Skátablaðið Faxi - 01.12.1994, Qupperneq 7
1 .Fullt nafn: Kjartan Ólafsson
2 .Hvernig stóð á því að þú
fórst í skátana?
Mamma sagði mér að
gera það.
3 .Gætir þú sagt frá starfsferli
þínum innan
skátahreyfmgarinnar?
Ég byrjaði tiltölulega ungur í
skátaflokknum “Tuðran” og var
það mjög gaman þó að ég hafi
ekki verið sammála mömmu i
fyrstu að fara í skátana.
4.Hvað læriðu í skátunum?
Að binda hnúta, syngja
skátasöngva og læra að meta
umhverfið eins og það kemur
fyrir, því að vistkerfið eins
hreint og heilnæmt og það er, er
ekkert sjálfsagt.
D .Hvað finnst þér
eftirminnilegast í skátunum?
Þegar allir hópast saman til að
njóta félagsskapsins og syngja.
Ó.Eitthvað að lokum? Ég vona
að allir sjái sér fært um að koma
í skátahreyfinguna, því að hún
er mjög heilbrigð og góð fyrir
sálina.
1 .Fullt nafn: Örvar Ari
Bjarnason
2 .Hvernig stóð á því að þú
fórst í skátana? Því að mig
langaði að prófa eitthvað nýtt
og fara í einhvern félagsskap,
þvi að ég hafði ekki mikinn
félagskap fyrir.
D . Gætirðu sagt frá starfsferli
þínum innan
skátahreyfingarinnar? Engu
sérstöku, mér er ekki treystandi
fyrir neinu innan
flokkshreyfingarinnar.
4. hvað lærirðu í skátunum?
Margt gagnleg,skemmtilegt og
sniðugt.
5 . hvað finnst þér
eftirminnilegast í skátunum?
Þegar flokkurinn villtist uppi á
hrauni í “hæki”.
Ó.Eitthvað að lokum? Þetta er
mjög skemmtilegt starf og hvet
ég alla til að fara í skátana.
1 . Fullt nafn: Halldór Örn
Engilbertsson
2.Hvernig stóð á því að þú
fórst í skátana? Því að ég ber
virðingu fyrir hjarthlýunni sem
ríkir innan þessarar hreyfmgar.
3 . Gætirðu sagt frá starfsferli
þínum innan
skátahreyfingarinnar? Ferill
minn sem skáti hefúr blómstrað
mikið í gegnum tíðina, en ekki
alltaf verið dans á rósum
4. Hvað lærðirðu í skátunum?
Að tjá ást mína á umhverfinu.
5. hvað finnst þér
eftirminnilegast í skátunum?
22.feb. þegar allir skátar safnast
saman og heiðra minningu Baden
Powells.
Ó.Eitthvað að lokum? Látiðljós
ykkar skína á skátana mína.
Ástþór og Ágúst tóku saman.