Morgunblaðið - 14.01.2017, Page 2
AUKAMAÐURINN
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Ég er ekki ánægður með þessa nýju reglu
um aukamann í sókn. Ég tel að hún strípi
leikinn og geri hann einfaldari. Ég sé þegar
merki þess,“ sagði Gunn-
ar Magnússon, þjálfari
Íslandsmeistara Hauka í
handknattleik karla, um
skoðanir sínar á reglunni
um sjöunda sókn-
armanninn sem kom í
handboltareglurnar á
síðasta ári.
Breytingin hefur þeg-
ar sett sinn svip á hand-
knattleikinn, bæði hér
heima og utanlands. M.a.
sagði Guðmundur Þórður Guðmundsson,
landsliðsþjálfari Dana, eftir sigurinn á Ól-
ympíuleikunum í Ríó, að danska liðið hefði
komið Frökkum í opna skjöldu í úrslitaleik
leikanna með því að nýta sér það að hafa sjö
leikmenn í sókninni.
Ekki lengur hægt að brjóta upp leikinn
„Fyrst og fremst er ekki lengur hægt að
brjóta upp leikinn eins og áður. Sem dæmi
má nefna að þá er mjög erfitt að leika 4/2
vörn eða fimm plús einn vörn, svo dæmi sé
tekið. Andstæðingurinn bregður þá strax á
það ráð að bæta sjöunda manninum við í
sóknina sem neyðir varnarliðið til þess að
bakka niður í sex núll vörn.
Einnig gerir þessi regla það að verkum að
hún dregur úr vægi tveggja mínútna refs-
ingar. Í þriðja lagi þá þykir mér handboltinn
verða leiðinlegri á að horfa með aukamanni
vegna þess að allir leika eins,“ segir Gunnar
sem hefur rætt um þessar breytingar við
starfsbræður sína hér á landi. Enginn þeirra
telur þessa breytingu vera handboltaíþrótt-
inni til bóta. „Þetta er ekki góð þróun. Þetta
er tvímælalaust eitthvað sem ég vildi að væri
hætt við sem allra fyrst, það er að þessi
breyting verði dregin til baka fyrr en síðar,“
segir Gunnar sem telur þessa breytingu á all-
an hátt vera neikvæða fyrir þróun hand-
knattleiksins.
Íþróttin verður einhæfari
„Nú er alveg útilokað mál að brjóta upp
leikinn eins áður var hægt með framliggjandi
varnarleik af hvaða tagi sem er. Maður getur
stýrt andstæðingnum í að leika sex núll vörn
og ekkert annað, svo dæmi sé tekið. Íþróttin
verður öll miklu einhæfari og þar af leiðandi
ekki eins skemmtileg,“ segir Gunnar og
nefnir sem dæmi að í kappleik við ÍBV í vet-
ur hafi Eyjamenn reynt að koma honum og
leikmönnum Hauka í opna skjöldu í upphafi
leiksins með því að taka tvo leikmenn Hauka
úr umferð. „Vissulega kom það mér á óvart
en ég leysti málið strax með því að kalla
markvörðinn af leikvelli og senda sjöunda
sóknarmanninn til leiks, hafði tvo línumenn
og annar fór strax út af um leið og við hófum
árás á vörnina. Eyjamenn urðu að bakka.“
Það er ekki bara hér á landi sem ríkir mikil
óánægja með þessa breytingu. Meðal þjálf-
ara og handboltaáhugafólks á Norðurlönd-
unum og í Þýskalandi ríkir mikil óánægja.
Gunnar segist ekki sjá neina kosti við þessa
breytingu. „Fjölbreytnin í handboltanum
minnkar með þessu. Þetta gerir íþróttina fá-
tæklegri auk þess sem leikurinn verður ekki
eins skemmtilegur.“
Spánarleikurinn Rúnar Kárason og Eduardo Gurbindo í leik Íslands og Spánar á H
„Þetta er
ekki góð
þróun“
Gunnar Magnússon segir breytinguna
strípa handboltann Sér enga kosti
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017
1. deild kvenna
ÍR – Valur U ......................................... 35:17
1. deild karla
Akureyri U – ÍBV U............................. 26:25
Frakkland
Chambray Touraine – Nice ............... 25:21
Karen Knútsdóttir skoraði 2 mörk fyrir
Nice og Arna Sif Pálsdóttir 2.
HANDBOLTI
Njarðvík og Haukar eru aðeins fjórum
stigum frá 4. sætinu í Dominos-deild
karla í körfubolta eftir að bæði lið fögn-
uðu sigri í gær þegar 13. umferð lauk
með tveimur leikjum. Haukar sitja þó
enn í fallsæti, þrátt fyrir öflugan 89:69-
sigur á Grindavík. Njarðvík skellti
Kanalausu liði Snæfells, 99:70, og eru
Snæfellingar enn án stiga, 10 stigum á
eftir næstu liðum og komnir langleið-
ina niður í 1. deild.
Eftir súrt tap í framlengdum leik
gegn Skallagrími í síðustu umferð voru
Haukar með blóð á tönnunum gegn
Grindavík í gær. Svo grimmir voru þeir
reyndar að Sherrod Wright var kom-
inn með fjórar villur eftir 1. leikhluta,
og þeir Finnur Atli Magnússon og Em-
il Barja voru einnig komnir með fjórar
villur hvor fyrir lokafjórðunginn. Þá
var staðan orðin 63:53, en Grindvík-
ingum tókst ekki að búa til spennu á
lokakaflanum. Þess í stað skoraði
Wright, sem fékk að spila eftir góða
hvíld, 15 stig í leikhlutanum og gerði út
um leikinn.
Grimmd Hauka skilaði sér í mun
fleiri fráköstum en þeir tóku 52 fráköst
gegn 38 Grindvíkinga. Finnur Atli og
Hjálmar Stefánsson tóku 12 fráköst
hvor, og skoraði Finnur Atli auk þess
19 stig en Wright var stigahæstur með
24 stig. Lewis Clinch skoraði 22 stig
fyrir Grindavík.
Snæfellingar mættu til leiks í Njarð-
vík án Bandaríkjamanns, eftir að ljóst
varð að Christian Covile fengi ekki at-
vinnuleyfi hér á landi vegna þess að
hann er á sakaskrá í Bandaríkjunum.
Covile var ætlað að leysa af hólmi Sef-
ton Barrett sem yfirgaf Snæfell um
áramótin, en nú stendur botnliðið eftir
án bandarísks leikmanns, tíu stigum á
eftir næstu liðum.
Njarðvík var sex stigum yfir í hálf-
leik, 46:40, en í seinni hálfleik var aldr-
ei spurning hvernig færi.
Myron Dempsey skoraði 21 stig fyr-
ir Njarðvík og Björn Kristjánsson 17,
en allir tólf leikmenn á skýrslu skoruðu
stig fyrir liðið. Viktor Marínó Alexand-
ersson var stigahæstur Snæfells með
20 stig en Árni Elmar Hrafnsson skor-
aði 16 stig. sindris@mbl.is
Grimmir
Haukar unnu
Enn í fallsæti en nálægt 4. sætinu
Morgunblaðið/Golli
Frákast Finnur Atli Magnússon tók heil 12 fráköst í sigri Hauka á Grindavík
í gærkvöld og hefur hér betur í baráttu við Dag Kár Jónsson.
A-RIÐILL:
Frakkland – Japan ............................... 31:19
Staðan:
Frakkland 2 2 0 0 62:35 4
Rússland 1 1 0 0 39:29 2
Noregur 1 1 0 0 22:20 2
Pólland 1 0 0 1 20:22 0
Brasilía 1 0 0 1 16:31 0
Japan 2 0 0 2 48:70 0
Leikir í dag:
13.45 Brasilía – Pólland
16.45 Noregur – Rússland
Leikir á morgun:
16.45 Frakkland – Noregur
19.45 Brasilía – Japan
B-RIÐILL:
Staðan:
Slóvenía 1 1 0 0 42:25 2
Spánn 1 1 0 0 27:21 2
Makedónía 1 1 0 0 34:30 2
Túnis 1 0 0 1 30:34 0
Ísland 1 0 0 1 21:27 0
Angóla 1 0 0 1 25:42 0
Leikir í dag:
13.45 Ísland – Slóvenía
16.45 Túnis – Spánn
19.45 Angóla – Makedónía
Leikur á morgun:
13.45 Ísland – Túnis
C-RIÐILL:
Hvíta-Rússland – Síle .......................... 28:32
Þýskaland – Ungverjaland................. 27:23
Dagur Sigurðsson þjálfar lið Þýska-
lands.
Króatía – Sádi-Arabía .......................... 28:23
Staðan:
Króatía 1 1 0 0 28:23 2
Síle 1 1 0 0 32:28 2
Þýskaland 1 1 0 0 27:23 2
Hvíta-Rússland 1 0 0 1 28:32 0
Ungverjaland 1 0 0 1 23:27 0
Sádi-Arabía 1 0 0 1 23:28 0
Leikur í dag:
19.45 Ungverjaland – Króatía
Leikir á morgun:
13.45 Síle – Þýskaland
19.45 Sádi-Arabía – Hvíta-Rússland
D-RIÐILL:
Katar – Egyptaland ............................. 20:22
Svíþjóð – Barein .................................. 33:16
Kristján Andrésson þjálfar lið Svíþjóðar.
Danmörk – Argentína......................... 33:22
Guðmundur Þ. Guðmundsson þjálfar lið
Danmerkur.
Staðan:
Svíþjóð 1 1 0 0 33:16 2
Danmörk 1 1 0 0 33:22 2
Egyptaland 1 1 0 0 22:20 2
Katar 1 0 0 1 20:22 0
Argentína 1 0 0 1 22:33 0
Barein 1 0 0 1 16:33 0
Leikur í dag:
19.45 Egyptaland – Danmörk
Leikir á morgun:
13.45 Argentína – Svíþjóð
16.45 Barein – Katar
HM Í FRAKKLANDI
AUKAMAÐURINN
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
,,Mér finnst þetta tilraunarinnar virði en
ég er samt ekkert rosalega hrifinn þegar
lið eru jafnvel að spila heilu leikina með sjö
leikmenn í sókn,“ sagði Einar Örn Jónsson,
íþróttafréttamaður á RÚV og fyrrverandi
landsliðsmaður í handknattleik, við Morg-
unblaðið þegar hann var spurður um breyt-
inguna sem hefur í för með sér að liðin eru
sífellt að gera meira af því að taka mark-
vörðinn út af og bæta aukamanni í sóknina
og h
þróu
„V
myn
gera
móti
voru
æfa
það
nána
Þett
frá þ
vanur. Það koma allt öð
irnar vita ekki alveg hv
haga sér og þetta skem
Þetta er t
Breytir leiknum frá því sem maðu
Einar Örn
Jónsson
Dominos-deild karla
Haukar – Grindavík ............................. 89:69
Njarðvík – Snæfell ............................... 99:70
Staðan:
Stjarnan 13 10 3 1115:974 20
KR 13 10 3 1185:1033 20
Tindastóll 13 9 4 1162:1084 18
Þór Ak 13 7 6 1143:1133 14
Þór Þ. 13 7 6 1096:1055 14
Grindavík 13 7 6 1091:1099 14
Keflavík 13 6 7 1125:1114 12
Skallagrímur 13 6 7 1094:1152 12
ÍR 13 6 7 1031:1033 12
Njarðvík 13 5 8 1115:1140 10
Haukar 13 5 8 1111:1098 10
Snæfell 13 0 13 1003:1356 0
1. deild karla
Breiðablik – Hamar.............................. 82:91
Valur – ÍA.............................................. 99:63
Höttur – Ármann................................ 106:79
Fjölnir – FSu ........................................ 99:87
Staðan:
Höttur 13 12 1 1245:989 24
Fjölnir 14 11 3 1359:1117 22
Valur 13 10 3 1316:1028 20
Breiðablik 14 9 5 1289:1097 18
Hamar 14 6 8 1188:1169 12
FSu 15 5 10 1222:1288 10
Vestri 13 5 8 1026:1129 10
ÍA 14 4 10 1024:1257 8
Ármann 14 0 14 892:1487 0
Frakkland
B-deild:
Aix Maurienne – Rouen ..................... 95:84
Haukur Helgi Pálsson skoraði 14 stig
fyrir Rouen, tók 6 fráköst og gaf 4 stoð-
sendingar.
KÖRFUBOLTI
Gunnar
Magnússon