Víkurfréttir - 09.11.2006, Blaðsíða 21
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 9. NÓVEMBER 2006 21STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
í 3.- 4. sæti
Björk Guðjónsdóttir
www.bjorkgudjons.com
Björk Guðjónsdóttir er heilsteyptur einstaklingur sem við höfum ítrekað treyst best til forsætis í
Reykjanesbæ. Þar skilar hún starfi sínu aðdáunarlega vel. Hún er hugmyndarík, en yfirveguð í
ákvörðunum og fylgin sér. Henni er treyst á vettvangi sjálfstæðismanna um allt land til að sitja í
miðstjórn og á vettvangi islenskra sveitarstjórnarmanna til setu í stjórn sambands íslenskra sveitar-
félaga. Taki Björk sæti á þingi fyrir Suðurkjördæmi veit ég að hún vinnur jafn vel fyrir allt kjördæmið
og hún hefur gert hér í Reykjanesbæ, í miðstjórn og í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Ég tel
mjög brýnt fyrir íbúa í Suðurkjördæmi að Björk hljóti sterka kosningu í prófkjörinu framundan.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar
Eftir gott samstarf í bæjarstjórn Reykjanesbæjar sl. tvo kjörtímabil get ég heilshugar stutt Björk
Guðjónsdóttur sem verðugan fulltrúa í forystusveit sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi. Af þeirri
reynslu get ég fullyrt að Björk á gott með að vinna með mismunandi einstaklingum til að mynda góða
liðsheild eins og nauðsynlegt er í jafn stóru kjördæmi og Suðurkjördæmi. Með Björk í öruggu sæti
erum við betur í stakk búin að takast á við verkefnin framundan.
Steinþór Jónsson, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
í Suðurkjördæmi
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Bjork halfsia Vikurfrettir.ai 08/11/06 13:28:22
BLEIKJURNAR HJÁ KFUM & K MEÐ SKEMMTILEGT VERKEFNI FYRIR UNGT FÓLK:
Herrakvöld GS verður haldið
föstudaginn 17. nóvember