Norðurslóð - 13.12.2007, Qupperneq 9

Norðurslóð - 13.12.2007, Qupperneq 9
Norðurslóð - 9 arlegur fjöldi tækifæriskvæða af ýmsum tilefnum. Frumlegt skáld er Þorsteinn ekki og tök hana á máli og brag stundum nokkuð þvinguð þótt orðaforði sé mikill. Stíllinn er hlaðinn og samanrekinn og ekki vel þjáll, líkt og stundum hjá Stephani G. sem er nærtækur til samanburð- ar hér, en skáldsýn og djúpskyggni Stephans skortir Þorstein alveg - eins og aðra vestur-íslenska höf- unda. En vissulega á hann sínar góðu stundir sem skáld. Hann orti vafalaust af sterkri innri þörf, samfara ræktarsemi og viija til að gleðja aðra, enda náðu ljóð hans eyrum samtíðarmanna. Það má sjá af grein um hann sjötugan eftir Sigurð Júlíus Jóhannesson skáld í Tímariti Þjóðræknisfélagsins 1949 og einnig af útvarpserindi eftir hinn vesturíslenska menningarkynni Richard Beck prófessor (prentað í bók hans I átthagana andinn leitar, 1957). Þeir kunnu vel að meta sitt- hvað í kveðskap Þorsteins. Fróðegt væri, í ljósi ummæla Einars H. Kvarans, að gefa sögum hans meiri gaum en gert hefur verið. III Ljóðasafn Þorsteins sem út kom árið 1959 hjá Bókaforlagi Odds Bjömssonar á Akureyri er í tveim- ur bindum, samtals hátt á sjötta hundrað blaðsíður. Gísli Jónsson bjó til prentunar og skiptir safninu í nokkra kafla eftir efni. Þeir nef- nast: Island og Ameríka, Eftirmæli, A tímamótum, Það er svo margt og A góðu dægri. Gísli getur þess í formála að Kristín Thorsteinsson á Gimli í Manitoba hafi beitt sér fyrir útgáfunni. „Fyrir hennar áeggjan tók ég að mér að raða kvæðunum og lesa prófarkir," segir hann. Ekki eru hér tekin öll kvæði Þorsteins, sleppt nokkru af áður prentuðum ljóðum i Heimhuga og tímaritinu Sögu. „Ædunin er að gefa síðar út verk Þorsteins í óbundnu máli, og mun þá væntanlega fylgja ævisaga hans,“ segir Gísli. Skemmst er frá því að segja að úr þeirri útgáfu varð ekkert. Soffía Gísladóttir kynntist Þorsteini fyrst fjórtán ára þegar hann dvaldist á Hofi 1920. í viðtal- inu við Gísla bróðurson sinn, sem hér hefur nokkmm sinnum verið vísað til, bregður hún upp fallegri mynd af skáldinu. Soffía sagði meðal annars: „Þorsteinn var mikillar gerðar og var maður gleðinnar, hann var líka maður alvörunnar og aldrei hlutlaus í neinu máli. Minnisstætt er mér, frá því að ég kynntist honum fyrst, hve Þorsteinn var skemmtilegur og sagði vel ffá. Hann lifði sig inn í söguna og þeir sem hlustuðu urðu þátttakendur atburðanna og gleymdu þeim ekki. Ef gamanmál vom sögð gneistaði af honum, glettnin og blik augn- anna var sérstætt, enda átti hann ríka kímnigáfu og gat af henni óspart ausið ef svo bar undir. En þyrfti hann að verja málstað sinn þá gerði hann það og átti létt með, og ekki var öllum hent að lenda í orðasennu við hann. Hann bar lotningu fyrir lífmu og fegurðinni og sterk listhneigð var í eðli hans. Svari lítilmagnans tók hann og þess er honum fannst á hallað. Lund hans var viðkvæm og stór. Þorsteinn unni sinni heima- byggð, Svarfaðardal, fólki hans og sögu. I hugarheimi hans var hátt til lofts og vítt til veggja og hann gleymist mér ekki.“ Þannig minntist Soffía á Hofi hins svarfdælska skálds í Vestur- heimi, Þorsteins Þ. Þorsteinssonar. Hún gleymdi honum ekki. Svarf- dælingar ættu að muna skáldið sem ungur yfirgaf sveit sína og dvaldist lengst af í annarri heimsálfu, en hélt alla stund tryggð við átthagana og vildi eiga þar hinsta skjólið. Kristmundur Bjarnason: Af Birni Jónssyni í Sydra-Garðshorni Björn Daníelsson kennarifrá Syðra-Garðshorni hefur haldió til haga og varðveittýmsikonar efni sem akkur er í að ekki glatist. Meðal þess sem Björn hefur undir höndum er kveðskapur sem til var á vegum Hins svarfdœlska söltunarfélags sem við vonandi fáum einhvem tímann að birta úr hér á síðum Norðurslóðar. Hér í þessu jólablaði kemur fyrsti hluti afþremur um Björn Jónsson sem var langafi Björns Daníelssonar. Það var Kristmundur Bjarnason frá Sjávarborg sem skrifaði þennan þátt af Birni og birtist hann i bæklingi sem Kristmundur og Hannes Pétursson skáld gáfu út í 100 tölusettum eintökum. Þeir tileinkuðu þennan hluta hans Kára Jónssyni á Sauðárkróki sem er afkomandi Björns Jónssonar. Kára var afhent þetta i tilefni af fimmtugsafmæli hans i október 1983 eins og sendur í áritum Kristmundar og Hannesar. Frásögn Kristmundar er eftirfarandi: Nyrsta byggð við Eyjafjörð austanverðan er Grýtubakkahreppur. Sá hluti hans, sem er austan Gjögurtáar, heitir í Fjörð- um. Fjarðabyggðin var þrískipt frá náttúmnnar hendi og torsótt á milli nema af sjó. Nyrst er Keflavík austan undir Gjögurtá, þá Þorgeirs- fjörður, síðan Hvalvatnsfjörður. Á þessum slóð- um var all fjölbýlt fyrr á tíð, talið gott undir bú í Fjörðum, örskammt á mið og reki mikill. Dugandi sjófararmenn sóttust efitir jarðnæði svo nærri hafi. Prestssetur var á Þönglabakka í Þorgeirsfirði til ársins 1902. Þar vom og býlin Hóll og Botn. Hlunnindi síðamefndrar jarðar voru útræði, lóðatollar, silungsveiði í sjó og á, fjörubeit, sem sjaldan brást, og reki afar mik- ill. Sá ljóður var þó á að ábúanda Botns nýttust ekki hlunnindin að fullu, t.a.m. mátti hann ekk- ert hirða af reka utan það sem að jafnaði taldist frjálst til leiguliðanota, þ.e. til að dytta að hús- um. Fimm kirkjur áttu öll hlunnindin, Á haustdögum 1816 eignaðist vinnukona í Pálsgerði í Dalsmynni „óegta“ son. María hét hún Sæmundsdóttir, fædd 1794 í Flatey á Skjálfanda. Faðir bamsins, sem skírt var Jó- hannes, hét Sigurður Bjömsson, vinnumaður á Látmm, ókvæntur. Vinnuhjúin munu hafa hugs- að til hjúskapar en jarðnæði lá ekki á lausu. Það áraði illa nyrðra 1816, ís á flækingi um firði, útigangspeningur féll, fiskafli rýr, þó urði höpp af sjó á stöku stað. Vorið 1821 er Botn í Þorgeirsfíði laus til ábúðar, Sigurður og Maria fá hann leigðan og gengu í hjónaband. Hann er 31 árs, hún 27, er þau hefja þar búskap. Bústofn er ekki mikill, en bjarglegur dugandi fólki á sjávarjörð. Um miðjar heyannir 1826 eignast María annan son, sem skírður var Sigmundur, en þá var sköpum skipt heimafólki í Botni; Sigurður bóndi hafði farið í fískiróður við fimmta mann í síðustu viku maí, gerði þá ofsaveður, og fór- ust þeir allir. Eftir sat ekkjan með tvö böm föð- urlaus. Fátækar ekkjur með ung börn í eftirdragi áttu fárra kosta völ. Sá var helstur og algengast- ur að fara í vinnumennsku með yngra eða yngsta bamið á framfæri, en koma hinu eða hinum fyr- ir hjá vandalausum eða láta hreppstjóra kjálka niður sem sveitarlimum. Oftar en hitt var það örþrifaráðið. En hér rættist betur úr en á horfð- ist. Séra Gunnar Hallgrímsson, íyrr prestur að Upsum, síðan í Laufási, var einn kunnasti bún- aðarfrömuður landsins á sinni tíð. Hjá honum var vinnumaður Jón að nafni Jónsson, fæddur að Klúkum í Eyjafirðil793, annað óegta bam vinnuhjúa. Jón þótti bráðskarpur til allra verka og vel að sér, eins og ekkjan í Botni. Fullvíst má telja, að það væri að undirlagi séra Gunnars, að Jón réðst fyrirvinna Maríu í Botni vorið 1827. Ári síðar gengu þau í hjónaband. Jafnræði þótti með þeim hjónum. Prestur lætur þess getið, að þau séu skörp og þjóni vel, bæði lesandi og vel heima í fræðunum. Jóhann- es, sonur Maríu, var sagður „skýr og vel gáf- aður“. Sigmundur efnilegur. Jón og María í Botni eignuðust 5 böm. Þau vom þessi: Magnús, f. 1828, dó á bamsaldri; Sigurlaug, f. 1830; Bjöm, f. 20. nóvember 1831; Kristján, f. 1832; Kristbjörg, f. 1836. Að- eins tvö böm Maríu Sæmundsdóttur áttu afkom- endur, Sigurlaug og Bjöm, en frá þeim er líka mikill ættbálkur. Hinn 7. janúar 1937 er Kristbjörg í Botni þrem dögum miður en ársgömul. Þann dag fóru Fjörðungar fimm saman að vitja um hákarla- vað. Einn var Jón bóndi í Botni og Jóhannes stjúpsonur hans. Illhleypingar voru þessa daga og vont í sjó. Báturinn fórst með allri áhöfn Bjöm Jónsson í Syðra-Garðshorni. skammt undan landi og horfði María húsffeyja og annað heimafólk á slysfarimar af bæjarhlaði. Mælt er, að María gengi inn, er hún sá, hvað orðið var, byrgði hami sinn í barmi, las húslest- ur um kvöldið sem endranær og söng fúllum þrótti. Enn stóð María uppi ekkja með mörg böm á framfæri, efltir að hafa horft á eftir eiginmanni og syni í sjóinn. Auðsætt þótti, að Botnsheim- ilið yrði leyst upp. Bæði höfðu hjónin notið mannheilla, Jón afkastamaður til allra starfa og sparaði sig hvergi til erfiðis. Líkt mátti um Maríu segja. Hún þótti verkhög og veitul, en oft var örtröð fólks í útvemm í þennan tíma. María kaus sjálf að ráða sínu vistaferli ef takast mætti. Jörðina hafði hún í ábúð til næstu fardaga, svo tími var til stefnu, og rættist betur úr en ætlað var. Þá er þar til að taka að nefna til sögunnar vinnukonu eina, Björgu Matthíasdóttur. Hún var í vist á ýmsum bæjum í Hörgárdal og Kræk- lingahlíð á öðmm áratug 19. aldar. Árið 1816 eignaðist hún dreng, sem skírður var Sigurður og kallaður Jóhannesson. Rúmum áratugi síðar fæddi hún annan dreng með ókvæntum vinnu- manni, Áma Þorsteinssyni, og hlaut hann nafn föður síns. Ámi Ámason ólst upp hjá vanda- lausum, varð bóndi á Hamri í Svarfaðardal, og er frá honum mikil ætt og merk. Um 1830 varð Björg vinnukona í Keflavík, hjá Sigríði systur sinni og manni hennar er þar hófu búskap. Nokkru síðar kom Sigurður son- ur hennar í sveitina, rösklega tvítugur og gerð- ist fyrirvinna ekkjunnar í Botni og varð síðar tengdasonur hennar, átti Sigurlaugu og við henni 9 börn. Það er frá Björgu að segja, að hún giftist manni þeim sem Sigurður hét Benedikts- son. Fluttust þau að Hvanndöluml840, einu argasta koti vestan fjarðarins. Það hafði ver- ið í eyði um sinn, svo aðkoma hefur naumast verið fýsileg. Ári síðar er Bjöm í Botni kom- inn til þeirra hjóna; tökubam þeirra. Hann þótti tápmikill og frískur, las, kunni og skildi vel og góður viðræðu að dómi sóknarprests. Bjöm var í fóstrinu næstu árin og vegnaði vel, þótt hann yrði að vinna hörðum höndum - eða vegna þess. Nú gerðist það 1843, að María móðir Bjöms tók sig upp og fór byggðum að Svæði við Grenivík. Sigurður Jóhannesson var fyrirvinnan eftir sem áður. Björn mun þó ekki hafa haft mikil samskipti við móður og syst- kini, þótt styttra væri á milli, því að illfært var í Hvanndali bæði á landi og af sjó mestan hluta árs, ef út af bar með veður. Bjöm sótti sjó með Sigurði bónda, stutt var á mið og afli oft góður. Þegar haustaði, jafnvel að enduðum ágústmánuði, varð ekki róið sökum brims. í Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalín segir svo (1712): „Heimræði brúkaðist hér á sumur, var þó lendingin vond og skips- uppsátrið enn verra, framan í einum háfum bakka, sem því var þó öngvan veginn óhætt fyr- ir sjáfargangi, brotnaði fyrir því margur bátur.“ Þá höfðu Hvanndalir verið í eyði í 30 ár. Af þessu leiddi, að síðsumars þurfti að vera til nægilegt bjargræði til vors. Sauðbeit var góð, ær mylkar til jóla, jafnvel lengur. Engin klukka var á heimili Hvanndalshjóna, eigi heldur eldspítur, og var það bagalegra, sem brátt mun sagt. Sjaldgæft var, að gesti bæri að garði á vetrum, helst þó selaróðramenn. Eins og nú gat voru eldspýtur ekki til í Hvanndölum, og var svo víðar á kotbæjum. Því þurfti að fela eld svo, að til hans mætti taka, er á þurfti að halda. Svo bar víð í Hvanndölum að eldur dó í hlóðum Bjargar. Var það að vorlagi, veður gott og auð jörð. Næsti bær við Hvanndali var Vík í Héðinsfirði. Um tvær leiðir var að ræða þangað og báðar torfærar. Önnur liggur um snarbrattar Hvanndalaskriður með hengiflugi fyrir neðan, „lítt fær glæfravegur“ segir séra Jón Sveinsson í samtíma lýsingu. Hin lá efitir fjörunni, en þar verður ekki farið nema kvikulítið sé og á hálf- föllnu, þar eð fyrir tvo forvaða verður að vaða. Björn átti að sækja eldinn að Vík og fara Hvanndalaskriður, enda var e'kki önnur leið fær eins og á stóð. Að sögn Bjöms gekk ferð- in greiðlega út í Héðinsfjörð. Hann fékk eldinn og bar í trékollu eða kirnu. Á heimleiðinni tók eldurinn að læsast í tréð, og fékk bamið ekki við neitt ráðið. Hvataði hann förinni sem mest, enda mikið í húfi. Þegar skammt var eftir veg- arins, tók kollan mjög að brenna í hendi hans, og komst hann naumlega með hana logandi og munaði mjóu, að hann yrði að varpa henni frá sér. Fyrir sakir harðneskju Bjöms snarkaði eld- ur aftur í hlóðum Bjargar í Hvanndölum. Þetta atvik lýsir Birni nokkuð. Og minningin um þessa glæfraför yljaði honum ellimóðum. Hafði hann gaman af að rifja upp eldsóknina - og hló þá dátt. Þótt ekki komi beint við þessa sögu, þykir þó hlýða að geta annarrar eldsóknar á þessu bæ: Guðrún hét kona Þórarinsdóttir og varð síðar mágkona Bjöms frá Botni. Hún bjó í Hvann- dölum 1854-1859 ásamt manni sínum Einari Ásgrímssyni. Það var að vorlagi að Guðrún var sem oftar ein heima með bömin, en bóndi henn- ar í hákarlalegu. Slokknaði eldur hjá henni. Um annað var ekki að ræða en sækja hann til næsta bæjar, Víkur í Héðinsfirði. Guðrún átti 3 börn á palli, hið yngsta tæplega ársgamalt. Tvö eldri börnin batt hún vð rúmstuðul, en hið yngsta lét hún í poka og batt á bak sér. Bað hún guð varð- veita bömin, sem eftir urðu, og hélt úr hlaði. Kvikulítið var og vel stóð á sjó, því ákvað hún að fara fjöruleiðina, sem áður er nefnd, en vaða þurfti hún fyrir báða forvaðana. Ferðin gekk að óskum, þær mæðgur fengu hinar bestu viðtökur í Vík. Bjöm Skúlason bóndi þar hratt fram báti og skilaði Björgu aftur inn í Hvanndalafjöru. Allt tókst svo sem til var stefnt. „Bandingjamir" höfðu verið rólegir heima, komabaminu varð ekki meint af volkinu, og Guðrún geymdi aftur elds undir felhellunni og lét sér annt um. Þau Björg og Sigurður urðu ekki mosavaxin í Hvanndölum, fóm byggðum í Kvíabekk í 01- afsfirði 1845. Litlu síðar mun Sigurður hafa lát- izt, en Bjöm fluttist yfir um fjörð ásamt fóstru sinni, að Svæði til Maríu Sæmundsdóttur. Sonurinn hafði í veganesti góðan vitnisburð frá presti sínum, heim kominn auðugur af margs háttar lífsreynslu. Fær í flestan sjó í bókstaflegri merkningu. Kristján bróðir hans var farinn að heiman í vinnumennsku. Sigmundur var einnig úrhreiðrinu floginn. Sigurður Jóhannesson stóð fyrir búi sem fyrr og þess skammt að bíða, að í ástir drægi með Sigurlaugu systur Björns og honum. Dauðinn gleymir engum. Hann kvaddi enn einu sinni dyra hjá Maríu Sæmundsdóttur. Það var á vordögum 1847. Sigmundur sonur henn- ar fór í fiskiróður hinn 24. júní ásamt tveimur mönnum öðrum. Hvalur hvolfdi bátnum og tveir drukknuðu, annar var Sigmundur. Það átti ekki af Maríu að ganga, en hún lét ekki bug- ast fremur en fyrr. En skyldi ekki hafa hvarfl- að í hug henni, að hún mundi einnig sjá á eftir Kristjáni og Bimi í sjóinn? Hún lifði það að sjá á bak Kristjáni: Hinn 11. apríl 1862 fóru nokkrir Svalbarðsströndungar á sexæringi til Akureyr- ar. Þar var í för Kristján Jónsson frá Botni, þá til heimilis á Breiðabóli. Þegar heim skyldi halda, var „veður á útsunnan með éljagangi og gekk að með hviðum. Þeir undu upp segl ... og skilaði þeim fljótt út Pollinn", en skyndilega hvolfdi bátnum í snarpri vindhviðu. Kristján drukkn- aði og þrír aðrir. Þá höfiðu allir synir Maríu frá Botni drukknað - nema Björn. Sjálf lifði hún enn nokkur ár. Hún lézt hjá Sigurlaugu dóttur sinni og tengdasyni í Miðgerði í Dalvmynni 2. apríl 1870, og þótti hafa verið hin mesta hetja og mannkostamikil.

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.