskán. Þorleifur á Hóli
gaf eftirfarandi upplýsingar.
Skýrslan er nokkuð samandregin:
Kýr 68, kvígur 39, geldneyti 19,
kálfar 14, alls 140.
Ær 267, hrútar 8, lambgimbrar 45,
lambhrútar 11, alls 331
Hestar 123, hryssur 90, trippi 63,
folöld 35, alls 311.
Þurrhey 313.805 fóðureiningar,
rúllutaða 122.178 fe. hafrar í
rúllum 24.640 alls 460.615.
Fóðurþörf 397.490.
Umframbirgðir 63.125 fóðurein-
ingar.
Fréttamaður þakkar ásetnings-
mönnum gott samstarf og greiðar
upplýsingar
HEÞ
Allar bökunarvörur
Niðursoðið grænmeti
Niðursoðnir ávextir
Helgartilboð
á ýmsum vörum
alla föstudaga
15% félagsmannaafsláttur
19. nóvember-4. desember
Opnunartímar KEA-búðanna í desember:
Laugardag 4. des.
Laugardag 11. des.
Laugardag 18. des.
Miðvikudag 22. des.
Á Þorláksmessu
Á aðfangadag
verður opið kl.
verður opið kl.
verður opið kl.
verður opið kl.
verður opið kl.
verður opið kl.
10:00-16:00
10:00-18:00
10:00-22:00
9:00-19:00
9:00-23:00
9:00-12:00