Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2016, Blaðsíða 35
Helgarblað 3.–6. júní 2016 Lífsstíll 23
Dalvegur 6-8 • 201 Kópavogur • Sími 535 3500
Draupnisgata 6 • 603 Akureyri • Sími 535 3526
www.kraftvelar.is • kraftvelar@kraftvelar.is
IVECO Da
ily 4x4
- tilbúinn
í hvað se
m er!
Lambhúshettan Búkolla
Prjónauppskrift úr nýrri bók Prjónafjelagsins
F
orlagið gaf nýverið út bókina
Leikskólaföt, en í henni eru
14 uppskriftir að fallegum
prjónafötum fyrir börn á leik-
skólaaldri. Höfundar bók-
arinnar eru þær Eva Mjöll Einars-
dóttir, G. Dagbjört Guðmundsdóttir,
Heiðrún Erla Guðbjörnsdóttir og
Sigur laug Elín Þórhallsdóttir, en
saman mynda þær Prjónafjelagið.
Allar eru þær þaulvanar prjónakonur,
en Dagbjört rekur að auki Litlu
prjónabúðina að Faxafeni 9.
Okkur er sönn ánægja að birta
hér eina uppskrift úr bókinni. Lamb-
húshettan Búkolla minnir okkur á
gamla tíma. Margir sem eru fæddir
fyrir upphaf níunda áratugar síðustu
aldar eiga að minnsta kosti ljósmynd
af sér með lambhúshettu! n
Búkolla - lambhúshetta
Hönnun: Heiðrún Erla Guðbjörnsdóttir
Stærðir: 1–2 ára (3–4 ára) 5–6 ára
Lengd (cm): 27–29 (30–32) 33–35
Dýpt með stroffi (cm): 18 (19) 20
Ummál á stroffi við andlit (cm): 24 (28) 32
Efni:
Merino Soft DK – 50 g/125 m
A – túrkis 2 (2) 2
B – dökkblár 1 (1) 1
Áhöld:
Sokkaprjónar eða hringprjónn nr. 4, 40 cm eða
lengri (ef „magic loop“-aðferðin er notuð)
Prjónfesta:
10 x 10 cm munsturprjón = 20 L og 26 umf. Sannreynið
prjónfestu og skiptið um prjónastærð ef þarf.
Aðferð
Prjónað er stroff í hálsmáli, svo tekur munsturprjón við, fellt er af við höku. Prjónað er
munsturprjón fram og til baka og að lokum er lykkjað saman ofan á kolli. Lykkjur eru teknar
upp við andlit og prjónað stroff. Kantar stroffsins eru saumaðir saman við affellingu við
höku.
Stroff í hálsmáli
Fitjið upp 80 (88) 96 L með lit A og tengið í hring. Prjónið 2x2 stroff alls 6 (7) 8 cm.
Húfan að hökuaffellingu
Prjónið 1 umf sl og takið um leið úr 12 L jafnt yfir umf = 68 (76) 84
L. Þessi umf er jafnframt sú fyrsta í munsturprjóni (mp) hér í
næsta skrefi. Prjónið mp (gengur upp í 4 L). Prjónið 1.–5. umf
sl. 6. umf: Prjónið 1 L sl, fellið niður næstu L (gerið lykkju-
fall) þannig að fjögur bönd séu fyrir ofan hana, prjónið
niðurfelldu L og böndin fjögur saman, prjónið 3
L. Endurtakið frá * til * út umf, athugið að umf
endar á 2 sl L. Prjónið 7.–11. umf sl. 12. umf:
Prjónið 3 L sl, fellið niður næstu L þannig
að fjögur bönd séu fyrir ofan hana, prjónið
niðurfelldu L og böndin fjögur saman.
Endurtakið frá * til * út umf. Prjónið mp 3
(4) 5 cm.
Húfan eftir hökuaffellingu
Lesið þessa málsgrein áður en haldið er
áfram að prjóna. Í upphafi umf skal fella af
11 L undir höku og hafið þá umf annaðhvort
í 2. eða 8. umf mp svo 6. og 12. umf verði
prjónaðar sl á réttunni. Prjónið mp áfram út
umf, athuga þarf að byrja á réttum stað í mp
aftur eftir affellingu. Samkvæmt munstri ætti
að byrja á að fella niður L í byrjun umf, prjónið
hana hins vegar sl án þess að fella hana
niður (prjónið 4 L í byrjun, fellið niður
L, prjónið 3, fellið niður, prjónið
3 o.s.frv.). Þá er auðveldara að
prjóna upp L þegar stroff við
andlit er prjónað. Prjónið mp
fram og til baka, sl á réttu
og br á röngu þar til stykkið
mælist 21 (23) 25 cm frá
hökuaffellingu. Lykkið
saman ofan á kolli eftir f
yrstu umf mp.
Stroff við andlit
Takið upp lykkjur til
hliðar og ofan við andlit
með aðallit, 20 L á
hverja 10 cm en skiljið af-
felldu L undir höku eftir,
stroffið verður saumað
niður þar. Prjónið 1x1
stroff með uppteknu
lykkjunum, samtals 5
umf. Skiptið yfir í lit B,
prjónið 5 umf. Skiptið yfir í
lit A og prjónið 4 umf. Fellið
laust af; sl prjón ef fellt er af
á réttunni en br á röngu.
Frágangur
Fellið annan hluta stroffs yfir hinn
eins og það nær án þess að teygja
það til og saumið við affelldu L við
höku. Gangið frá endum, skolið og
leggið til þerris.
Góð á leikskólann
Lambhúshettur minna okkur á
gamla tíma. Á áttunda áratug
síðustu aldar voru allir krakkar
með þær. MynDir ÍriS DöGG EinarSDóttir
Bókarkápan Það er
tilvalið að nota sumarið í að
prjóna falleg leikskólaföt
fyrir haustið.ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is