Norðurslóð - 13.12.2007, Qupperneq 5

Norðurslóð - 13.12.2007, Qupperneq 5
Norðurslóð - 5 Júlíus Júlíusson ■ » — Mvndskrcyting: Sunno Björk Hrciöorsdóttir Jólabækur úr Dahíkurbyggð Þrjár bækur úr Dalvíkurbyggð, hver með sínu sniði eru nýkomn- ar út. Vasast í öllu heitir ævisaga Sveins Jónssonar í Kálfsskinni sem Bjöm Ingólfsson hefur skráð. Sveinn segir þar frá ýmsu sem á daga hans hefur drifið á langri og athafnasamri ævi. Júlíus Júlíusson sendir frá sér jólabamasöguna Blíð og bangsi litli myndskreytta af Sunnu Björk Hreiðarsdóttur. Andi jólanna svíftir þar yfir vötnunum Bjöm Ingólfsson Endurminningar Sveins f Kálfsskinni enda gerist hún í Jólaenglalandi. Þá hefur Lena Gunnlaugsdóttir frá Atlastöðum sent frá sér ljóðabókina Nafnlaus ljóð. Hefur hún að geyma yfir 50 ljóð sem Lena hefur ort á 35 ára tímabili. Höfundamir þrír komu fram á bókmenntakvöldi á Hótel Sóley 4. des og lásu upp úr bókum sínum en einnig lásu nokkrir valinkunnir Dalvíkingar úr bókum að eigin vali við góðar undirtektir um 40 gesta sem þar vom mættir. TSlgfnlaus Ijóð Lena Qunnlaugsdóttir Tímamót Skírnir Þann 28. október var skírður í Ak- ureyrarkirkju Isak Otrí. Foreldrar hans em Fannar Þór Gunnlaugsson og Linda Rós Magnúsdóttir Klettaborg- um 58 Akureyri. Prestur var Sólveig Halla Kristjánsdóttir. Þann 3. nóvember var skírður á heim- ili sínu Hákon Daði. Foreldrar hans eru Berglind B. Stefánsdóttir og Magnús Helgi Jónsson, Skógarhólum 28, Dalvík. Þann 3. nóvember var skírður á hiemili sínu Breki Hrafn. Foreldrar hans em Ingunn M. Hallgrímsdóttir og Helgi Örn Bjamason til heimilis að Lynghólum 5 Dalvík. Þann 11. nóvember var skírður í Miðgarðakirkju Gabríel. Foreldrar hans em Harpa Þ. Sigurðardóttir og Sigurður Henningsson til heimilis á Sveinagörðum, Grímsey. Þann 1. desember var skírður í Dalvíkurkirkju Snorri Phillips. For- eldrar hans em Edda Lóa Phillips og Bjöm Snorrason til heimilis að Böggvisbraut 9, Dalvík. Þann 1. desember var skírður í Dalvíkurkirkju Hannes Logi. Foreldr- ar hans eru Guðrún Inga Hannesdóttir og Jóhann Gunnar Sigdórsson til heimilis að Vallagötu 3, Grímsey. Afmæli Þann 4. desember síðastlið- inn varð níutíu ára Guðrún Þorsteinsdóttir Hálsi, Svarfaðardal. Þann 13. desember síðast- liðinn varð sjötíu og fímm ára, Snjólaug Guðjóns- dóttir Hjarðarslóð 2 a, Dalvík. Móra og Víðförla-Grána komnar til byggða *. ■ Eftirlegukindur tínast nú ein og ein til byggða. I síðustu viku fór Hjörleifur Hjartarson í Lauga- steini eftir fé sínu langt upp í hlíðar fyrir ofan Þverá í Skíðadal og kom niður með tvær fullorðnar ær og þrjú lömb. Lömbin og aðra ána átti hann sjálfur en hina ána, veturgamla forystu, átti Jón Þórarinsson, á Húsabakka. Vel gekk að koma fénu niður á jafnsléttu enda snjór í giljum og erfitt um vik fýrir mjóleggjaða fer- fætlinga að stinga skíðfætta tvífæt- linga af. Hins vegar tók ferðin niður Þverártúnið tvo tíma í umbrotafæri og var féð að þrotum komið þegar það náði loks í hús þar. Veturgamla ærin er ein af fjór- um gemlingum sem Jón sleppti við Holárkot í Skíðadal sl. vor og átti von á að endurheimta á svipuðum slóðum með haustinu. Sú varð ekki raunin því einn þeirra, sauður, kom fram á Laufskálarétt í Skagafirði í fyrstu göngum. Ein kom fram á Sandárrétt í Svarfaðardal og önnur í Göngustaðakoti og nú birtist sú síð- asta uppi á hömrum í slagtogi við Móru úr Laugasteini og Guð má vita hvaða útúrdúra hún hefur tekið á ferðum sínum í sumar. Eins víst að hún hafi brugðið sér yfir í Hnjóta og jafnvel vestur yfir Helju eins og sauðurinn frændi hennar. Gamla Laugasteins-Móra er hins vegar kunn orðin fyrir þrásetur á íjöllum eftir að aðrar ær hafa skilað sér til byggða og heldur hún uppteknum hætti þó öldruð sé. Til sölu er sturtuvagn, Weckman 120, ársgamall og lítið notaður. Uppl. í síma: 8684955 Föstudaginn 14. desember milli kl. 14 og 16 verða ráðgjafar frá Glitni á Akureyri [ heimsókn í útibúi Sjóvá á Dalvfk. Við bjóðum upp á létt spjall, kaffi og konfekt. * ú- * ^ Ef þú stofnar Eramtíðarreikninf Glitni þá faerðu aðgöngumiða á jólaballið og ffotti Latabæjarhúfu í k kaupbæti.* Viðskiptavinir Glitnis geta á sama tíma sótt miða á jólaball Glitnis sem haldið er í íþróttahöllinni á Akureyri laugardaginn 15. desember kl. 11-12:30. Kveðja, Starfsfólk Glitnis á Akureyri og Sjóvá á Dalvík SJOVA GLITNIR 000 liigmarksupphæð tll að fá aðgöngumiða 000 kt lágmarksupptiæð til þess að fá aðgöngum ða og húfu

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.