Morgunblaðið - 14.01.2017, Side 1
LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017
ÍÞRÓTTIR
Aukamaðurinn Sífellt fleiri handboltalið beita þeirri leikaðferð að leika án markvarðar og bæta við auka-
manni í sókninni. Skiptar skoðanir um málið. Ekki góð þróun fyrir íþróttina? Tilraunarinnar virði? 2-3
Íþróttir
mbl.is
HANDBOLTI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Forsvarsmenn tékkneska handknattleiks-
sambandsins hafa borið víurnar í Adam Hauk
Baumruk, leikmann Íslandsmeistara Hauka í
handknattleik. Þeir hafa kannað hug hans til
þess að gefa kost á sér í tékkneska landsliðið.
Þetta hefur Morgunblaðið samkvæmt heim-
ildum.
Adam Haukur mun velta málinu alvarlega fyr-
ir sér og mun það m.a. vera ein ástæða þess að
hann gaf ekki kost á sér með B-landsliðinu sem
þessa daga leikur vináttulandsleiki við Græn-
lendinga hér á landi. Hann hlaut ekki náð fyrir
augum Geirs Sveinssonar landsliðsþjálfara þeg-
ar 28 manna hópurinn fyrir HM í Frakklandi
var valinn í byrjun desember.
Adam er af tékknesku bergi brotinn, en for-
eldrar hans, Jaroslava og Petr Baumruk fædd-
ust í Tékkóslóvakíu, en hafa búið hér á landi í
um aldarfjórðung ásamt börnum sínum þremur.
Adam er fæddur og uppalinn hér á Íslandi og er
íslenskur ríkisborgari eins og foreldrar hans og
systkini. Petr lék um langt árabil með Haukum.
Adam hefur á síðustu árum verið helsti burð-
arás Hauka jafnt í vörn sem sókn. Hann á að
baki landsleiki með yngri landsliðum Íslands en
hefur aðeins leikið einn A-landsleik, gegn Portú-
gal í Kaplakrika 7. janúar á síðasta ári.
Samkvæmt reglum Alþjóðahandknattleiks-
sambandsins verða að líða tvö ár frá því að
handknattleiksmaður tók þátt í kappleik fyrir
sitt fyrra landslið þar til hann verður gjald-
gengur með öðru landsliði auk þess sem hann
verður að skipta um ríkisfang eða að hafa tvöfalt
ríkisfang eins og mögulegt er sumstaðar.
Leikur Adam með Tékkum?
Tékkar hafa áhuga á að Haukamaðurinn gefi kost á sér í landslið þeirra
Í METZ
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Íslendingar spila ákaflega þýðingarmikinn leik í
dag þegar þeir etja kappi við Slóvena í öðrum leik
sínum á heimsmeistaramótinu í handknattleik í
Metz í Frakklandi. Slóvenar áttu þægilegan leik í
fyrrakvöld. Þeir þurftu ekki að hafa mikið fyrir 17
marka sigri gegn Angólamönnum en Íslendingar
töpuðu með sex marka mun fyrir Spánverjum.
Skörð hafa verið höggvin í slóvenska liðið eins
og það íslenska en lykilmenn Slóvena undanfarin
ár, Uros Zorman og Dean Bombac, eru meiddir
og Dragan Gajic er hættur.
,,Ég er ekkert stífari eða stirðari heldur en
gengur og gerist,“ sagði Arnór Atlason í samtali
við Morgunblaðið fyrir æfingu liðsins í Metz í
gær.
Komnir skrefinu lengra
í uppbyggingarferlinu
,,Nú erum við búnir að afgreiða Spánarleikinn
og öll einbeitingin er kominn á leikinn við Slóven-
ana. Við sáum þá spila tvo hörkuleiki á móti
Frökkum og þetta er bara hörkulið sem við erum
að fara að mæta. Slóvenarnir eru kannski komnir
skrefinu lengra heldur en við í uppbyggingarferl-
inu og þeir eru virkilega verður andstæðingur.
Hvort sem þessi leikur vinnst eða tapast þá eigum
við þrjá hörkuleiki eftir en næsti leikur er alltaf sá
mikilvægasti. Sigur kemur okkur í góða stöðu og
við munum gera allt til þess að ná í þessi tvö stig
sem myndi gefa okkur mikið upp á sjálftraustið,“
sagði Arnór.
Þetta verður 19. landsleikur þjóðanna en í leikj-
unum 18 hingað til hafa Íslendingar unnið 9 leiki,
Slóvenar 5 en fjórum sinnum hefur jafntefli orðið
niðurstaðan. ,,Slóvenar hafa staðið sig vel á síð-
ustu mótum, þetta er alvörulið sem hefur marga
frábæra handboltamenn í sínum röðum og það er
alveg ljóst að við þurfum að framkalla góðan leik í
vörn og sókn og skila góðri markvörslu ef við ætl-
um okkur sigur,“ sagði Arnór sem í dag leikur
landsleik númer 189.
Ungu strákarnir engir farþegar
,,Við náðum að gera marga góða hluti í leiknum
við Spánverjana og við tökum þá með okkur í leik-
inn gegn Slóvenunum. Ungu strákarnir voru flott-
ir. Þeir eru engir farþegar og eru hér til hjálpa lið-
inu,“ sagði Ásgeir Örn Hallgrímsson við
Morgunblaðið.
,,Það kom okkur á óvart þegar við fórum yfir
Spánarleikinn að við vorum ennþá vel inni í hon-
um þegar korter var eftir en vandræðin voru í
sóknarleiknum þar sem við skoruðum aðeins níu
mörk í hálfleiknum. Mér finnst alveg vera inni-
stæða fyrir sigri á móti Slóvenunum. Þeir eru með
allt öðruvísi lið heldur en Spánverjarnir og
breiddin hjá þeim er ekki eins mikil og áður. Ef
við náum að halda vörninni góðri allan tímann og
náum að stoppa fyrstu línuna hjá þeim þá er mikið
unnið. Við erum ekkert með æðislegt skotpúður
fyrir utan og því er mikilvægt að fá mörk úr
hraðaupphlaupum og úr seinni bylgjunni,“ sagði
Ásgeir Örn, sem skoraði eitt mark úr þremur
skotum í leiknum á móti Spánverjunum í fyrra-
kvöld. ,,Nú hleð ég í byssuna og læt vaða á mark-
ið,“ sagði Hafnfirðingurinn örvhenti sem leikur í
dag sinn 239. landsleik.
„Nú hleð ég í byssuna“
Íslendingar mæta Slóvenum í afar þýðingarmiklum leik á HM í handknattleik
í Metz í dag Sigur kemur okkur í góða stöðu, segir Arnór Atlason
AFP
Metz Arnór Atlason og Julen Aguinagalde í leik Íslands og Spánar í fyrstu umferðinni í fyrrakvöld.
Þrír íslenskir þjálfarar stýrðu lið-
um sínum til sigurs á heimsmeist-
aramóti karla í handbolta í gær, en
leikið var í þremur riðlum. Guð-
mundur Guðmundsson og hans
menn í ólympíumeistaraliði Dan-
merkur unnu stórsigur á Argent-
ínu, 33:22, í D-riðli. Niklas Landin
átti góðan leik og varði helming
skota sem á danska markið komu,
og litli bróðir hans, Magnus Landin,
vakti nokkra athygli fyrir frammi-
stöðu sína í sínum fyrsta leik á stór-
móti, en hann skoraði úr öllum fjór-
um skotum sínum. Mikkel Hansen
var markahæstur með 6 mörk.
Guðmundur dreifði álaginu vel á
leikmenn sína sem eiga snúinn leik
gegn Egyptum fyrir höndum í
kvöld. Egyptar unnu silfurlið síð-
asta heimsmeistaramóts, Katar,
22:20, og í þriðja leik D-riðilsins
stýrði Kristján Andrésson Svíum til
stórsigurs á Barein, 33:16.
13 mörk eftir föðurmissinn
Lærisveinar Dags Sigurðssonar í
Evrópumeistaraliði Þýskalands
unnu Ungverja, 27:23, í C-riðli.
Uwe Gensheimer, sem óvíst var að
yrði með í fyrsta leik eftir að faðir
hans féll frá um síðustu helgi, skor-
aði 13 mörk fyrir Þjóðverja, þar af
úr öllum 8 vítum sínum.
Laszlo Nagy meiddist í ökkla og
lék ekkert í seinni hálfleik fyrir
Ungverja, en staðan í hléi var 16:11
fyrir Þýskaland: „Við græddum á
því að Nagy skyldi detta út og Ung-
verjar breyta sinni áætlun. En við
lékum illa í byrjun fyrri hálfleiks og
í upphafi þess seinni. Forskotið lét-
um við þó ekki af hendi,“ sagði
Dagur eftir leik.
Síle vann sinn fyrsta sigur frá
upphafi gegn Evrópuliði þegar liðið
vann Hvíta-Rússland, 32:28. Hvít-
Rússar voru yfir, 24:21, tólf mín-
útum fyrir leikslok en þá sneru
Sílebúar leiknum sér í vil. Króatar
unnu svo Sádí-Arabíu, 28:23, í
þriðja og síðasta leik C-riðilsins.
Heimsmeistarar Frakka unnu
annan stórsigur í eina leiknum í A-
riðli í gær, 31:19 gegn Japan. Þeir
höfðu áður unnið Brasilíu 31:16.
sindris@mbl.is
Íslensku
þjálfararnir
byrjuðu vel
AFP
Sigur Mikkel Hansen og félagar
fögnuðu afar öruggum sigri.