Morgunblaðið - 14.01.2017, Síða 4
HM 2017
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Slóvenar eru með afar sterkt og
skipulagt landslið í handbolta um
þessar mundir. Sigur þeirra á Ang-
ólamönnum í fyrstu umferð riðla-
keppni heimsmeistaramótsins í
fyrradag var stór. Vissulega var
mótspyrna Angólamanna ekki mikil
en hún var næg til þess að þeir
hefðu getað „flækst“ fyrir góðu liði.
Slóvenar fóru í leikinn af miklum
krafti, tóku andstæðinginn alvar-
lega, og sýndu fram á að þeir hafa á
að skipa góðu liði sem er í góðri æf-
ingu.
Slóvenar sendu sterk skilaboð
strax til andstæðinga sinn á heims-
meistaramótinu. Þeir skoruðu 42
mörk en fengu á sig 25 mörk eftir að
hafa slakað talsvert á klónni síðasta
stundarfjórðunginn. Aldrei hefur
landslið Slóvena skorað fleiri mörk í
leik á HM en gegn Angóla á fimmtu-
daginn í Arenes de Metz. Þrettán af
mörkunum 42 voru skoruð eftir
hraðaupphlaup.
Slóvenar eru með afar vel spilandi
lið, jafnt í vörn sem sókn ber þess
merki auk þess sem aginn er svo
sannarlega fyrir hendi undir stjórn
svartfellska Serbans Veselin Vujo-
vic sem hafnaði í sjötta sæti á Ól-
ympíuleikunum í Ríó í sumar. Og
víst er að leikmenn liðsins eru afar
vel á sig komnir líkamlega.
Góður varnarleikur
Þótt leikmenn eins og Uros Zorm-
an og Goran Skof séu fjarri góðu
gamni á heimsmeistaramótinu eiga
Slóvenar úr svo mörgum góðum
leikmönnum að ráða að maður kem-
ur örugglega í manns stað.
Slóvenar hafa yfirleitt framliggj-
andi vörn sem kennd hefur verið við
Júgóslavíu. Slóvenar hafa oftast nær
reynst íslenskum landsliðsmönnum
erfiðir á stórmótum, jafnvel á þeim
árum þegar íslenska landsliðið var
með hvað mestum blóma. Ekki síst
hefur gengið illa að brjóta á bak aft-
ur varnarleik Slóvena, sem er nokk-
uð frábrugðinn þeim varnarleik sem
mörg Evrópulandslið leika.
Fjórir leikmenn landsliðs Slóvena
eru undir 190 sentímetrar á hæð og
þrír yfir tveir metrar, þar á meðal er
Blaz Blagotinsek, línumaður sem er
erfiður viðureignar. Hann er 202
sentímetar og 115 kg en í frábæru
formi.
Spennandi leikmenn
Fleiri spennandi leikmenn eru í
liðinu eins og t.d. stórskyttan Borut
Makovsek, liðsmaður meistaraliðs-
ins Celje Lasko. Einnig örvhenta
skyttan Jure Dolenec sem á dög-
unum skrifaði undir samning við
Barcelona til næstu tveggja ára.
Blaz Janc, tvítugur örvhentur
hornamaður Celje Lasko, hefur vak-
ið mikla athygli í Meistaradeild Evr-
ópu á leiktíðinni. Hann skrifaði í vik-
unni undir samning við Evrópu-
meistara Vive Kielce frá Póllandi.
Slóvenar hafa á að skipa frábærum
leikstjórnanda, Marko Bezjak sem
dags daglega leikur með SC Magde-
burg í Þýskalandi. Einnig er horna-
maðurinn Gasper Marguc enginn
aukvisi frekar en aðrir leikmenn
liðsins enda samherji Arons Pálm-
arssonar hjá ungverska meistaralið-
inu Veszprém. Gamla brýnið Vid
Kavticnik stendur alltaf fyrir sínu.
Markvörðurinn Matevz Skok átti
stórleik í markinu gegn Angóla.
Hann verður örugglega í byrjunar-
liði Slóvena í dag gegn Íslendingum.
Hann leikur með Króatíumeisturum
RK Zagreb.
Hörkuleikir við Frakka
Slóvenar mættu heimsmeisturum
Frakka í tveimur vináttuleikjum um
síðustu helgi og töpuðu báðum, þeim
fyrri 29:27 og þeim síðari 33:26.
Fyrri leikurinn var afar góður af
hálfu Slóvena þótt þeir hafi orðið að
bíta í það súra epli að tapa. „Við
sýndum hversu öflugir við getum
verið þegar flest gengur upp hjá
okkur,“ sagði Jure Dolenec eftir
tveggja marka tapið í leiknum, sem
fram fór í Toulouse. „Varnarleikur
okkar var ekki eins góður í síðari
leiknum,“ sagði Dolenec enn frem-
ur.
„Ég er viss um að við erum klárir
í slaginn á HM í Frakklandi eftir
þann undirbúning sem við höfum
fengið,“ sagði Dolenec.
„Hraður sóknarleikurinn með
grimmum framliggjandi varnarleik
er markmið okkar á HM,“ sagði Vid
Kavticnik í samtali í byrjun vik-
unnar. „Ef það markmið næst er ég
viss um að við eigum í fullu tré við
öll liðin á heimsmeistaramótinu.“
Slóvenar oftast erfiðir
Ísland og Slóvenía mætast á HM í Metz kl. 13.45 í dag Slóvenar sendu
sterk skilaboð í fyrsta leiknum og skoruðu 42 mörk í fyrsta sinn á HM
AFP
Skytta Jure Dolenec skorar fyrir Slóveníu í sigrinum á Angólamönnum.
Slóvenía
» Slóvenar unnu Angóla 42:25
í fyrsta leiknum á HM. Gasper
Marguc og Borut Mackovsek
skoruðu mest, báðir 8 mörk úr
9 skotum.
» Síðast mættust Ísland og
Slóvenía á alþjóðlegu móti í Ár-
ósum í janúar 2015 og þá varð
jafntefli, 32:32.
» Af 18 viðureignum þjóðanna
til þessa hefur Ísland unnið 9
og Slóvenía 5 en 4 hafa endað
með jafntefli.
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017
VIÐHORF Á LAUGARDEGI
Þetta er helgi framtíðar-
innar. Í dag og á morgun sjáum
við okkar efnilegu handbolta-
stráka glíma við Slóveníu og Tún-
is á heimsmeistaramótinu í hand-
knattleik sem nú stendur yfir í
Frakklandi.
Eldsnemma í fyrramálið er
komið að fótboltastrákunum sem
mæta Sílebúum í úrslitaleik á
Kínamótinu austur í Nanning þar
sem flautað er til leiks um hálf-
átta að íslenskum tíma.
Þessi tvö íslensku landslið
sem þarna eru á ferðinni eiga
margt sameiginlegt.
Handboltalandsliðið sem
Geir Sveinsson er að móta, nán-
ast frá grunni, er vissulega á
stærsta sviðinu, sjálfu heims-
meistaramótinu, en ólíkt því sem
oft hefur verið undanfarin ár er
eina krafan héðan að heiman sú
að þeir standi sig vel og komist
vonandi í 16 liða úrslitin.
Á þessu móti verður reynslan
það dýrmætasta sem leikmenn
Íslands taka með sér í farangr-
inum þegar þeir yfirgefa Frakk-
land, hvenær sem það verður.
Fótboltalandsliðið er hins
vegar á svokölluðu „æfingamóti“
sem þó er varla hægt að nefna
slíku nafni þegar um 60 þúsund
manns mæta á leikina eins og
raunin er í Nanning.
Þar, líkt og hjá handbolt-
anum, eru aðeins fáir af fasta-
mönnum síðustu ára með í för en
þeim mun fleiri af þeim sem
banka á dyrnar. Þó nokkrir sem
koma beint úr 21-árs landsliðinu
og eru jafnvel gjaldgengir þar
enn.
Auðvitað væntum við ís-
lenskra sigra eins og alltaf en á
báðum vígstöðvum er mesta
spennan fólgin í því að sjá efni-
lega menn taka næsta skref.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
KYNSLÓÐSKIPTI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Íslenska landsliðið í handknattleik
karla hóf þátttöku á heimsmeistara-
móti í nítjánda sinn í fyrrakvöld.
Þátttakan verður afar lærdómsrík
fyrir leikmenn liðsins og þjálfarann,
Geir Sveinsson. Hluti leikmanna-
hópsins er að taka þátt í stórmóti A-
landsliða í fyrsta sinn. Aðrir eru í
stærra og ábyrgðarmeira hlutverki
en áður þótt þeir hafi fengið nasa-
þefinn og rúmlega það af þátttöku á
stórmóti.
Geir fékk í arf þegar hann tók við
starfinu í byrjun vors að stýra
endurnýjun á landsliðshópnum. Áð-
ur en hann tók við höfðu nokkrir
reynslumenn ákveðið að rifa seglin.
Má þar nefna Sverre Andreas Jak-
obsson og Þóri Ólafsson. Þeir Alex-
ander Petersson, Róbert Gunnars-
son og Snorri Steinn Guðjónsson
fylgdu í kjölfarið í haust og í vetur.
Skömmu áður en HM hófst í Frakk-
landi brást endanlega sú von að Ar-
on Pálmarsson gæti tekið þátt í
mótinu vegna meiðsla sem hafa
hrjáð hann síðustu mánuði. Vignir
Svavarsson, sem staðið hefur vakt-
ina á nær öllum stórmótum lands-
liðsins í meira en áratug, veiktist
skömmu fyrir mót og hrökk úr
skaptinu.
Þar af leiðandi hafa Geir og að-
stoðarmenn hans haft um margt að
hugsa á undanförnum, dögum, vik-
um og mánuðum. Þessu til viðbótar
virðist ljóst að frekari endurnýjun á
landsliðshópnum er fram undan.
Engin fórn
Á þessum sama vettvangi 19. nóv-
ember var skorað á landsliðsþjálf-
arann að stokka upp spilin og mæta
óhræddur til leiks með mikið breytt
lið. Þar var spurt hvort ekki væri
rétt að „fórna“ HM fyrir uppbygg-
ingu. Stilla upp liði ungra leikmenn á
mótinu og láta þá stíga sín fyrstu
skref í undirbúningsleikjum HM og
á HM-mótinu sjálfu, láta menn
stinga sér til sunds og sjá hvernig
þeim gengi að skila sér að bakkanum
hinum megin.
Fórnin er hins vegar kannski eng-
in þegar á hólminn verður komið því
hún skilar sér í reynslumeira og
betra landsliði þegar frá dregur.
Breytingar eru óhjákvæmilegar og
lokakeppni stórmóts er kjörinn vett-
vangur til þess að gera breytingar
fremur en leikir í undankeppni stór-
móts eins og bíða íslenska landsliðs-
ins í maí og í júní.
Efniviðurinn er fyrir hendi
Möguleikinn til endurnýjunar er
fyrir hendi. Geir gekk eins langt og
hann lagði í að þessu sinni en hefði
hugsanlega getað tekið stærra skref
ef undankeppni HM 21 árs landsliða
hefði ekki verið skipulögð nánast of-
an í undirbúning eldri landsliða fyrir
HM í Frakklandi.
Efniviðurinn er svo sannarlega
fyrir hendi. Birkir Benediktsson,
Hákon Daði Styrmisson, Egill
Magnússon, Ýmir Örn Gíslason,
Aron Dagur Pálsson, Óðinn Þór
Ríkharðsson og Elvar Örn Jóns-
son. Fleiri mætti telja upp þótt lát-
ið verði staðar hér.
Allir þessir piltar eru á aldur við
Arnar Frey Arnarsson, Janus
Daða Smárason og Ómar Inga
Magnússon, sem hafa komið fersk-
ir inn í íslenska landsliðið á síðustu
dögum og fá tækifæri til þess að
hlaupa af sér hornin á HM í
Frakklandi.
Haukurinn úr Hafnarfirði
Í fyrrgreindri grein minni 19.
nóvember var bent á að Adam
Haukur Baumruk, leikmaður
Hauka, ætti heima í A-landsliðinu.
Kostir hans eru ótvíræðir; hávaxinn,
sterkur, skytta góð, fyrirmyndar
varnarmaður. Einhverra hluta
vegna var Adam Haukur ekki inni í
28 manna hópi Geirs fyrir HM. Þar
af leiðandi er ekki möguleiki á að
kalla hann inn í hópinn nú þegar
aukinn sóknarþunga vantar. Það má
ekki dragast lengur en fram að leikj-
unum í undankeppni EM í maí að
kalla Adam Hauk inn í íslenska
landsliðið.
Geir landsliðsþjálfari er öfunds-
verður af hlutverki sínu um þessar
mundir. Hann hefur tækifæri til
þess að móta nýtt landslið úr þeim
mikla efniviði sem fyrir hendi er í ís-
lenskum handknattleik sem m.a. lýs-
ir sér í frábærum árangri U18, 19, 20
og 21 árs landsliða karla, á síðustu
tveimur árum. Geir getur byggt upp
aðra „gullkynslóð“ ef leikmenn sjálf-
ir, félagsþjálfarar þeirra og lands-
liðsþjálfarinn halda rétt á spilunum
næstu misseri og ár.
Mikið hefur talað síðustu daga um
að sjaldan hafi verið gerðar eins litl-
ar væntingar til íslenska landsliðsins
á heimsmeistaramótið. Það kann að
vera. Ég hef hins vegar miklar
væntingar til landsliðsmanna, og þá
fyrst og fremst til þess hluta lands-
liðshópsins sem tilheyrir næstu kyn-
slóð, um að þeir nýti það tækifæri
sem þeir hafa fengið. Sannið að
tækifærið sé verðskuldað.
Nægur efniviður
er fyrir hendi
AFP
Efnilegir Janus Daði Smárason og Arnar Freyr Arnarsson, nýliðarnir í ís-
lenska landsliðinu, á góðri stundu í leiknum gegn Spánverjum ásamt einum
af reyndustu mönnum liðsins, Björgvini Páli Gústavssyni