Víkurfréttir


Víkurfréttir - 25.08.2005, Page 6

Víkurfréttir - 25.08.2005, Page 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Útgefandi: Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Ritstjóri og ábm.: Fréttastjóri: Blaðamenn: Auglýsingadeild: Útlit, umbrot og prentvistun: Hönnunardeild Víkurfrétta: Prentvinnsla: Dagleg stafræn útgáfa: Skrifstofa Víkurfrétta: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, Sími 421 0000 Fax 421 0020 Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is, postur@vf.is Þorgils Jónsson, sími 421 0003, gilsi@vf.is, sport@vf.is Margrét Engilberts, sími 421 0004, margret@vf.is Atli Már Gylfason, sími 421 0014, atli@vf.is Jófríður Leifsdóttir, sími 421 0008, jofridur@vf.is Jón Björn Ólafsson, sími 421 0001, jbo@vf.is Víkurfréttir ehf. Kolbrún Jóna Pétursdóttir, s: 421 0005, kolla@vf.is Anita Hafdís Björnsdóttir, s: 421 0013, anita@vf.is Þorsteinn Kristinsson, s: 421 0006, steini@vf.is Prentsmiðjan Oddi hf. www.vf.is og www.vikurfrettir.is Guðrún Karitas Garðarsdóttir, sími 421 0009, gudrun@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 1010, aldis@vf.is Afgreiðsla Víkurfrétta er opin alla virka daga frá kl. 09-12 og 13-17. Athugið að föstudaga er opið til kl. 15 Með því að hringja í síma 421 0000 er hægt að velja beint samband við auglýsingadeild, fréttadeild og hönnunardeild. Fréttavakt allan sólarhringinn er í síma 898 2222 RITSTJÓRN VÍKURFRÉTTA Kallinn á kassanum ��������� �������� �������������� �������������� ��������������� ����������� ��������������������������������������� � �������� �������������������������������������������������� ����������������������������������� ����� ��� ������ ������������������������������������������������ TÖLVUPÓSTI VAR GAUKAÐ að Kallinum fyrir nokkrum dögum þess efnis að vert væri fyrir bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ að semja við framleiðendur Flags of our Fathers um það að hluti sviðsmyndar kvikmyndarinnar í Sandvík fái að standa áfram að tökum loknum. Suðurnesjamenn eiga að nýta sér tökustaðinn til að draga þangað ferðamenn og sýna þeim þær aðstæður sem hermenn bjuggu við í síðari heimsstyrjöldinni. Þó svo langur vegur sé milli Sandvíkur og Iwo Jima, þá eru aðstæður þar áþekkar. Staðurinn er ákjósanlegur í hefðbundnum rúnti ferðamanna í „Bláum demanti“ eða hvaða nafni menn vilja kalla áhugaverða ferðamannastaði á Suðurnesjum. Svæðið á svo að skreyta með upplýsinga- og myndaskiltum sem sýndu myndir frá töku myndarinnar Flags of our Fathers. SKÓLARNIR ERU BYRJAÐIR. Kallinn fór með barnabarn sitt í skólann á þriðjudagsmorgnuninn. Vert er að kvetja foreldra og aðra sem aka börnum til skóla að fara varlega þegar litlu krílin eru úti í umferðinni en mörg eru þau þar í fyrsta skipti. Sýnum aðgát þar sem börnin eru á ferðinn. LJÓSANÓTT ER FRAMUNDAN og mikið hlakkar Kallinn til. Án efa verður hátíðin nú jafngóð menningarveisla og fyrri hátíðir. Mest tilhlökkun er þó að fara niður í bæ á laugardagskvöldinu til að fylgjast með Ljósalaginu og sjá flugeldasýninguna. Kallinn var búinn að sjá tvö Ljósalög í Morgunsjónvarpinu þegar þetta er skrifað. Ekki ætlar hann að dæma þau hér en í næstu viku má eiga von á því að Kallinn upplýsi hvaða lagi hann mun greiða atkvæði. NÓG Í BILI. Kallinn minnir á póstinn sinn, kallinn@vf.is Sviðsmynd á safn?

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.