Dagsbrún - 01.09.1895, Side 15
— 143 —
andi á jörðunni, liljóðandi og veinandi, og biðjandi guð á himnum,
að líkna sér og frelsa sig frá þessum ósköpum, sem þeir vita að fyrir
sér liggi, mæðurnar sjá þegar í anda börnin sín slitin í sundur á
göddum járnherfanna, því að þarna stendur heil fylking af uxum,
sem draga járnherfl, er eiga að ganga yflr fólkið, yflr mennina, yflr
konurnar, yflr börnin. Ég vil ekki fara fleirum orðum um þetta,
það er svo voðalegt. En guð heyrir ekki bænir þeirra, því að liann
heflr innblásið Davíð, að hann skyldi fara þannig með þá, eins og
liann innblés lionum orðin í 109. og 69. sálmi.
Þetta er nú hinn guðdómlegi innblástur, sem klerkarnir eru að
verja, sem þeir eru að innræta söfnuðum sínum. Þetta er hin
fylsta hugmynd þeirra um réttlæti og kærleika ! Á þennan hátt
eigurn vér að búa saman liver við a.nnan ! Þessum hugsunarhætti
eru safnaðarmenn þeirra lútersku lderkanna að halda við; þeir
styrkja liann með fjárframlögum, styrkja hann með því, að standa í
söfnuði þeirra, styrkja hann með því, að láta þá f'ræða börnin sín
upp í þessari svívirðilegu guðlöstun.
------------------
KAFLAR ÚR BRÉFUM.
(Til ritstj. eða ráðsmanns Dbr.)
[Vér birtum í síðasta blaði nokkra bréfkafla um álit manna víðsvegar
um Dagsbkún og stefnu hennar. Það er áform vort að halda því áfram
í hverju blaði, þegar eitthvað þess konar er fyrir hendi. Kaupendur gerðu
oss greiða með því, að senda oss í fáum orðum álit sitt um blaðið, með þeim
útásetningum, er þeim þykir við eiga. Vér birtum ekki nöfn bréfritanna.]
Spanish Fork, 30. Sept.
....Marga fýsir að sjá og lesa Dagsbrún, og margir hafa látið í Ijósi
að sér líkaði hún vel, og dreg ég þá ályktun af því, að kaupendur smá-
f jölgi hér eins og annarstaðar.Frágangurinn á Dagsbrún líkar mér
vel....Samanburðurinn á ættartölu Krists, eftir þá Matth. og Lúkas,
er hreina afbragð.........
West Selkirk, 10. Okt.
....Ágætlega líkar mér Dagsbrún, einkum síðan þið fóruð að gefa
hana út þar efra....Skyldi ekki Garða-prestinum volgna undir uggum.
ef liann les athugasemdirnar um ruglið hans í Aldamótum ?.Eða þá
ættartalan ! Það er skýrt og gott dæmi upp á guðlegan innblástur og
samkvæmni biblíunnar............
Oimli, Man., 12. Okt.
....Églés ekkert blað með eins mikilli ánægju og Dagsbrún...
Ég skil ekki í öðru, en að húii lyfti orþódoxu-trúardulunni frá augum