Norðurslóð - 23.03.1994, Blaðsíða 1
Aðalfundur Sparisjóðs Svarfdæla:
Hagnaður ársins
11 milljónir króna
Svarfdælsk byggð & bær
18. árgangur
Miðvikudagur 23. mars 1994
3. töiublað
Dalvíkin cr draumablá á þcssari fallcgu vetrarmynd og yfir henni gnæfir Iiöggvisstaðafjall, en fjallið hcfur nú verið
formlega lýst fólkvangur. Mynd: Hallgrímur Einarsson
Fólkvangur í Böggvisstaðafjalli
loks orðinn að veruleika
Á þessum uppdrætti sést hvar mörk fólkvangsins eru dregin (brotna línan).
Eins og lesendur geta séð hér í
blaðinu hefur nú loks fengist
samþykki fyrir stofnun fólk-
vangs í Böggvisstaðafjalli. Af því
tilefni hafði blaðið saniband við
formann umhverfisnefndar Dal-
víkurbæjar, Kolbrúnu Pálsdótt-
ur, og innti hana eftir aðdrag-
anda málsins.
- Það er nú orðió langt síöan
farió var að tala um þetta fyrst.
Böggvisstaðafjall er eitthvert jafn-
grónasta fjall á landinu og þaó hef-
ur lengi verið aðalútivistarsvæði
Dalvíkinga, ekki síst með tilkomu
skíðamannvirkjanna þar. Þessar
reglur voru mótaðar hér líklega ár-
ið 1987 og sendar suöur í Náttúru-
verndarráð til samþykktar. Síðan
lenti erindið ofaní skúffu hjá þeim
eins og oft vill verða og gleymdist
þar. Nú urðu hinsvegar manna-
skipti hjá ráóinu og farið að
hreinsa til cftir því sem okkur var
sagt og var þetta mál þá afgreitt
ásamt lleiru. Hins vegar hefur í
nokkur ár vcrið látið sem þarna
væri fólkvangur þó ekki hafi það
verið formlega samþykkt fyrr en
nú. Svæðið er afgirt, búið er aó
hreinsa burt girðingar sem ekki
eiga að vera og framkvæmdir við
skíðasvæóið hafa allar verið born-
ar undir umhverfisnefnd og verið
með samþykki hennar.
Kolbrún Pálsdóttir formaöur um-
hverfisnefnclar Dalvíkur.
Slanda þá til einhverjar frekari
framkvœmdir í tengslum við fólk-
vanginn?
- Já, nýlega var sent bréf til ým-
issa félagasamtaka þar sem óskað
var eftir því aó fólk tjáði sig um
það hvaða hugmyndir það hefói
um framtíð svæóisins. Vió ætlum
okkur aó taka tillit til slíkra hug-
mynda ef fram koma en við höfum
einnig hugmyndir um eitt og ann-
að. Fyrir nokkru var lækjarkvísl
leidd úr Brimnesánni í Stórhóls-
tjörn svo hún þornaði ekki alltaf
upp á sumrum. Sá lækur fór nú
reyndar út um holt og móa en nú er
búið að dýpka hann og lagfæra.
Það var gert í tengslum vió at-
vinnuátak bæjarins. Svo nú er
Stórhólstjörnin komin til aó vera.
Meiningin er aó snurfusa eitthvað í
kring um tjörnina og gróðursetja
trjábelti í framhaldi af skógarreitn-
um en alls ekki neitt ofar í hlíöinni.
Þetta eru náttúrulega bara hug-
myndir og óvíst hvenær þær koma
til framkvæmda. Það fer náttúru-
lega eftir fjármagni eins og flest
annað.
Er þetta ekki upplagt kosninga-
Sparisjóður Svarfdæla hélt aðal-
fund sinn síðastliðinn laugardag.
Þetta var fyrsti aðalfundur
sjóðsins eftir að Sparisjóður
Hríseyjar og Arskógsstrandar
voru sameinaðir honum á síð-
asta ári. A fundinum var árs-
reikningur Sparisjóðsins fyrir
árið 1993 lagður fram og sam-
þykktur. A fundinum kom fram
að innlánaaukning hjá Spari-
sjóðnum var nálægt meðaltali
sparisjóðanna eða 9,3 % á með-
an meðaltalið er 10,5%. í banka-
kerfinu í heild er aukningin
7,3%.
Innlán Sparisjóðsins voru í árs-
lok 866,8 milljónir króna, en voru
hjá sjóðunum þremur sem samein-
uðust 792,8 milljónir í byrjun árs-
ins. Utlánin námu 870 milljónum
en voru 803 milljónir í byrjun árs-
ins. Eigið fé var í árslok 147,3
ntilljónir og hafði vaxið um 16,5
milljónir á árinu. Eiginfjárstaðan
er góð, til dæmis er hún reiknuð
tæp 15% hjá sjóðnum en lágmark
er 8% samkvæmt reglum sem nú
eru í gildi fyrir peningastofnanir.
Afskriftareikningur útlána nam
í árslok 34,5 milljónum en það er
þaó sem lagt hcfur verió til hliðar
til að mæta töpum í framtíðinni. A
árinu voru cndanlega afskrifuð út-
mál fyrir vœntanlega framboðs-
lista að slá sér upp á?
- Jú þaó sýnist mér.
Klásúla um berjatínur vekur
óneitanlega athygli í þessari
reglugerð. Eru berjatínur svona
miklir skaðvaldar?
- Ja, sumir telja það. Það fer
náttúrulega mest eftir þeim sem á
tínunni heldur og hvernig henni er
beitt hvort hún er til skaða eða
ekki, en það er mikið tínt af berjum
í Böggvisstaðafjalli og því þótti
rétt að hafa þessa grein með.
Og með þaó þökkum við Kol-
brúnu fyrir spjallið.
hjhj
lán að upphæð kr. 11,6 milljónir og
18 milljónir lagðar í afskriftareikn-
ing þannig aó afskriftareikningur
hækkaði um 6,4 milljónir á árinu.
Hagnaður fyrir skatta nam 18,4
milljónum en skattar eru reiknaóir
7,4 milljónir þannig að hagnaóur
árinserkr. 11 milljónir.
A fundinum var gengið frá nýj-
um samþykktum fyrir Sparisjóðinn
í samræmi við ný lög sem tóku
gildi um mitt síðasta ár. Þá var
einnig samþykkt aó breyta skipu-
lagsskrá Menningarsjóðs Svarf-
dæla þannig að sjóðurinn nái til
alls starfssvæðis Sparisjóðs Svarf-
dæla en áður var starfssvæðið aó;
eins Dalvík og Svarfaðardalur. I
samræmi við þetta munu sveitar-
stjórnir Arskógsstrandar og Hrís-
eyjar skipa fulltrúa í stjórn sjóðsins
og verður því fjölgað urh tvo. Dal-
víkurbær og Svarfaðardalshreppur
skipa hvor sinn mann í stjórnina en
aðalfundur Sparisjóðsins kýs for-
rnann.
Kirkjukórinn styrktur
Stjórn Menningarsjóðsins gcrði
grein fyrir úthlutun úr sjóðnum
fyrir þetta ár. Að þessu sinni var
Kór Dalvíkurkirkju úthlutað 600
þúsundunt króna í viðurkenningar-
skyni fyrir gott starf og í tilefni
væntanlegrar Bretlandsferðar
kórsins í vor. Aðalfundur Spari-
sjóðsins samþykkti aó ráðstafa 1
milljón króna af hagnaði ársins til
Menningarsjóðsins.
Aó loknum aðalfundinum var
fundur fulltrúaráðs Sparisjóðsins.
Fulltrúaráðið er skipað 25 rnanns.
Sveitarstjórnir á starfssvæði sjóðs-
ins skipa 10 en aðalfundur kýs 15.
Fulltrúaráðið kýs stjórn sjóðsins
og á lúndinum á laugardag var
stjórnin endurkosin, en hana skipa
Guðríður Olafsdóttir Dalvík for-
maður, Jóhann Antonsson Dalvík,
Gunnar Jónsson Svarfaðardal,
Sveinn Jónsson Arskógsströnd og
Sigmar Halldórsson Hrísey.
Stjórnarformaður Menningarsjóðs,
Þóra Rósa Geirsdóttir Dalvík, var
endurkjörin.
Prófkjör I-listans:
Svanfríður
í 1. sæti
Sveitarstjórnarkosningar
nálgast og framboðslistar
eru í undirbúningi. Fram-
sóknarmenn og Sjálfstæðis-
flokkur skipuðu uppstilling-
arnefndir sem eru að störf-
um, en um helgina efndi I-
listinn til opins prófkjörs.
Að I-listanum standa Al-
þýöubandalag, Alþýðuflokkur,
F-listinn, óháðir kjósendur og
Þjóöarflokkurinn.
Svanfríður Jónasdóttir varð
hlutskörpust í prófkjöri I-
listans á Dalvík, en því lauk nú
í kvöld. í 2. sæti hafnaði Bjarni
Gunnarsson, í því 3. Þórir V.
Þórisson, í 4. sæti Þóra Rósa
Geirsdóttir, Gunnhildur Ottós-
dóttir hafnaði í 5. sæti, Snorri
Snorrason í 6. sæti og Hjörtína
Guómundsdóttir í 7. sæti. Alls
greiddu 148 manns atkvæði í
prófkjörinu sem er hið fyrsta
sem haldið er á Dalvík, ef frá er
talið lokað prófkjör í aðdrag-
anda að framboði annars I-lista
fyrir 20 árum.. Niðurstöður
prófkjörsins eru ekki bindandi
heldur mun uppstillingarnefnd
hafa þær til hliðsjónar við end-
anleg röðun á listann.
-ÞH
*
Oheppni í körfunni
Það munaði sama sem engu að körfuboltaliði Dalvíkur tæklst að
trýg&ja rétt til þátttöku í úrslitakeppni 2. deildar og þar með
möguleikann á að komast upp í 1. deild. Þeir voru jafnir Lauga-
mönnum aö stigum en Laugamenn komust áfrara á betri úrslit-
umi í innbyrðis leikjum liðanna.
í þriðju og síóustu hrinunni í 2. dcild sem fram fór á Akureyri um
helgina vann Dalvíkurlióið tvo vamarsigra. Fyrst lagði það Lauga-
menn 67-62 og síóan lió ÍMA 81 -11. En það vantaói sem sé herslu-
muninn. Það gengur bara betur næst.
Að leikjunum loknurn var haldið hóf þar sem Agúst Guómunds-
son var valinn besti leikmaður ársins, en Jóhann Jónsson sá cfnileg-
asti. -ÞH