Skátablaðið Faxi - 01.12.2001, Blaðsíða 2

Skátablaðið Faxi - 01.12.2001, Blaðsíða 2
Góðverk á dag kemur skapinu í lag Það eru að koma jól, hátíð friðar og ljóss. Mörgum dettur í hug myndin af Maríu og Jósef í fjárhúsinu með ungabarnið í jötu. I kring standa vit- ringarnir og hirðingjamir ásamt skep- nunum sem í fjárhúsinu voru. Það ríkir ró og friður yfir þeim, allir em sáttir við hag mála. Engin furða að þetta er ein vinsælasta mynd jólanna - fyrir utan jólasveina. Og hver hlakkar ekki til jólanna? Allir fá gjafir, góðan mat og öllum líður vel í faðmi ástvina sinna. Við lýsum upp skammdegið með jólaljósum, tónar jólasöngvanna hljóma og spenningurinn er mikill. Auðvitað koma jólin til okkar með ýmsu móti. Sumir em glaðir og heil- brigðir, aðrir sjúkir og sorgmæddir. Og það em ekki allir sem geta notið jólanna á þann hátt sem þeir kjósa. Manni verður hugsað til stríðshrjáðra landa, til þeirra sem hungraðir eru, heimilislausir og skortir brýnustu nauðsynjar, já... og þeirra sem velja að njóta ekki jólanna af sínum persónulegu ástæðum. Hátíðin bendir á andstæður, það halda ekki allir gleðileg jól. En jólin em hátíð Frelsarans, og flestir reyna að gera hana eins hátíðlega og hægt er, hver á sinn hátt. A þessum tímum er eins og að góðverk dagsins verði meira virði. Það er stærri þörf fyrir að láta alla líða sem best. Hér er komið kjörið tækifæri fyrir skátann að gera gott úr sínu góðverki. Og benda má á að það þarf oft ekki mikið til að gera daginn enn betri, lítil góðverk em jafn nauðsynleg og þau sem stærri eru. Sif Pálsdóttir Osfeum ollum bæjarbuum gleðilegra fóla tneð þökk fyrir viðskiptin á árinu VINNSLUSTÓÐIN h/f «SPARISJÓÐUR VESTMANNAEYJA ■ Útgefiö í desember 2001 Utgefandi: Skátafélagið Faxi Ábyrgðarmaður: Marinó Sigursteinsson Ritstjórar: Sigurieif Kristmannsdóttir og Rósa Jónsdóttir Auglýsingar: Sigríður Guðmundsdóttir Ritnefnd: Dróttskátasveitin Weztmenn Prófarkalestur: Sigurleif Kristmanns- dóttir og Rósa Jónsdóttir Prentvinna: Prentsm. Eyrún ehf. ÍSLANDSBANKI o SKÁTABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.