Norðurslóð - 17.12.2015, Page 3
Norðurslóð - 3
Tímamót
Skírnir
Þann 22. nóvember var skírð í Dalvíkurkirkju Sigríður Soffía. Foreldrar
hennar eru Ævar Bóasson og Elín María Jónsdóttir. Þau eru búsett á
Hafnarbraut 8 620 Dalvík. Sr. Oddur Bjami skírði.
Þann 21. nóvember vom skírðir tvíburamir Viktor Laerkas Húnason
og Vilma Laerkas Húnadóttir í Glerárkirkju á Akureyri. Foreldrar
em þau Húni Heiðar Hallsson (frá Skáldalæk) og Laerkas Lina Teresia
Eriksson, en þau em búsett í Skriðugili 5. Sr. Oddur Bjami skírði.
Afmæli
Þann 3. des varð 80 ára
Valdimar Kjartansson,
Klapparstíg 2, Hauganesi.
Þann 10. des varð 80 ára,
Guðríður Bogadóttir
Brimnesbraut 21, Dalvík.
Andlát
Þann 23. nóv s.l. lést á Dalbæ, Dalvík Jóhann
Kristinn Daníelsson (Jói Dan), kennari og
söngvari. Jóhann fæddist 18. nóvember 1927 að
Syðra-Garðshomi í Svarfaðardal, sonur hjónanna
Daníels Júlíussonar frá Syðra-Garðshomi, (1891-
1978) og Önnu Jóhannsdóttur, (1893-1988) frá
Brekkukoti í Svarfaðardal. Jóhann ólst upp í Syðra-
Garðshomi ásamt fjómm systkinum; Steinunni,
(f. 1919, látin), Jóhönnu Maríu, (f. 1921, látin),
(Júlíusi Jóni, (f. 1925), og Bimi Garðars, (f. 1932).
Jóhann kvæntist 1962 Gíslínu Hlíf Gísladóttur frá Eyvindarstöðum í
Blöndudal, (1935-2009). Jóhann og Gíslína eignuðust þrjú böm, en
fyrir átti Gíslína dreng: 1) Yngvi Öm, (f. 1956), 2) Anna Guðlaug,
(f. 1962). 3) Gísli Már, (f. 1967). 4) Aðalbjörg Kristín, (f. 1971)
9
Jóhann lauk gagnfræðaprófi á Akureyri 1946 og íþróttakennaraprófi
frá íþróttakennaraskóla Islands 1949. Hann var við nám í Jærens
Folkehöjskola á Jaðri í Noregi og Statens Gymnastikkskole í Ósló
1951-1952. Jóhann lauk söngkennaraprófi frá Kennaraskóla Islands
1959. Hann var íþróttakennari á Blönduósi og víðar 1949-56, á
Ólafsfirði 1956-57 og sá um söngkennslu á Dalvík 1957-63, nema
veturinn 1958-59 er hann var íþróttakennari í Reykjavík. Jóhann var
kennari við Oddeyrarskóla á Akureyri 1964-74, en þá flutti hann öðru
sinni með fjölskyldu sinni til Dalvíkur þar sem hann kenndi tónlist og
varð meðal annars formaður Tónlistarskóla Dalvíkur. Hann varð síðar
bókasafnsvörður í Dalvíkurskóla til ársins 2000.
Jóhann söng fyrst opinberlega níu ára gamall og kom víða fram sem
einsöngvari með karlakórum og fleirum. Hann söng nær óslitið frá 16
ára aldri með ýmsum kómm víðs vegar um landið og var heiðursfélagi
Karlakórs Dalvíkur. Þrjár plötur vom útgefnar með söng Jóhanns; Hann
tók þátt í leiklistarlífi Akureyrar og Dalvíkur í gegnum árin með söng
og leik og átti hlutverk í myndinni Land og synir, þar sem hann söng
eftirminnilega lagið „Við íjallavötnin fagurblá“.Jóhann var jarðsunginn
frá Dalvíkurkirkju 6. desember s.l.
Þann 25. nóvember s.l. lést á Sjúkrahúsi Akureyrar
Gunnar Kristmann Rögnvaldsson. Gunnar fæddist
16. september 1915 í Dæli í Skíðadal. Foreldrar hans
vom Ingibjörg Ámadóttir frá Dæli (1888 -1982), og
Rögnvaldur Tímotheus Þórðarson, frá Hnjúki (1882-
1967). Árið 1945 kvæntist Gunnar eiginkonu sinni
til 70 ára, Kristínu Óskarsdóttur, (1920-2015) Böm
þeirra em: Hilmar, (1945-2014). Ragnar Ingvar,
(f. 1949), Margrét Berglind (f. 1953), Óskar Snæberg, (f. 1959) og
Friðrika Eygló, (f. 1962). Afabömin em níu talsins og Langafabömin
em einnig níu.
Gunnar ólst upp í Dæli hjá foreldmm sínum og í stómm systkinahópi.
Alls vom Dælissystkinin 11 auk einnar uppeldissystur, Jóhönnu sem
er látin. Þau eru: Ámi Marinó, látinn, Guðlaug Halldóra, látin, Jón
Kristinn, látinn, Lilja, látin, Þórdís, látin, Rögnvaldur, látinn, Snorri
Þór, látinn, Hörður, búsettur í Hafnarfirði, Ármann, búsettur í Syðri-
Haga á Árskógsströnd og Auður, búsett í Reykjavík.
Gunnar vann öll almenn sveitastörf á heimili foreldra sinna fram að
fullorðinsárum. Hann var einn vetur við nám í Reykholti í Borgarfirði,
síðan við múrverk á Drangsnesi í Strandasýslu og einnig starfaði hann
á Akureyri. Gunnar bjó á Hnjúki í Skíðadal í félagsbúi með Kristni
bróður sínum 1942-1947 en þá tóku þau Kristín við búi í Dæli þar sem
þau bjuggu alla sína búskapartíð. Um skeið bjuggu þau í félagsbúi við
Hilmar son sinn en eftir að Óskar, yngsti sonur þeirra tók við jörðinni,
bjuggu þau þar áfram með nokkrar kindur. Þau fluttu til Dalvíkur 2008
og á Dalbæ fyrir réttu ári. Gunnar var um tíma formaður Búnaðarfélags
Giftu sig á tindi Kerlingar
Þann 17. júní 2015 voru gefin
saman á tindi Kerlingar í
Svarfaðardal þau Ásta Hrönn
Jónasdóttir og Aðalstcinn
Baldursson. Prestur var séra
Guðmundur Guðmundsson
héraðsprestur. Heimili þeirra er
að Pílutúni 1 Akureyri.
Ásta og Aðalsteinn em mikið
íjallafólk. Hún er m.a. meðlimur í
24x24 klúbbnum og hefur hlaupið
nokkmm sinnum á 24 tinda
Glerárdals á innan við 24 tímum,
gengið tinda Látrafjalla enda á
milli og klifið Hraundranga svo
fátt eitt sé nefnt. Þá þekkja þau
fjalllendi Svarfaðardals mætavel og
hafa gengið hér margsinnis. Ásta
segist hafa komið oft í Tungufell
á yngri árum þegar frænka
hennar Elíngunnur Þorvaldsdóttir
frænka hennar bjó þar ásamt
Friðgeiri Jóhannssyni og bömum
þeirra. Kerlingin á því sérstakt
heiðurssæti í hugum þeirra hjóna.
Því varð það úr þegar þau ákváðu
Guðmundur héraðsprestur
gefur brúðhjónin santan á tindi
Kerlingar.
Til hliðar: Asta og Aðalsteinn
komin niður á jafnsléttu
að láta pússa sig saman, að gera
það á tindi Kerlingar. Haft var
samband við Jökul Bergmann
sem útvegaði þyrlu til fararinnar.
Hinn Sænski flugkappi Jóhann
skilaði brúðhjónunum tilvonandi,
prestinum og tveim vottum með
glæsibrag upp á tindinn í ágætu
veðri og allt gekk eins og best verður
á kosið. Guðmundur héraðsprestur
gerði sér m.a.s. lítið fyrir og gaf þau
saman í bundnu máli að sögn Ástu.
r
Aœtlun Ferðafélags Svarfdœla árið 2016
Nýársganga (1 skór)
1. jamiar, kl. 13 frá Kóngsstöðum í
Skíðadal. Arleg ferð á gönguskíðum
eða tveimur jafnfljótum að
gangnamannahúsinu Stekkjarhúsi. 3-4
klst.
Flæðar að Hrísatjörn-gönguskíðaferð
(1 skór)
ö.febrúar, kl. 10 frá Olís, Daivík. Gengið á
gönguskíðum um flæðamar að Hrísatjöm
og til baka.
Þorvaldsdalur-gönguskíðaferð (1 skór)
5. mars, kl. 10 frá Olís, Dalvík. Ekið að
Arskógsskóla. Gengið á gönguskíðum
fram og til baka að skálanum Derri, í
vestanverðum Þorvaldsdal.
Hamarinn og Hánefsstaðareitur-
gönguskíðaferð (1 skór)
2. april, kl. 10 frá gömlu malamámunum
norðan við Skáldalæk.
Gengið upp á Hamarinn að Sökku,
niður í Hánefsstaðareit og niður á
bakka Svarfaðardalsár, norður yfir
Saurbæjartjöm og hringnum iokað við
Skáldalæk. 7-8 km.
Mosi-gönguskíðaferð (2 skór)
7. mai, kl. 10 frá skíðasvæðinu við
Brekkusel á Dalvík. Verð: 300 kr.
aðstöðugjald í Mosa. Farið upp
með skíðalyftunni og skíðað fram
Böggvisstaðada! í Mosa, skála félagsins
í botni dalsins. Hægt að gista þar. 18 km
fram og til baka.
Hamarinn (1 skór)
8. júní, kl. 17:15. Fyrstamiðvikudagsganga
sumarsins. Mæting við Dalvíkurkirkju
þaðan sem ekið verður að bænum Sökku
og gengið yfir Hamarinn að bænum
Hamri. 2 klst.
Skógarganga um Háncfsstaðareit
(1 skór)
15. júní, kl. 17:15 frá Dalvíkurkirkju.
Ekið að Hánefsstaðareit og gengið um
útivistarsvæðið. 2 klst.
Friðlandið Svarfdæla(l skór)
22.júní, kl. 17:15 frá Olís, Dalvík. Gengið
eftir merktri leið um Friðland Svarfdæla
að Húsabakka. Athugað verður með að
skoða sýninguna Friðland fuglanna að
t
Innilegar þakkir fýrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför kærrar frænku
okkar
Jóhönnu Gunnlaugsdóttur,
Dalbæ, Dalvík.
Sérstakar þakkir til starfifolks Dalbæjar fýrir einstaka
umönnun og vináttu. Fyrir hönd aðstandenda:
Þórir Stefánsson,Alma Stefánsdóttir, Friðjón Kristinsson
Svarfdæla, sat í hreppsnefnd Svarfaðardalshrepps um árabil, starfaði
í markadómi og sinnti forðagæslu fyrir sveitarfélagið. Hann söng í
kórum og var virkur í félagslífi allt til dánardægurs. Útför Gunnars var
gerð frá Dalvíkurkirkju 7. desember s.l.
Þann 8. des lést á Dalbæ, Matthías Jakobsson. Útför
hans var gerð frá Dalvíkurkirkju 14. desember.
Hans verður minnst í næsta blaði
Þann 4. des. lést að heimili sínu, Böggvisbraut 11,
Guðmundur Ingi Jónatansson. Útför hans var gerð
frá Dalvíkurkirkju 16. des sl.
Hans verður minnst í næsta blaði
göngu lokinni. 2-4 klst.
Melrakkadalur (1 skór)
29. júní, kl 17:15 frá Dalvíkurkirkju.
Gengið yfir brú á Brimnesá upp í minni
Upsadals og þaðan eftir stikaðri leið að
Steinkirkjunni. 2-3 klst.
Umhverfis Stórhólstjörn (1 skór)
6. júlí, kl 17:15 frá Dalvíkurkirkju.
Krakkaferð umhverfls Stórhólstjöm með
pabba, mömmu, afa og ömmu. 2 klst.
Böggvisstaðafjall ofan Dalvíkur (2 skór)
13. júlí, kl. 17:15 frá Dalvíkurkirkju.
Gengið eftir nýstikaðri leið á
Böggvisstaðafjall. 4 klst.
Skriðukotsvatn (1-2 skór)
20. júlí, kl. 17:15 frá Dalvíkurkirkju.
Ekið að bænum Hofsárkoti. Gengið
meðfram Skriðukotslæknum upp að
Skriðukotsvatni. 3 klst
Böggvisstaðadalur-Upsadalur (1 skór)
27. júlí, kl. 17:15 frá Dalvíkurkirkju.
Gengið fram Böggvisstaðadal eftir
stikaðri leið að Kofa. Farið yfir göngubrú
á Brimnesá og stikum fylgt niður
Upsadalinn til baka. 3-4 klst.
Drangar (2 skór)
13. ágúst, kl. 10 frá bænum Hóli norðan
Dalvíkur. Gengið verður eftir slóð fram
Hólsdalinn. Karlsáin stikluð innarlega
í dalnum, gengið yfir Drangaskarðið
og áfram niður Burstabrekkudal niður í
Ólafsfjörð. 5-6 klst.
Nýársganga (1 skór)
1. janúar 2017, kl. 13 frá
Kóngsstöðum í Skíðadal. Árleg ferð á
gönguskíðum eða tveimur jafnfljótum að
gangnamannahúsinu Stekkjarhúsi. 3-4
klst.
Sendi ðllum sóknar-
börnum Dalvíkur-
prestakalls
innilegar óskir um
Gleðilegjól, og gæfu á
komandi ári.
Sr. Magnús G. Gunnars-
son sóknarprestur