Norðurslóð - 24.11.1993, Blaðsíða 6

Norðurslóð - 24.11.1993, Blaðsíða 6
Svarfdælsk byggð & bær TIMAMOT Skírn Þann 14. nóvember var skírður í Dalvíkurkirkju Viktor Ari, sonur Jóns Ægis Jóhannssonar (Tryggvasonar) og Maríu Sifjar Sævars- dóttur, til heimilis að Karlsbraut 10. Svavar A. Jónsson skírði. Afmæli Þann 12. nóvember varð áttræð Kristín Stef- ánsdóttir, áður til heimilis að Karlsrauðatorgi 18, nú á Dalbæ, Dalvík. Þann 21. nóvember varð 85 ára Gestur Hjör- leifsson, fyrrverandi organisti og söngstjóri, Skíðabraut 6, nú á Dalbæ, Dalvík. Norðurslóð ámar heilla. Dagbók aðvent- unnar 1993 Nú í aðdraganda jólanna verður ýmislegt um að vera svo sem endranær á aðventu og stefnir flest að því að magna með okkur tilhlökkun og, að þegar hátíðin gengur í garð verðum við sem best undir hana búin; til líkama sem sálar. Jóiaföndur er fyrir mörgum hluti af sjálfsögðum og nauðsyn- legum undirbúningi jólanna. Skól- amir munu, sem jafnan áður, halda sína föndurdaga; Húsabakkaskóli laugardaginn 27. nóvember kl. 14 ■og Dalvíkurskóli laugardaginn 4. desember kl.13-16. Ymis góðgerðar- og líknarfélög hyggja gott til glóðarinnar á að- ventu að styrkja fjárhag sinn með sölu ýmiskonar. Þess verðum við einkum vör á kvöldin þegar vart linnir látum við húsdyr okkar er sölumenn hinna ýmsu félaga bjóða vaming sinn. 77/ umhugsunar: Gætu þessi félög ekki tekið sig saman um starfrækslu jólamarkaðs á aðventunni í stað dyrasölunnar? Basarar eru einnig hluti af því sölukerfi sem um þessar mundir getur blómstrað. Hinn hefðbundni kirkjubasar verður haldinn í Ungó mánudagskvöld 29. nóvem- ber kl. 20. Fyrir mörgum er kirkju- basarinn ein af þeim árvissu uppá- komum sem þeir vilja síst af missa. Opnunartími hinna hefð- bundnu sölubúða breytist þannig að: Laugardag 4. des. verður opið kl. 10:00-16:00 Laugardag 11. des. verður opið kl. 10:00-18:00 Laugardag 18. des. verður opið kl. 10:00-22:00 Miðvikudag 22. des. verður opið kl. 9:00-19:00 Þorláksmessu verður opið kl. 9:00-23:00 Aðfangadag verður opið kl. 9:00- 12:00 Aðventukvöld verða í Tjamar- kirkju og Dalvíkurkirkju. Að- ventukvöldin hafa notið mikilla vinsælda enda jafnan verið vandað til dagskrár. Á aðventukvöldinu í Baldur EA 71 seldur til Nýja Sjálands - Skipið afhent nýjum eigendum sl. föstudag Tjamarkirkju, sem verður fimmtu- daginn 9. desember kl. 21 verður ræðumaður kvöldsins Anna S Snonadóttir (Sigfússonar). Þá er fjölbreytt tónlistardagskrá. Á að- ventukvöldinu í Dalvíkurkirkju, sem verður sunnudagskvöld 12. desember kl. 20:30 verður tónlist einnig í hávegum höfð; hljóðfæra- leikur, bamakór Dalvíkurskóla, kór Dalvíkurkirkju syngur jólalög og einnig mun Jón Þorsteinsson syngja einsöng með kómum, m.a. Panis Angelicus. Ræðumaður kvöldsins verður Jóhann Olafsson á Ytra-Hvarfi. Jólasveinar, á vegum kaupfé- lagsins, hafa í mörg ár glatt yngstu kynslóðina með söng, eplagjöfum og annarri jólasveinsku við kaup- félagið. I ár verða þeir á ferðinni laugardaginn 11. desember kl. 13. Þá er annar viðburður sama dag sem yngsta fólkið vill ekki missa af en það er þegar kveikt er á bæjarjólatrénu en það verður einnig laugardaginn 11. desember kl. 16. Af þessari upptalningu má sjá að ýmislegt verður á boðstólum fram til jóla. Snorri Snorrason afhenti Baldur EA 71 (áður Þórhallur Daníels- son) nýjum kaupendum síðast- liðinn föstudag. Skipið var af- hent í slipp í Reykjavík. Kaup- andi skipsins er fyrirtæki sem heitir Honker Holdings Ltd. og hefur aðsetur í Wellington á Nýja Sjálandi. Kaupandi á nú fyrir höndum að láta sigla skip- inu til Nýja Sjálands sem er 50 daga sigling eða svo, en reiknað er með að siglt verði vestur fyrir og í gegnum Panamaskurðinn. Áhöfnin verður í bland frá ís- landi og Nýja Sjálandi. I byrjun þessa árs gerði Snorri samning við rússneskt fyrirtæki (í Múrmansk) um sölu á skipinu. Rússamir gátu ekki uppfyllt samn- inginn á réttum tíma með greiðsl- um. Hins vegar héldu þeir áfram að vinna að kaupunum og töldu sjálfir að fengju þeir tíma til myndi verða af kaupunum. Skipið selt í þriðju tilraun Þegar Rússunum tókst ekki að vinna að kaupunum á tilsettum tíma gerði Snorri samning við fyr- irtæki í Ástralíu um sölu á skipinu. Líkt og.í samningnum við Rússana voru tímasetningar um greiðslur og frágang. Þrátt fyrir að allir frestir væru framlengdir tókst þessu fyrirtæki ekki að uppfylla samninginn í tæka tíð. Engu að síður héldu þeir áfram að vinna í sínum málum og tilkynntu um það Baldur EA-71 við bryggju á Dalvík bil sem var verið að afhenda skipið að þeir væru tilbúnir með pening- ana. Fyrirtækið frá Nýja Sjálandi sem nú hefur keypt Baldur hafði verið að íhuga kaup á öðru skipi héðan frá Islandi og raunar einnig frá öðrum löndum. Þeir óskuðu eftir, þegar tímafrestur var útrunn- inn hjá Áströlunum, að fá að skoða Baldur. Var þeim gefinn stuttur tími til að vinna að málinu og gekk allt eftir; þannig liðu aðeins 10 dagar frá því þeir skoðuðu skipið hér á Dalvík þar til þeir fengu það afhent. Þannig tókst í þriðju tilraun að selja skipið úr landi. En engu að síður er það merkilegt að hinir tveir sem gert höfðu samninga um skipið voru fram á síðustu stundu að vinna að kaupunum og hjá ástralska fyrirtækinu virðist það hafa skipt einungis örfáum dögum að þeir lykju undirbúningsvinn- unni og næðu að kaupa skipið. Nýi Baldur í Póllandi Nýi Baldur sem ber einkennisstaf- ina EA 108 er nú í Póllandi þar sem hann verður sandblásinn og málaður. Skipið var allt yfirfarið að öðru leyti í Svendborg í Dan- mörku en það fór þaðan 10. nóv- ember og til Póllands. Búist er við að togarinn komi hingað til lands fyrri hluta desember og verður þá því sem næst tilbúinn á veiðar. JA SjÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA NAMIBÍU Helmut Angula kom í stutta heimsókn til Dalvíkur á dögunum á vegum Þróunarsamvinnustofnunar íslands. Kristján Júlíusson bæjarstjóri tók á móti honum og sýndi honum m.a. Sæplast h/f og um borð í Björgvin. Hér er hann ásamt aðstoðarmanni sínum Samúel Goagoseb (með húfuna) og Þóri Matthías- syni á skoðunarferð um Sæplastverksmiðjuna. Mynd: hjhj Dalvísk sjómennskurómantík Ný bók frá Guðlaugi Arasyni, Hjartasalt, er sjálfstætt framhald af hinni vinsælu sögu, Pelastikk Það eru ekki allir bæir á íslandi sem eiga sér rithöfund. En Dal- víkingar eiga sér rithöfund, Guðlaug Arason, og sætir það því jafnan tíðindum á Dalvík eins og reyndar víðar þegar Guðlaugur sendir frá sér nýja bók. Oftar en ekki fjalla sögur hans um líf og starf alþýðufólks í sjávarplássi og þykjast margir Dalvíkingar þekkja þar eitt og annað bæði atburði og persónur. Það er heldur ekki að ófyrir- synju því Guðlaugur er borinn og bamfæddur Dalvíkingur og er og verður aldrei annað en Dalvík- ingur. Hann var bamungur kominn til sjós og lagði þar grunninn að rit- höfundarferli sínum. Bókin Pela- stikk sem út kom árið 1980 er byggð á reynslu höfundar þegar hann fór komungur á síld. Aðal- persóna þeirrar bókar er drengur- inn Logi og sögusviðið er um borð í síldarbátnum Sleipni sem gerður er út frá Dalvík. Sú bók fékk fram- úrskarandi góðar viðtökur hjá les- endum og hefur hún verið þýdd á dönsku og rússnesku. Nú er komið út sjálfstætt fram- hald þessari vinsælu sögu og nefn- ist nýja bókin Hjartasalt. Hún hefst þegar drengurinn Logi ferm- ist og segir frá femiingarsumrinu hans. Nú er hann kokkur á dekkbát frá Hrísey sem gerir út á ufsa. Lífið um borð er honum eitt allsherjar ævintýri og þar við bætast fyrstu kynni hans af ástinni í líki hrís- eyskrar yngismeyjar sem afgreiðir þar í kaupfélaginu. Guðlaugur þekkir sögusviðið inn í merg og bein og hefur unun af að miðla les- endum af reynslu sinni af sannri frásagnargleði. Hér er á ferðinni sjómennskurómantík eins og best gerðist á sfldarárunúm þegar sjó- menn voru hetjur hafsins en ekki Guðlaugur Arason rithöfundur. þrúgaðir þrælar auðvaldsins eins og í þunglyndislegum þjóðfélags- ádeilubókmenntum seinni tíma. hjhj

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.