Veðráttan - 01.01.2004, Síða 1
ISSN 0258-3836
VEÐRÁTTAN 2004
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFU ÍSLANDS
Janúar
Tíðarfar var rysjótt með rikjandi norðan- og norðaustanáttum. Nokkarar djúpar lægðir komu upp að strönd
landsins með tilheyrandi stonnum. Mikið fannfergi fylgdi norðanáttunum um Iandið norðanvert um miðjan
mánuðinn og spilltist færð víða, einkum þó norðantil á landinu. Hiti var í meðallagi og einnig úrkoma, en þó var
sums staðar tvöföld meðalúrkoma á Norðurlandi.
Þann 1. var norðvestanátt með éljum austantil á landinu, en annars hægari breytileg átt og bjart, en 2. nálgaðist
víðáttumikil lægð úr suðvestri með austanstormi sunnantil. Viðhélt þessi lægð suðaustlægri átt með vætu og
sæmilegum hlýindum um landið vestanvert 3., en hæglætisveðri fyrir norðan og austan. Suðaustlægari og skúrir
eða slydduél vestantil á landinu 4-6.
Þ.7 nálgaðist djúp og mikil lægð sunnan úr hafí og náði vindhraði á Stórhöða 39.6 m/s, en síðdegis var
frostlaust um allt land. Þ.8 haföi lægt að mestu, en norðaustan stormur og snjókoma var á Vestfjörðum. Þ.9. kom
lægð úr suðaustri upp að suðausturströndinni og fór síðan norður með Austurlandi. Snerist þá til norðaustanáttar
með rigningu austantil, en annars snjókomu eða éljum. Síðdegis lægði og 10. var hæglætisveður og stöku skúrir
eða él í flestum landshlutum.
Dagana 11. til 16. var hvöss norðan- og norðaustanátt með rigningu eða slyddu austast á landinu, en snjókoma
fyrir Norður- og Norðvesturlandi. Því olli lægð milli Islands og Noregs annars vegar og hins vegar vaxandi hæð
yfír Gænlandi. Þ. 14. var frost um nánast allt land og talsverð ofankoma fyrir norðan. Færð spillist og samgöngur
fóru úr skorðum sem gerðu fólki erfitt að komast leiðar sinnar. Seint þ. 15. fór þó að lægja og draga úr ofankomu.
Þ. 16. kom lægð úr suðvestri með vaxandi austanátt og snjókomu um landið sunnanvert. Síðan fór hún til
austurs fyrir sunnan land og upp úr því fór aftur að hvessa og snjóa fyrir norðan, en létti til syðra.
Þ. 18. var vindur víðast hvar orðinn hægur, en vaxandi austanátt sunnantil síðdegis. Austan stormur var við
suðurströndina um nóttina með snjókomu sunnantil, en úrkomuminna i öðrum landshlutum. Hægari austanáttir
fylgdu síðan i kjölfarið næstu tvo daga með þíðu og fremur vætusömu veðri syðra, en frosti og hæglætisveðri fyrir
norðan.
Þ. 20. nálgaðist síðan víðáttumikið lægðakerfi úr suðvestri og ýtti hingað suðaustanátt með hlýju veðri og
kom það upp að suðvesturströndinni um morguninn. Dálítil snjókoma var á undan skilunum, en seint um kvöldið
var orðið frostlaust víðast hvar á Iáglendi. Lægðimar fóru síðan milli Islands og Grænlands þ.21. og 22., þá voru
sunnan- og suðvestanáttir með mildu veðri, en skúrum um landið vestanvert.
Seint að kvöldi 22. kom næsta lægð upp að suðurströndinni með hvassviðri og rigningu, en að morgni 23.
mældist lægsti loftþrýstingur í þessum mánuði. Fór sú lægð yfír landið og gekk þá í hvassa norðaustanátt með
snjókomu á Vestfjöröum, en hæga breytileg átt var í öðrum landshlutum. Fram til 25. var stif norðan og norðvestanátt
með snjókomu norðantil, en björtu veðri syðra. Smám saman lægði og dró úr ofankomu vestast þ. 24. Aðfaranótt
26. byggðist upp hæð yfir landinu, en síðdegis myndaðist lægð á Grænlandssundi sem olli hvassri vestan- og
síðar norðvestanátt, einkum þó á Vestfjörðum. Þ. 27. var lægðin komin langt norðaustur af landinu, en hæðarhryggur
var yfír vestanverðu landinu, svo að norðvestanátt var enn talsvert stíf allra austast. Þannig var veðrið h'ka 28., en
þó heldur hægari austantil. Þ. 29. var vaxandi lægðardrag suðaustur af Homafírði sem fór austsuðaustur og olli
vaxandi norðan- og norðaustanátt með éljagangi og skafrenningi um landið norðanvert, en víða var léttskýjað
syðra. Síðan dró úr vindi og éljagangi um miðjan dag 30., en dálítil lægð skammt norðaustur af landinu náði að
koma skilunum inn á land á annesjum norðaustanlands 31. með talsverðri snjókomu, en það stóð stutt yfir.
Loftvægi var0.8 hPa undirmeðallagi, frá2,3 hPaundirmeðallagi á Kbkl til 0,7 hPa yfir meðalagi í Sth. Hæst
stóð loftvog á Ak þ. 25. k!.22, 1031.0 hPa og lægst á Eb þ. 23. kl.08, 963.0 hPa.
Vindáttir: Norðan og norðaustan áttir vom mjög algengar þennan mánuðinn, en austanátt og suðlægu áttimar
voru fátíðari.
Vindhraði náði 12 vindstigum í Vm (39.6 m/s) þ. 7 og á Blfl (32.9 m/s) og Æð (34.5 m/s) þ. 13.
(1)