Veðráttan - 01.12.1998, Page 1
ISSN 0258-3836
VEÐRÁTTAN 1998
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFU ÍSLANDS
Desember
Tíðarfarið í mánuðinum var talið umhleypingasamt einkum sunnan og austan til. Fremur hlýtt og snjólétt
var, en vindasamt.
f byrjun mánaðarins var suðvestanstrekkingur á landinu með skúrum vestanlands. Lægð var á vestanverðu
Grænlandshafi. Síðdegis þ. 2 þokaðist lægðin austur yfir land með snarpri norðanátt um tíma. Kólnaði þá og
létti til sunnanlands en éljagangur var fyrir norðan. Næstu tvo daga var hæðarhryggur að þokast austur yfir
iand og var víðast hvar léttskýjað.
Dagana 5.-10. var suðaustlæg átt og hlýtt um allt land. Víðáttumikið hægfara lágþrýstisvæði var suður í
hafi og fór úrkomusvæði norðaustur yfir landið með hvassviðri og rigningu í flestum landshlutum aðfaranótt
þ. 6. og aftur þ. 7. Rigndi í öllum landshlutum og var mjög hlýtt um allt land. Þ. 8. var sunnanstrekkingur og
vfða bjartviðri norðan til á landinu en skúrir eða súld sunnantil. Að morgni þ. 9. hvessti af suðausturi og
úrkomusvæði þokaðist inn á land. Rigndi um allt land en síðan snerist til sunnanáttar með skúrum og kólnaði.
Að kvöldi þ. 10. þokaðist lægðin norðaustur yfir landið og var norðaustanátt á norðvestanverðu landinu um
tíma en í öðrum landshlutum var suðvestanátt með skúrum og sfðar slydduéljum.
Næstu daga var austan- og norðaustanátt á landinu. Lægðir voru á hreyftngu norðausmr fyrir suðaustan
land. Þ. 11. dýpkaði kröpp lægð suður í hafi og hvessti mjög og fór að rigna þegar leið á kvöldið. Úrkomusvæðið
þokaðist norðvestur yfir landið. f kjölfarið fylgdi hvöss norðanátt og snjókoma og skafrenningur um allt
norðanvert landið en stytti upp sunnantil. Heldur dró úr veðurhæðinni aðfaranótt þ. 13. en um kvöldið gekk
í hvassa austanátt um leið og dýpkandi lægð nálgaðist landið úr suðri. Mjög slæmt veður var syðst á landinu
næstu nótt og snjókoma og skafrenningur um allt land fram eftir degi en þá snerist til norðlægrar áttar og dró
úr veðurhæð. É1 voru víða um land, síst þó suðvestanlands. Að morgni þess þ. 16. gekk enn á ný í hvassa
austanátt þegar djúp lægð nálgaðist landið. Hvassviðri og snjókoma var um allt land næsta sólarhring og dró
ekki úr fyrr en aðfaranótt þess 18., þegar lægði og stytti upp að mestu og kólnaði mjög. Kaldast að tiltölu var
í mánuðinum þ.19.
Að morgni þ. 20 nálgaðist djúp og vfðáttumikil lægð landið úr suðvestri með vaxandi suðaustanátt. Snjóaði
og rigndi síðan í öllum landshlutum næstu nótt en um morguninn snerist til sunnanáttar og dró úr veðurhæð.
Létti að mestu til á landinu um tíma en þ. 22. nálgaðist landið lægð úr suðri og var stíf austanátt og rigning eða
slydda í flestum landshlutum fram eftir nóttu. Á Vestfjörðum og annesjum fyrir norðan var stíf norðaustanátt
og slydda í kjölfarið en mun hægari vindur og smá skúrir og síðar él annars staðar. Að morgni þess 24. var
vaxandi suðaustanátt um vestanvert landið. Lægð nálgaðist landið úr suðvestri og var snjókoma og slydda um
allt land þegar leið á daginn. Hlýnaði um allt land og rigndi víða. Næsta dag dró úr veðurhæðinni nema á
Vestfjörðum þar var áfram stíf norðaustanátt. Snjókoma og slydda var á Norðurlandi en breytileg átt og
slydduél í öðrum landshlutum.
Hæglætis veður var um allt land þ. 27. en síðustu daga mánaðarins var austan- og norðaustanátt.
Lágþrýstisvæði var suður í hafi og hæð fyrir norðan land. Smáél voru á víð og dreif um landið og strekkingsvindur
við suðurströndina. Aðfaranótt þ. 30. hvessti um allt land og úrkomusvæði þokaðist norður yftr landið með
snjókomu og síðar rigningu víðast hvar. Heldur dró úr veðurhæðinni þ. 31. og létti allvíða til þegar leið á
daginn, nema við norðausturströndina, þar var súld og slydda þegar nýja árið gekk í garð.
Loftvægi var 7.4 mb undir meðallagi, frá 6.0 mb undir á Rfh að 9.0 mb undir í Vm. Hæst stóð loftvog
1036.6 mb í Bol þ. 3. kl 9, en lægst 955.5 mb í Vm þ. 14. kl 6.
(89)