Norðurslóð


Norðurslóð - 27.11.1996, Blaðsíða 5

Norðurslóð - 27.11.1996, Blaðsíða 5
NORÐURSLÓÐ - 5 Svarfdælingur út fyrir gufuhvolfið í júlí n.k. Það líður að því að geimfarinn okkar Svarfdælinga, Bjarni Tryggvason sonur Svavars Tryggvasonar frá Dalvík, hefji langþráða ferð sína út fyrir gufuhvolf jarðar. Bjarni verður eini Kanadamaðurinn sem tekur þátt bandarískri geiinferð í júlí- mánuði næstkomandi. Hinir geimfararnir fimm sem með honum verða í þessari 11 daga ferð verða allir Bandaríkja- menn. Norðurslóð fékk nýlega senda blaðaúrklippu úr kanadísku blaði með grein og viðtal við Bjarna. Birtum við hluta úr henni hér. Kanadamaður verður meðal fimm amerískra geimfara um borð í bandarískri geimskutlu í júlí n.k. ...A undanfömum 10 árum hafa aðeins 10 stöður verið til ráðstöf- unar í Kanadísku geimferðaáætl- uninni en meira en 10.000 manns hafa sótt um þær. Eftir margþætt sálfræðipróf, nákvæmar læknis- rannsóknir og ýmis skrifleg próf var Tryggvason samþykktur til verkefnisins og hóf störf snemma árs 1984. „Ég reyndi að vera sallarólegur í símanum (Þegar honum var til- kynnt um úrslitin), en ég var gjör- samlega frá mér numinn,“ segir hann. 1 leiðangrinum í júlí mun Tryggvason sjá um svokallað „Space Vision System“. sem er ein- hvers konar vídeoupptökubúnaður tengdur tölvuskjá sem auðveldar geimföram að hreyfa hluti sem eru úr sjónmáli. Hann mun einnig sjá um nýjan búnað sem hann hefur sjálfur hannað til að hafa stjóm á titringi sem oft er til baga við ýmsar viðkvæmar tilraunir sem fram fara í geimflaugum. „A þeim tíma sem geimferju- flug lágu niðri (1986-1991) fór ég að velta fyrir mér þeim vandamál- um sem upp kynnu að koma,“ seg- ir Tryggvason, „ Ég sá að titringur femisolíu í tuskum sem gleymst höfðu á tröppum hússins. Þegar slökkvilið kom á staðinn var húsið mikið skemmt orðið og brunnið innan. Töluverðar vangaveltur voru um hvort gera ætti við húsið en þó var ákveðið að ráðast í viðgerð enda kom í ljós að húsið var mun minna skemmt en menn töldu í fyrstu. Að sögn Hjörleifs Stefáns- sonar sem umsjón hafði með þeirri viðgerð tókst að endurbyggja húsið fyrir fé frá Húsafriðunarsjóði og úr tryggingum án þess að bæta á þær skuldir sem fyrir vora. Hjörleifur segist sannfærður um að slíkt ætti einnig að vera hægt með Valla- kirkju ef vilji heimamanna er fyrir hendi. „Þegar um er að ræða sam- félagslega eign og söguleg eða menningarleg verðmæti eru trygg- ingafélög reiðubúin að teygja sig eins langt og kostur er í trygginga- mati. Slíkt var t.a.m. raunin með Isafjarðarkirkju á sínum tíma þar sem Brunabótafélag Islands átti í hlut. Ekki má gleyma því að brana- bótamat á húsum er gert í þeim tilgangi að bæta skaðann ef húsið brennur. Ég efast ekki um vilja Húsafriðunamefndar eða Jöfnunar- sjóðs kirkna. Ef menn vita ná- kvæmlega hve mikið fé er til ráð- stöfunar og njóta auk þess skilnings og góðvildar iðnaðarmanna sem koma að verkinu má endurbyggja Vallakirkju án þess að bæta á skuld- ir safnaðarins," segir Hjörleifur. Vallakirkja Framhald afforsíðu ónýt. Lausir munir eru margir illa famir en þó eru gömlu kertastjak- amir heilir að telja og söngtöfluna má gera við. Orgel hafði enn ekki verið fært til kirkju og sömuleiðis voru messuklæði geymd annars- staðar. Magnús segir svo mikið nýtanlegt af kirkjunni að fyllilega sé réttlætanlegt að endurbyggja Velunnarar Vallakirkju Við minnum á reikningsnúmer kirkjunnar: Hlaupareikn- ingur nr. 380 í Sparisjóði Svarfdæla. Með fyrirfram þökk. Sóknarnefndin hana þó einnig mætti réttlæta að það yrði ekki gert. „Það er fyrst og fremst undir sóknarbömum í Vallasókn komið. Sjálfur er ég þeirrar skoðunar að á Völlum eigi að standa kirkja. Svo hefur verið síðan á 11. öld og á þeim tíma hafa margar kirkjur risið og ekki allar með sama sniði.“ Magnús segir vissulega álita- mál hvort reisa eigi nýja kirkju eða endurbyggja þá gömlu. Valla- kirkja hafi þó ótvírætt menningar- sögulegt gildi. Hún er ein af elstu kirkjum landsins og með þessu sérstaka svarfdælska, tumlausa sniði sem vart er að finna annars- staðar á landinu. Endanlegt mat á viðgerðarkostnaði liggur ekki enn fyrir en Magnús telur að reikna megi með 10-12 milljónum króna. Kirkjan er tryggð fyrir 7,5 rnillj- ónir en nýtt brunabótamat hafði ekki farið fram eftir viðgerðina. Ef ráðist verður í endurbyggingu má örugglega reikna með framlögum úr Húsafriðunarsjóði og Jöfnunar- sjóði kirkna. Ekki einsdæmi I þessu sambandi má rifja upp bruna sem varð á Glaumbæ í Skagafirði í svokölluði As-húsi fyrir nokkrum árum. Tildrög brun- ans voru ekki ósvipuð. Verið var að leggja síðustu hönd á endurbygg- ingu hússins og átti að vígja það daginn eftir þegar kviknaði í út frá Bjarni Tryggvason, fyrsti geimfari Svarfdæla, segist hafa dreymt um að komast út í geiminn allt frá því Gagarín var þar á ferð fyrir tæpum 40 árum. Einkum segist hann hlakka til að hafa útsýni yfir allt Kanada og ísland á sama tíma. kæmi til með að verða vandamál. Svo á þessari fimm ára töf velti ég fyrir mér orsökum vandans og fann út leiðir til að koma í veg fyrir hann.“ „Töfin" sem Tryggvason talar um varð eftir að geimskutlan Challenger sprakk í loft upp 1986. Geimferðum var þá frestað í 3 ár í Bandaríkjunum og í 5 ár fyrir kanadíska geimfara. Þó svo Tryggvason hafi verið að bíða eftir að röðin kæmi að honum þegar Challenger sprakk segir hann slys- ið ekki hafa valdið sér áhyggjum og hann langar enn jafn mikið að taka flugið. „Menn gerðu sér sam- stundis grein fyrir orsökum slyss- ins. Það var hægt að koma í veg fyrir það og hefði átt að koma í veg fyrir það,“ segir hann. „Þú getur orðið vitni að því að maður keyrir á 100 krn hraða á steinvegg. Viðbrögðin eru ekki að menn hætti að keyra bíl, heldur að menn hætti að keyra bíl á 100 km hraða á steinveggi. Það ber ekki að skilja á þann veg að ekki sé um neina áhættu að ræða. Þú situr ofan á tvöþúsund tonnum af eldsneyti og þetta er afar flókin vél.“ Allir geimfarar verða að fara í gegnum flugmennskuþjálfun við undirbúning geimferðar. „Við setj- um fólk í flugþjálfun til að venja það við álag, stressandi og flókið vinnuumhverfi og látum það kom- ast í kynni við hvernig kaupin ganga á eyrinni í hernum þar sem agi er barinn inn í mann.“ Eftir tvo mánuði eða svo heldur Tryggvason til Houston þar sem hann fær þálfun fyrir geimferðina. Dalvíkurbær Ibúaskrá Er lögheimili yðar rétt skráð í þjóðskrá? Nú er unnið að frágangi árlegrar íbúaskrár 1. des- ember. Mikilvægt er að lögheimili sé rétt skráð í þjóðskrá. Hvað er lögheimili? Samkvæmt nýjum lögheimilislögum frá 1. janúar 1991 er lögheimili sá staður þar sem maður hef- ur fasta búsetu. Hvað er föst búseta? Föst búseta er sá staður þar sem maður hefur bækistöð sína, dvelst að jafnaði í tómstundum sínum, hefur heimilismuni sína og svefnstaður hans er. Þetta þýðir að lögheimili manns skal jafnan vera þar sem hann býr á hverjum tíma. Hvað er ekki föst búseta? Dvöl frá heimili um stundarsakir, t.d. vegna or- lofs, vinnuferða og veikinda, er ekki breyting á fastri búsetu og þar af leiðandi ekki breyting á lögheimili. Sama gildir t.d. um dvöl í gistihúsum, sjúkrahúsum, heimavistarskólum og fangelsum. Hvernig eiga hjón og fólk í óvígðri sambúð að vera skráð? Séu þessir aðilar samvistum eiga þeir að hafa sama lögheimili. Hvað barnafólk varðar er reglan sú að dvelji annar hvor aðilinn fjarri fjölskyldu sinni um stundarsakir, t.d. vegna atvinnu, skal lögheimili allrar fjölskyldunnar vera skráð hjá þeim sem hefur börn þeirra hjá sér. Hvenær og hvar skal tilkynna flutning? Breytingu á fastri búsetu á að tilkynna innan 7 daga frá flutningi til skrifstofu þess sveitarfélags sem flutt er til. Ennfremur má tilkynna flutning beint til Hagstofu Íslands-Þjóðskrár eða lög- regluvarðstofu í Reykjavík. Tilkynningar skulu vera skriflegar á þar til gerðum eyðublöðum. Bæjarritarinn á Dalvík Helgi Þorsteinsson Húsnæðisnefnd Dalvíkur Félagslegar íbúðir til sölu Hjarðarslóð 1a 3 herb. Hjarðarslóð 6d 3 herb. Hjarðarslóð 6e 4 herb. Hjarðarslóð 6f 3 herb. 86,3 m2 83,2 m2 105,2 m2 83,2 m2 verð um 6,6 millj. verð um 5,7 millj. verð um 6,4 millj. verð um 5,7 millj. Félagslegar íbúðir opna þér dyr að vönduðu og öruggu húsnæði með lágri greiðslubyrði. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Húsnæð- isnefndar Dalvíkur, Ráðhúsinu, sími 466 1370. Húsnæðisnefnd Dalvíkur, Húsnæðisfulltrúi. ‘Jram/qifíum samcfæjjurs fFifmafyígir fiverri framtfjtfun ILEX-myndir

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.